Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1985, Blaðsíða 16
DV. LAUGARDAGUR 9. MARS1985.
í hljóölátu samkomulagi
} V I í ðj t»a ðse m M fyi r m V f j rei r
Viðtal við menningarverðlaunahafa DV í byggingarlist
Fyrir framan verfllaunahúsið. Frá vinstri Einar Sæmundsen landslagsarkitekt, Grétar Markússon arkitekt,
Þorsteinn Bergsson, framkvæmdastjóri Torfusamtakanna, og Stefán úrn Stefánsson arkitekt.
„Bemhöftstorfan — Hún lifi”
stendur á litlum miöa á dyrum arki-
tektastofunnar við Bergstaðastræti
þar sem þeir vinna allir, menningar-
verðlaunahafar DV í byggingarlist,
þeir Einar Sæmundsen landslagsarki-
tekt og Grétar Markússon og Stefán
öm Stefánsson arkitektar.
Þegar við komum inn sitja þeir allir
saman í einu herberginu en standa upp
og bjóða okkur inn á kaffistofuna..
Fyrst biöjum við um smádeili á
hverjumogeinum:
,,Árið ’G7 varð ég stúdent frá M.R.,”
svarar Stefán. „Veturinn þar á eftir
var ég í Myndlista- og handíðaskólan-
um. Ég tók síðan inntökupróf í Arki-
tektaskólann í Kaupmannahöfn ’68.
Var í Kaupmannahöfn á byltingarár-
unum í skólanum. Þeir vom búnir aö
opna skólann og nemendafjöldinn
margfaldaðist. Ég tók lokapróf ’74.
Þaö var efni sem ég haföi valiö mér
sjálfur. Fjallaði um einhvers konar
rammaskipulag fyrir Suðvesturlandið.
Þá ætlaöi ég mér aö verða skipulags-
fræðingur.
Lokapróf og umsókn
um atvinnuíeysisbætur
Þegar menn tóku lokapróf í Kaup-
mannahöfn á þeim árum,” segir Stef-
án, „fengu þeir prófskírteinið og svo
umsóknareyöublað um atvinnuleysis-
bætur. Og þó að mig hafi langað til að
vinna úti, sem ég reyndi, var bara
ekkert að hafa. En ég bjó hjá góöu
fólki, vann á pósthúsinu og við stunda-
kennslu og eitthvaö annaö. Svo kom ég
heim ’74.
Eg hef unnið hér síðan. Stofan hét þá
Teiknistofan Höfði og var hér.
Viö Einar Sæmundsen höfðum þá
áður tekíð þátt í samkeppni með Stef-
áni Thors um skipulag Þingvalla
ásamt Teiknistofunni Höfða og fengum
þarönnurverölaun.
Við Stefán Thors vorum þá úti,”
segir Stefán, „en Einar var kominn
heimfránámi.”
Er eittlivað sem þú getur tilgreint
á frægðarferli þinum sérstaklega?
Þeir félagar glotta. Eftir nokkra
þögn svarar Stefán: „Ef viö tökum
Torfuna til dæmis þá var farið í upp-
mælingarferðir á námsárunum úti
sem kallaö er. Nemendur fóru í feröa-
lög með kennara og mældu upp bygg-
ingar. Ferðimar voru innan Norður-
landanna. Einhvern veginn kom ég því
svo fyrir að það var farið hingað og í
þessari fyrstu ferð var mældur upp
gamli bærinn á Þverá í Laxárdal og
bæjarhverfið í Neðstakaui^tað á Isa-
firði. Svo mældum við nokkur upp
Bemhöftstorfuna. Þá var umræðan
um það bil að byrja um hvort ætti að
vemda húsin. Hvort þau ættu að fá að
standa eöa hvort ætti að byggja
Stjómarráð. Þetta var á ámnum ’71. ”
Einar: „Varstu heima þegar Torfan
varmáluð?”
Stefán: „Nei.”
Einar: „Eg tók þátt í málningar-
vinnunni. Þaö var snemma vors í sól-
skini og indælisveðri. Allir mættu
klukkan fimm um morguninn og það
var langt komið að mála þegar
strætó byrjaöi að keyra. Alveg sérstök
stemmning.”
Stefán: „Síöan var haldin sam-
keppni um Bemhöftstorfuna. — Hug-
myndasamkeppni. Og í henni tókum
við þátt héma á stofunni.”
Stefán: „Þarfengum viðönnurverð-
laun líka. Ég var með Guðrúnu Jóns-
dóttur og Stefáni Jónssyni.”
Nú hringir síminn og Einar þarf að
bregða sér frá. Stefán segir: „Ef þú
ætlar að taka viðtal viö hann Einar þá
er eins gott að gera það bara í síma.”
Kirkjubyggingar
Næst spyrjum við Grétar um feril-
inn:
„Eg var stúdent frá M.H. ’73. Svo fór
ég til Englands og lærði þar arkitektúr.
Það tekur sex ár. Fyrst þrjú ár til B.A.
prófs. Þá er unniö á teiknistofu í eitt ár
og það ár vann ég úti. Síðan em tvö ár í
viðbót til lokaprófs. Að því loknu vann
ég eitt ár enn á teiknistofu í Man-
chester og kom svo heim haustið ’81.
Þá byrjaöi ég að vinna héma á teikni-
stofunni.”_
—Frægðarlistinn ?
Grétar viU lítið gera úr því.
Grétar: „Hluti af lokaverkefni mínu
var nokkurs konar úttekt á kirkju-
byggingum á Islandi. Eg reyndi að afla
mér upplýsinga um þróun kirkna frá
upphafi, ferðaðist um landiö og skoð-
aðikirkjur.”
— Hefurðu teiknað kirkjur?
„Eitt verkefnið, sem við erum með,
er Munkaþverárklausturskirkja, end-
urbygging hennar.”
Stefán: „Þar blandast þetta nú svo-
lítiö saman. Það er verk sem verður
væntanlega byrjað á í sumar. Við
höfum líka verið aö þreifa á því hvern-
ig eldri kirkjan var. Grétar hefur gert
teikningar eftir úttektum af því
hvemig hún hefur getaö litiö út.”
Verðlaun fyrír búnað
á tjaldsvæðum
Hvernig vinnið þiðsamanþrír?
Stefán: „Við höfum unnið saman á
margan hátt. Sérstaklega Einar og ég
framan af. Til dæmis tókum við þátt í
samkeppni saman um skipulag Mos-
fellssveitar ásamt Stefáni Thors. Svo
hefur Einar unnið aö skipulagi fyrir
þjóðgarðinn í Jökulsárgljúfrum fyrir
Náttúruverndarráð og þar höfum við
unnið saman. Þar hef ég teiknað hús
fyrir landveröi og núna erum viö að
vinna, reyndar allir þrír, að nýju tjald-
svæði í Ásbyrgi fyrir Náttúruvemdar-
ráð. I haust tókum viö þátt í sam-
keppni um búnaö á tjaldsvæðum. Þar
unnum við aldrei þessu vant fyrstu
verðlaun. Svo vinnum við saman á
ýmsanhátt.”
Stefán heldur áfram: „Við erum
með hér á teiknistofunni skipulag fyrir
Hveragerði. Viö komum inn í það allir
meira og minna. I húsbyggingum sem
við höfum verið með blandast Einar
alltaf inn í.” Stefán hugsar sig um:
„Blandast inn í er kannski ekki rétta
orðið. — Tekur þátt í.”
En svo ég fái að yfirheyra þig
aðeins, Einar. Þeir hafa báðir sagt
mér f rá menntun sinni.
Kirkjugarðar og
þjóðgarðar
Einar (hugsar sig um): „Eg veit
ekki hvar ég á að byrja. Ég fór á
Arkitektaskólann í Kaupmannahöfh
1967. Utskrifaðist þaðan ’72. Áður hafði
ég lokið námi sem garðyrkjufræöingur
í Noregi og Danmörku og þar áöur
haföi ég tekið handavinnukennarapróf
héma heima. Þegar ég kom heim ’72
fór ég að vinna á teiknistofu hjá Reyni
Vilhjálmssyni. Og vann hjá honum
fram til ’77. Síðan hef ég verið með
sjálfstæðan rekstur. Frá því ’81 höfum
viö Stefán verið á sama stað og í sam-
starfi um margháttuð verkefni. ”
Stefán: „Svo náttúrlega þín eigin
stóruverkefni.”
Einar: „Já, það hetur verið tengt
kirkjugörðum og þjóðgörðum fyrst og
fremst. Ég hef verið ráðgjafi fyrir
Kirkjugarða Reykjavíkur um skipulag
frá því ’76. Gert skipulag að kirkju-
garðinum í Gufunesi. Einnig ýmsar
endurbætur í kringum nýjar kapellur
við Fossvogskirkju. Aðkomutorg sem
byggt var þar fyrir rúmu ári síöan. Svo
hef ég verið að vinna fýrir Náttúru-
vemdarráð við skipulag þjóðgarösins
við Jökulsárgljúfur. Sérstaklega við
þaö sem sneri að umferð og móttöku
ferðamanna um svæðið.”
Hvemig unnuð þið þetta ákveðna
verkefni, Bankastræti 2, sem þið feng-
uö menningarverðlaun DV fyrir?
Stefán: Viö komum að verkefninu
veturinn '82—’83. Þá var endurreisnin
komin vel á veg. Það var búið að gera
við Landlæknishúsið og Bemhöftshús-
ið og hafinn þar veitingarekstur.
Fyrsta verkefnið f yrir Torf usamtök-
in var að endurbyggja bakariiö sem
í sérf lokki
VW Jetta '82, vel með farinn
bíll, einn eigandi, útvarp/seg-
ulband, vetrar- og sumar-
dekk, ath. skipti á ódýrari.
Dodge Omni '80, 5 dyra, 4
cyl., framdrifinn, sjálfsk., litað
gler, útvarp/segulband, vetr-
ar- og sumardekk. Toppbíll,
ekinn aðeins 66.000 km, 6
mán. ábyrgð, skipti á ódýrari.
Plymouth Volaré '80, 2ja
dyra, 6 cyl., sjálfsk. í gólfi,
vökvastýri, útvarp, vetrar- og
sumardekk, ekinn aðeins
58.000 km, einn eigandi, 6
mán. ábyrgð, skipti á ódýrari.
SK®DA
Datsun 140 Y station '79,
nýyfirfarinn, ný dekk. Fæst á
góðum kjörum.
Skoda 120 LS '82, ekinn að-
eins 25.000 km, úrvalsbíll,
sumar- og vetrardekk, 6 mán.
ábyrgð.
Opið í dag 1—5
JÖFUR HF
flU