Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1984, Síða 11
DV. FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER1984.
11
Rættvið
Ásgeir
Steingríms-
son trompet
leikara
Ásgeir Steingrímsson trompetleikari.
Aðstandendur bókarinnar um Akureyri: Geir S. Björnsson, prentsmiðju-
stjóri P.O.B., Tómas Ingi Olrich ritstjóri, Helgi Bergs bæjarstjóri og Har-
aidurJ. Hamar ritstjóri.
Ný myndabók
um Akureyri
Gefin hefur verið út bók um Akur-
eyri með myndum eftir svissneska
ljósmyndarann Max Schmid og texta
Tómasar Inga Olrich ritstjóra. Hún
heitir Akureyri — blómleg byggð í
norðri en í enskri þýðingu Hallbergs
Halhnundssonar Akureyri — A
Northern Heaven.
Iceland Review átti frumkvæðið að
gerð bókarinnar og dreifir ensku útgáf-
unni. Islenska útgáfan er í umsjá
Prentverks Odds Björnssonar. Efni
bókarinnar er skipt í nokkra megin-
kafla þar sem fjallað er um Akureyri
nútíðar og fortíðar, mannlifið í bænum,
helstu þætti atvinnulífsins, gróðurfar
og náttúru, svo og næsta nágrenni í
Eyjafirði.
Max Schmid hefur oft komið til
Islands til að taka myndir og hafa þær
birst í bókum og timaritum víöa um
heim. Hann hélt fyrir nokkru
ljósmyndasýningu í Reykjavík.
Akureyrarbókin er 96 blaðsíður og
kostar 988 í bókaverslunum.
JBH/Akureyri.
„Fékk hvergi klarínett
og valdi því trompet”
Þeir sem lögðu leið sína á tónleika
Sinfóníuhljómsveitarinnar síðastlið-
inn fimmtudag minnast vafalaust
enn ljúfra tóna úr trompeti Asgeirs
Steingrímssonar. Asgeir lék þar ein-
leik á trompet. DV sló á þráðinn til
Asgeirs til að forvitnast um mann-
inn.
Af hverju lagðirðu trompetleik fyr-
ir þig?
„Ja, það var nú tilviljun sem réð
því. Eg ætlaði að læra á klarínett
þegar ég hóf tónlistarnám noröur á
Húsavík fyrir 16 árum. Þar á staðn-
um var aftur á móti ekkert klarínett
fáanlegt en trompet var til svo ég
valdi hann í staðinn. Eg sé alls ekki
eftir að hafa „orðið” að taka tromp-
etinn. Eg var 11 ára þegar þetta
gerðist og hef haft hljóðfærið í hönd-
unum síðan.”
Námsferill Asgeirs er í stuttu máli
sá aö eftir að hafa fengið fyrstu til-
sögn í listinni norður á Húsavík lá
leiðin í Tónlistarskólann í Reykjavík.
Þaðan lauk hann einleikaraprófi og
blásarakennaraprófi vorið 1978.
Skömmu síðar settist Asgeir á skóla-
bekk í The Mannes College of Music í
New York og blés þar við góðan
orðstír í fjögur ár. Heim kom Asgeir
síðan fyrir ári og hefur unnið við
kennslu og hljóðfæraleik síðan.
Hverjir eru möguleikar trompet-
leikara á að fá atvinnu við hæfi hér á
landi?
„Markaðurinn er frekar takmark-
aður. Sinfóníuhljómsveitin er full-
skipuð svo þar er ekki um fasta
vinnu aö ræða. Eg hef aftur á móti
leikið með Islensku hljómsveitinni og
víðar eftir því sem tilefni hefur gefist
til. Þá er nóg að gera við kennslu.
Auk þess hef ég alltaf leikið öðru
hvoru með dansljómsveitum m.a. í
fyrravetur með hljómsveit Gunnars
Þórðarsonar í Broadway. Klassíkin
er samt alltaf uppáhaldið. Annars
hef ég ekkert á móti þvi að leika
hvaöa tónlist sem er ef félagsskapur-
inner góður.”
Þegar Asgeir leggur trompetinn
frá tekur hann gjarnan til við hitt
áhugamálið: austurlenskan mat. Þá
er enska knattspyrnan í sérstöku
uppáhaldi. Eiginkona Ásgeirs er
Anna Guðný Aradóttir. Hún vinnur
hjá Flugleiöum. Þau eiga eina dóttur
barna.
NYTSÖM JÓLAGJÖF
Noppy
gefur yður ótal möguleika til notkunar, eru góðar jyrir heilsu yðar, þær má
nota heima, í sundlaugunum, ígufubaði, ígarðinum, á ströndinni o.s.firv.
Töfflumar eru léttar og laga sig eftir fœtinum, örva blóð-
rásina og auka vellfðan, þola otíur og fitu, auðvelt að
þrlfa þœr.
Fáanlegar í 3 IHum: Gult, rautt, blátt
Stærðir: 33—46.
PÓSTSENDUM Verð kr 358 00
Skóverzl. Þórðar Péturssonar,
Kirkjustrœti 8 v/Austurvöll. Sími 14181.. Laugavegi 95. sími 13570