Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1984, Blaðsíða 55

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1984, Blaðsíða 55
DV. MÁNUDAGUR17. DESEMBER1984. 55 ATSJÁRSTÖÐ Á LANGAIVÍESI? RATSJÁRSTÖÐ Á LANGANESI? RATSJÁRSTÖÐ Á LANGANESI? Jón Gunnþórsson, verkstjóri hjá Vegagerðinni: Eg er með ratsjár- stöðinni, skýlaust. Til dæmis vegna öryggis flugvéla. Svo kæri ég mig ekkert um Rússa upp í land- steinana. Þaö er lika ekkert vafa- mál að stöðin hefur mikla þýðingu fyrir Þórshöfn. Hún hefur í för með sér aukna breidd í atvinnulífinu. Pálmi Ólafsson skólastjóri:Eg er andvígur herstöö. Hinsvegar er ég hlynntur því að Islendingar stofni eigin her og annist varnir sínar á friðartímum í samvinnu viö vest- rænar þjóöir. Til dæmis ættu þeir að geta haldið njósnurum utan landhelginnar og hryöjuverka- mönnum af landinu. Þaö þyrfti enga Bandaríkjamenn til þess. Kolbrún Jörgensen, af- greiðslumaður í Söluskála Esso: Mér líst bara vel á að fá ratsjár- stöðina. Það er vöm í því að hafa hana. Við erum hér svo afskipt og langt í burtu frá öllu. Eg býst líka viö aö vinna aukist aðeins við þetta. Mér er alveg sama hvort þama verða íslendingar eða út- lendingar. Þorbjörg Þorfinnsdóttir húsmóðir: Ég er alls ekkert frekar meðmælt ratsjárstöðinni. Yfirleitt eiga her- stöðvar engan rétt á sér og trúlega myndi ég þá segja nei í atkvæða- greiðslu um hvort ætti að byggja slíka stöö hér. Ég lít á þessa stöö sem herstöð. Hinsvegar veitir ekki af því að auka öryggi fyrir flug. Ef ratsjárstöðin gerir það, þá er þetta jákvættmáL Jón Jóhanusson, afgreiðslumaður í Kaupfélagi Langnesinga: Mér líst vel á þetta. Það er kannski ekki mikið sem stöðin myndi þýða fyrir byggðarlagið. Við vitum ekki mikið um notagildið því flugmálastjóm hefur ekkert sagt ennþá. Ef þetta er eingöngu vegna hemaðar, þá höfum við ekki beinna hagsmuna að gæta. Ég tel að 60—70% fólks hér sé fylgjandi því að ratsjárstöðin verði byggð. Andrea Björnsdóttir, gjaldkeri Kaupfélagsins: Eg er út af fyrir sig algjörlega hlutlaus vegna þess að viö höfum engar upplýsingar fengið hvaðá tilgangi þessar rat- sjárstöðvar eigi að þjóna. Mér finnst sjálfsagt aö heimafólk fái aö vita um hvað er að ræöa. ÁLIT FRYSTI- HÚSKVENNA I Hraðfrystihúsi Þórshafnar var á fullum krafti verið að vinna afla sem togarinn Rauöinúpur kom meö þangaö. Til gamans var kannaö við- horf kvenna við snyrtingu til hugs- anlegrar ratsjárstöðvar í nágrenninu. Urtakið var ein röðin í salnum, konur við 10 borö. Fylgjandi vom 5, 3 á móti og2óákveðnar. Ummælin sem fylgdu vom marg- vísleg. Nokkur þeirra fara hér á eftir: Eg hef ekkert spekúlerað í þessu. Hér er ekkert mikið talað um þetta mál. Það er ekkert talað um hér núna nema jólabakstur. — Það er ekkert með þær að gera — Ef þetta þjónar einhverjum tilgangi þá finnst mér sjálfsagt að setja stöðina upp. Ef hún er til varna fyrir landiö. — Þaö er ekkert talað um nema fisk. Reyna aö drífa þetta af fyrir jólin. Ég held að það sé mjög' skipt með andann í fólki gagnvart þessu. — Ég held að það sé allt í lagi aö fá ratsjárstöð. Þeir sem vom á fjallinu þegar stöðin var hérna einu sinni gerðu okkur ekkert nema gott. Ég var krakki þá og þeir vom góðir við börn. Hérna vom þeir mjög lítið áber- andi. — Fyrir jólin buðu þeir bömum út á Hliðarf jall, ég man það sem bam. Þeir sýndu bíó og gáfu okkur sælgæti. — Mér finnst það bara allt í lagi ef stöðin veitir atvinnu. Eg man ekki eftir öðru en fólk væri ánægt þarna í vinnu og ég held aö það hafi ekki orðið fyrir neinu ónæði vegna hermanna. Það voru margir frægir menn sem unnu þama hjá íslenskum aðalverktökum, til dæmis Kjartan Jóhannsson. Her- menn sáust mjög lítið. Þeir fengu náttúrlega þó að keyra hérna í gegn. — Mér líst engan veginn á þetta. Eg er á móti herstöð en efstööin er nauösynleg fyrir innanlandsflug þá getur maður ekki annað en samþykkt. — Ef þetta er ekki herstöð segi ég já, aö því tilskildu lika að Islendingar sjái um reksturinn. —Ég vann hjá íslenskum aðal- verktökum í mötuneyti í þrjá mánuði. Mér fannst þetta ægilega gaman og spennandi. Það má segja aö launin hafi veriö hærri þar en í annarri vinnu. Maður eyddi ekki neinu. Gegn ratsjárstöð Samþykktir hafa verið gerðar og ályktanir af fólki sem býr í nágrenni Heiðarfjalls, gegn fyrirhugaðri rat- sjárstöö. Um 200 manns tóku þátt í friöargöngu á Langanesi 7. júlí í sumar. I ályktun sem samþykkt var í lok hennar segir að það sé ósk göngunnar að „stjórnvöld láti af öllum hugmynd- um um Norðausturland í sambandi við uppsetningu ratsjárstöðva eða ann- arra mannvirkja sem tengjast hem- aði.” Hreppsnefnd Sauðaneshrepps gerði eftirfarandi samþykkt 16. september síöastliöinn. „Hreppsnefnd Sauðanes-' hrepps mótmælir harðlega öllum áætlunum um byggingu hernaðar- mannvirkja á Norðausturlandi. Jafn- framt telur hreppsnefndin að sérhver ný hernaöarframkvæmd auki á ófriðarhættu og heppilegra sé til árangurs að leggja herstöðvar niður vilji menn stefna að friði. ” TORFÆRUTRUKKAR Fimm gerðir af bílum. Fylgihlutir: Steypuhrærivél, krani, færiband, kerra með sturtum og fleiri skemmtileg tæki sem vinna sín verk þegar þau hafa verið tengd við bílinn. Kaupmenn — innkaupastjórar, hafið samband. Heildsölubirgðir. i|| INGVAR HELGASON HF. VONARLANDI V/SOGAVEG, SIMI 37710. Ortakið i skoðanakönnuninni var ein röð, konur við tíu borð, S voru fylgjandi, 3 á móti og 2 óákveðnar. Bláskógar OPNA GJAFAVÖRU VERSLUN ~T~ ! i j f HOLME GAARD OG AÐRAR GÓÐAR GJAFAVÖRUR e X P % í i t \ t \ . i v -■ f' * f. c ^ x X V. ii'i 1 ' v \J^' \ / ^ y \ 1 10% KYNNINGAR- AFSLÁTTUR TILJÓLA * . > j j I ; 1: | I | j » 1 . . Í 1 Í l i • -gja jt 1 • r w 1 m HIH Bláskógar Ármúla 8. Sími 68-60-80.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.