Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1984, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1984, Síða 38
38 DV. MANUDAGUR17. DESEMBER1984. íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir Fairclough rekinn út af og Everton fór í gang! — Fjögur efstu liðin í 1. deild unnu góða sigra á laugardag Þaö gekk á ýtnsu hjá Nottingham Forest íraman af leiknum við Everton á Goodison Park í Liverpool á laugar- dag. Gary Mills var borinn af veili slasaður á 10. mín. og kom Colin Walsh í hans stað. Þegar rúmur hálftími var af leik var biökkumaðurinn ungi í vörn Forcst, Chris Fairclough, rekinn af velli eftir tvö ljót brot á stuttum tíma. Forest lék meö tíu leikmönnum það URSUT Úrslit í leikjum ensku knatt- spyrnunnar um helgina. 1. deild Arsenal-WBA 4-0 A. Villa-Liverpooi 0—0 Chelsea-Stoke 1—1 Coventry-Southampton 2—1 Everton-Nottm. For. 5—0 Ipswich-Sunderland 0—2 Leicester-Luton 2—2 Man. Útd.-QPR 3—0 Newcastle-Norwich 1—1 Watford-Tottenham 1—2 West Ham-Sheff. Wed. 0—0 2. deild Barnsley-Oxford frestað Cardiff-Wimbledon 1—3 Charlton-Man. City 1—3 Grimsby-C. Palace 1—3 Leeds-Birmingham 0—1. Oldham-Carlisle 2—3 Portsmouth-Huddersf. 3—2 Sheff. Utd. Brighton 1—1 Woives-Blackburn 0—3 Föstudagur: Middlesbro-Shrewsbury 1—1 3. deild Bolton-Millwall 2—0 Bournemouth-Bristol C. 2—1 Bristol Rov.-Newport 2—0 Burnley-Swansea 1—1 Dcrby-Orient 1—0 Hull City-Walsall 1—0 Lincoin-Gillingham 2—0 Plymouth-Cambridge 2—0 Preston-Brentford 1—1 Reading-Bradford 0—3 Rotherham-York 4—1 Doncaster-Wigan 1—1 4. deild Crewe-Chesterfield 1—1 Exeter-Peterbro 0—1 Hartlepool-Northampton 0—0 Hereford-Halifax 3—0 Mansfield-Scunthorpe frcstað Port Vale-Darlington 0—2 Rochdale-Southend 2—2 Swindon-Colchestcr 2—1 Torquay-Biackpool 0—2 Tranmere-Aldcrshot 4—3 Wrexham-Bury 3—0 Stockport-Chester 5—1 sem eftir lifði leiks og rcyndar níu und- ir lokin er David Riley meiddist. Leik- menn Liverpool-Iiðsins nýttu sér það vel, unnu stórsigur, 5—0. Fyrsti sigur Everton í síðustu fimm leikjunum og liðið hefur þvi enn forustu i 1. deild. Næstu lið, Tottenham, Man. Utd og Arsenal, unnu hins vegar öll góða sigra svo staðan breyttist ekki á toppnum. Everton hafði skoraö eitt mark þegar Fairclough var rekinn af velli. Graeme Sharp skoraði á 20. mín. Ytti knettinum í markið eftir skalla Andy Gray, sem er nú fastamaöur í liði Everton eftir að Adrian Heath meidd- ist. Kevin Sheedy skoraði annað mark Everton á 32. min. eftir undirbúning Peter Reid. Rétt fyrir hálfleik skoraði Trevor Steven þriðja mark Everton. I síöari hálfleiknum var um algjöra ein- stefnu aö ræða. Reid skoraöi fjóröa markið á 51. mín. og Sharp það fimmta. Evertori fékk tækifæri til aö skora miklu fleiri mörk en aðeins einu sinni þurfti Southall, markvörður Everton, að verja skot. Það geröi hann líka vel — frá Ian Bowyer, fyrirliða Forest. Ahorfendur 22.487. Litli Olsen með Jesper Olsen, litli, leikni Daninn, lék á ný í liöi Man. Utd í staö Arnold Miihren en þaö er varla þorandi að láta hann leika á útivelli vegna hroöalegrar meðferðar sem hann fær í leikjunum. Þá var Allan Brazil miöherji með Frank Stapleton í staö Mark Hughes sem er í leikbanni. I gær hélt stjórinn, Ron Atkinson, til Hollands til að ræða um kaup á hollenska miðverðinum sterka, Ernie Brandt hjá PSV. Brandt er margreyndur hoUenskur landshðs- maður og Atkinson verður að gera eitt- hvað tU að þétta hina hripleku vöm United síöan Kevin Moran slasaðist. Eftir snjaUan Ieik QPR gegn Southampton fyrr í vikunni var talið að liöiö hefði möguleika á Old Trafford. En það var öðru nær, Man. Utd lék einn af sínum bestu leikj um á leiktíma- bilinu og úrslitin, 3—0, gefa ekki beint rétta mynd af gangi leiksins. Svo mikl- ir voru yfirburðir United. FyrirUðinn, Bryan Robson, hreint frábær og Stapleton sýndi gamla takta. Oft glæsi- leg knattspyrna. Það voru bakverðirnir John Gidman og Mike Duxbury sem skoruöu tvö fyrstu mörk leiksins. John Gidman skoraði hiö fyrra á 25. mín. eftir undir- búning Robson. Fyrsta mark hans fyrir United síðan 20, aprU 1983. Dux- bury skoraði á 43. mín. eftir undirbún- ing Reme Moses. Ytti knettinum í mark en Gidman skoraði með þrumu- fleyg. MUU markanna hafði Brazil átt skot í þverslá, — Albiston bakvörður skot í stöng. I síöari hálfleiknum skor- aöi Brazil þriöja mark Man. Utd. Liðiö fékk einnig vítaspyrnu sem Gordon Straekan tók. Markvörður QPR, Peter Hucker, varði spyrnuna. Hann var langbesti maður QPR í leiknum. Varði hvaö eftir annað frábærlega vel. Áhorfendur voru aðeins 36 þúsund og þaö er lítið á Old Trafford. „Þeir misstu af miklu, leikmenn Man. Utd sýndu oft stórglæsilega knattspymu,” sagði Stewart HaU, fréttamaður BBC. Jafnt á Villa Park Paul Walsh lék með Liverpool á ný á VUla Park þar sem markverðirnir Nigel Spinks og Bruce Grobbelaar voru í aðalhlutverkunum. Hins vegar var Mark Lawrenson ekki með vegna meiðsla og hjá Aston Villa var Gordon Cowns settur úr Uðinu. Bakvörðurinn CoUn Gibson var í stöðu hans á miöjunni hjá ViUa og á 3. mín. var hann óheppinn að skora ekki. Renndi sér gegnum vörn Liverpool og spyrnti á markið. Knötturinn fór í Grobba og vissi hann lítið af því. Leik- menn VUla voru miklu ákveðnari framan af og leikurinn oft ágætur. Alan Kennedy, bakvörður Liverpool, bjargaði á eigin markUnu en síðan fór Liverpool að koma meira og meira inn í leikinn. Þó varðiGrobbi einnig vel frá Paul Rideout en það var þó Spinks, markvörður Villa, sem vann glæsileg- asta afrekið í leiknum. Eftir að John Wark hafði gefiö á Ian Rush, sem spyrnti á markiö af stuttu færi, varöi Spinks á hreint ótrúlegan hátt. Jafn- tefli í lokin og ekkert mark skoraðí leik sem þó yljaði áhorfendum vel. Réttlát úrsUt og áhorf endur 24 þúsund. Misnotuð vítaspyrna Luton Town kom á óvart í Leicester og náði jafntefli en Leicester misnotaði vítaspymu í leUcnum. Það var nýi leik- maðurmn frá Birmingham, Mike Har- ford, sem skoraði jöfnunarmark I.uton undir lokin. í fyrri hálfleiknum var aðeins eitt mark skorað. Brian Stein var þar að verki fyrir Luton en Steve Lynex „brenndi af” vítaspyrnu fyrir Leicest- er. Lynex bætti þaö upp að nokkru meö því að jafna í byrjun síðari hálfleiks. Alan Smith kom Leicester svo yfir áður en Harford skoraði í sínum fyrsta leik meðLuton. Newcastle og Norwich gerðu jafn- tefU, 1—1, í heldur slökum leik, sem sýndur var beint í íslenska sjónvarp- inu. Þar voru áhorfendur 20.030. Blökkumaðurinn Lou Donowa skoraði fyrir Norwich í fyrri hálfleik. Chris Waddle, sem sýndi oft skemmtilega takta, jafnaði fyrir Newcastle í síöari hálfleik. Blackburn heldur forustu í 2. deild eftir auðveldan sigur á laugardag á afar slöku liði Wolverhampton og þaö án þess að sýna nokkuð sérstakt. Hefur 40 stig en Oxford er í öðru sæti með 37 stig. Hefur leikið tveimur leikjum minna. Greinilegt að það verður mikil keppnin um sætin í fyrstu deild, mörg lið um hituna. Portsmouth stöövaði sigurgöngu Huddersfield sem hafði fengið 27 stig af síöustu 30 mögulegum. Þó leit illa út fyrir Portsmouth um tíma. Huddersfield náði tvisvar for- ustu, annaö markið sjálfsmark Waldron, en þeir Blake og Biley skoruöu tvö síöustu mörkin í leiknum fyrir Portsmouth. Philips, Smith og Melrose skoruöu mörk Man. City gegn Charlton og þetta fræga lið er nú komiö í toppbaráttuna í 2. deild eftir gott gengiaðundanförnu. hsím. • Chris Fairclough, rekinn af velli á Goodison Park. Hér er hann með stjóranum, Brian Clough, sem oft hljóp út að hliöarlínu vallarins á laugardag. • Graeme Sbarp, skoraði tvö af mörkum Everton. l.DEILD Everton 19 11 4 4 40-23 37 Tottenham 19 11 3 5 39—19 36 Man. Utd 19 10 5 4 38—24 35 Arsenal 19.11 2 6 38—25 35 Southampton 19 8 7 4 23-19 31 Chelsea 19 7 7 5 31—20 28 Sheff. Wed. 19 7 7 5 29—21 28 Liverpool 19 7 7 5 24—19 28 WBA 19 8 4 7 32—28 28 Norwich 19 7 6 6 27—26 27 Nott. Forest 19 8 3 8 29—31 27 West Ham 19 7 6 6 23—25 27 Sunderland 19 7 5 7 27-26 26 Newcastle 19 6 7 6 32—35 25 Leicester 19 6 4 9 33-37 22 QPR 19 5 7 7 23-32 22 Watford 19 S 6 8 37—38 21 A. Villa 19 S 6 8 21-33 21 Ipswich 19 4 7 8 19—26 19 Coventry 19 5 4 10 19-33 19 Luton 19 4 6 9 23—38 18 Stoke 19 1 5 13 14-43 8 2. DEILD Blackburn 19 12 4 3 41-17 40 Oxford 17 11 4 2 40-16 37 Portsmouth 19 10 6 3 31—22 36 Birmingham 19 11 3 5 23-14 36 Man. City 19 10 5 4 27—15 35 Barnsley 18 9 6 3 22-11 33 Leeds 19 10 2 7 35—25 32 Huddersfield 19 9 4 6 26—24 31 Grimsby 19 9 3 7 36-31 30 Fulhám 18 9 1 8 31—31 28 Brighton 19 7 5 7 18—14 26 Shrewsbury 20 6 7 7 34—32 25 Wimbledon 19 7 4 8 36-42 25 Carlisle 19 7 4 8 20—26 25 Wolves 19 6 3 10 27—39 21 Chariton 19 5 5 9 25-31 20 Cr. Palace 19 4 7 8 25—28 19 Middlesbro 19 5 4 10 24—34 19 Oldham 19 5 4 10 20-38 19 Sheff. Utd. 19 3 8 8 25-33 17 Cardiff 19 3 2 14 23-43 11 NottsCo. 18 3 1 14 17—40 10 Þú getur próflaus qkið bíl frá Tómstundahúsinu — og gleymdu ekki varahlutaþjónustunni — Tómstundahúsið er efnilega alvöru bílaumboð. Póstsendum um land allt. TÓmSTUflDflHÚSIÐ HF LaugauegilBt-Reukjauik s=S1901 í Tómstundahúsinu fæst geysilegt úrval af fjarstýrðum bílum af öllum gérðum og í öllum verðflokkum. Jeppar — Pickup — Buggí — Rallí — og hreinir kappakstursbílar. Allt þetta fæst hjá okkur ásamt tilheyrandi mótorum og fjarstýringum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.