Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1984, Side 45
DV. MÁNUDAGUR 29. OKTOBER1984.
45
Sviðsljósið
HANN SENMR
JANNIRÓSIR
Ríkasta ekkjan í Evrópu, Janni
Spies, á sér marga aödáendur og ætti
það ekki aö koma neinum á óvart. Einn
af þeim er Svíinn Gunnar Hellström
sem gerði þaö gott í Hollywood á sinum
tíma. Fljótlega eftir að Janni varö
ekkja fóru að berast til hennar miklir
og fallegir blómvendir og berast þeir
enn í dag. Sendandinn er enginn annar
en Gunnar sem er 56 ára. Sænsku og
dönsku slúðurblöðin hafa velt sér upp
úr þessum blómasendingum og telja
að um leynilegt samband sé aö ræða
milli Janni og Gunnars.
Sá galli er þó á gjöf Njarðar að
Gunnar býr með einni sem er 24 ára,
Stellu Arryova, í Hollywood og sú er
ekki á þvi að viðurkenna að sá gamli sé
henni ótrúr. ,,Við höfum verið saman í
fimm ár,” segir Stella, og ennþá hefur
hann ekki gert neitt sem ég gæti van-
treyst honum fyrir. Leyfum honum
bara aö senda rósir til Janni Spies —
það snertir mig ekki. Hann hefur alltaf
haft fyrir sið að senda fallegum konum
blóm.”
Gunnar Hellström neitar síður en
svo að vera blómasendandinn. Hann
segir: Eg hef mjög gaman af blómum
og hef einstaklega gaman af að senda
rósir til fallegra kvenna. Það má því
búast við að áframhald verði á því aö
rósir frá Svíþjóð berist Janni Spies.
Gunnar Hellström og sambýliskona hans, Stella Arooyova. Henni er alveg sama þótt hann sendi ríku ekkjunni rósir.
Boy George
talar
um kynlíf
„Eg á aðdáendur af báðum kynj-
um en það eru flelri stelpur sem
eru á eftir mér en ölium hinum í
hljómsveitlnni.
Annars hugsa ég litið um kynlif
þessa dagana. Eg vinn svo mikið
að ég er alltaf dauðþreyttur þegar
ég leggst niður. Min fyrsta reynsla
af kynlífi var þegar ég var 16 ára
en kynlíf hefur aldrei verið mikil-
vægur þáttur í lífi mínu. Kynlíf er
ekld eitthvað svart eða hvitt, þar er
einnig mikið grótt á ferölnni.
Fólk má halda sem það vill, það
skiptir mig engu máli. Eg veit aö
ég er ósköp venjulegur maður und-
lr farðanum — það held ég að
minnsta kosti.”
Stephaniemeö
nýjankærasta
Nú eru liðin tvö ár fra bílslysinu
sem kostaði Grace prinsessu af
Monaco lífið. Stephanie' dóttir
hennar, sem slasaðist alvarlega í
slysinu, er búin að ná sér og svo
virðist að öll sorg sé á bak og burt
því prinsessan hefur snúið sér að
hinu ljúfa lífi af fullum krafti. Stoð
hennar og stytta á erfiöum tímum
var kærastinn, Paul Belmondo,
sonur leikarans fræga. Nú hefur
hins vegar annar leikarasonur tek-
ið við kærastahlutverkinu. Sá heitir
Anthony Delon.
Janni Spies á sér marga aðdáendur og
blómailmurinn fyllir íbúð hennar.
AumingjaFrank
Frank Sinatra er orðinn miðpunktur
í miklum deilum vegna byggingar-
framkvæmda í Palm Springs íFlorida.
Þannig er að byggingarfyrirtæki vill
reisa háhýsi fyrir utan bakgarðinn hjá
Sinatra og hann telur það ekki bara
muni skemma útsýniö heldur einnig að
hægt verði að glápa inn í stofu til hans
úr því húsinu. Sá er byggir er því
miður ekki neinn smákarl, þannig að
Sinatra á í miklum erfiöleikum. Hann
er enginn annar en Gerald Ford,
fyrrum Bandaríkjaforseti.
Janet fyrir miðri mynd ásamt dönsurum í Fame. Þessi myndaflokkur hefur notið mikilla vinsælda í Bandaríkjun-
um.
Þau eru líka Jackson
og eru líka fræg
Janet og Jermaine — bæði með
eftirnafnið Jackson — þurfa ekki
að standa í skugganum af bróður
sínum Michael. Litla systir, Jane,
leikur nú í hinum vinsæla sjón-
varpsmyndaflokki Fame og hinn
29 ára Jermaine hefur hlotið
miklar vinsældir fyrir sínar eigin
plötur. Margir telja meira að
segja að hann eigi eftir aö verða
betri en bróðirinn. Allir eru að
minnsta kosti sammála um að
Jermaine sé sætari.
Hins vegar vill Janet sem er 18
ára þakka bróður sínum að hún
komst að í sjónvarpsmynda-
flokknum. „Það var örugglega
eingöngu út á nafnið sem þeir tóku
miginn,”segirhún.
Janet Jackson í góðum hópi dansara úr
hinum vinsæla sjónvarpsmyndaflokki
Fame.