Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1985, Síða 14
14
DV. FIMMTUDAGUR10. JANÚAR1985.
•
PANTANIR
SÍMI13010
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
KLAPPARSTÍG 29.
Sól Saloon Sólbaðstofan
Laugavegi 99
Sími 22580
Barnavideo
og ekta gufubað.
Laugavegi 52
Sími 24610
Slendertone grenningar-
og vöðvaþjálfunartœki.
Frábœrt við slaðbundinni
fitu og vöðvabólgu.
BÁÐAR BJÓÐA BREIÐA, NÝJA BEKKI
Maprofessionel og UWE studio-line
Dömur og herrar, verið velkomin.
Aður
Styrkir til
Noregsfarar
Stjóm sjóðsins Þjóöhátíðargjöf Norðmanna auglýsir eftir um-
sóknum um styrki úr sjóðnum vegna Noregsferða 1985.
Samkvsemt skipulagsskrá er tilgangur sjóðsins ,,að auðvelda Islendingum
að ferðast til Noregs. I þessu skyni skal veita viðurkenndum félögum, sam-
tökum, og skipulögðum hópum ferðastyrki til Noregs í því skyni að efla
samskipti þjóðanna t.d. með þátttöku i mótum, ráðstefnum eða kynnis-
ferðum, sem efnt er til á tvíhliða grundvelli, þ.e.a.s. ekki eru veittir styrkir
til þátttöku í samnorrænum mótum, sem haldin eru til skiptis á Norður-
löndunum. Ekki skal úthlutað ferðastyrkjum til einstaklinga, eða þeirra
sem eru styrkhæfir af öðrum aðilum''.
I skipulagsskránni segir einnig, að áhersla skuli lögð á að veita styrki, sem
renna til beins ferðakostnaðar, en umsækjendur sjálfir beri dvalarkostnað í
Noregi.
Hér með er auglýst eftir umsóknum ftá þeim aðilum, sem uppfylla fram-
angreind skilyrði. í umsókn skal getið um hvenær ferð verður farin, fjölda
þátttakenda og tilgang fararinnar. Auk þess skal tilgreina þá upphæð, sem
farið er fram á.
Umsóknir óskast sendar til stjómar sjóðsins, Forsætisráðu-
neytinu, Stjórnarráðshúsinu, Reykjavík, fyrir 1. febrúar 1985.
Ný sending af
leðurskóm
Teg.: 19540
Litir: svartur, hvítur, rauður og blár.
SÍ
TOPP
-»rr»®SKÓRTIíN
'ýG&v' VELTUSUND11
21212
Kr. 890,-
Kvenstærðir.
Póstsendum.
Menning
Menning
Menning
Makalaus byrjun
Bach-ársins
Tónleikar Kammersveitar Reykjavíkur í As-
kirkju 6. janúar.
Efnisskrá: Johann Sebastian Bach:
Hljómsveitarsvíta nr. 1 í C-dúr BWV 1066; Kon-
sert fyrir fiðlustrengi og continuo í E-dúr BWV
1042; Konsert fyrir sembal, strengi og
continuo í d-moll BWV 1052; Brandenborgar-
konsert nr. 2 fyrir trompet, flautu, óbó, fiölu,
strengi og continuo í F-dúr BWV 1047.
Það hefur víst ekki fram hjá neinum
farið, sem það á annað borö vill vita,
að ár tónlistarinnar í Evrópu er öðrum
þræöi Bach-ár. Fyrstu tónleikar
Kammersveitar Reykjavíkur á árinu
voru helgaðir Bach og er það svo sem
ekki í fyrsta sinn að sá ágæti félags-
skapur heldur hreina Bach-tónleika.
Portrettónleika mundu menn kalla það
ef meistarinn væri enn á meðal okkar.
Til verka vandað
Það voru sem sé hljómsveitarverk
frá Cöthenar-árum meistarans þegar
hann þurfti ekki aö sinna kirkjumúsík
en skáldaöi glatt fyrir hljómsveitina
við hirö Leopolds. Fyrst á skránni var
forleikurinn, eða hljómsveitarsvítan í
C-dúr fyrir tvö óbó, fagott og strengi.
Þar kom þaö strax fram sem átti eftir
að einkenna þessa tónleika alla.
Gegnumstúderuö spilamennska
öðlingsverka á háu plani. Slíkur leikur
verður ekki til nema fyrir vandaðan
undirbúning, góða hæfni og einstakt
næmi flytjendanna fyrir hugmyndum
og leikmáta hver annars.
Yrði langur listi
Ég veit varla hvar á helst að bera
niður til að geta góðra hluta á tónleik-
um þessum, en þar var einungis boöið
upp á góöa hluti. Ég nefni skýrt
mótaðan leik Rutar og einstaka fyll-
ingu í tóni hennar í fiölukornsertinum,
— frábæra samstillingu óbóanna í for-
leiknum, — einstakan leik meö marg-
slungnum rhytmiskum spekúlatíónum
í sembalkonsertinum — dunandi
sveifluna undir niðri og brillíant hó-
tónaspil blásaranna í Öðrum Branden-
borgar og gegnumgangandi frábæran
samleik strengleikaranna. Hér er
Tónlist
Eyjólfur Melsted
J aðeins tæpt á nokkrum atriöum meira
] af handahófi því ef telja ætti upp alla
Ikosti spilamennskunnar hjá Kammer-
, sveitinni á þessum tónleikum, þá yrði
úrlangurlisti.
Ég veit ekki hvernig Bach-árið heföi
, getað byrjað betur. EM
ÁRID „0PNAД
Tónleikar Eddu Erlendsdóttur ó vegum
Tónlistarfólagsins í Austurbæjarbíói 5. janúar.
Efnisskrá: Felix Mendelssohn-Bartholdy: ■
Lieder ohne Worte, op. 19; Robert Schumann:
Sónata í g-moil op. 22; Porkell Sigurbjörnsson:
Hans variationer; Karólína Eir/ksdóttir: Eins
konar rondo; Claude Debussy: L'lsle Joyeuse;
Fródóric Chopin: Polonaise-Fantasie, op. 61.
Það kom í hlut Eddu Erlendsdótt-
ur, píanóleikara að leika fyrstu tón-
leika þess árs sem af Evrópuráðinu
hefur verið útnefnt ár tónlistarinnar.
Eflaust er það vel meint hjá þeim
vísu feðrum í Strassbourg og síst
skyldi lasta aö aukið tilstand verði
um álfuna alla í kringum blessaða
músíkina. En minnugur þess hvemig
fór fyrir vesalings Brahms á árinu
áttatíu og fjögur — árinu eftir
Brahmsárið mikla, áttatíu og þrjú,
þá hef ég vissan beyg af öllu tilstand-
inu. Ekki þar fyrir að músíkin sjálf
stendur það eflaust af sér að henni sé
gerður sh'kur greiði sem hægast
getur orðið bjamargreiði. Ég óttast
hins vegar að hinir og þessir —
stjórnmálamenn til að mynda —
veiti músíkinni eitthvert mála-
myndabrautargengi í tilefni ársins
og þykist síðan hafa gert nóg. (Hver
man til dæmis ekki eftir „ári
fatlaöra”?)
Eyjólfur Melsted
Það var eins og Eddu stæöi beygur
af því að spila fyrir nærri þéttsetinn
sal Austurbæjarbiós og í Lieder ohne
Worte sýndi hún alls ekki sitt rétta
andlit. Hennar sterka vinstri hönd
yfirgnæföi á köflum þá hægri svo að
úr varð á köflum mikið ósamræmi í
leiknum, og þótt vissulega brygði
fyrir dágóðum köflum var spilið í
heild tætingslegt. En Edda spilaði
sig aldeilis upp í Schumann. Þar
náði hún jafnvægi aflsins og hennar
fína tækni fór að njóta sín. Hún
spilaði varíatíonir Þorkels vel, en
kannski full þurrlega og geröi emurn
of lítiö úr þeirri músikölsku kímni
sem í glettnum hendingum Þorkels
felst. En þeim mun betri skil gerði
hún framlagi Karólínu — og sjálfrar
sín — til Alþjóðlegrar tónlistarhátíð-
ar kvenna sem haldin var í París í
október. Leikur Eddu í Debussy og
Chopin var virkilega elegant og ekki
síst, þegar hún í lokin gaukaði einum
laufléttum mazurka sem aukalagi að
ánægðum áheyrendum, sýndi hún
hversu ágætur píanisti hún er. Edda
Erlendsdóttir „opnaði” þvítónhstar-
áriö með aldeilis ágætum konsert í
nafni Tónlistarfélagsins.
EM