Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1984, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1984, Blaðsíða 50
50 DV. MANUDAGUR17. DESEMBER1984. Mitterrand: Ovinsælasti forseti fimmta lýðveldisins — en hef ur níu líf eins og köfturinn Ef marka má skoðanakannanir er Francois Mitterrand Frakklandsfor- seti nú óvinsælasti forseti sem rikt hefur í Frakklandi síðustu 25 ár. Aðeins 26% aöspurðra kváðust ánægð með störf forsetans í nýjustu könnun IFOP stofnunarinnar og blaösins Le Journal de Dimanche. Þessir aðilar leita álits rúmlega þúsund Frakka í lok hvers mánaðar á forseta landsins. Enginn hinna þriggja forseta (De Gaulle, Pompidou, D’Estaing), sem setið hafa að völdum frá því núverandi stjórnarskrá tók gildi árið 1959, hefur verið eins óvinsæll. Niðurlæging Mitterrands er enn meiri ef haft er í huga að Giseard D’Estaing, fyrirrennari hans, fékk aldrei minna en 35 prósent í sömu könnun er hann sat á valdastóli. Könnun IFOP og JDD tók tU 2017 kjósenda sem skiptust í réttu hlutfalli hvað varðaöi kyn, stétt, aldur og búsetu. Mitterrand tapaöi fimm prósentum miöaö við októberkönnunina. 26 prósent kváöust ánægð eða frekar ánægö með forsetann en 57 prósent óánægð eða mjög óánægð en 17 prósent höfðu ekki skoöun eða neituðu aö svara. Laurent Fabius forsætisráðherra virðist einnig falla óðum í áUti. Samkvæmt sömu könnun nýtur hann góðs eða allgóös álits 29 af hundraöi, 29 prósent voru frekar óánægö eöa mjög óánægð. 42 prósent létu ekki uppi skoðun sina. A það skal minnt að Fabius tók við embætti forsætisráðherra í sumar af Pierre Mauroy. Hann er tiltölulega ungur — 38 ára gamaU — og þykir ferskari en margur annar póUtikus í Frakklandi. Samt sem áður má hann sætta sig við að vinsældimar fari rým- andi. I október kvaðst 31 af hundraði vera frekar eða mjög ánægöur en 22 af hundraði óánægðir. Ámi Snævarr, fréttaritari DV íLyon, skrifar Stjórnarandstöðuforingjar í sókn Skoðanakannanir bentu til þess að fjórir helstu foringjar stjórnarand- stöðunnar myndu sigra Mitterrand ef kosiöyrðinúna. Raymond Barre, forsætisráðherra 1976—1981 og núverandi þingmaður Lyon, fékk jákvæða umsögn 47 pró- senta í margnefndri könnun. (+ 4% miöað við okt.) Simone VeU, fyrrver- andi ráöherra og foringi franskra hægrimanna á Evrópuþinginu, 41 prósent (+2%), Jacques Chirac, borgarstjóri Parísar og þingmaður,' 36% (+4%) og Valerie Giscard D’Estaing, fyrmm forseti, 39% (+1%). Af hverju? .^koðanakannanir koma og fara. Það er ekkert eins niðurlægjandi. .. fyrir stjómmálamenn eins og að eltast við duttlunga almenningsáUtsins.” — Francois Mitterrand í bókinni „Hér og nú” (J’ai et maintenant, 1980). Er núverandi Frakklandsforseti festi þessar línur á blað, hálfu ári fyrir kosningamar vorið 1981, bentu allar skoðanakannanir til þess að hann, for- setaefni sósíalista, myndi ekki ná aö velta Giscard D’Estaing af stóU. Annað varð uppi á teningnum hinn tíunda maí 1981 og því má segja aö orð hans hafi staðist reynsluna. En hvemig stendur á að hinn sigur- reifi sósíaUsti hins tíunda dags maí- mánaöar 1981 er orðinn, nú er kjör- tímabil hans er hálfnað, óvinsælasti forseti í sögu landsins? Því er auðvelt að svara: Lykilatriði í stefnuskrá forsetaefnis- ins vorið 1981 var að svara kreppunni með keynesískum aðferðum: Koma hjólum efnahagslífsins af stað á ný meö því að efla kaupmátt almennings, þjóðnýta fyrirtæki, fjölga ríkisstarfs- mönnum til að minnka atvinnuleysi. Þetta taldi Mitterrand sig geta gert án þess að taka upp verndartoUastefnu, án þess að loka landamærunum ef svo má að orði komast. Frakkland: Kraftglíma f rjálsu útvarpsstöðvanna Frá Friðriki Rafnssyni, fréttaritara DV íParís Rekstur hinna svoköUuðu frjálsu út- varpsstöðva er að verða stöðugur höfuðverkur fyrir frönsk yfirvöld og er því aUtaf meira og minna í fréttum. Umræða um frjálsu útvarpsstöðv- amar tók undir sig heilmikiö stökk nú nýlega þegar aðalráðiö um útvarps- mál tók sig tU og setti tímabundiö bann á útsendingar sex útvarpsstöðva af 22 sem starfræktar eru í París. Astæðan fyrir banninu var sú að viðkomandi útvarpsstöðvar voru famar að senda út með meiri krafti en leyfUegt er lögum samkvæmt en há- markið er 500 vött samkvæmt núgild- andi lögum. Þau voru sögð trufla út- sendingar annarra og löghlýðnari stöðva, þar með taldar ríkisrásirnar. Auk þess voru þær ásakaðar um að hafa truflað fjarskipti í lofti og þar meö flugumferð. Þrátt fyrir bannið héldu útvarps- stöðvarnar áfram útsendingum og þaö sem meira var, þær hvöttu tU mót- mælaaðgeröa laugardaginn fyrir rúmri viku. Þangað mættu um 100.000 manns sem var langt umfram björtustu vonir skipuleggjenda mót- mælanna. Flestir mótmælenda mættu í því skyni að „verja” eina vinsælustu stöðina hér í París sem heitir NRJ. Ut- varpsstöð þessi hefur gengiö hvað lengst í því sem nefna mætti kraft- glímu milli frjálsu stöðvanna hér. Glíma þessi felst í því að vera með kraftmeiri sendi en keppinauturinn, ná þannig tU fleiri hlustenda og þar með í meiri auglýsingatekjur. Kapphlaup þetta hófst nefnilega þegar auglýsingar voru leyföar í einkaútvarpsstöðvum siöastliöinn vetur. Ekki gátu yfirvöld setið aðgerðar- laus í mótmælaöldu sem þessari og tveimur dögum síðar, þann 10. desember, settust fulltrúar yfirvalda og útvarpsstöðvanna sex aö samninga- borði til að reyna að afstýra algeru öngþveiti á FM bylgjunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.