Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1985, Qupperneq 21
DV. FIMMTUDAGUR 20. JUNl 1985.
21
tir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
a og hefur aldrei leikið betur.
>ór?
Þórsara á úrvalsdeildarsæti til mikilla
muna. -SK.
Teitur hársbreidd fra
bikarmeistaratitlinum
— skoraði fyrir Öster í úrslitaleiknum en það nægði ekki til
Frá Gunnlaugi Jónssyni, fréttaritara
DVíSvíþjðð:
Teitur Þórðarson var aðeins
nokkrum sekúndum frá því að tryggja
llði sínu, öster, sænska bikarmeisíara-
titilinn í gærkvöldi. Þá lék öster við
AIK frá Stokkhólmi og skoraði Teitur
mark á 7. mínútu seinnl hálfléiksins.
Lengi vel leit út fyrir að mark Telts
myndi ráða úrslitum en AIK náðl að
jafna eftir venjulegan leiktima.
Ekkert markvert skeði í framlenging-
unni en þá var gripið til vitaspyrnu-
keppni. Leikmenn öster skoruðu
aðeins úr tveimur vítaspyrnum, þar af
Teitur úr annarri, en þrjú víti varði
markvörður Stokkhóimsliðsins. AIK
skoraði úr þremur af sínum fjórum
spymum og nægði það liðinu til sigurs.
Leikurinn var fyrsti leikur Teits
með öster eftir fjögurra ára fjarveru
og stóð hann sig mjög vel. Hann var sí-
vinnandi úti um alian völl í fyrri hálf-
leiknum en í hálfleik bað þjálfari öster
hann um að spila framar. Það gaf
árangur á 7. minútu hálfleiksins en þá
kom fyrirgjöf fyrir mark AIK og
Teitur átti ekki í vandræðum með með
að koma boltanum réttu leiðina í
markið.
Teitur lék sem kunnugt er meö
svissneska liðinu Yverdon. Hann lék 14
leiki með liðinu á síðasta keppnistima-
bili og stóð sig vel, skoraði sjö mörk.
öster sýndi þá áhuga á því að fá hann
„heim” og tókust samningar með
liöunum um sölu. Reyndar var öster
ekki eitt liða um að sýna Teit áhuga,
honum buðust gull og grænir skógar
frá svissneska liðinu Grance en til-
boðið barst of seint, hann hafði þá
þegar lofast sænska liöinu.
Ekki er laust við að Teitur hafi
leikið undir nokkurri pressu í bikarúr-
slitaleiknum. Heilu siðumar hafa verið
lagðar undir Teit í sænsku blöðunum
enda lita þau meira á Teit sem Svía en
Islending.
-fros
Nemendurnir vildu ekki Teit
— heldur Pólverja sem gæti leikið með þeim
Frá Gunnlaugi Jónssynl, frétta-
ritara DV i Sviþjóð:
Þegar öster samdi við Teit
Þórðarson þá féilst sænska Uðið
I á að bjarga honum um vinnu
| sem þeir og gerðu. Teitur var
Iráðinn sem knattspyrnukennari
í lýðháskóla i Markaryd. Þegar
nemendur skólans fréttu af
ráðningu Teits þá mótmæltu
þeir ákaft og sögðust ekki vUja
Teit sem kennara.
Andstaða nemendanna beind-
ist þó ekki að honum f yrir þá sök
að þeir teldu hann ekki nógu hæf-
an. Ástæðan var einfaldiega sú
I
að þeim hafði verið lofað kenn- I
ara frá Póllandi sem myndi þá |
jafnframt leika með knatt- ■
spymuliði staðarins. Þó enginn I
efist um knattspymuhæfUeika *
Teits þá yrði hann vart gjald- |
gengur í liðid. Hann ei sem flest- a
ir vita samningsbundim: öster. ■
« —m -frosj
FRAM - KR
fimmtudaginn 20. júní
kl. 20.00
á aðalleikvangi í Laugardal.
EUBOS er sannkölluð heilsulind fyrir húðina. EUBOS-balsam tryggir að hæfilegur raki
og fita séu í húðinni. í því eru nauðsynleg næringarefni sem viðhalda teygjanleika
húðarinnar og koma í veg fyrir bakteríu- og sveppasýkingar.
EUBOS-kremið verndar húðina gegn veðri og vindum og sér til þess að hún sé mjúk og
sveigjanleg. EUBOS er hreint út sagt mannbætandi. q óldf SSOI1 Hf
Grensásvegi 8, Reykjavík.
í jérriuii ba
1