Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1985, Síða 3
DV. MÁNUDAGUR1. JULt 1985.
3
1000 MANNS
ÁNÚPI
Fyrir skömmu
var úthlutað
úr Tónlistar-
sjóði Ármanns
Reynissonar.
Þorsteinn
Gauti Sigurðsson
píanóleik-
ari hlaut 100
þúsund krónur
úr sjóðnum til
að undirbúa
tónleika á
næsta ári i
aldarminningu
Franz Liszt og
vegna vænt-
anlegrar plötu-
upptöku.
myndin var tek-
in þegar Ár-
mann Reynis-
son afhenti
Þorsteini Gauta styrk
inn.
„Gullæðið” ífullum gangi:
Það norska er komið
— og vesgú, eitt stykki verksmið ja um borð
Unnið er af fullum krafti að brúarsmiðinni en verktakarnir munu þó vera
aðeins á eftir áætlun.
Kringlumýrarbrúin tilbúin um áramót:
KOSTAR 50
MILUÓNIR
„Brúarsmíðin gengur sæmilega,
þótt verktakamir séu aðeins á eftir
áætlun, en þeir eiga að skila brúnni
fullfrágenginni um næstu áramót. Eg
vona að það standist,” sagði Ingi Ulfar
Magnússon, gatnamálastjóri í Reykja-
vík.ísamtaliviðDV.
Eins og vegfarendur um Kringlu-
mýrarbraut hafa tekið eftir standa yfir
miklar brúarframkvæmdir þar á
brautinni á móts við Bústaðaveg.
Kemur þessi brú til með að taka mjög
við umferðinni ofan úr Breiðholti í
miðbæinn. En þolir Bústaðavegurinn
þessa miklu umferð?
„Það er alveg ljóst að umferðin um
Bústaðaveg mun aukast mjög og jafn-
ljóst er að strax á næsta ári munu
þurfa að fara fram endurbætur á þeim
vegi.”
— Hvað kostar þessi brúarsmíð?
„Aætlaöur kostnaður við brúna full-
frágengna er 45 til 50 milljónir króna,”
sagöigatnamálastjóri. -KÞ
Norska skipið Scalloper i Reykjavikurhöfn á föstudag. Satt vorður tilbúin hörpudisksverksmiðja um borð.
Siðan heldur skipið í „gulinámuna" í Barentshafi. „Guilæðið" er byrjað.
DV-mynd KAE.
Rúmlega eitt þúsund manns sótti
æskulýðshátíð sem haldin var um
helgina aö Núpi í Dýrafirði.
Það voru sveitarfélögin í Vest-
fjarðakjördæmi sem héldu hátíöina í
tilefni af ári æskunnar. „Þetta hefur
gengið ljómandi vel,” sagði Jón
Guöjónsson, einn forsvarsmanna
hátíðarinnar. „Aðsóknin var jafnvel
betri en menn þorðu að vona. Veðrið
hefur verið skínandi gott, sólskin, logn
og 14 stiga hiti. Mig langar til að koma
á framfæri þökkum til slysavarna-
deildanna sem héldu hér uppi öflugri
löggæslu og til unglinganna sjálfra.
Hér var lítil sem engin ölvun og fram-
koma mótsgesta til fyrirmyndar.”
Margt var sér til gamans gert á
Núpi. Hestar og bátar voru móts-
gestum til taks endurgjaldslaust og á
daginn voru íþróttir og tívolí í
hávegum höfð. Diskótek, hljómsveitin
Grafík og varðeldar héldu á mönnum
hita langt fram á nótt.
Jón Guðjónsson sagði aö hátíöin
hefði tekist svo vel að vel mætti hugsa
sér aö halda hana árlega.
ás
Það er komiö, norska skipiö
Scalloper frá Álasundi sem fyrirtækið
Traust hf. setur eitt stykki hörpudisks-
verksmiðjuí á næstu tveimur vikum.
„Vesgú, eitt stykki verksmiðja um
borð,” var fyrirsögn DV síðastliðinn
fimmtudag um tilbúnar verkmiðjur
Trausts hf.
Þessar fullgerðu verksmiðjur hafa
vakið gífurlega athygli erlendis, sér-
staklega í Noregi. Norsk blöð hafa
mikið skrif að um Traust hf.
Þegar er búið að semja um að setja
4 verksmiöjur í norsk fiskiskip. Sú
fyrsta er komin um borð, síðan er það
þessi í Scalloper, og í júli fara menn
frá Trausti hf. til Noregs og setja verk-
smiðjurítvöskip.
Það hangir meira á spýtunni í þessu
máli. Með verksmiðjunum er Traust
hf. búið að gera kleift að veiða hörpu-
disk í Barentshafi en þar eru mikil
hörpudisksmið.
Sagt er aö Barentshaf sé ný „gull-
náma”. Mönnum ber ekki saman um
hve miðin eru stór, rætt hefur veriö um
500 þúsund tonna veiði á ári. Það
myndi sprengja hörpudisksmarkað-
inn, en þeir stærstu, Bandaríkjamenn
og Kanadamenn,veiða rúm 200 þúsund
á ári. Við Islendingar 15 þúsund tonn.
-JGH