Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1984, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1984, Blaðsíða 43
DV. MÁNUDAGUR17. DESEMBER1984. 43 Fremur lítið farangursrými fyrir aftan aftursæti. Hér komst hjólastáll ekki fyrir. Fótarými íminna lagi aftur i. Loftar undir læri. Hér eru fimm dyr og niðurfellanlegt aftursæti hálft eða allt. 16 sm undir lægsta punkt. Fislétt stýri Það næsta sem gleður á Subaru Justy er stýrið. Alveg lauflétt tannstangarstýri og bíllinn leggur mjög vel á, í báöar áttir undir níu metrum í beygjuþvermál, samkvæmt minni mælingu. Fyrir minn smekk hefði stýrið mátt vera sneggra, minna doblað, því að þetta eru tæpir f jórir hringir á stýris- hjólinu, borð í borð. En jafnvel tíræð langamma gæti snúið þessu stýri og ungar stúlkur þurfa ekki í vaxtarrækt til þess að geta svift þessum bíl út og inn í stæði létti- lega. Stjórntæki liggja ágætlega við en það þarf aðeins að venja sig við þau því aö þetta eru rofar í tveimur lóðréttum röðum, sín hvorum megin við mælana, 20 sm undir lægsta punkt á kviðnum (púst). og hefur hver rofi aðeins eitt hlutverk: sérstakur rofi til þess eins að slökkva á þurrkum, næsti rofi fyrir ofan eingöngu letingi í gang, þar næsti hægur hraði og sá fjóröi hröð þurrkun. Fyrir bragöið taka þessir rofar nokkurt rými og rofar fyrir, afturrúöu- hita og þurrkur verða að vera neðar á mælaborðinu þar sem ekki er eins auövelt að ná til þeirra. Framsætin finnst mér full flöt og maður finnur til dæmis vel að sætin á stærri Subarunum veita betri stuðning til hliða og að baki en á þessum litla. En það er nóg fótarými frammi í Justy og olnbogarými. Lágt til lofts en vítt til veggja Justy er teppalagður og vistlegur. Vasar fyrir smádót eru í vinstri hurð, milli .framsæta og svo hanskahólf hægra megin en af einhverjum dular- fullum ástæðum er ekki vasi i hægri hurð, heldur ber málmur efst og neðst á hurðinni innanverðri. Stingur dálitið í stúf. Ojapanskt. Justy er 1,39 m hár. Það gefur því augaleið að það er ekki hátt til lofts inni í bílnum og í aftursæti er rými fyrir hnén takmarkaö ef framsætum er rennt alla leið aftur. Menn sitja það lágt í bílnum aö stuðning skortir undir læri og sé meðalstór maður í framsæti og renni því aftur í þá stöðu sem nægir honum nema hné meðalstórs aftur- sætisfarþega nánast viö bak framsætis. En breiddin í bílnum nýtist vel því að hjólaskálar stela ekki rými úr aftur- sæti og því drjúgt set fyrir börn og unglinga aftur í miðað við stærð bílsins. ' Aftursæti má fella niður í heilu eða hálfu lagi, en farangursrými er lítið fyrir aftan það, líkt og í fleiri bílum í þessum flokki. Hægt er að fá Justy með fimm dyrum. Eg sagöi áöan að tiræð langamma gæti snúið stýrinu á Justy. En jafnvel þótt hún væri komin yfir tirætt gæti hún sett í fjórhjóladrifiö þvi aö aðeins þarf að styöja fingri laust á takka á gírstangarhnúðnum og hókus pókus: raftæknin sér um að skella drifi á afturhjólin. Kemst furðu langt — með lagi Ég átti ekki von á miklu þegar ég fór aö aka þessum bíl um torleiði en hann kom mér á óvart. Krafturinn í vélinni fer langt með að vinna upp þann ókost að hafa ekki sérstaklega lágan neðsta gír og vegna þess hve bíllinn er stuttur var oft hægt aö smeygja honum um óslétt land og yfir ávala hryggi og þúfur. En það þarf lagni og útsjónarsemi til þess aö aka i torfærum án þess aö skemma hann að neðanverðu. En það var sem sagt hægt að skutlast á þessum bil á sumardekkjunum upp á Ulfarsfell í snjónum og ég varð undr- andi þegar hægt var að læða honum yfir ávöl börð, þar sem langir jeppar setjast á kviö. En stundum verður að halda fullmiklum hraða vegna þess, að fyrsti gírinn er ekkert ,,spes”-lágur. Það eru 16 sm undir lægsta punkt, sem er hlíf undir vélarpönnu og gír- skiptingu. 16 sm eru undir lægsta viökvæma punkt, púströr, og 17 sm undir gírkassa. 20 sm eru undir pústið undir miöjum kvið, og sömuleiöis undirdrif aðaftan. Það gafst ekki færi á að reyna Justy í vatni. Kveikjan liggur að vísu hátt en er beint aftan við kæliviftu. Kertin eru á framhlið vélar og riðstraumsrafall frekar neðarlega hægra megin við vél. En það er gott að komast að flestu. Niðurstaða: Kvikur en lágur til klofsins. Skemmtilegur, sparneytinn, lipur og snaggaralegur smábíll, sem gefur kost á fjórhjóladrifi sem nægir í flestum þeim tilfellum, þar sem skiptir sköpum að hafa drif á ölium: í hálku og minni- háttar torleiði. Verðið er aðeins fáum tugum þúsunda hærra en á algerlega sam- bærilegum bíl með drif aðeins að framan. Virðist ekki eins mikið ætl- aður til torfæruaksturs og aðrir fjór- hjóladrifsbílar í þessum verðflokki, en er þeim mun meira búinn kostum „venjulegs” bíls. Nú bíður maður spenntur eftir næstu landvinningum fjórhjóladrifsins, niður í lægstu verðflokka. Kannski fjórhjóladrifs- Trabant eða Skoda? ■ MERKJA MAL! jyrir ptjbraghsv'ómr ágólfogveggi WMmtMMMMMMMMMMMMm r ..- DLW er vestur-þýskt gæöamerki á góif- og veggdúkum. VMJ hefurá boðstólum margar gerðir af þessum vönduðu gólfdúkum, t.d. Royal-dúka fyrir stigaganga, vinnustaði, og þar sem mikið mæðir á. Vinyl-dúka ætlaða á baðherbergi, eldhús og ganga á heimilum, og síðast en ekki síst Linoleum-dúka, sem henta næstum hvar sem er, á heimilum eða vinnustöðum. Fjölmargir litir í boði. DELTEX er tákn fyrir úrvals alullarteppi, níðsterk og áferðarfalleg. Auk þess býður VMJ hin vinsælu Berber-teppi í mörgum litum. Thomsit THOMSIT er vestur-þýskt dótturfyrirtæki HENKEL, sem þekkt er af góðu hér heima. THOMSIT sérhæfir sig í framleiðslu margra límtegunda, grunna og á sparsli. Thompson THOMPSON á, eins og THOMSIT, ættir að rekja til HENKEL, og leggur áherslu á gerð sérstaklega áhrifaríkra hreinsiefna og bóna. THOMSIT og THOMPSON hafa verið leiðandi merki í um 100 ár. , er merkið okkar, það er samnefnari fyrir góðar vörur, ekki aðeins veggfóður, málningu og járnvörur. Við bjóðum örugga og góða þjónustu byggða á langri reynslu. VECCFÓÐRARINN - MÁLNINC & JÁRNVÖRUR' Síðumúia 4, símar 687171 og 687272 .
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.