Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1984, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1984, Blaðsíða 16
16 DV. MÁNUDAGUR17. DESEMBER1984. Spurningin Horfir þú á íþróttir í sjón- varpinu? Inga Dóra Kristjánsdóttir nemi: Já, ég horfi stundum á íþróttaþættina. Aöallega þegar blak og fótbolti eru á dagskrá. Þættirnir sem ég sé eru oftast mjög góöir. k Ingimundur Eymundsson, starfsmað- ur Bifreiöaeftirlitsins: Já, það geri ég. Eg horfi alltaf á fótbolta og stundum handbolta. Fótbolti er mitt aðaláhuga- mál. Guðmundur A. Jóhannsson þjónn: Nei, ég hef engan áhuga á íþróttum. Það kemur kannski fyrir að ég horfi á handbolta en fótbolti finnst mér alveg fáránlegur. Lovisa Jónsdóttir húsmóðir: Já, ég horfi alltaf á íþróttir. Bjarni er mjög góður og gaman hvað hann sýnir mikið af fótbolta. Fótbolti er það skemmti- legasta í íþróttunum. Olga Hjartardóttir simastúika: Eg horfi mjög lítiö á íþróttir. Þó horfði ég í sumar á það sem sýnt var frá ólympíuleikunum. En ég hef ekki mik-l inn áhuga á íþróttum yfirleitt. Friðrik Sturlaugsson, starfsmaður Saab-umboðsins: Já, ég horfi ailtaf á fótboltann. Ég hef mjög gaman af hon- um. Iþróttaþættirnir eru líka oftast ágætir. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Ergamalt fólk annars fíokks? Þórður skrifar: Það er illa farið með gamalt fólk nú til dags. Þó að við séum sú kyn- slóð sem byggði upp þetta þjóðféíag eins og það er i dag er það einskis metið. Hér áður fyrr var litið á gamalt fólk með viröingu vegna þess að gamalt fólk haföi og hefur svo mikið að segja þeim sem yngri eru og óreyndari. Nú er staðreyndin sú að litið er á okkur sem annars flokks þjóðfélagsþegna. Við erum ekki lengur til neins nýt og að því er virðist öllum til ama. Enginn vill lengur hafa gamalt fólk á heimilum sínum og ef það deyr ekki nógu snemma þá er því komið á einhver elliheimili. Þeim sem ekki eru svo „heppnir” aö komast á slíka stofnun, og eiga kannski enn sitt eigið heimili, er greiddur svo smánarlegur ellilif- eyrir að varla nægir fyrir brýnustu nauösynjum. Þetta fólk verður því i mörgum tilfellum að gefast upp og reyna að komast inn á elliheimili. Þó aö slíkar stofnanir séu að vissu leyti ágætir staöir er ekki hægt aö horfa fram hjá því að þarna er um að ræða biðstöö áður en dauðinn knýr ,, Við eigum nóg eftír," segir Þórður og hvetur tíl þess að gamalt fólk, sem enn hefurþrek tílað vinna, fái eitthvað að gera. dyra. Það er alveg sorglegt að inni á svona stofnun sé fólk sem vel gæti unnið einhverja létta vinnu en fær ekkert að gera. Eg kalla það ekki starf að föndra eða sauma i. Þeir sem ekki vilja dunda sér þannig verða bara að sitja og horfa í gaupnir sér aðgerðalausir. Það er biturt fyrir fólk sem hefur unnið alla ævi að fá ekki aö starfa áfram við einhverja létta vinnu meðan þaö hefur kjark og þrek til. Þetta verður til þess að öll lífslöngun hjá manni hverfur og maður bíöur aöeins eftir því að fá að fara yfir á bakkann hinum megin. Þaö er sárt að hafa átt þátt i því aö byggja upp nútíðina og fá svo ekki aö njóta þess sem maður hefur unniö fyrir. Það er búið að nota okkur og þó erum við sett til hliðar og öllum gleymd. Min skoðun er sú að við eigum enn nóg eftir. Eins og ég minntist á fyrr þá getum við miölað yngra fólkinu og þá sérstaklega bömunum af reynslu okkar. Við viljum enn leggja okkar af mörkum til þjóðfélagsins en ekki vera byrði á því. Takið það til greina. HfíNS PETERSEN HF YASHICA MF2 ájr.2S00 nett mundavél sem notar.35mm filmu • Innbyggt eilífðarllass, sem geíur merki sé notkun þess þörí. • Raíhlöður endast á u.þ.b. 250 ílassmyndir. • Engar stillingar MYNDARLEG GJÖF Ljót jólaljós Logiskrifar: Ein jólin ennþá með grýlu- og gyðingaljósum. Mikið hörmulega erum við fastheldin þjóö og sérstak- lega á þaö ósmekklega. Það eru nú ekki mörg ár síðan ljósa- perumar marglitu hurfu af svölunum í Alfheimunum og háu blokkunum í Ljósheimum en mikið óskaplega voru það lika ljót ljós, þessar marglitu 25 og 40 kerta ljósaperur sem raöað var á svartan rafmagnskapal og strengdur milli svalaendanna. t staðinn hafa komið sjöstjakaljósin frá Israel og eru þau nú i hverjum glugga eða svo til. — Það er ekki furða þótt útlendingar haldi aö hér búi gyðingar að meirihluta! Og enn kveikir Reykjavíkurborg á jólatrénu meö stóru perunum, þessum 40 kerta. Hvers vegna er nú ekki reynt að breyta til og nota litlar, glærar ljósaperur eins og þær er notaðar em á jólatr jám hjá flestum? Mér hefur verið tjáð að Rafmagns- eftirlit ríkisins neiti að viðurkenna lítil ljós til notkunar útivið. Astæöan er sögð vera íkveikjuhætta eða enn verri slys. Getur þetta verið rétt? Slík ljós eru mikið notuð úti víðs vegar um heim um jólaleytiö enda eru þau margfalt fallegri en grýluljósin sem við notum hér. Þessi stóru og ljótu ljós minna ein- hvem veginn fremur á Grýlu og Leppalúða en fegurð jólanna. Leiðinlegar tilkynningar Útvarpshlustandi hringdi: Eg hlusta mjög mikið á rás 1 og tilkynningamar þar hafa löngum farið í skapiö á mér. Nú fyrir enn eitt til- kynningaflóðið fyrir jólin er ég búinn að fá nóg. Það mætti halda aö verið sé að skaprauna hlustendum með þessum lestri. Þulirnir lesa þetta í leiðinlegum nöldurtón enda leiðist þeim vafalaust jafnmikið og okkur sem á þetta hlustum. Þar sem ég hlusta aldrei á rás 2 þá finnst mér þetta aiveg ófært. Er ekki hægt að spila létta sinfóníu eða einhver önnur lög undir lestrinum? Þaö myndi gera þetta mun áheyrilegra og um leið skemmtilegra fyrir okkur sem á hlustum. Eg ætla að vona að útvarpið taki þessa tillögu mina til greina þvi tilkynningalesturinn, eins og hann er Útvarpshlustandi er búinn að fá nóg af þurrum tilkynningalestrinum á rás 1. Hann leggur til að tónlist verði spiluð undir til að gera þetta áheyrilegra. nú, er mjög mikil lýti á annars ágætri dagskrá. Hringið I kl. 13-15 eða I SKRIFIÐl „Steingrímur sýndi dugnað og kjark” Pétur Pétursson hringdi: Ég vil vekja athygli á einstökum dugnaði forsætisráðherrans okkar, Steingríms Hermannssonar, er hann kom fram i sjónvarpi ásamt forystu- mönnum hinna stjórnmálaflokkanna. Steingrímur var þá nýkominn af skurðarborðinu eftir að hafa slasast illa á hendi eins og kunnugt er. Hann lét sig þó ekki muna um að mæta í þátt- inn og stóð sig þar með sóma eins og hans var von og vísa. Líklega heföi einhver ráðherrann sent aðstoðarmann sinn í þáttinn ef eins hefði staðið á fyrir viðkomandi. Þvi eins og nærri má geta er ekki létt verk að sitja fyrir svörum þegar spyrl- arnir eru þrjátíu talsins. En Steingrim- ur gerði þetta með sóma og sýndi af sér dugnað og kjark. Það eru hrein undur hvaö maðurinn leggur á sig fyrir land og þjóö. Mætti fólk oftar hafa það i huga þegar þaö þarf að beina gagn- rýnisspjótum sínum að ríkisstjórninni. Steingrímur Hermannsson á hrós skilið fyrir dugnaðinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.