Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1984, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1984, Blaðsíða 2
DV. MÁNUDAGUR17. DESEMBER1984. 2 Oslóar-jólatréð að fallikomið: Festu tréð við vörubíl í storminum, sem gekk yfir Reykjavík aðfaranótt laugardagsins, þótti starfsmönnum Reykjavíkur trygg- ara að festa jólatréð á Austurvelli við stóran vörubil. Að sögn Jóhanns Diego, verkstjóra hjá borginm, sýndist mönnum hælarnir, sem tréð er stagað í, vera að gefa sig, enda ekkert frost í jörðu «9 jarðvegunnn gíjúpur. Pví var gripiö til þess ráðs að staga tréð við hlaðinn vörubil, sem helt þvi svo kyrru fram a nottma, þegar veðrið fór að ganga niður. DV-mynd S. Listasaf n ASÍ: MÁLVERKIEFT1R MUGG VAR STOUÐ Einu af málverkum Muggs var stoliö úr Listasafni ASl á laugardaginn. Verkið sem hér um ræðir heitir Beta og er lítil teikning af frænku lista- mannsins, nánar tiltekiö systurdóttur hans. Var teikning þessi gerð árið 1913. Ekki er fullljóst með hvaða hætti þjófnaöurinn var framinn. Sagði Þórir Oddsson, vararannsóknarlögreglu- stjóri ríkisins, í samtali við DV að unnið væri að rannsókn þessa máls, en varðist að öðru leyti frétta af því. Bjöm Th. Bjömsson listfræðingur, sem umsjón hafði meö uppsetningu sýningarinnar á verkum Muggs í safn- inu, sagði í samtali við DV að verk þetta væri óseljanlegt á markaöi hér- lendis. -FRI. Laugardagsverslunin: Mikil þrátt fyrir veðrið Þrátt fyrir hvassviðri. á höfuðborg- arsvæðinu á laugardag var eðlileg verslun og umferð mikil, sagði Sigurður E. Haraldsson, formaöur Kaupmannasamtakanna. „Fram til þessa hefur verslun verið svipuð og undanfarin ár,” sagði Sigurður. „Ætla mætti að víða sé nú þröngt í búi þar sem verkfallið mikla er svo til nýaf staöið, en fólk virðist allt- af reyna að leggja mikið í jólin og draga þá saman í útgjöldum á ein- hverjum öörum sviðum. Minni peningaráð koma því niður á einhver ju öðm enjólunum.” Laugavegurinn átti að vera lokaður allan laugardaginn og var honum lokað klukkan 13.00, en þá datt um- ferðin alveg niður vegna veðursins, svo aö hann var opnaður aftur að ósk kaupmanna. Láms Guðmundsson hjá Bókabúð Lárusar Blöndals sagði að mikil verslun hefði verið allan laugardaginn, en umferðin hefði dofnað um kvöld- matarleytið og var því lítið að gera í verslunum umkvöldið. Lárus sagði að veðrið og jafnvel sjónvarpsfréttimar spiluöu þar eitthvað inn í dæmið. Matvömkaupmaöur einn á höfuð- borgarsvæðinu sagðist hafa haft nóg að gera, en óttaðist að lítið framboð væri af rjúpu. Hann sagði aö jafnvel hefðu komið nokkrar rjúpnaskyttur í búðina og ætlað að fá sér í jólamatinn, og sagði hann að tíðarfarið gæti hafa spilað þar inn í. Sigurður sagði að verkfallssár kaup- manna væri ekki enn gróið og eru því kaupmenn ekki eins birgir og þeir venjulega eru fyrir jóiavertíðina. Verkfallið hefur því valdið kaupmönn- um óhagræði. Sigurður sagði aö of snemmt væri að gera dæmið upp. „Kaupmenn standa úti í miðju straumvatni. Það er mikið að gera hjá þeim þessa dagana og þeir komast ekki til lands fyrr en í fyrsta lagi milli jóla og nýárs og þá fyrst er hægt að fara að Ieggja saman. En þessi jólavertíð margumtalaða er eiginlega engin jólavertíð þegar upp erstaðið,” sagðiSigurður. „Jú, maður græðir kannski eitthvað á þessum stutta tíma fyrir jólin, en í kjölfarið fylgja dauðir vetrarmánuðir eftir jólin og er heldur lítil hreyfing þá, svo að ef meðaltalið er tekið þá jafnast þettaút.” -JI. Dorette Egilsson mótmælir kærum um ólöglegar söluaðferðir: SEGIR LÖGSÓKNINA EIGA AÐ HINDRA FRJÁLSA SAMKEPPNI „Það segir sig sjálft að ekki aðeins munu lögfræðingar mínir verja mig gegn fyrmefndri lögsókn heldur munu þeir lögsækja alla þá sem að henni standa og þeim ógeðslegu persónulegu árásum sem gerðar hafa verið á mig i fjölmiðlum undanfarna viku,” segir Dorette Egilsson í tilefni af því að þrjú islensk fyrirtæki kæra hana fyrir ólög- mæta viðskiptahætti með íslenska ull- arvöm í Bandaríkjunum. Dorette segist „...harðneita aö nokk- uð sé ólöglegt viö söluaðferðir „The Icelander” á kynningarsölunni í Chi- cago. Lögsókn uDarútflytjenda hefur það eitt fyrir stefnu að koma í veg fyrir frjálsa og eðlilega samkeppni. ” Aðdragandi málsins Um aðdraganda málsins segir Dor- ette: ..Aðdragandi þessa máls er aö þegar ákveðið var að halda kynningarsölu í Chicago, Illinois hafði ég samband við ræðismann Islands í Chicago, Paul S. Johnsson, og aðstoðaði hann mig við að finna heppilegustu borgarhlutana og þá staði sem, að hans mati, gætu verið arðvænlegastir fyrir kynningarsölur okkar. Hann benti mér líka á fólk sem hjálplegt gæti verið við að finna rétt húsakynni. Eg fékk söluleyfi frá Dli- nois-rikinu og allir söluskattar hafa verið borgaðir þar. Vörurnar voru seldar á lægra verði en þær eru seldar í níu verslunum okkar, sem eru víðsveg- ar um Bandaríkin allt frá Anchorage í Alaska í vestri til Boston í Massachusetts í austri. Enda var til- gangur okkar að kynna vöruna og kanna grundvöll fyrir að opna verslan- ir í Chicago í framtíðinni. Væri það ekki svolítið háðslegt að þessi sami ræðismaður Islands í Chi- cago, sem var okkur hjálplegur við að koma þessu í kring, væri sá sami Paul S. Johnsson sem nú er lögfræöingur sem gerir lögsókn fyrir hönd Hildu, Sam- bandsins og Pólarpr jóns. Það er enginn vafi á að málaferli þessi eru einfaldlega gerð af þeirri ástæðu að með fjölda verslana okkar og kynningarsölum telja Hilda, Sam- bandið og Alafoss okkur hættuleg sinni einokun á verðlagningu og söluaðferð- um á íslenskum ullarvörum. Þeir virðast reiðubúnir að beita öll- um aöferðum tU þess aö gera okkur ókleift að kaupa íslenskan vaming á sama hátt og við höfum gert á undan- fömum árum, þar með að gera okkur ómögulegt aö reka verslanir okkar. Mér er algjörlega ljóst að fyrir þeim vakir að koma í veg fyrir eðUlega sam- keppni hvað sem það kostar. Það segir sig sjálft að ekki aðeins munu lögfræð- íslensk fyrirtæki kæra konu í Bandaríkjunum fyrir élögmæta viðskiptahætti: Lokkar menn inn á hótelherbergi og _ _ ma mm m I daea m sett Þeirn Islerakar ullar- Harma Hottan hjá HUdu hf. HÍn i>g«ÓÍÍÍsigunnund»on. "U; 8 sagði a6 viftskipti Doretie sköOuilu ‘KM - Fyrsta frétt DV um kærumál íslensku fyrirtækjanna. ingar mínir verja mig gegn fyrr- nefndri lögsókn heldur munu þeir lög- sækja alla þá sem að henni standa og þeim ógeðslegu persónulegu árásum sem gerðar hafa verið á mig í fjölmiðl- um undanfarna viku. Lögsókn beinist þvi að eftirfarandi: 1. Ærumeiðingu. 2. Oleyfilegu samráði um verðlags- setningu. 3. Atvinnurógi. 4. Broti á bandarískum lögum um hringamyndun. I augnablikinu virðist mikiU almenn- ingsáhugi vera fyrir málum eins og þessu í Bandaríkjunum. Eg get því fuUvissaö hlutaöeigendur um að kær- urnar um óleyfilegt samráð um verð- lagssetningu og brot á bandarískum lögum um hringamyndun muni vekja mikla athygli í fjölmiðlum og ekki skulum við láta okkar eftir liggja oö gefa fréttamönnum hér greiðan að- gang að öllum þeim upplýsingum sem við getumveitt.” „Mannorðsmorð" „Þeim sem hafa gripið til mannorðs- morðs og óhróðurs vil ég segja að þeir geta aldrei kúgaö okkur til þess að gef- ast upp, þvert á móti. Við búumst viö aö opna fleiri verslanir í náinni fram- tíð. Eg er ekki það éinföld að mér sé ekki ljóst að á íslandi, sem kannski annars staðar, eru grimmir og ábyrgð- arlausir menn í embættum sem væru betur setin af hæfari mönnum. Það er heldur ekkert leyndarmál að það hefur hver atvinnugrein sinn skammt af skussum og virðist islenska blaða- manna- og fréttamannastéttin engin undantekning. Hitt er svo annaö mál að við hjónin og börn okkar erum ís- lensk og eigum íslenska f jölskyldu á Is- landi. Meðal annarra á ég tengdamóð- ur á níræðisaldri sem var algjörlega miður sín út af þessum ósköpum. Það yrði kannski landi og þjóð fyrir bestu að upprunamenn þessarar fréttar fengju sér aðra vinnu en það minnsta sem ég gæti krafist er aö það fólk sem bar þessar óþverrafréttir fyrir þjóðina bæði a.m.k. ástvini okkar fyrirgefning- ar. Þegar ég tók íslenskan ríkisborgara- rétt gerði ég það vegna þess að mér hafa alltaf fundist Islendingar besta fólk sem ég hef fyrirhitt og Island það yndislegasta land sem ég hef búið á. Og þótt þaö hafi sýnt sig að jafnvel á meðal besta fólks sé margur svartur sauðurinn er ég ennþá þeirrar mein- ingar,” segir Dorette. ji
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.