Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1984, Blaðsíða 34
42
DV. FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER1984.
INNHVERF ÍHUGUN
Uppgötvun sameiningarsviðsins
— sameining hinna fjögurra grundvallarkrafta náttúrunnar
Tilgangur þessarar greinar er að
gefa lesendum DV dálitla innsýn í
það hvað Innhverf íhugun og Inn-
hverf íhugun Sidhi-kerfið er, hvaða
áhrif iökun þeirra hefur á ein-
staklinginn og þjóöfélagið.
Innhverf íhugun (hér eftir skrifuö
I.I.) er einföld, andleg tækni sem iðk-
uð er 15—20 mínútur kvölds og
morgna. Hún gerir huganum fært að
skynja hljóöari stig hugsanaferils-
ins, fara handan við fíngeröasta
stigið og komast í snertingu viö upp-
sprettu hugsunar, grunnsvið vitund-
ar, tæra vitund. Iðkun hennar krefst
engrar einbeitingar eða áreynslu og
þaðan af síður breytinga á lífsvenj-
um, skoðunum eða mataræöi.
I.I. er kölluð tækni vegna þess aö
hún byggist á lögmálum sem eru al-
gild og þó svo að þekkingin um hana
hafi varðveist á Indlandi þá er hún
ekkert frekar indversk en íslensk.
Maðurinn, sem fært hefur heiminum
Kjallarinn
GUÐJON
KRISTJÁNSSON
SMIÐUR
þessa tækni, heitir Maharishi
Mahesh yogi og byrjaöi hann að
kenna I.I. árið ’57 hér á Vesturlönd-
um.
I.I. leyfir hinum örvuðu sviðum
huglægrar starfsemi aö kyrrast og
vegna hinna nánu tengsla sem eru
milli hugar og líkama, minnka efna-
skipti líkamans jafnhliða. 1 þær 15—
20 mín. sem tæknin er iðkuð fær
líkaminn djúpa og endumærandi
hvíld. En þaö er einmitt í þessu
hvíldarástandi sem hann notar tæki-
færið og losar sig viö framandi fyrir-
bæri úr taugakerfinu, s.s. streitu.
Sú staðreynd að I.I. er mjög
árangursrík gegn streitu er ein aöal-
orsökin fyrir vinsældum hennar á
Vesturlöndum. En það sem gerist
einnig, og er ekki síður mikilvægt, er
að meö reglulegri iðkun veröur
taugakerfið smám saman ónæmt
fyrir frekari áhrifum hennar.
Eins og sést á teikningunni liggur sameiningarsviðið til grondvallar öðrom sviðum náttúro-
laga, þar á meðal rafeinda- og kjarnasviðunum. Af þessu leiðir að samkenning við samein-
ingarsviðið hefur kosti óendanlegrar sköpunarhæfni og skipulagsafl allra náttúrukrafta í
för með sér fyrir sérhvern einstakling og allar þjóðir.
<WpVANTAR
1 EFTIRTAUN/0
HVFRFI
Arnarnes
Sóleyjargötu
Grundarstíg
Bergstaðastræti
Brautarás (Árbæ)
HAfK) SAMBAND VIO AFGREIÐSLUNA OG SKRIFIO VKKUR A 8IÐUSTA
LIX4LAND
LÓUHÓLAR 2-6, HÓLAGARÐI SÍMI 72100
A
1
L
T
T
I
L
M
w
A
L
U
N
A
R
Vorum aó fá stóra sendingu af DLW
veggdúkum.
Verð kr. 1.385,00 rúllan
p
A
R
K
E
T
S
T
■ ■
0
K
T
E
P
P
I
KREDITKORT
VELKOMIN
SENDUM í PÓSTKRÖFU.
UTALAND-HÚLAGARÐI,
sími 72-100.
I
vtsa
[
l.í.-Sidhi-kerfið
Árið 1975 hófust tilraunir á vegum
Evrópska Maharishi rannsóknarhá-
skólans þar sem vitundin skyldi
rannsökuð sem „svið allra mögu-
leika”. Þessar tilraunir með
vitundina sem svið allra möguleika
eru nefndar I.I.-Sidhi-kerfið. Kerfi
þetta byggist á endurvakningu
Maharishis á visku vedanna og yoga-
sútrum Patanjalís.
I.I. er alger grundvöllur Sidhi-
kerfisms og byggist áhrifamáttur
þess á því að „tær vitund” sé að ein-
hverju marki oröin stöðug með
iðkandanum. Rétt er að taka fram að
tær vitund er einnig nefnd fjórða
vitundarástandið en það hefur komiö
í ljós með hjálp heilalínurita að
meðan á iðkun I.I. stendur kemur
fram sérstök virkni í heilasveiflum
sem er frábrugðin hinum þremur
megintegundum vitundarástands
sem áður voru þekktar, þ.e. vöku-
ástand, svefn og draumsvefn.
Tilgangur I.I.-Sidhi-kerfisins er
ekki fyrst og fremst sá að öðlast
óvenjulega hæfileika sem áöur voru
taldir yfirnáttúrlegir heldur þroska
heilleika og ná fram fullkomnu sam-
ræmi milli hugar og likama. Hver
sútra þróar ákveöið, afmarkað svið
þessa samræmis. Afleiðingin verður
sú að opnaðar eru nýjar rásir fyrir
tæra vitund aö tjá sig um og ákveð-
inn hæfileiki, tilfinning eða þekking
kemur fram frá sameinaða sviöinu
(sjá mynd). Sameiningarsviðið upp-
fyllir sútruna (hugsunina) og út-
koman verður sú að inntak
hugsunarinnar verður sjálfkrafa að
veruleika. Þar sem sameiningar-
sviðið er bæði grunnsvið hugar og
efnis geta ytri áhrif I.I.-Sidhi-kerfis-
ins komið fram á hvoru sviðinu sem
er, hinu huglæga eða í efnisheimin-
um. Um árangur einstakra sútra má
t.d. nefna að ákveðnar sútrur þróa
tengsl hugar og tilfinninga. Sérstakt
gildi hafa þær sútrur er þróa siðferði-
lega eiginleika, eins og vingjarnleika
og ástúð, sem fylgjast eðlilega að
meö þróun uppljómunar (uppljómun
er hið sama og fullt andlegt og líkam-
legt atgervi eða m.ö.o. fullþroskaður
maður).
Aðrar sútrur þróa skilningarvitin
þannig að næmi þeirra fer langt yfú-
þau mörk sem þeim voru áður sett.
Sterkust verða áhrif I.l.-Sidhi-kerfis-
ins þegar hin svokallaða flugsútra er
iðkuð í hóp.
Þegar líkaminn lyftist skynjar
iðkandinn mikla orku, gleöi, innra
frelsi, léttleika og náin samtengsl við
umhverfið. Lýsingar og reynsla
þeirra Islendinga, sem og annarra er
lært hafa flugsútruna, er í fullkomnu
samræmi við lýsingu Shiva Samhita
(VHI. bls. 30.), sem er mörg þúsund
ára gömul vedabók, en þar kemur
fram að fyrst muni líkaminn hrist-
ast, síöan hoppa fram og að lokum
geti nemandinn svifið um.
Rannsóknir vísindamanna
I.I. og I.l.-Sidhi-kerfið hafa mikiö
verið rannsökuð af vísindamönnum.
Þessum rannsóknum hefur verið
safnað saman í 4 bindi og mun þaö 5.
vera á leiðinni. Því enda þótt þetta sé
andleg tækni hefur hún engu að síður
djúpstæðar lífeðlisfræðilegar
breytingar í för með sér sem eru
mælanlegar. Þessar rannsóknir hafa
einfaldlega sýnt fram á að iðkun I.I.
og I.l.-Sidhi-kerfisins hafi endumær-
andi áhrif á alla starfsemi líkama og
huga, m.a. að iökunin leiöi til lægri
líffræðilegs aldurs, efli skapandi
greind og stuðli að sköpun heilsteypt-
ari persónuleika. I sambandi viö
hrörnun líkamans má nefna rann-
sókn sem gerð var á iðkendum I.I.-
Sidhi-kerfisins og sýndi hún fram á
að þeir iðkendur, sem höföu stundað
tæknina skemur en í 5 ár, voru 7
árum yngri en tölulegur aldur var
(að meðaltali). Þeir sem höfðu
meira en 5 ára iökun að baki voru að
meðaltali 15 árum yngri en tölulegur
aldur gaf til kynna. Nefna má aðra
rannsókn sem benti einnig til
„yngingar” en hún sýndi að næmi
heyrnar hjá hópi, sem verið hafði á
sex mánaða námskeiði í I.I.-Sidhi-
kerfinu, jókst að meðaltaU meira en
sem nemur þeirri dofnun sem annars
á sér stað á átta árum.
Þessar og aörar rannsóknir, sem
geröar hafa verið á iðkendum I.I. og
I.I.-Sidhi-kerfisins, hafa breytt hug-
myndum vísindamanna um það
innan hvaöa marka mætti staðsetja
hæfileika og getu mannsins.
Áhrif á umhverfið
Samkvæmt áskorun belgíska
nóbelsverðlaunahafans IUya Prigog-
ine (sem fékk nóbelsverölaunin í
efnafræði fyrir vinnu sína við fasa-
skiptalíkön og fleira) var gerð
tilraun í fylkinu Rhode Island í
Bandaríkjunum árið 1977 þar sem
350 manns iökuöu I.I.-Sidhi-kerfið á
sama staö í þrjá mánuði. Eftir dvöl
þessa hóps voru 22 þættir, sem hag-
stofa fylkisins hafði skráö, bomir
saman við sömu þrjá mánuði tvö
árináundan.
Niðurstöðurnar urðu mikið
undrunarefni því að í ljós kom aö af-
brotum hafði fækkaö verulega á
þessu tímabUi með tilliti til áranna á
undan. Má nefna m.a. aö moröum
fækkaði um 49%, sjálfsvígum um
41%, árásum um 22% og banaslysum
í umferðinni um 54%. Tilraun þessi
vakti hvarvetna mikla athygli og töl-
fræðingar, sem spuröir voru álits,
sögðu að hún væri fullkomlega mark-
tæk. Vísindamenn og fulltrúar
stjórnvalda sögðust ekki geta bent á
neina aðra skýringu en II. og I.I.-
Sidhi-kerfið.
Síðan þetta var hafa farið fram
tugir sambærilegra tilrauna sem
allar hafa sýnt fram á tilvist Mahar-
ishi-áhrifanna eða hópefli vitundar
eins og fyrirbærið er nefnt af félags-
fræðingum.
Komið hefur í ljós að þegar fjöldi
þeirra sem iðka I.I. á ákveönu svæði
(sveitarfélagi eða borg) nær 1% af
íbúafjölda þá minnka skyndilega
neikvæðar tilhneigingar borgar-
anna. Þetta gerist undantekningar-
laust og hafa mörg hundruð borgir
víðsvegar um heiminn náö þessu
marki. Lögmál þetta er langt frá því
að vera einstakt og kemur það víða
fyrir í náttúrunni, t.d. myndast
segulsvið í kringum járnbút þegar
1% af atómunum er í samræmi. Það
að lítill hópur samræmdra einstakl-
inga geti haft áhrif á samfélag (í átt
til meira skipulags) eru margir
vísindamenn farnir að skoða sem
fasabreytingar eins og lýst er í raun-
vísindum.
Forsmekkur að útópíu
I.Í.-Sidhi-kerfið hefur mun meiri
áhrif á einstaklinginn og þjóðfélagiö
en I.I. ein sér og mun aðeins þurfa
kvaðratrót af 1% íbúafjölda til að
framkalla fasabreytingu, hliðstæða
þeirri sem verður með I.I.
Um síðustu jól komu saman 7000
iðkendur I.I.-Sidhi-kerfisins (en það
átti að vera nægur fjöldi til að hafa
áhrif á allan heiminn) í MIU-
háskólanum í Fairfield í Iowa,
Bandarikjunum, í þeim tilgangi að
gefa heiminum forsmekk að útópíu,
vísindamenn og tölfræðingar fylgd-
ust náið með. Áhrifin af þessari sam-
komu voru svo augljós að 4 manna
hópar voru sendir út af örkinni til að
kynna niðurstöðumar í sem flestum
ríkjum heims ásamt því að útskýra
hvað „siðmenning, grundvölluð á
sameiningarsviðinu” væri.
Þann 21. des. næstkomandi munu
um 10.000 sidhar koma saman í Haag
í Hollandi og iöka þar saman tækni-
þekkingu Maharishi um samein-
ingarsviðið í þrjár vikur. Vil ég
benda lesendum á að fylgjast með
viðburöum heimsins á þessum tíma
og athuga hvort þeir taka eftir ein-
hverri breytingu, hvort heldur er á
veöurfari, stjórnmálum eöa í einka-
lífinu því vegna þess að iðkendur I.I-
Sidhi-kerfisins eru að starfa frá og
þar meö skapa sterka bæringu sam-
stillingar frá hinu minnst örvaða
sviöi tilverunnar, sameiningarsvið-
inu, þá munu áhrifin koma fram á
öllum örvaðri ytri sviðunum.
Að koma á fyrirmyndar-
samfélagi á íslandi
Nú eru um 20 manns sem hafa lært
I.I.-Sidhi-kerfiö hér á landi. Fundið
hefur veriö út að um 100 sidha þarf til
að koma á fasaskiptum meöal ís-
lensku þjóðarinnar í átt til meira
skipulags.
Starfsemi Lslenska íhugunarfé-
lagsins og allir þeir sem skilja hvað
1 hér er verið að skrifa um hlýtur eðli-
lega aö beinast að því að koma á slík-
um 100 manna hópi hér á landi sem
fyrst. Afleiðingin mun verða þjóöfé-
lag sem einkennist af framförum og
samstillingu.
Guðjón Kristjánsson
smiður.