Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1985, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1985, Side 40
FRETTASKOTIÐ (bb) • (75) • (58) SÍMINN SÉM ALDREI SEFUR Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og cireifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá i síma 68-78-58. Fyrir hvert fráttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fráttaskotið i hverri viku, Fullrar nafnleyndar er gœtt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Frjálst,óháö dagblað FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 1985 Rúmlega sex- tíu skattsvika- mál athuguð Samtals 61 skattsvikainál var tek- ið til athugunar hjá embætti ríkis- skattstjóra á síðasta árl Nam úr- skurður um heildarhækkun opin- berra gjalda í þessum málum 22,5 milljónumkróna. Til samanburðar má nefna að mál sama eðlis, sem afgreidd voru frá ríkisskattstjóra fyrir árið 1983, voru 33 talsins. Heildarhækkun þeirra nam 7,7 milljónum króna samkvæmt úrskuröi. Að sögn Garðars Valdimarssonar skattrannsóknarstjóra voru þaö fyrirtæki sem einkum komu við sögu í skoðuninni á siðasta ári. Vegur þar þyngst vangoldinn söluskattur með álagi. Samkvæmt úrskuröi nemur heildarhækkun hans 16,2 milljónum króna. Þar af var einn aðili dæmdur til að greiöa 9,7 milljónir króna i hækkun. Þá nemur heildarhækkun á tekjuskatti 4,4 milljónum króna. I viöamesta málinu, sem tekiö var fyrir innan þess ramma, var kveöinn upp úrskurður um hækkun upp á 2,6 milljónirkróna. Loks nam heildarhækkun á útsvari um einni miiljón króna. Afgangur kom á önnur gjöld, svo sem eignar- skatt. Garðar sagöi aö sú fjöigun mála sem væri milli ára þyrfti ekki aö gefa til kynna aö skattsvik væru aö færast í vöxt. Fólki sem ynni aö slíkum mál- um hefði veríð f jölgað á síðari árum. Það þýddi að betur gengi að afgreiða það sem fýrir lægi. Sagði Garðar að enn stæði til að fjölga starfsfólki, einkum á skattstofunum, tU að vinna ímálumafþessutagi. JSS Vöxtum breytt ámorgun Vextir banka og sparisjóða breyt- ast í nokkrum mæli á morgun. „Þetta eru aðaUega breytingar á sérreikningum, innlánum, og ýmis konar aölögun þar sem munar þó af- arUtlu frá vöxtunum síðan um ára- mót,” sagði Bjami Bragi Jónsson, aðstoöarbankastjóri Seðlabankans, i morgun. Seðlabankinn hefur nú ákveðið að vaxtabreytingar af þessu tagi verði aðeins geröar þrisvar í mánuði, 1., 11. og 21. hvers mánaöar. Áður gat hver stofnun breytt vöxtum með þriggja daga fyrirvara. HERB BÍLSTJÓRARNIR AÐSTOÐA 25050 SENDIBÍLASTÖÐIN Hf LOKI Það þarf ekki einu sinni að breyta um bréfsefni Fiugieiðaforstjórans! Marklaus útboð í skipasmíðaiðnaði? —Vantar eðlilegar leikreglur á þessu sviði, segir Skúli Jónsson hjá vélsmiðjunni Hamri „Mér finnst vera sérkennilegt að útgerðarmenn noti ekki þá kosti sem útboðsmarkaðurinn býður upp á við skipaviögerðir. Það er min skoðun aö þessi útboðsmarkaöur sé til hags- bóta fyrir útgeröina og útgerðar- menn eigi að stuðla aö þvi að hann þróist með eðlilegum hætti,” sagði Skúli Jónsson hjá Vélsmiðjunni Hamri í samtali við DV. Tilefni þessara ummæia er útboð á viðgerð á skuttogaranum Snæfelli EA 740 sem er í eigu Otgeröarfélags KEA. Utboð fór fram í desember síöastliðnum. I því tilfelli tók út- gerðarfélagiö tilboði frá Slippstöð- inni á Akureyri sem var rúmum 600 þúsund krónum hærra en lægsta tilboöið og að auki með lengri verk- tima. Stálvik hf. í Garðabæ bauðst til að ljúka verkinu á 2 vikum fyrir um 2,2 milljónir króna auk verðbóta. Hamar, Stálsmiðjan og Slippfélagiö buðust til að ljúka verkinu á 2 vikum fyrir um 2,4 milljónir á föstu verði. Slippstöðin á Akureyri bauð hins vegar rúmar 2,8 milljónir í verkið og skyldi þvi lokiö á 4 vikum. „Ég hef ekki fengiö neinarviðhlít- andi skýringar á hvers vegna þama var tekið hæsta tilboði og lengsta verktíma,” segir Skúli Jónsson. ,JÉg tel að þarna hafi verið stigið skref sem er til þess fallið að eyðileggja þennan útboðsmarkaö. Það viröist almennt vanta talsvert mikið á aö f ullkomlega eðlilegar leikreglur gildi á þessu sviði. Maður hefur orðið var við að þótt fullkomin útboösgögn hafi verið útbúin þá eru gerð tilboö í verk- in sem eru marklaus og í engu sam- ræmi við útboðsgögnin.” Jóhann Þór Halldórsson, fram- kvæmdastjóri Utgerðarfélags KEA, sagði aö minna hefði orðiö úr viðgerð á Snæfellinu en til hefði staðiö. Ákveðið hefði verið að fella út stóran verkhluta sem gert var ráð fyrir í út- boði og hefði endanlegur kostnaður við viðgerðina þvi ekki numiö nema um 1,2 milljónum króna. Þeir þættir . verksins sem eftir voru hef ðu verið á svipuðu verði hjá öllum þessum fyrirtakjum. Aöalmunurinn á til- boðunum hefði falist í þeim verk- þætti sem fallið var frá aö láta fram- kvæma. Þetta kvað hann vera skýringuna á því að ákveðiö var að fela Slippstöðinni verkefnið. OEF Ellefu tonn af úrvalsþorski komu skipvi þeir alsœlir mað gæftir þessa dagana. DV-mynd GVA. Ónýt sfld lestuð á Fáskrúðsfiiði: Rússneska sfldarmarkaðnum bjargað á síðustu stundu „Það hefðu bara hálfvitar reynt að ljúga þessu um borð. Við vorum ekki aö reyna að svindla á einum né nein- um, þetta voru mistök sem urðu þegar lyftarastrákurinn tók 58 sildartunnur sem ekki áttu að fara með og setti um borð með öðru,” sagöi Sigurður Ulafarsson, fiskmats- maöur hjá Sólborg á Fáskrúðsfiröi. „Viö erum búnir að fá miklar skammir og leiðindi út af þessu, enda hefðu ónýtu tunnumar getað stórskaðað rússneska síldarmarkað- inn.” Þegar Lagarfoss lét úr höfn á Fáskrúðsfirði, þétthlaöinn sildar- tunnum, voru ónýtu tunnumar 58 þar innan um aðrar og enginn vissi neitt. Siöasti viðkomustaður áöur en siglt skyldi til Rússlands var Eskif jörður og þar var 600 tunnum bætt ofan á allt annað. Þá uppgötvuöust mistökin rétt fyrir brottför. Þúsund tunnur voru rifnar upp úr skipinu og áköf leit gerð aö þeim 58 sem ekki áttu aö vera þar. Fundust þær um síðir og var haldið eftir í landi ásamt rúm- lega hundrað öðrum sem bám sömu dagsetningu. Lgarfoss er nú á leið til Rússlands með óskemmda, íslenska saltsild og geta bæði Rússar og Islendingar varpað öndinni léttar. Markaöurinn er opinn og síldin bragöast vel. -EIR.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.