Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1984, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1984, Page 22
22 DV. MANUDAGUR17. DESEMBER1984. „Söngurog matargerð fara vel saman” Rætt við Laufeyju Steingrímsdóttur næringarf ræðing Undanfarnar vikur hefur sjónvarpið sýnt flokk fræðslumynda undir nafninu Matur og næring. Umsjón með þáttun- um hefur Laufey Steingrímsdóttir næringarfræöingur. Laufey lærði lif- fræði og síðar næringar- og lifeðlis- fræði i Bandarflcjunum og lauk þaðan ' doktorsprófi áriö 1979. Hún bjó vestra í 10 ár en fyrir 5 árum fluttist hún heim. Laufey er nú dósent í næringarfræði við Háskólann. Laufey sagði að mikil vinna hefði farið i þættina. „Þetta er mun tíma- frekara en maöur ætlar i fyrstu. Aö visu tók upptakan aðeins f jóra daga en mikill timi fór i undirbúning og skipu- lagningu. Það kemur manni á óvart hve margs er aö gæta og hversu marga þarf til aö gera svona þátt. Eg vil sér- staklega geta þess hvað samstarfiö með sjónvarpsfólkinu var ánægju- legt.” Hvernig hafa viðbrögö áhorfenda verið? „Þau hafa verið afskaplega jákvæð og allir sem við mig hafa talað eru ánægðir. En sjálfsagt þegja þeir sem eru óánægðir. Annars held ég að það hafi verið full þörf á að gera svona þætti.” Hafa matarvenjur fslendinga breyst ásíöustuárum? „Það er alkunna að venjumar hafa breyst mikið síðustu áratugina. Eg held einnig aö allt heilsufæðitalið siö- ustu árin hafi haft töluverð áhrif, e.t.v. meiri en fólk gerir sér grein fyrir. Framboðið á matvörum bendir m.a. til þessa.” Er matargerðin aðaiáhugamáliö? „Nei, varla. En ég hef gaman af að borða góöan mat. Ég elda heima fyrir f jölskylduna eins og flestar húsmæður hér á landi. En af þvi sem beinlinis mætti kalla áhugamál er söngurinn í fyrsta sæti. Eg er í Mótettukórnum og hef mikla ánægju af starfinu og félags- skapnum þar. Andinn hjá kómum er mjög góöur. T.d. koma félagarnir með börnin með sér á æfingar. Það fer auðvitað mikill timi i kórinn en ég sé ekki eftirhonum.” Eiginmaöur Laufeyjar er Daniel Teague. Hann er Bandaríkjamaður og vinnur hjá útflutningsfyrirtækinu Hiidu hf. Þau eiga tvö böm. -GK TvÆR AToPPNUM ___ DAGBÓK KNATTSPYRNUNNAR 1984 í MÁLI OG MYNDUM - VÖNDUÐ BÓK SEM GEYMIR MINNINGAR UM VIÐBURÐARÍKT KNATTSPYRNUÁR. VIÐBURÐARÍKT KN ATTSPYRN UÁR 1984! íbók VíðisSigurðssonar, íslensk knattspyrna 1984 er allt um viðburði ársins: sigrana, glæsimörk- in, baráttuna, ósigrana. Sumir atburðir munu seint gleymast, t.d. sigurinn á Walesbúum á Laugardalsvellinum í undankeppni HM og glæsilegur árangur Ásgeirs Sigurvinssonar í Vestur-Þýskalandi, en íslensk knattspyrna 1984 varðveitir þá alla. Litmyndir af meistaraliðum ársins 1984, ítarlegar upplýsingar um félög og leikmenn. Leikir allra leikmanna í 1. og 2. deild karla og 1. deild kvenna. Mörkin. Svart/hvítar myndir af öllum liðum 1. deildar karla og lokastöður í öllum deildum og flokkum íslandsmótsins: / VATNAVITJ U N Frásögurfjögurra þekktra veiðimanna af veiðiferðum, veiðigleði og fengsælli vatnavitjun í fegurð íslenskrar náttúru. Guðmundur Guðjónsson tók saman. Hver og einn hefur sína sérvisku og aðferðir við veiðar: Ólafur G. Karlsson tannlæknir, Rafn Hafnfjörð prentsmiðjustjóri og Ijósmyndari, Hjalti Þórarinsson læknir og Guðlaugur Bergmann framkvæmdastjóri lýsa veiðum með mismunandi agni, segja skemmtileg- ar sögur af ónefndum veiðimönnum og skynsömum löxum og rifja upp ógleymanlegar veiðiferðir. VATNAVITJUN — AGN SEM HVER EINASTI VEIÐIMAÐUR BÍTUR Á. *©i Bókhlaðan

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.