Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1985, Blaðsíða 29
DV. MÁNUDAGUR 24. JUNI1985.
29
Akranes:
Kútter Sigurfari tekur
á móti gestum
Frá Haraldi B jaraasyni, Akranesi:
Kútter Sigurfari var formlega opn-
aöur gestum, þar sem hann stendur viö
Byggðasafnið í Göröum á Akranesi,
þannl. júnísl.
Kútter Sigurfari var keyptur til
landsins árið 1974 frá Færeyjum þar
sem hann haföi verið geröur út frá ár-
inu 1920. Sigurfarinn er byggður í Eng-
landi árið 1885 og er því 100 ára um
þessar mundir. Hingað til Islands var
hann keyptur áriö 1898 og semfyrr seg-
ir seldur Færeyingum 1920.
Þaö var séra Jón M. Guðjónsson,
fyrrum sóknarprestur á Akranesi, sem
átti hugmyndina að því að kaupa Sig-
urfarann og gera hann upp í uppruna-
legt form og naut hann viö kaupin
aðstoöar Kiwanisklúbbsins Þyrils á
Akranesi.
Viðgerð Sigurfara og endurbygging
er búin að vera gífurlegt verk og hefur
skipið tekið miklum stakkaskiptum frá
því sem var þegar það kom til lands-
ins. Má fullyrða að þama hafi verið
unnið mikiö þrekvirki í menningar-
sögu landsins. Kútter Sigurfari er nú
eini kútterinn í eigu Islendinga og því
eini minnisvarðinn um skútuöldina
sem segja má að hafi verið grunnurinn
að þeirri efnahagslegu velferð sem Is-
lendingar hafa búið við síöan.
80 síðna sjó-
mannadagsblað
Það var séra Jón M. Guðjónsson sem
klippti á boröa viö landgang Sigurfara
við opnunarathöfnina og opnaöi þannig
skipið til sýningar. Jón Helgason frá
Kringlu á Akranesi dró síðan að húni
skipsfánann, þann sama og blakti viö
hún á Sigurfara er hann var gerður út
frá Islandi en Jón var háseti á Sigur-
fara árin 1916—17 og 1919.
Fjölmargir gestir voru við athöfn-
ina. Meðal þeirra var Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra og
nokkrir þeirra manna sem voru skip-
verjar á Sigurfara forðum og enn eru á
lífi.
Gunnlaugur Haraldsson, safnvörður
Byggðasafnsins í Görðum, rakti endur-
byggingarsögu Sigurfara en hann hef-
ur haft stjórn hennar á hendi. Þá töl-
uöu forsætisráöherra, Valdimar Ind-
riöason alþingismaður, Ingimundur
Sigurpálsson bæjarstjóri og Jóhannes
Karl Engilbertsson, formaður Sigur-
farasjóös.
I tilefni opnunarinnar var um helm-
ingur af 80 síðna sjómannadagsblaði
Akraness helgað sögu kútters Sigur-
fara en þetta er í fyrsta sinn sem sér-
stakt sjómannadagsblað er gefiö út á
Akranesi. -EH.
H rSÉ
IIMIM
Jafn ferða-
hraði er öruggastur
og nýtir eldsneytið best.
Þeir sem aka hægar en að-
stáeöur gefa tilefni til þurfa að
aðgæta sérstaklega að hleypa
þeim framúr er hraðar aka. Of
hraöur akstur er hins vegar
hættulegur og streitu-
valdandi.
JU^JFERÐAR
Dýrin kunna ekki umferðar-.
reglur. Þess vegna þarf að
sýna aðgæslu í nánd þeirra.
Hins vegar eiga allir hesta-
menn að kunna umferðar-
reglur og ríða hægra megin
og sýna bílstjórum sams konar
viðmót og þeir ætlast til
af þeim.
iJUMFEROAR
Kútter Sigurfari er eini kútterinn í eigu islendinga.
DV-mynd Haraldur.
Auglýsing um
námstjórastöður
Menntamálaráðuneytið auglýsir eftirtaldar stöður lausar
til umsóknar.
Staða námstjóra í heimilisfræði.
Staða námstjóra í stærðfræði.
Áskilin eru kennsluréttindi og kennslureynsla á viðkom-
andi sviðum.
Umsóknarfrestur er til 15. júlí 1985.
Umsóknir sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu
4, 101 Reykjavík.
^IRARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Íveruskúrar til sölu
Tilboð óskast í íveruskúra sem vinnuflokkar hafa notað,
stærð 2,5 x 7,5 m, og 2,5 x 5,5 m. Skúrarnir verða til
sýnis dagana 24. —28. júní.
Tilboð verði merkt: RARIK 85009 og verða þau opnuð
þriðjudaginn 2. júlí 1985 kl. 14.
Rafmagnsveitur ríkisins,
innkaupadeild,
Laugavegi 118,
105 Reykjavik.
Þessi glæsilegi vagn,
Honda Accord EXR 1984 er til sölu.
Beinskiptur, 5 gíra, vökvastýri, sóllúga, rafdrifnar rúður,
miðstýrðar læsingar, ALB bremsukerfi og margt fleira,
ekinn 16.000 km, silfurgrár.
Til sýnis að Vatnagörðum 24, Honda umboðinu,
mánudag og þriðjudag til kl. 17. Sími 39460.
&
&
*
&
■P
•
►—-
s
V-
&
:o
s
§
s
K
'O
--.
s
&
cO
8>
fc
* >4
* --
a
.3
s
bœkur blöð skrifstofuvörur leikföng ritföng filmuþjónusta bcekur blöð skrifstofuvörur leikföng
-t
.
á ári œskunnar. . .
r
.<*
litla ferðamanninum
býðst nú bókapakki frá
ÆSKUNNI til að taka
með í sumarleyfið. Þú
velur sjálf/ur lesefnið í
pakkann og fœrð
,,ceskukjör“ á úrvals
skemmtiefni. Við
starfrœkjum ííka
filmuþjónustu og seljum{
hágœða KONICA
filmur. Ef þú kemur
með filmu inn að
morgni þá fœrðu hana
tilbúna síðdegis.
Ferðapakkí fyrir börn
til að taka með í
sumarleyfið og filmuþjónusta
fyrir alla ferðamenn, já því ekki
það. . .
cr