Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1985, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1985, Síða 3
DV. FIMMTUDAGUR10. JANUAR1985. 3 Yfirflug- stjóri Amarflugs hættir Arngrímur Jóhannsson, yfirflug- stjóri og einn af helstu stofnendum Amarflugs, hefur sagt starfi sínu lausu hjá félaginu. Hann lætur af störf- um í apríl næstkomandi. Arngrímur mun snúa sér aö rekstri tveggja fyrirtækja sem hann er hlut- hafi í, flugskólans Flugtaks og flugfé- lagsins Air Arctic, sem hyggst starfa á erlendum leiguflugsmörkuðum. Air Arctic tók nýlega á leigu Boeing 707 þotu og leigði hana síöan, án áhafna, til belgísks flugfélags um þriggja mán- aða skeið. Amgrímur á sæti í stjórn Amarflugs sem fulltrúi starfsmanna. -KMU. Auknar niður- greiðslur á raforku til húshitunar Iðnaöarráðherra hefur ákveðið að auka niðurgreiðslur á raforku til hús- hitunar frá og með 1. janúar 1985. Er þetta gert í framhaldi af hækkun á gjaldskrám orkufyrirtækja sem tóku gildi um sL áramót. Þá hækkuðu t.d. hitataxtar Rafmagnsveitna ríkisins um 17% og hefur nú verið ákveðið að auka niðurgreiðslur um ríflega þá prósentutölu, eða 19%, til þess að draga úr áhrifum hækkunarinnar á upphitunarkostnaði heimila. Verða niðurgreiðslumar auknar úr 0,53 kr./kwh í 0,63 kr./kwh á aðaltaxta Raf- magnsveitna ríkisins, Cl, og tilsvar- andi hjá öörum þeim orkufyrirtækjum sem niöurgreiðslna njóta. Með þessum auknu niðurgreiðslum eru stjórnvöld að leitast við að halda hækkunum á raforku til upphitunar i lágmarki. Á næstu mánuöum mun verða gert enn aukið átak til aö fá þá sem enn nota olíu til upphitunar íbúðarhúsnæð- is til að breyta yfir í raforkuupphitun. Eru hinar auknu niðurgreiðslur liður í því. Þess er fastlega vænst að ekki þurfi að koma til frekari hækkanir á raf- orkuverði á þessu ári og mun þannig halda áfram raungildislækkun raf- orkuverðstil húshitunar. Samkvæmt spá Þjóöhagsstofnunar fyrir árið 1985 stefnir í allt að 30% raunlækkun rafhitunar í lok þessa árs. -AG Helgarskákmót íKópavogi 28. helgarskákmótiö verður haldið í Kópavogi um næstu helgi. Mótið verður sett föstudaginn 11. jan. kl. 16.00 í Menntaskólanum í Kópavogi. Búist er við mikilli þátttöku og munu margir af okkar sterkustu skákmönn- um mæta til leiks. Minkur í sjóferð Bátsverjum á Hjördisi, trillu frá Sandgerði, brá heldur en ekki í brún á dögunum þegar þeir voru að koma úr róðri. „Það er rotta þama niðri,” sagði einn þeirra um leið og hann stökk upp úr lestinni. Þegar betur var að gáð reyndist þarna vera minkur. Virðist sem hann hafi verið með í róðrinum allan tímann. Minkurinn slapp upp úr bátnum og hvarf fljótt sjónum manna. -KMU/Ó.J./Keflavík. Tökum flesta notaða bila upp i nýja. Munið bílasýningar okkar allar helgar kl. 14— 17. Nú fimm gíra í stað fjögurra áður og auðvitað með háu og lágu drifi að auki. Eiginlega er SUBARU með tíu gíra áfram og tvo gíra afturábak. Slaglöng, sjálfstæð gormafjöðrun að aftan í stað flexitora áður. Endurbætt fjöðrun að framan. Stærri að ytra og innra máli en áður, óneitanlega fallegri. Nýtt og fjölbreytt litaúrval. Hlaðinn allskonar þægindaaukum, svo sem aflstýri, ,,central” hurðalæsing- um, skuthurð og bensínlok eru opnanleg innanfrá, hæðarstilling á bílstjóra- sæti, stilling á stuðningi við bakið á bílstjórasæti, rafknúin fjarstýring úti- spegla, stillanleg stýrishæð, snúningshraðamælir, tölvuklukka og margt fleira. Ný vél með reimdrifnum, yfirliggjandi knastásum, sparneytnari, þýðari og kraftmeiri en gamla vélin. AKIÐ EKKI ÚT í ÓVISSUNA - AKIÐ Á SUBARU. iH INGVAR HELGASON HF. Sýningarsalurinn/Rauðagerði, sími 33560.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.