Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1984, Side 42
42
DV. MÁNUDAGUR 29. OKTOBER1984.
Rakarastofan Klapparstíg
Sími 12725 _____
Hárgreiðslustofan Klapparstíg
vtsa
Tímapantanir
13010
Sambýli fjölfatlaðra
á Akranesi
Svæðisstjórn Vesturlands auglýsir laus til umsóknar 2 vist-
rými á sambýli f jölfatlaöra á Akranesi.
Skriflegar umsóknir berist Svæðisstjórn Vesturlands, Skúla-
götu 13,310 Borgarnesi, fyrir 20. nóvember nk.
Frekari uppljsingar veitir Eyjólfur í'innsson í síina 93-7480.
Hágæða vesturþýskar loftræstiviftur frá
MAIC0
/ böð, e/dhús o. f/. í mik/u úrva/i.
Afköst: 95 m 3/k 15 vatta.
Heildsala — smásala.
H.G. Guðjónsson,
Stigahlíð 45-47,
símar 82088 og 37637.
I
Sérhœfum okkur í
eftirtökum afgömlum
myndutn
Vönduö mnna
LÍOSMYNDASTOFA REYKIAVÍKIJR
S. HVERFISGOTU 105,2. HÆÐ, RÉTT VIÐ HLEMM. SÍMI621166.
r
Asgeir Hvítaskáld skrifar um siglingar:
4 seglbretti yfir
A tlantshafið
Þjáningar í 37 daga hafa gert
franska flugmanninn Cristian
Marty að Charles Lindbergh
seglbrettanna. Hann sigldi, borðaði
og svaf á seglbretti sínu alla leiöina
yfir Atlantshafið. Ferðin hófst í
Dakar á vesturströnd Afríku og
endaöi í Frönsku Guyana í Suöur-
Ameríku. Er hann loks kom að landi
gat hann ekki staðið í fætuma. Hér
fer á eftir frásögnin, þýdd og endur-
sögð úr Bádnyt.
Við fyrstu hugsun finnst manni að
þessi maður hljóti að hafa verið
brjálaöur. En hann undirbjó ferðina í
2 ár. Kynnti sér rækilega hvemig
fæðu hann þyrfti að neyta til að þola
erfiðleikana á brettinu í meira en
mánuö. Hann lá tímunum saman í
ljósalömpum til að styrkja húðina
gegn sólarljósinu, kleif kletta og
hljóp maraþon. Hann þjálfaði sig í að
hanga í trjám þar til hann gat hangið
eins og api i hálftíma.
Alla leiöina fylgdi honum 12 metra
langur seglbátur með 12 manns
innanborðs. Frá skútunni fékk hann
mat og uppblásinn gúmmibát til að
setja utan um brettið á meðan hann
svaf svo þetta var eins og stór kanó.
En hann svaf í vatnsþéttum svefn-
poka. Hann fékk ekki að fara um
borð og sofa. A daginn var skútan í
sjónmáli en á nætumar notuðu þeir
labb-rabbtæki til að vera í sambandi.
En samt sem áður var þetta ósvikin
sjálfspyntingar-ferð.
I stormi var hann einmana og
smár. Þegar hann svaf, liggjandi
með eyrað á brettinu, virkaði það
eins og hátalari úr djúpi hafsins. Og í
vondum veðrum var ekki hægt aö
sofa. Við hverja öldu, sem brotnaði
undir brettinu, bjóst hann við því síð-
asta. Eina nóttina valt seglbrettið
með gúmmiblöðrunum og öllu og
hann lenti í sjónum. Sterkur
straumur bar hann frá brettinu,
sama hvemig hann synti. Eftir 8
mínútur gafst hann upp á að synda
og bjó sig undir dauðann, orðinn dof-
inn af kulda. Skipið var í 300 metra
fjarlægð einhvers staðar í kolsvörtu
myrkrinu. Osjálfrátt byrjaði hann að
hrópa þótt það væri þýðingarlaust.
En af tilviljun heyrði einhver á bátn-
um í honum.
Hánn sigldi aðeins 8 tima á dag.
Þrátt fyrir erfiðleikana lifði hann
samt fallega daga. Stundum var
hann einn í risastórum öldudal,
brunaði niður á mestu mögulegu
ferð. Og þegar rigndi mikið
blandaðist regnvatnið ekki sjónum,
var sem filma ofan á og þá var að
sigla eins og að fljúga.
Alla leiðina yfir Atlantshafiö sigldi
hann á sama brettinu, eins og snigill
mjakaðist hann áfram. 900 tímar
voru virkir siglingatímar.
Þegar hann kom í land gat hann
ekki staðið á fótunum, fæturnir vora
allir i blöðrum undan sjónum. Hann
fékk sitt fyrsta sturtubaö í langan
tíma og þaö var kampavín. Hann var
borinn af fagnandi mannlýð til
borgarinnar, brúnn eins og kaffipoki.
Hann sagði:
,Æg hef engan áhuga á siglingum
lengur, ekki einu sinni á stórum segl-
bát með öllum þægindum, bara
engar fleiri siglingaferðir.”
Hann sagði að þetta ævintýri hefði
breytt sér; nú vildi hann bara lifa
einföldu lifi meö konu sinni og böm-
um. Hann vildi ekki láta taka mikiö
af myndum af sér, fannst þetta
ekkert til að fá hrós fyrir.
, jEg er fyrsti maðurinn sem siglir
á seglbretti yfir Atlantshafiö, brjál-
æði, sagöi þessi einkennilegi snigill
aölokum.
Margrét S. Frimannsdóttir, Alþýðu-
bandalagi.
Kristófer Már Kristinsson, Bandalagi
jafnaðarmanna.
Jóhann Ársælsson, Alþýðubandalagi.
DV-myndir: Bj.Bj.
Þrír varaþingmenn
Þrír varaþingmenn tóku sæti á Al-
þingi er 107. löggjafarþing Islendinga
kom saman 10. október sl. Lárus Jóns-
son hvarf af þingi þar sem hann hefur
sest i sæti bankastjóra Otvegsbanka
Islands. Sæti Lámsar á þingi tók Björn
Dagbjartsson. Þeir varaþingmenn
sem settust nú á þing um skemmri eða
lengri tíma eru Jóhann Arsælsson,
Margrét S. Frímannsdóttir og
Kristófer Már Kristinsson.
Jóhann Ársælsson, skipasmiður frá
Akranesi, er varamaður Skúla
Alexanderssonar og hefur Jóhann ekki
setið áður á þingi. Margrét S. Frí-
mannsdóttir, oddviti á Stokkseyri, er
varamaður Garðars Sigurðssonar og
Kristján Már Kristinsson kennari
varamaður Kristínar S. Kvaran sem
er í barnsburðarleyfi til áramóta.
Hjálmar hlaut
siglingamála-
verðlaunin
Hjálmar Bárðarson siglingamála-
stjóri hlaut alþjóðlegu siglingamála-
verðlaunin í síðasta mánuði í samræmi
við ákvörðun ráðs Alþjóðasiglinga-
málastofnunarinnar. Það var ' hr.
Srivastava, framkvæmdastjóri
stofnunarinnar, sem veitti Hjálmari
verðlaunin.
Verðlaunin, sem eru silfurstytta af
höfrungi, vom veitt Hjálmari fýrir
framlag hans til öryggismála sjó-
farenda og varna gegn mengun sjávar.
-FRI
Hr. Srivastava veitir H jálmari
verðlaunln.
■ 1 1 1
...
Jp *
JL \
ÉmrfSIÍÍk " f