Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1984, Blaðsíða 33
DV. MÁNUDAGUR17. DESEMBER1984.
33
Æ—4 W 1 r
íþróttir íþróttir íþróttir
- l
heiðursmerki
Elns og skýrt hefur verið frá i
DV var Paul Haagberg, formaður
Alþjéðahandknattleikssambands-
ins, í heimsókn hér fyrir skömmu.
Haagberg notaði tækifœrið á
meðan hann dvaldi hér og afhenti
fjórum heiðursmönnum helðurs-
. merki IHF. Þelr sem fengu merkið
voru: Jón Hjaltalín Magnússon,
| formaöur HSt, Friðrik Guðmunds-
son, stjórnarmaður í HSt og fyrr-
verandl formaður, Gisil Haildórs-
son, heiðursforseti ÍSt, og Matthias
Á. Mathiesen viðskiptaráðherra.-SK.
Islands-
met hjá
Eðvarð
— Í200 mfjórsundi
íBergen
Njarðvikingurinn snjalli i sundlnu,
Eðvarð'Þór Eðvarðsson, setti nýtt ts-
iandsmet i 200 metra fjórsundi í
Evrópubikarkeppninni í sundi sem háð
var í Bergen í Noregi um hclgina.
Eðvarö synti vegalengdina á 2:10,19
min. Ragnar Guðmundsson keppti
einnig á mótinu. Nánari frásögn af því
erábis. 35. hsim.
1 Eðvarð Þór Eðvarðsson, Njarðvík.
Ásgeir í hópi
bestu knattspymu-
manna heims 1984
- hafnaði íþrettánda sæti í kjöri hins fræga knattspyrnutímarits World Soccer
Ásgeir Sigurvinsson, knattspyrnu-
maðurinn snjalli hjá Stuttgart, fékk
enn eina rósina í hnappagatið fyrir
stuttu — þegar hið viðlesna knatt-
spyrnutímarit World Soccer kom út.
Ásgeir var þar á lista yfir bestu knatt-
spymumenn heims 1984, eða í þrett-
ánda sæti ásamt danska iandsliðs-
• Ásgeir Sigurvinsson — sést hér (t.h.
landsleik Islands og Wales. Jackett var
) berjast um knöttinn við Kenny Jackett í
látinn elta Ásgeir um allan völl.
DV-mynd Brynjar Gauti.
manninum Prebcn Eikjær Larsen.
Það var Frakkinn Michel Platini hjá
Juventus sem var útnefndur „besti
knattspyrnumaður heims” annað árið
í röö hjá World Soccer, sem efndi nú í
annað sinn tii skoðanakönnunar meðal
lesenda sinna. Platini fékk 54 prósent
atkvæða.
Ian Rush, markaskorarinn mikli hjá
Liverpool, varð í öðru sæti.
Franska landsliðið, sem tryggði sér
Evrópumeistaratitilinn, var útnefnt lið
ársins og í öðru sæti komu Evrópu-
meistarar Liverpool.
Michel Hidalgo, fyrrum þjálfari
franska landsliösins, var útnefndur
framkvæmdastjóri (þjálfari) ársins.
Joe Fagan, framkvæmdastjóri Liver-
pool, kom síðan í öðru sæti og í þriðja
sæti var Sepp Piontek, þjálfari danska
landsliðsins, sem hafnaði í sjöunda
sæti í kjörmu yf ir lið ársins.
Við munum síðar segja nánar frá
kjöri World Soccer hér á síðunni.
Besta ár Ásgeirs!
Árið 1984 er tvímælalaust besta árið
á glæsilegum keppnisferli Ásgeirs
Sigurvinssonar sem var maðurinn á
bak við að Stuttgart varð v-þýskur
meistari 1984 — í fyrsta skipti í 32 ár.
Hann sýndi frábæra leiki á lokaspretti
keppninnar.
• „Forráöamenn Stuttgart geta
þakkað Ásgeiri Sigurvinssyni að þeir
hampa nú meistaratitlinum,” sagði
Karl-Heinz Rummenigge eftir sigur
Stuttgart.
• Ásgeir var kjörrnn besti leik-
maður V-Þýskalands 1984 af leikmönn-
um Bundesligunnar. Hann fékk 198
atkvæði en Karl-Heinz Rummenigge
32.
• Ásgeir og Harald Schumacher,
markvörður Köln, eru taldir einu leik-
mennirnir í V-Þýskalandi 1984 sem eru
á heimsmælikvarða.
• Ásgeir var annar í kjöri iþrótta-
fréttamanna í V-Þýskalandi um nafn-
bótina knattspyrnumaður ársins 1984.
Hann fékk 168 atkvæði en Schumacher
varð útnefndur — fékk 266 atkvæði.
Þeir fengu langflest atkvæði.
• Ásgeir var fyrirliði Islands er
Wales var lagt að velii 1—0 í eftir-
minnilegum leik í HM á Laugardals-
vellinum.
• Nýjasta skrautfjöðrin í hatt
Ásgeirs er aö hann er kominn á opin-
beran lista — yfir bestu knattspymu-
mennheimsl984. -SOS
Öskar Nikulásson.
Óskar til
Banda-
ríkjanna
i
Öskar Nikulásson, cinn af bestu
lcikmÖnnum Keflavikurliösins i I
körfuknattleik, sem leikur i 1. ■
deild, er á förum til Bandaríkjanna |
þar sem hann fer til náms i Trouds- _
burg University. Það er sami skóli |
og bróðir hans Áxel stundar nám ■
við. Það er mikill missir fyrir Kefl-1
vtkinga að missa þennan hávaxna I
lciktnann. Keflvíkingar vonast nú ■
cftir aö Þorsteinn Bjarnason, þjálf-1
ari liðsins og landsliðsmaður í “
körfuknattleik og knattspyrnu, taki |
aö nýju fram skóna og leiki með lið- .
inu. I
-■■■ 'S0^|
Hótað að myrða
stjóra Barcelona
Hólmbert tek-
ur við Kef la-
víkurliðinu
— gekk frá samningi við Kef Ivíkinga á föstudaginn
Hólmbert Friðjónsson hefur verið
ráðinn þjálfari 1. deildar liðs Kefla-
víkur í knattspyrnu. Hólmbert, sem
hefur þjálfað Keflavík, Fram og KR
undanfarin ár með góðum árangri,
skrifaði undir samning við Keflvíkinga
á föstudaginn og mun hann byrja að
þjáifa þá í janúar.
Það fór því cins og DV sagði frá 28.
nóvember sl., þegar við sögðum að allt benti
til að Hóimbert tæki við Keflavikurliðinu, en
þá sögðum við m.a. í lok greinarinnar: —
„Keflvikingar eru nú með stóran hóp af
snjöilum leikmönnum — reyndum Ieik-
mönnum og ungum strákum. Þeir þurfa
reyndan og snjaiian þjálfara til að halda rétt
á spilunum. Hver er færari til þess en
Hólmbert?”
Þess má geta að Hólmbert gerði Kefl-
víkinga að Islandsmeisturum 1969.
-SOS.
„Komdu þér á brott frá Spáni eða þú
deyrð,” hefur hvað eftir annað verið
sagt í símann hjá Terry Venables í
Barcelona. Morðhótanir hvað eftir
annað síðasta mánuðinn og spánska
lögreglan og þó einkum lögreglumenn í
Barcelona taka þessar hótanir mjög
alvarlega. Terry Venables gerðist
framkvæmdastjóri Barcelona sl.
sumar og undir stjórn hans hefur liðið
náð snjöllum árangri. Hefur góða for-
ustu i 1. deildinni. Venebles var áður
stjóri QPR í Lundúnum með góðum
árangri. Hann hefur um langt árabil
verið tekjuhæsti stjóri enskrar knatt-
spyrnu. Mjög vinsæll rithöfundur og
bækur hans seijast vel. Þá hcfur hann
gríðarlegar tekjur hjá Barcclona.
„1 fyrstu var hringt og sagt að ef ég
kæmi mér ekki aftur heim til Englands
þá mundi ég lenda í vandræðum. Eg
gaf þessu ekki mikinn gaum en síðan
hefur þetta færst í aukana. 1 tveimur
síöustu tilfellunum var sagt. Ef þú ferð
ekki verður þú myrtur. „Eg hef skýrt
Terry Venables.
lögreglunni frá þessu og málið er í
rannsókn. Talað á ensku með spænsk-
um hreim. Eg er hins vegar ekkert á
því að fara,” sagöi Venables í viðtali
við eitt ensku blaðanna. „Þetta hefur
raunverulega gert mig ákveðnari í að
ná góðum árangri hér. Eg get ekki
látiöslík fíflsigra.”
Lögreglan tekur hótunina alvar-
lega, Venables er fylgt á útileiki — það
fylgir stjórastarfinu á Spáni — og
hefur margfaldaö gæslu í sambandi
við hann til að tryggja öryggi hans.
Lögreglan hefur ekki getaö rakið
hvaðan símtölin koma. Það er hins
vegar grunur margra að þau séu frá
Madrid, frá einhverjum stuðnings-
manni eða stuðningsmönnum Real
Madrid. Gífurlegur rígur er milli
stuöningsmanna þessara tveggja
stærstu félaga Spánar.
Fyrir rúmum þremur ártun hafði
Barcelona forustu í 1. deild þegar mið-
herja liðsins, spánska landsliðsmann-
inum Quini, var rænt. Fannst ekki fyrr
en eftir nokkrar vikur, heill á húfi en
Barcelona varð af meistaratitlinum.
Þá fékk danski leikmaðurinn Alan
Simonsen, sem þá var hjá Barcelona,
einnig morðhótanir.
Barcelona hefur nú góðan mögu-
leika á að vinna spánska meistaratitil-
inn í fyrsta skipti í 10 ár undir stjórn
Terry Venables. Hins vegar er hörmu-
legt til þess að vita að slíkt geti átt sér
stað í íþróttum eins og raunin hefur
orðið á Spáni, moröhótanir og brott-
nám. hsím.