Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1985, Síða 20
20
DV. MANUDAGUR X. JULI1985.
Sjúkrahúsið
Patreksfirði
Sjúkrahúsiö Patreksfiröi óskar aö ráöa hjúkrunarfræöing
og sjúkraliöa til starfa sem fyrst eöa eftir samkomulagi,
einnig vantar hjúkrunarfræöinga og Ijósmóöur til sumar-
afleysinga. Gott húsnæöi fyrir hendi. Nánari upplýsingar
veitir Sigrlöur Karlsdóttir hjúkrunarforstjóri I síma 94-1110
aöa 94-1386.
Happdrætti
Sjálfstæðisflokksins
Dregið 6. júlí.
Sækjum — sendum.
Sími82900.
Sjálfstæðisflokkurinn.
Lax og silungur
Vakin er athygli á aö Heilbrigðisráð Reykjavíkur og Heil-
brigðisnefnd Seltjarnarness hafa með aðstoð í 26. og
192. gr. reglugerðar nr. 45/1972 samþykkt að eingöngu
sé heimilt að bjóða til sölu á svæði Heilbrigðiseftirlits
Reykjavíkursvæðis (Reykjavík og Seltjarnarneskaup-
staður) lax og silung sem hefur verið slægður og tálkn og
nýru (blóðrönd) fjarlægð úr.
Heilbrigöiseftirlít Reykjavíkur.
mr
m vy* v j
Nýr KAYS
vetrarlisti
Viðskiptavinir,
sækið fyrir 8. júlí.
DV-mynd: G. Bender.
Beflifi eftir þeim stóra og málin rœdd.
Kvíslarvötn á Núpsheiði:
HÆGT AÐ FÁ AÐ VEIÐA Á
STÖNG OG LEGGJA NET
— fréttirfrá Kvíslarvötnum, Hítarvatni ogaf Arnarvatnsheiði
Núpsheiöi er heiöarfláki á noröan-
veröri Tvídægru, suöur af Miöfiröi,
milli Þorvaldsár og Vesturár. Um
hana liggja Núpsdælagötur suöur úr
Núpsdal, vestan viö Ulfsvatn og
þaöan í sjónhendingu í stefnu á Þor-
valdsháls.
A bænum Efra-Núpi eru seld veiði-
leyfi í Kvíslarvötn á Núpsheiöi og
okkur lék forvitni á aö vita um vötn
þar sem leyfð er samtímis neta- og
stangaveiði. „Bæöi urriöi og bleikja
veiöast i vötnunum, sá stærsti 5,5
pund. Um síðustu helgi fóru tveir
veiöimenn til veiða og fengu 26 sil-
unga á stöng og 10 í net, einn dag.
Þaö er keyrt fram. aö afréttargirö-
ingu og svo er þetta um klukkutíma
labb þaöan. Þarna viö vötnin er stór
vegavinnuskúr og hægt aö vera í hon-
VEIÐIVOIM
GunnarBender
um. Stöngin kostar 450 og netið
1000,” sagði Ketilriður á Efra-Núpi.
„Það hefur veriö góö veiði og menn
fengiö upp í 3 punda urriða og
bleikjur í vatninu,” sagði húsfreyjan
í Hítardal er við leituöum frétta af
Hítarvatni en veiðin hófst í vatninu
25. maí. ,,Um helgar er mikil umferö
og þá koma hingaö fjölskyldur og
vinnuhópar. I vatninu eru leyföar 30
stangir og þetta er töluvert labb í
bestu veiðistaðina inn meö vatninu.
Veiöileyfi þarf að panta í Hítardal og
kostar dagurinn 370. Veiðihús er viö
vatnið.”
Það hafa margir veiðimenn farið
inn á Arnarvatnsheiöi og veitt silung
síöan opnaö var; þar er víst gífur-
lega gaman að renna. „Það var
flennifæri er viö fórum og veður var
gott. Okkur finnst þetta ekki vera
orðið eins spennandi og áður fyrr,
fiskurinn fer smækkandi og veiöi-
menn sækja meira i vötnin. Viö feng-
um um 100 silunga og hann var 3
punda, sá stærsti, við veiddum á
mörgum stööum á heiðinni,” sögöu
veiðimenn sem nýlega eru komnir af
heiöinni. Dagurinn kostar 650 og svo
er seldur heigarpakki sem kostar
1000.
G. Bender.
RM B. MAGNUSSON
■VIVI HOLSHRAUNI 2 - SlMI 52866 - P.H. 410 - HAFNARFIRDI
Snyrti- og nuddstofan
52 PARADÍS *
ALLTÁSAMASTAÐ
frá toppi til táar.
Nudd
Sauna
Ljós (nýjar perur)
Quickslim
Nýjung
Andlitsböð
Litanir
Handsnyrting
Fótsnyrting
Vaxmeðferð
Make Up
Hárgreiðsla
SCARSDALEKÚRINN
Regina Royal Jelly
vítamínmegrunarpillurnar komnar.
Pottþétt þjónusta í Paradís.
Ódýru Lumene snyrtivörurnar.
Ökuleikni BFÖ — DV:
Metin fuku á Egilsstöðum
Björn Björnsson fékk rásnúmer 13 og taldi að nú vœri öll von úti. En þafl
fór á annan veg. Hann er nú langefstur yfir landifi mefl afleins 113 rafsi-
stig.
Það má með sanni segja aö Egils-
staöabúar hafi safnað að sér metum í
ökuleikni Bindindisfélags ökumanna
og DV. Keppendur voru 18 talsins og
er það met í sumar. Keppendur voru
16 í Reykjavík svo 18 keppendur á
Egilsstöðum hlýtur að teljast góö
þátttaka.
Sett var tímamet í brautinni, 96
sekúndur. Sá er þaö setti heitir Sig-
urður Halldórsson. Hraðinn kom niö-
ur á f jölda refsistiga og varð það til
þess að hann hafnaði í 12. sæti. Þaö
borgar sig því að flýta sér hægt.
Sigurvegarinn í karlariðli setti tvö
met. Hann fékk fæstar villur sem
nokkur hefur fengiö í sumar eöa
aðeins 4 refsistig í brautinni. En
hann lét það ekki duga heldur geröi
hann sér lítið fyrir og bætti met
Ragnars Péturssonar um 31 refsi-
stig. Hann fékk 113 refsistig úr
keppninni og er þaö langbesti
árangurinn í sumar. Þetta var Bjöm
Bjömsson á gamla BMW-inum sín-
um sem ók svo frábærlega í braut-
inni. Næsti keppandi var meö 166
refsistig sem einhvers staðar annars
staöar heföi dugaö til sigurs. Sá heit-
ir Vilhelm Bjömsson og ók hann
einnig BMW. I þriöja sæti hafnaði
Máni Sigfússon á Mazda 626 meö 177
refsistig. Það var áberandi hve hratt
allir keppendur óku í gegnum
þrautaplaniö og vom margir hverjir
einnig mjög öruggir. Hins vegar
komu spumingamar frekar illa út.
I kvennariðli sigraöi Birna Sigur-
björnsdóttir á Ford Cortina meö 306
refsistig. Sigurveig Halldórsdóttir
hreppti silfrið meö 353 refsistigum.
Hún ók Mazda 626. Bronsið fór til
Helgu Eiríksdóttur sem fékk 393
refsistig á Toyotunni sinni.
I karlariöli var þaö skóverslunin
Krummafótur sem gaf verðlaunin en
bílasalan Asinn gaf þau í kvenna-
riðli.
Frekar fáir keppendur vora meö í
reiöhjólakeppninni. Þeir vom aö
þessu sinui aðeins 8 talsins.
I 9—riöli sigraöi Ingi Páll
Sæbjörnsson meö 135 refsistig en
Kári Hrafnkelsson sigraöi í riðlinum
12 ára og eldrimeö61 refsistig.
Besti árangurinn til þessa er í
Reykjavík, 32 refsistig, 36 refsistig á
Hellu og 37 á Höfn.
Næstu keppnir
Keppt verður í dag, mánudaginn
1. júlí, á Þingeyri, þriöjudaginn 2.
júlí á Tálknafirði og miövikudaginn
3. júlí á Patreksfirði. Stykkishólmur
er síðan næstur þann 4. júlí, Olafsvík
föstudagskvöldið 5. júlí og laugar-
daginn 6. júlí verður keppt í Borgar-
nesi.