Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1985, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1985, Page 12
12 DV. FIMMTUDAGUR10. JANUAR1985. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EVJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 686611. Auglýsingar: SÍDUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgroiðsla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI 11. SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 686611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF„ SÍDUMÚLA 12. Prentun: Árvakur hf. . Askriftarverðá mánuði310kr. Verð í lausasölu 30 kr. Helgarblað 35 kr. Nýlotaí vaxtastríði Ný lota er hafin í baráttunni um sparifé landsmanna. I þetta sinn eru þaö ekki viðskiptabankarnir, sem ríöa á vaðið með fjölbreyttum freistingum. Það er ríkissjóður, sem þenur sig á heilli auglýsingaopnu um ferns konar ávöxtun peninga hjá sjálfu ríkinu. I rauninni eru þessar auglýsingar eins konar neyðaróp. Hinar miklu lántökur ríkisins á liðnum árum eru famar að leiða til ört vaxandi endurgreiðslna á þessum fyrri lán- um. I ár þarf ríkið til dæmis að endurgreiða 3.800 milljón- ir í innlendum spariskírteinum. Ríkið telur sig ekki hafa efni á að missa þessa peninga úr rekstri sínum. I f járlögum og óafgreiddri lánsf járáætl- un þessa árs er gert ráð fyrir, að eigendur fjárins taki ný bréf fyrir hin gömlu að verulegu leyti. 1 því felst auðvitað töluverð bjartsýni. I fyrra gerði ríkið líka ráð fyrir að ná peningunum til baka. 1 því skyni bauð það innleysendum spariskírteina 8% raunvexti fyrir að taka ný bréf. Þrátt fyrir þetta gylli- boð missti ríkið 500 milljónir úr höndum sér, væntanlega til þeirra, sem buðu betri vexti. Þetta sýnir, að ríkissjóður þarf í ár að taka á honum stóra sínum og yfirbjóða markaðinn með svokölluðum ok- urvöxtum, ef dæmi hans á að ganga upp. Hann ætlar þar að auki ekki aðeins að halda í gamla féð, heldur ná í 600 nýjar milljónir í spariskírteinum og ríkisvíxlum. Þess vegna auglýsir ríkið nú „Lánsöm þjóð” yfir þver- ar opnur. Þar sem áður var bara réttur dagsins, er nú kominn heill matseðill. Ætlazt er til, að þeir, sem ekki falla fyrir einu tilboðanna, sjái sér þó hag í einhverju hinna. Bara að þeir láni ríkissjóði. Nú geta lánsfjáreigendur valið um hefðbundin skírteini með 7% raunvöxtum eða vaxtamiðaskírteini með 6,71% raunvöxtum, sem verða hærri yfir árið hjá þeim, sem eru- duglegir við að nota skærin. Eða þá gengistryggð skír- teini með 9% vöxtum handa þeim, sem vilja spá í gengið. Ekki er aðeins hugsað um spákaupmenn og skæraeig- endur, heldur beinist eitt tilboðið að markaði viðskipta- bankanna. Það eru tiltölulega stutt, 18 mánaða spariskír- teini með hreyfanlegum vöxtum og 50% vaxtaauka. Með þeim er ætlunin að ná fé af bankareikningum. I þessu er eins dauði annars brauð. Bankarnir telja sig vafalaust hafa skyldum að gegna hjá viðskiptamönn- um sínum. Þeir munu þrýsta fram kröfum um aukið, frelsi til að hækka vexti til að ná inn peningum til að seðja síhungraða skuldunauta þessa lands. Slagsmálin um takmarkað og hægt vaxandi lánsfé í landinu eru að verða ofsafengnari, af því að enginn telur lengur verjandi að auka erlendar skuldir þjóðarinnar. Þar að auki hafa menn komizt að raun um, að vextir eru alls ekkert lægri í útlöndum en hér. Mál þetta kristallar ruglið í stjórnmálunum. Annars vegar sitja ráðamenn á löngum fundum til að finna leiöir i til að fá Seðlabankann til að lækka raunvexti. Ábyrgir menn eru stórhneykslaðir á, að svonefnt vaxtaokur sé að sliga atvinnulíf og húsbyggjendur. Á sama tíma á ríkið einskis annars úrkosti í peninga- vandræðum sínum en að taka af fullum krafti og flenni- auglýsingum þátt í vaxtauppboðinu. En ríkinu dugar bara ekki að keppa við bankana um 8—10% vexti, þegar raunvextir markaðarins í verðtryggðum veðskuldabréf- um eru 14—18%! Jónas Kristjánsson. „Allt of margir lita dagheimilin hornauga. Þau séu geymslustaflir fyrir börn..." Bregðumst ekki börnunum Samf élag okkar hefur breyst mikið á síðustu áratugum. En oft hefur hugarfarsbreyting ekki orðið sam- hliöa breytingum samfélagsins; við höldum gjama í gamlar kreddur. Og tel ég viöhorf til uppeldis vera þar gott dæmi. Breyttar kringumstæður kalla á breytt viðhorf. Uppeldismál virðast vera afskaplega viðkvæm mál aö tala um. Og ef einhver leyfir sér að impra á þeim er hann oft á tíðum talinn sjálfsánægður uppal- andi sem telji sig betri uppalanda en aðra. I daglegu tali má heyra á fólki að uppeldi sé eitthvað sem komi af sjálfu sér. Það fólk talar eins og að uppeldi sé einhver meöfæddur eigin- leiki. Kannski er þaö í „genunum” í okkur! Við höfum kannski fleiri meöfædda eiginleika svo sem læknis- fræðilegar gáfur! Haldin eru uppeldisnámskeið fyrir hundaeig- endur en engin uppeldisnámskeið hafa verið haldin fyrir foreldra bama. Gamlar kreddur Þegar talaö er um jákvæðar breyt- ingar, sem hafa orðið á fjölskyldum, talar fólk oft um hversu gott það er að konur mennti sig og fari út á vinnumarkaðinn. Þetta sama fólk talar um neikvæðar breytingar svo sem að böm verji minni tíma með foreldrum sínum þar sem báðir eru útivinnandi. Ennfremur lítur þetta fólk neikvæðum augum á dagheimili. Telur það hættulega þróun aö beina uppeldishlutverkinu í hendur fag- lærðs fólks dagvistarstofnana og skóla. Þó er hugarfarsbreytingin al- mennt komin það langt að fólk viður- kennir skóla; að innan veggja þeirra fari fram þroskandi nám sem sið- menntað samfélag telur æskilegt. Þar hafa öll börn sama rétt og einnig er skólaskylda. En þegar talað er um dagheimili gegnir öðru máli. Gagn- vart þeim hefur hugarfarsbreyting ekki orðið; haldið er fast í gamlar kreddur. Þar tel ég að þjóðfélagið hafi brugðist börnum sínum sem eru þó framtíð þjóðarinnar. Margir virð- ast ekki enn gera sér grein fyrir þeirri langtíma fjárfestingu sem börn okkar eru. Hvar er vitið og þekkingin? Allt of margir líta dagheimilin homauga. Þau séu geymslustaöir fyrir böm þar sem þau læri ef til vill einhverjar umgengnisreglur og föndur. Þetta sýnir hversu fávísin er mikil um það hvað fram fer innan veggja dagheimilanna. En svona geta gamlar kreddur verið lífseigar. Staðreyndin er hins vegar sú að í ljós hefur komið að miklu máli skipt- ir á hvaða stigi hugsunar barnið er þegar það byrjar skólagöngu. Það er mikilvægt að grunnurinn sé góður. Rannsóknir hafa sýnt að íþróttir, hreyfing og leikur hafa mikil áhrif á hvernig lestrar,- skriftar- og stærð- fræðikunnátta bama verður. Þess vegna tel ég mikilvægt að allir sem Kjallarinn GUÐRÚN ALDA HARÐARDÓTTIR FÓSTRUNEMI umgangast börn séu meðvitaðir og hafi þekkingu á mikilvægi hreyfinga, sköpunar og leik fyrir þroska bams- ins og vinni markvisst með þessa þætti. Ekki tel ég þessa þekkingu meðfædda frekar en læknisfræði. Barnið — dýrasta djásnið Eins og áöur hefur komið fram tel ég að þjóðfélagið vanræki böm sín; veiti þeim ekki þann þroskamögu- leika sem þau þurfa á meðan foreldr- ar þeirra stunda vinnu í þágu þjóðfélagsins. Réttindum til dagheimUisvistar er Uka misskipt. Börn einstæðra for- eldra og námsmanna hafa forgang að dagheimUum og eingöngu börn einstæðra foreldra að skóladag- heimUum. HeimiUn eru þaö fá að sárafá önnur börn fá að njóta vistar þar. Afleiðingin er að lyklabömum fjölgar óðum og alast þau aö miklu leyti upp í sjoppum. Hvemig fer þjóðfélagið með dýrasta djásnið sitt — barnið? Emm við þeim verst sem við unnum mest? Því hvað er þjóðfélagið annaö en við! Hvert dagvistarheirmli hefur sín markmiö og vinnur markvisst að því aö ná þehn. Þau geta hljómað á eftir- farandi hátt: ,,I samvinnu við for- eldra leitumst við við að sérhverju barni séu gefnir miklir og fjölbreytt- ir möguleikar til að þroska sem best tilfinningar sínar og hugsanahæfni. Við getum á þann hátt lagt grundvöU að því að barn þroskist sem opinn og tilfinningasamur einstaklingur sem hefur hæfUeika tU að skilja og vrnna með öðrum, sem og getur þekkt sínar eigin skoðanir og leyst sín vandamál. Við munum grundvaUa hjá hverju barni áhuga á að afla sér þekkingar og nýta hann tU að bæta lífskjör (um- hverfi) sín og annarra. Einnig að barniö veröi sem best undir það búið að mæta breyttum aðstæðum og því félagslega umhverfi sem það þekkir og er sifellt að stækka. Við vinnum með börnunum á jafnréttisgrund- velh og byggjum mikiö á tóniist, sköpun, tjáningu og hreyfingu í starfi okkar til að ná settum markmiðum.” TU þess að ná þessum markmiðum tel ég að börnin þurfi að njóta hand- leiðslu sérmenntaðs fólks í uppeldis- málum. Dagheimilisbörn þroskaðri Gerð hefur verið samantekt á 486 könnunum um áhrif dagheimihsvist- ar á þroska barna og þar segir: „Næstum aUar rannsóknir, sem metið hafa félagsleg og tUfinninga- leg áhrif dagheimUis á þroska bams- ins, sýna jákvæðar niðurstööur. Dag- heimiUsböm eru ekki eins heft, eiga frekar frumkvæðið, eru forvitin og eiga auðveldara með að aðlagast aöstæðum. Þau em sjálfstæðari gagnvart fullorðnum og eiga auöveldara með að bjarga sér viö ýmsar félagslegar aðstæður, en em háðari öðmm bömum. Það lítur út fyrir að þau börn sem alast upp heima þroski með sér strangari sjálfsaga semgeturveriðheftandi.” Ég tel það jafnmikil mannréttindi bams að ganga á dagheimUi og að ganga í skóla. Það virðist vera sama hvaða stjómmálaflokkar sitja í stjórn, of lítiö hefur verið gert fyrú- bömrn. Að minu mati má ekki lengur halda áfram á þessari braut. Hér verður að koma til algjör stefnu- breyting eða hreinlega byltrng ef ekki á iUa að fara fyrir IslendUigum framtíöarinnar. Guörún Alda Harðardóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.