Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1985, Síða 2
2
DV. MÁNUDAGUR 24. JUNI1985.
Jarðgöng í
gegnum Ólafs-
fjarðarmúla im-
an þriggja ára
—segir Matthías Bjamason
samgönguráðherra sem ætlar að setja
menn í að gera áætlun um jarðganga-
gerð á Aust- og Vestfjörðum
„Það er ákveðið að gera jarðgöng í
Olafsfjaröarmúla innan þriggja ára.
Það verður ekki farið i neinar fram-
kvæmdir í sambandi við jarðgöng á
undan göngunum í Olafsfjarðar-
múlanum. Þau göng eru mest
aökallandi — Olafsfjörður hefur veriö
mjög einangraður að vetri til enda
mjög hættuleg leið þangaö aö fara,”
sagði Matthías Bjarnason samgöngu-
ráðherra í viðtali við DV i gær.
Matthías hefur lagt á það áherslu að
stórátak verði gert i vegagerð á Islandi
og þá í sambandi við jarðgangagerð.
„Það er nú búið að gera hjá Vegagerö
ríkisins töluverðar rannsóknir á sviði
jarðgangagerðar. Eg hef hugsað mér
að setja menn í það að gera áætlun um
jarðgangagerð,” sagði Matthías.
Matthias sagöi aö þá væri áætlaö aö
gera mörg önnur göng á Austf jörðum
og norðanverðum Vestfjörðum. Með
gerð jarðganga á að geta orðið mikill
sparnaöur i viðhaldi og snjómokstri á
hinum háu heiðum í þessum lands-
hlutum.
„Það eru mjög aröbærar fram-
kvæmdir. Hins vegar er öll
jarðgangagerð mjög dýr og þar af
leiðandi hefur ekki verið mikið ráöist í
jarðgangagerð hér á landi,” sagöi
Matthias.
Reynsla hefur
fengist við Blöndu
„Það hefur fengist töluverð reynsla í
sambandi við jarðgangagerð við
Blönduvirkjun. Það verður auövitað
háö þvi hvaö fæst af fjármagni til
jarðgangagerðar. Það þýðir ekkert
fyrir okkur Islendinga að kaupa stór
tæki nema það séu stöðug verkefni
fyrir þau. Ef verkefni verða fá yrði
þetta aUt of dýrt,” sagði Matthías.
Verðum að taka erlend lán
— Hvernig hefur þú hugsað þér að
fjármagna framkvæmdirnar? Með
erlendum lánum?
„ Já, ég get ekki ímyndað mér að þaö
sé hægt að fá meira af lánum hér
innanlands heldur en lánsfjáráætlun
gerir ráð fyrir. Það er ekkert fengið
með því að opinberir aðilar séu að
keppa um sömu peningana.
Erlend lán verða ekki tekin nema til
framkvæmda sem skila arði,” sagði
Matthías. „Það er aröbært að fara í
ýmsar vegaframkvæmdir á fjölfamari
vegum. Með þvi lengjum við nýtingar-
tima ökutækja, minnkum innflutning á
varahlutum og bensineyðsla yröi
minni á hvem bíl,” sagði Matthias.
-SOS
Mikið svæft?
— hundruð manna koma
á þing svæf ingalækna
Norrænir svæfingalæknar halda Heildarfjöldi fyrirlestra verður
sitt 18. þing dagana 25.-29. júní. tæplega 200 en nokkrir heimsfrægir
Þingið verður haldið i Heykjavflc og læknar verða á meðal fyrirlesar-i
sækir þingið fjöldi svæfingalækna anna.
viðs vegar úr heiminum auk Helstu nýjungar á sviði svæfinga
Norðurlandabúa. Fjöldi þátttakenda og gjörgæslu verða kynntar meði
verður samtals á sjötta {hundraö umfangsmikilli vörusýningu á
manns frá 25 löndum. þinginu. baj..
Veiðidagur
fjölskyldunnar:
Mikil
þátt-
taka
Það var víða gengið til veiða í
gærmorgun og veiddur silungur.
Veiðidagur fjölskyldunnar var hald-
inn um land aflt og veiðimenn á
öllum aldri gengu til veiða.
Við vorum mættir á Þingvöli eins
og hundruð veiðimanna sem renndu
fyrir fisk. Já, það var fjölmennt og
aöalveiðin var murta. Hún var á í
hverju kasti. En veöurfarið var gott
og menn nutu útiverunnar. Við
smeUtum af nokkrum myndum og
var stemmningin góð.
Stjórn Landssambands stanga-
veiðimanna afhenti Heimi Steins-
syni plakat, sem sambandifl hefur
látifl gera, i virflingarskyni fyrir að
veiflimenn fengu afl renna fritt í
vatnifl.
ÚLFARSÁ AÐ ÞORNA UPP?
„Það fengust 14 laxar fyrsta
hálfa daginn en siöan fór aðeins aö
draga úr veiðinni og hoUið fékk 23
laxa, allt góða fiska og hann var 16
pund sá stærsti,” sagði veiðimaður-
inn Helgi Eyjólfsson í veiöihúsinu i
ÞrándargiU við Laxá i Dölum i gær.
En Helgi og félagar veiddu fyrstir í
ánni á þessu sumri. „Eg fór niður að
sjó og kikti á laugardaginn og þetta
kraumaöi eins og í potti, en þaö
vantaöi vatnið tU þess að hann færi
upp í ána. Þaö er ekki mikið af laxi í
ánni, vantar rigningu til að hann
komi í meiri mæU. Þetta var allt
VEIÐIVON
GunnarBender
góður fiskur og jöfn stærö á honum,
sá minnsti var 8 pund,” sagði Helgi
að lokum og hann var að fara í
Brennuna tU aö veiða. Við skulum
bara vona að hann fái lax þar.
„Eg fékk 8 laxa og hann var 16
punda sá stærsti,” sagði Einar Guð-
mundsson en hann var viö veiöar á
þriðja svæöinu í Stóru-Laxá í
Hreppum á laugardaginn. ,í:g
veiddi þá flesta í Stapanum, 5, og
tóku þeir aUir tópý. Þetta gerðist aUt
á rúmum klukkutíma og var mikið
ævintýri að landa þeim. Svo eftir
hvfld fékk ég 1 í Iðunni og tvo í Kötlum
svo að þetta var sannköUuð guUveiði
í ánni. Stöngin á móti fékk 3 laxa svo
þaö komu 11 laxar á land. Daginn
áöur, fyrsta veiðidaginn, veiddist 1
lax og var hann 10 punda. Frá efsta
veiðisvæðinu berast fréttir um aö
veiðimenn hafi fengið laxa fyrstu
dagana en aflamagnið veröur látiö
Ugg ja á miUi hluta í bUi.
Korpa (Ulfarsá) var opnuö 20.
júní og hafa veiðst nokkrir silunga-
títtir í henni. Viö áttum veiðileyfi í
ánni. Er hægt að kalia þetta á? Varla
neöst, því hún rétt rennur og lax fer
ekki upp í hana eins og er, þó hefur
hann sést í ósnum. Eg held aö með
sama áframhaldi þorni blessuö
Korpa (Ulfarsá) upp næstu daga. Þá
verðurUltíefni.
G. Bender.
VeiAimenn renna fyrir fisk þessa
dagana um allar jarflir og sumir fá
hann. Veiðimaflur reynir að fá lax
í Elliflaánum fyrir helgi.