Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1985, Side 10
10
DV. FIMMTUDAGUR10. JANUAR1985.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
SOKOLOV MARSKÁLKUR
HINN NÝIVARNAR-
MÁLARÁÐHERRA
SOVÉTRÍKJANNA
Sergei L. Sokolov, 73 ára gamall
marskálkur og einn af áhrifamestu
aöstoöarráðherrunum í varnarmála-
ráðuneytinu sovéska, var valinn á
dögunum eftirmaöur Dimitri
Ustinovs varnarmálaráöherra.
Forveri hans lá þá enn á lík-
börunum í húsi verkalýöshreyfingar-
inneu- (glæsihöll frá 18. öld), enda
tæpursólarhringurþáfráþví aöfrá-
falL Ustinovs hafói veriö gert
kunnugt.
Löngu afráðið
Tilnefningu Sokolovs bar óvenju-
lega brátt aö eftir því sem gengur og
gerist í Sovétríkjunum um slik
mannaskipti í kjölfar andláts. Venju-
lega er beðið, þar til jarðarförin
hefur fariö fram. — Fréttaskýr-
endur, sem gleggst fylgjast meö því
er fram fer aö baki Kremlarmúrum,
ieggja þetta út á þann veg, aö valið á
Sokolov hafi þegar veriö afráöiö
löngu fyrir fráfall Ustinovs.
Valið á Sokolov kom heldur engum
á óvart. Hann var líklegastur til
þessa embættis, ef flokksforystan á
annaö borö vildi sækja vamarmála-
ráöherrann í raöir foringja Rauöa
hersins. Staöa Sokolovs haföi styrkst
strax í október þegar fyrstu fréttir
tóku aö kvisast út um veikindi
Ustinovs. Menn höföu einnig séö
teiknin á veggnum, þegar Sokolov
var staðgengill vamarmálaráðherr-
ans viö hina heföbundnu hersýningu
á Rauöa torginu á byltingarafmæl-
inu 7. nóvember.
Áhrifaminni
Raunar hefur fariö fremur lítiö
fyrir Sokolov á embættisferli hans,
þótt hann hafi allar götur síöan 1967
veriö einn af þrem aðalaðstoðar-
ráöhermm í varnarmálaráðu-
neytinu. Er ekki vitaö til þess að
hann ali á neinum sérstökum um-
bótadraumum, og því ekki vænst
stórra breytinga við embættistöku
hans.
Því fer f jarri, aö Sokolov sé neinn
bógur á borö viö Ustinov, sem kom úr
rööum borgaralegra forkólfa flokks-
ins en ekki hemum. Nýtur hann ekki
nándar nærri svipaðra áhrifa.
Líklegt er, aö hluti af völdum Usti-
novs og áhrifum falli á hendur
Grigori Romanov, sem á sæti í æðsta
ráðinu og ber gagnvart
miðstjóminni aðalábyrgöina á víg-
búnaðinum og vopnaframleiöslunni.
Romanov
metnaðarmeiri
Romanov heföi veriö sá, sem helst
kom til greina, ef flokksforustan
heföi valiö mann utan hersins í sæti
Ustinovs. Romanov tilheyrir yngri
kynslóöinni í vaidaklíkunni og hefur
verið einna helst nefndur auk
Mikhails Gorbatsjovs sem líklegt
leiötogaefni í framtíðinni. I seinni
tiðinni er þaö aðallega Gorbatsjov
sem getiö er í því sambandi og
álitinn líklegasti eftirmaöur
Tjernenkos forseta ef Tjernenko félli
frá.
Raunar þykir þaö hvaö athyglis-
veröast viö tilnefningu Sokolovs
marskálks (sem er 73 ára) en ekki
Romanovs, aö það bendi til þess aö
metnaður Romanovs liggi hærra en
til vamarmálaráðherrastólsins sem
aö líkindum er þá sjálft leiötoga-
sætiö.
A tvinnuhermaður
Sergei Sokolov hefur veriö at-
vinnuhermaöur síðan 1932 þegar
hann tuttugu og eins árs gamall gekk
í Rauða herinn. Hann gegndi her-
Sergei L. Sokolov, mar-
skálkur og nú varnar-
málaráðherra.
þjónustu í brynvagnadeildunum og
stjórnaöi í heimsstyrjöldinni ýmsum
skriödrekasveitum. Meöal annars
baröist hann í Karelen í vetrar-
stríðinu viö Finna 1939—40. Hann er
aö sjálfsögöu félagi i sovéska
kommúnistaflokknum (frá því í
hreinsununum miklu 1937) og hefur
átt sæti í miðstjórninni síðan 1968.
Hann hefur hinsvegar ekki gegnt
mörgum eða mikilvægum pólitískum
stöðum og á til dæmis ekki sæti í
æðsta ráðinu. Þar í liggur skýringin
á því, að hann nýtur ekki svipað því
slíkra áhrifa og forveri hans,
Ustinov. Er eftir að koma í ljós hvort
hann tekur sæti í æösta ráðinu sem er
ekki endilega víst ef verkahringur
hans sem ráöherra veröur líkt og
flestra annarra ráöherra einungis aö
hrinda í framkvæmd ákvöröunum
sem framkvæmdaráð miöstjórnar
og æösta ráðs hafa tekið.
Getnaðarvamar-
pillan ekki
fyrir yngri en
sextán ára
var niðurstaða dómstóla í Bretlandi
Tíu bama milhstéttarmóöir í Bret-
landi hefur um nokkra hríö verið
miðdepill mikillar umræöu þar um
siðferðishliðina á bameignatak-
mörkunum. Hefur hún gert ráöherra
ríkisstjórnarinnar klumsa, lækna-
stéttina, leiöarahöfunda blaðanna og
samtök, sem helga sig fjölskyldu-
stæröum og áætlunum þar um.
Þessi 37 ára gamla móöir heitir
Victoria Gillick, er kaþólskrar trúar
og hefur barist fyrir því aö læknum
veröi meinað að gefa út lyfseöla á
getnaðarvarnarpillur fyrir stúlkur
yngri en sextán ára án vitundar eða
samþykkis foreldra.
Umdeildur úrskurður
Á síðustu dögum fyrir jól haföi frú
Gillick sigur fyrir áfrýjunarrétti,
næstæðsta dómstigi landsins í próf-
máii sem kemur yfirvöldum og
læknafélaginu breska í nokkum
bobba. Með úrskuröi sinum inn-
leiddu allir þrír dómendur í raun þaö
bann sem móðirin hefur veriö að
heimta allar götur frá því 1981. Þaö
sem hefur veriö alvanalegt meöal
lækna í nær áratug flokkast nú undir
lögbrot.
Það hefur ekki staöið á viöbrögö-
unum. Því er spáð aö mjög munu
færast í vöxt þunganir og þá um leið
fóstureyðingar. Læknar láta í ljós
kviöa fyrir lögsóknum ef þeir skrifi
upp á pilluresept og sumir ráöherr-
ar stjórnarinnar segja aö þeir vilji
skjóta málinu til lávaröadeildar
þingsins sem er æösta dómstig til aö
hnekkja úrskuröi áfrýjunarréttar-
ins. — „Það er einfaldlega í al-
mannaþágu að æösti dómstóll lands-
ins setji það alveg skýrt niður
hvemig túlka beri lögin,” sagði
Kenneth Clarkeheilbrigðisráðherra.
Strangtrúaður kaþólikki
Konan, sem þessu umstangi öllu
veldur, hefur aldrei veriö oröuð við
stjómmál eöa landsmál af neinu tagi
áður. Sem móöir tíu bama hefur hún
haft í nógu að snúast inni á heimili
sínu í Cambridgeshire um 130 km
norður af London. Hún og bóndi
hennar, Gordon, eru bæði strangtrú-
aöir kaþólikkar og ala börnin upp án
sjónvarps eöa nútíma leikfanga sem
þeim finnst heyra til hrömandi siö-
gæöi nútímans.
Victoria Gillick hóf baráttu sina í
málinu þegar hún komst aö raun um
aö reglugerðir og stefnuvísandi
ábendingar veittu lækni frjálsar
hendur til þess aö láta einhverja
dóttur hennar hafa pilluna án vitn-
eskju hennar, móöurinnar. Hún not-
aöi sparifé fjölskyldunnar og eins
gjafamálsóknarheimild þess opin-
Umsjón:
Guðmundur
Pétursson
bera til þess aö höföa mál sem leiddi
loks til þessarar niðurstööu fyrir jól-
Tvískinnungur
Þama varsemsé sett á oddinn tví-
skinnungurinn í því aö stúlkum séu
látnar í té getnaöarvamir þótt of
ungar séu samkvæmt laganna ski?-
greiningu til þess aö hafa kynmök.
Þetta hefur verið vandræðaleg sið-
gæöisspurning sem flestar Iands-
stjómir reyna aöleiöa hjá sér.
En Victoria hélt því fram aö þessi
pilluúthlutun án vitundar foreldra
unglingsstúlkna heföi i för meö sér
umsvifameira kynlíf unglinga undir
lögaldri og aöstoðaöi unglingana í aö
fara á bak viö foreldrana sem græfi
undan fjölskyldulífinu. ,,Ef mín böm
þurfa hjálpar meö eða ráðleggingar
eiga þau aö koma til mín með vand-
kvæði sín. Ég vil ekki aö þau geti leit-
aö til læknis sem eftir fimm minútna
hraðsuöuviötal ýtir þeim út aftur
meö fulla vasa af getnaöarvarnar-
pillum án tillits til fyrri sjúkrasögu
viðkomandi einstaklings, líkams-
þroska eöa þeirrar siögæðisleiösagn-
ar sem foreldrar hennar vilja veita,”
segir hún.
Kirkjan og Thatcher hlynnt
Hún hefur notiö öflugs stuönings í
máli sínu. Leiötogar allra kirkju-
deilda hafa stutt hennar málflutning
og hún segir sjálf aö tvö hundruð
þingmenn úr öllum flokkum fylgi
henni aö máli. Jafnvel Margaret
Thatcher forsætisráöherra er sögö
hlynnt hennar málstaö. Og eftir aö
undirréttur hafði dæmt henni í óhag
söfnuöust 250 þúsund undirskriftir
undir kröfur um aö málið yröi tekið
upp aftur.
Læknar, félagsráögjafar og fjöldi
annarra aöila em á gjörsamlega
öndverðum meiði. Þeir segja aö ef
heimurinn og mannlifiö væri full-
komið mundu börn aö vísu leita til
foreldra meö vandamál sín en í
reyndinni telji margar unglingstúlk-
ur sig ekki eiga neinn þann fullorðinn
að sem þær geti leitað til meö þess
konar vandamál.
Af afstöðu sumra ráöherra
Thatchers er ljóst að þeir telji reglu-
geröir og praxís, eins og verið hefur í
gildi síðasta áratuginn, vera í rétta
átt. Hugsanlega vaknar hreyfing til
þess aö breyta lögunum í þá veru ef
sigur Victoriu stendur óhaggaöur
eftir frekara málskot til lávarða-
deildarinnar. Máliö getur því haldið
áfram í deiglunni í tvö eða þrjú ár til
viöbótar.