Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1985, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1985, Qupperneq 12
12 DV. MÁNUDAGUR1. JULl 1985. Stórlækkaö verð Höfum nú stórlækkað verð á okkar PÚSTKERFUM Meira að segja ál-séruðu kerfin okkar höfum við lækkað niður fyrir þá sem smíða pústkerfi úr svörtu járni. Lækkunin gildir út júlímánuð til að byrja með. Pústkerfin okkar endast 70—80% lengur en önnur gegn ryði MITSUBISHI PAJERO VERÐ: með bensínvél kr. 758.20 meö ^nn. Þeir, sem eiga hann, dá hann. Þeir, sem ekki eiga hann, þrá hann. (Gengl 31.05 85) ^ kr. 8 Okkar verö er miðað við fullbúinn bíl, og þá meinum við: 0 Framdrifslokur 0 Tregðumismunadrif (70% læsing) a 0 Aukamiðstöð undir aftursæti ^ 0 Útvarp/kassettutæki 0 Rafhituð framsæti 0 Rúilubílbelti í öilum sætum 0 Fullklæddur að innan 0 Aflstýri 0 O.fl. o.fl. 50 ÁRA REYNSLA f BÍLAINNFLUTNINGI OG ÞfÓNUSTU HEKLAHF Laugavegi 170 -172 Sími 21240 Akureyri: Síríusi fagn- aðmeð stórhátíð Hundastjarnan Síríus kemur upp á himininn 13. júli næstkomandi og verö- ur þvi fagnað með mikilli hundadaga- hátíö á Akureyri. Þangað er boðið fðlki alls staðar að. Stjarna þessi hef ur með- al annars þau áhrif á jarðarbúa að þeir taka upp á ýmsu skríngilegu. Sú mun vist líka verða raunin á þessari hátiö sem er nokkurs konar afsprengi kami- valsins í fyrra. Hátíöin hefst 8. júli meö því að sleppt veröur laxi og sjóbirtingi í tjömina við Drottningarbraut. Tveir fiskanna verða merktir og fá þeir sem ná þeim verðlaun. Veiðileyfi verða seld. Daginn eftir verður opnaður útimarkaöur og Akureyrarpollur byrjar að iða af lifi. Siglingamenn verða þar á ferð alla hátíðisdagana. Um kvöldið er ljóða- kvöld. A miðvikudag verða óvæntir viö- burðir í göngugötu og útiskákmót H— 100. Fólki býðst lika að fara á sjó meö trillukörlum. Um kvöldið verða tón- leikar i 19. aldar stíl. Michael J. Clark safnar saman söngkröftum af Norður- landi. Langhlaup er fyrirhugað fimmtu- daginn 11. júlí eöa nokkurs konar Akureyrarmaraþon. Þann dag verður líka mikiö um að vera i göngugötunni og á PoUinum. Einar Einarsson gítar- leikari heldur tónleika um kvöldiö og spilar þar sambatónlist. I SjaUanum veröur Bubbi Morthens en þekktir hagyrðingar á Hótel KEA. Ætlunin er að drífa aUa verslunar- menn við göngugötuna út þann 12. júU ef veður leyfir. Um kvöldið verður stórviðburður knattspymumanna þeg- ar kappamir sem tóku þátt í bikarúr- slitaleiknum 1969 miUi IBA og IA endurtaka leikinn. Þá vann IBA með þremur gegn einu. Utihátíðarsvæði verður opnað þennan dag fyrir neðan leikhúsið með tivoUi og ýmsu ööm tU skemmtunar. Þetta kvöld og hiö næsta verður líklega sameiginlegur dansleik- ur allra dansstaðanna á Akureyri. Menn kaupa einn miða og ganga á mUU. Komið er fram á laugardag og hátíö- in fer að ná hámarki. Skrúðganga verður þá meö uppábúnu fólki og furðuverum. SlökkviUöið keppir í vatnsknattspymu, IþróttadeUd Léttis sýnir, svokaUaðir Islandsleikar hefjast þar sem mikið reynir á andlegt og Ukamlegt atgervi. TU dæmis er keppt i skriffinnsku og nefndarstörfum, kassabUaróðri og koddaslag. Islands- leikum lýkur daginn eftir og þá veitt verðlaun sem Flugleiðir gefa. Á lokadegi hundadagahátíöar 14. júU verður hátíðarsvæðið áfram opiö. I SjaUanum verður Duran Duran síð- degi fyrir krakkana. Alla dagana sem hátíðin stendur verður starfrækt útvarpsstöð, Utvarp Síríus. Utvarpið verður tónlist, til- kynningum og spjaUi við f ólk. Utvarps- stjóri veröur Olafur H. Torfason. Undirbúningur þessara daga stend- ur nú sem hæst undir stjóm Haralds Inga Haraldssonar myndUstarmanns. Hann hefur aðsetur í gamia Bama- skólanum við hliðina á leikhúsinu. Þar er nú boðiö upp á námskeið i búninga- og grímugerð. Hvert námskeið er í 5 kvöld, 3 klukkustundir í hvert skipti. Leiðbeinandi er Sigríður Pétursdóttur. JBH/Akureyri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.