Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1984, Blaðsíða 48
FRETTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá í
síma 68-78-58. Fyrir
SIMINN
SEM
ALDREI
SEFUR
Sími ritstjórnar: 68 66 11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað í DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku.
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
Frjálst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 1984.
Meðvitundarlítill á
spítala vegna sniffs
Skömmu fyrir síöustu helgi var
fjórtán ára gamall drengur á Dalvík
fluttur allt aö því meðvitundarlaus á
Fjóröungssjúkrahúsiö á Akureyri eftir
að hafa „sniffað” af eitdrefnum. Hann
hefur áöur verið fluttur á sjúkrahús
vegnaþeirrariöju.
Að sögn lögreglunnar á Dalvík gaus
upp „snifffaraldur” í bænum fyrir
skömmu. Þar voru á ferö fimm eða sex
drengir á aldrinum fjórtán til sextán
ára. Aðallega var „sniffaö” af kveikj-
aragasi, bensíni og gúmmílími. Sumir
drengjanna hafa viðurkennt aö hafa
sniffaö og rætt hef ur verið við foreldra.
„Maöur bara vonar aö þetta sé þar
meö búiö,” sagöi Halldór Gunnlaugs-
son lögregluþjónn.
Drengurinn sem var fluttur á sjúkra-
húsiö fannst ósjálfbjarga i holu eöa
skurði skammt fyrir neöan kirkjuna á
Dalvík. Þar mun hann hafa verið í að
minnsta kosti þrjár klukkustundir einn
aö „sniffa”. Þeir hinir sem fiktað hafa
við „sniffið” sluppu hins vegar betur
og eru trúlega meövitaöri um þetta víti
sember aðvarast.
JBH/Akureyri.
■
„Allir utan þrír sögöu aöspuröir í
óformlegri skoöanakönnun aö
nauösynlegt væri að skipta um fólk í
sjö manna forystusveit flokksins,”
sagði Jón Baldvin Hannibalsson þing-
maöur viö blm. DV í morgun. Um
fimmtíu manna fundur Alþýöuflokks-
fólks í Reykjavík var haldinn í fyrra-
GAGNRYNIN SKYRSLA
UM FORYSTUSVEITINA
V/SA
dag, slíkir fundir hafa veriö haldnir
reglulega frá septemberbyrjun. Á
þessum fundi var lögö fram skýrsla
starfshóps um stefnu Alþýðuflokksins
og framkvæmdir meöal annars og var
skýrslan mjög gagnrýnin aö sögn þing-
mannsins. Flokksþing Alþýðuflokksins
veröur 16. nóvember nk. -þg.
Jafnt innanlands sem utan.
LOKI
Það slagar í tvöfaldan
kvartett í tugthúsinu á
Skaganuml
FIMM RAF0RKUVER
ÞEGAR FULLHÖNNUÐ
— og f orathugun er lokið á sex til viðbótar
Búið er aö rannsaka virkjunar-
staði i vatnsföllum hér á landi sem
nægja munu meira en til aldamóta.
Fimm raforkuver eru þegar full-
hönnuð eöa á lokastigi hönnunar.
Hægt verður aö framleiöa í þeim allt
aö 3.415 gígavattstundir af raforku á
ári, en núverandi orkuver gefa 4.000
stundir.
Blönduvirkjun er þegar í bygg-
ingu. Hún mun framleiða 750 eöa 610
gígavattstundir á ári. Vatnsfells-
virkjun er í verkhönnun. Þaö er 470
gígavattstunda virkjun. Sultar-
tangavirkjun, 660, er tilbúin til út-
boös. Verkhönnun á stækkun Búi-
fellsvirkjunar um 350 eöa 450 gíga-
vattstunda framleiöslu á ári er lokií.
Og eins verkhönnun 1.323 gígavatt-
stunda Fljótsdalsvirkjunar.
Þá er lokið forathugun á sex öðrum
virkjunarkostum og nokk'rir til við-
bótar eru í forathugun. Þetta kemur
fram í skýrslu Hagvangs hf. um
Orkustofnun. I henni er jafnframt
sagt ljóst aö ekki verði fylgt áætlun
Orkustofnunar um háhitarannsóknir
„á meðan nýtingaráform eru jafn-
óljósog núerraunin”.
Næst fullhönnuöu vatnsorku-
verunum koma Búðarhálsvirkjun,
580, virkjun Efri-Þjórsár, 1.100—
1.500, og Vatnsfjarðarvirkjun, 180, á
forhönnunarstigi. Forathugun er
einnig lokið á virkjun Jökulsánna í
Skagafirði, 700—900, og virkjun
Neöri-Þjórsár, 1.870.
Þá eru í forathugun virkjun á
Ofeigsf jarðarheiði, 290, í Ishólsvatni,
375, virkjanir á Norðausturlandi,
8.530, virkjun viö Bjalla , 385, og enn
ein Þjórsárvirkjun, 1.700, í Efri-
Hvítá.
-HERB.
Skákmótið íBor:
Jón L. náði
ekki áf anga
Á skákmótinu sem nú er lokið í
Bor i Júgóslavíu þurfti Jón L.
Ámason aö vinna tvær síðustu
skákimar til þess að ná fyrsta
áfanga aö stórmeistaratitli. Þaö
fór hins vegar ekki svo eins og von-
ast hafði verið til. Jón tapaði í næst-
síðustu umferð fyrir de’Firmian
frá Bandaríkjunum. I síðustu um-
ferö gerði hann svo jafntefli við Ilic
frá Júgóslavíu.
Lokastaðan í mótinu er þessi: I
efsta sæti varö Maroinovic frá
Júgóslavíu meö 9 vinninga. I öðra
til þriöja sæti urðu þeir Kudrin frá
Bandarikjunum og Kerov frá
Búlgaríu meö 8,5 vinninga. t f jórða
sæti varð Jón L. Árnason meö 8
vinnina. -EH
Akureyri:
14 ára piltur
á gjörgæslu
eftir bílveltu
14 ára piltur liggur nú á gjörgæslu
meö höfuömeiösli eftir aö bifreið valt
rétt fyrir noröan bæinn Dvergastein í
Glæsibæjarhreppi laust fyrir miönætti
á laugardag. Pilturinn er úr lífshættu.
Ökumaöur bifreiðarinnar slasaöist
aöeins lítillega.
Lögreglan á Akureyri komst á snoðir
um slysið þegar hringt var á sjúkrabíl
frá húsi einu á Akureyri. ökumaöur
bifreiðarinnar hafði yfirgefiö slys-
staöinn í leigubíl og ekiö heim til sín en
þaðan var drengurinn fluttur í sjúkra-
bíl. Gmnur leikur á aö ökumaðurinn
hafi verið ölvaöur. -EH.
Um fimmtíu kratar í
Reykjavík komu saman til
fundar í Alþýðuhúsinu í
fyrradag og var þessi mynd
tekin þá. Óánœgja kom
, Akureyri:
Okáröngum
vegarhelmingi og
haf naðií
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
búðarglugga
fram með forystusveit
flokksins.
DV-mynd GTK.
Haröur árekstur varö milli tveggja
bifreiöa aöfaranótt sunnudags viö
Glerárgötu, rétt noröan við Þómnnar-
stræú. Ck önnur tífreiöin á röngum veg-
arhelmingi en gatan er tvískipt meö
umferðareyju. Eftir áreksturinn
keyrði ökumaðurinn aö nýju yfir eyj-
una en fór þá upp á gangstétt og í
gegnum búðarglugga. Ekki er vitað
um nein meiðsli en bílamir eru nánast
ónýtir. Aö sögn lögreglunnar á Akur-
eyri var ökumaðurinn sem keyrði á
röngum vegarhelmingi mikiö ölvaður.
Fluttirá sjúkra-
húseftirbílveltu
á Árskógströnd
Tveir ungir piltar frá Dalvík
slösuðust í bilveltu á Arskógströnd
um miðnættið á fimmtudagskvöldiö.
Þeir vom aö koma frá Akureyri á ný-
legum BMW og lentu í skurði neðan viö
bæinn Krossa. ökumanninum tókst aö
komast heim aö Krossum og tilkynna
um slysið. Hann var síðan fluttur á
sjúkrahús vegna áverka á baki. Hinn
pilturinn var á túni nokkru neðan viö
bilflakiö þegar aö var komið. Hann
virtist óskaddaður en ringlaður og var
fluttur á sjúkrahús til myndatöku
vegna höfuðhöggs. öryggisbelti voru
ekki notuö og báðir piltamir köstuöust
út úr bílnum í veltunni. Bíllinn er gjör-
ónýtur. -JBH/Akureyri.