Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1985, Síða 2
2
DV. MÁNUDAGUR 29. JULI1985.
Rannsóknir á Iffríki Mývatns:
RAÐHERRARNIR
BÍTAST UM FÉÐ
Risinn er ágreiningur milli Sverris
Hermannssonar iðnaðarráöherra og
Alberts Guðmundssonar fjármála-
ráðherra um hvernig eigi að ráðstafa
um 400 þúsund krónum sem
Kísiliðjan hf. í Reykjahlíð á að leggja
fram lögum samkvæmt til
rannsókna á lífríki Mývatns.
Iðnaðarráðherra vill leggja
peningana inn á bankareikning Kísil-
iöjunnar en fjármálaráðherra vill fá
féð í ríkiss jóð.
Kísiliðjan leggur fram ákveöna
fjárhæö til rannsóknarstarfa á ári
hverju. Samkvæmt upplýsingum DV
er kveðið skýrt á um það í námaleyfi
verksmiöjunnar frá því í vor aö
peningarnir skuli renna í ríkissjóð.
Ríkiö eigi síðan að sjá til þess að and-
viröi fjárhæðarinnar sé varið til
rannsókna.
Ekki tókst aö ná tali af
ráðherrunum í gær en einn
heimildarmanna DV, sem ekki vildi
láta nafns síns getið, sagði aö hér
væri veriö að deila um meginreglu.
„Skattgreiðendur eiga ekki að geta
ákveðið sjálfir hvert greiðslur þeirra
fara. Það er hlutverk stjórnvalda.”
Samkvæmt upplýsingum DV eru
ráðherramir sammála um að verja
fénu til rannsókna. En þar sem uppi
eru deilur um hvort menntamála-
ráðuneytið eða iðnaðarráðuneytið
eigi að bera ábyrgð á fyrirhuguðum
rannsóknum, þá sé iðnaðar-
ráðuneytið með þessum hætti að
reyna að tryggja sér féð fyrirfram.
-EA.
Hopp og hí, glens
og gamanmál
— á Reykjavíkurmóti barnanna
„Það er alveg roooosalegt fjör,”
hrópaði lítil hnáta í eyra blaðamanns í
gær er Reykjavíkurmót barnanna stóð
sem hæst í Hljómskálagarðinum.
Töluverður fjöldi bama tók þátt í
mótinu er Skátafélagið Arbúar hafði
veg og vanda af. Dagskráin var fjöl-
breytt. Keppt var í ýmsum greinum:
Fimmtar- og tugþraut, kajakróðri,
göngu á grindverki, 100 metra hlaupi,
sippi og kassabílaralli, svo fátt eitt sé
taliö.
Rokktónleikar settu svip sinn á
mótiö en þeir voru haldnir í tilefni af
Alþjóðaári æskunnar undir kjörorðum
þess, þátttaka, þróun, friður. Alls áttu
níu hljómsveitir aðkoma fram og gáfu
þær a llarvinn u sínu.
Þegar blaðamenn DV bar aö garði
var Sverrir Stormsker að leika nokkur
hugljúf lög fyrir börnin en var skömmu
síðar leystur af og var þar Bergþóra
Arnadóttir að verki. Hún vék svo fýrir
ókunnum kvartett, sem lék hressileg,.
klassisk, íslensk stuð- og skátalög.
Mikið keppnisskap var í ungu
kynslóðinni í þrautum og leikjum
mótsins og ekki annað að sjá en allir
skemmtu sér vel þrátt fyrir að veður-
guðirnir sæju ekki fyrir glampandi sól.
Birtan sem kom ekki að ofan kom að
innan, og Eva Dögg, tveggja og hálfs
árs, sagði mér að bamamótið væri
hreinasta „tívólí”.
ás
Eva Dögg sagði að Reykjavíkurmótið væri algjört tivóli og það fannst
foreldrunum fyndið.
Keppnisskap og leikgleði i þrautunum og meira að segja pabbi gamli
glottir við tönn.
Sverrir Stormsker syngur nokkur hugljúf lög fyrir börnin.
DV-myndir PK
FLUGLEIÐIR KANNA
DASH 8 FLUGVÉL
— gæti komið til
greina við endur-
nýjun innanlands-
flugflotans
í
Sölu- og tæknimenn f rá De Havilland
flugvélaverksmiðjunum í Kanada
komu hingað til lands um helgina með
Dash 8 vél sem þeir kynna Flugleiðum.
„Flugleiðir eru ekki að endurnýja
innanlandsflotann í allra nánustu
framtíð, en það fer að líða að því og við
fylgjumst því með á markaðnum,”
sagöi Erling Aspelund, framkvæmda-
stjóri flugrekstrarsviðs.
Erling sagði að Dash 8 vélinni yrði
reynsluflogið í dag og m.a. flogið til
Isafjaröar til að kanna hæfni hennar
við erfiðar aðstæður eins og væru þar.
Dash 8 vélin tekur 32 farþega í sæti,
en Erling sagði að væntanleg væri
stærri vél, Dash 8—300 sem tæki 50 far-
þega, og væri nær þeim kröfum sem
Flugleiöir gerðu. Aörar vélar sem
Flugleiöir hafa augastað á þegar
innanlandsflotinn verður endur-
nýjaður eru Fokker 50 og franska vélin
ATR42.
-ás.
Dash 8 vélin sem De Havilland flug-
vélaverksmiðjurnar kynna Flugleið-
um þessa dagana.
DV-mynd Páll.
Rock og Doris: Hann sagðist bara
vera að ná sér eftir flensu en var
með AIDS.
Klaufalegt hjá
Newsweek:
Rock Hudson
með flensu?
Upp koma svik um siöir. Hið
fornkveðna hefur sjaldan átt betur
viö en nú á dögunum. I nýjasta
hefti vikuritsins Newsweek, sem
dagsett er 29. júlí.er greint frá því í
dálkinum „Newsmakers” að leik-
konan Doris Day hafi nú hleypt af
stokkunum nýjum sjónvarpsþætti
„Doris Day’s best friends”.
Aðalefni þáttanna eru hundar og
kettir frægs fólks, en engu að síður
fá nokkrir tvífættir að fljóta með.
Vikuritið segir að Roek Hudson, 59.
ára, sem hafi þekkt Day meöan
hún var enn jómfrú(sicl), hafi
verið svo glaður aö heyra að hún
væri aftur komin í sjónvarpiö að
hann hafi fallist á aö vera fyrsti
tvífætti gestur hennar í þættinum.
Og þaö: ,,Þrátt fyrir greinilega
slæma heilsu.” Og vikuritið heldur
áfram: „Talsmaður leikarans
sagði reyndar að hann þjáðist að-
eins af eftirköstum flensu og svefn-
leysi."
Sem kunnugt er var það kunn-
gjört í síöustu viku að leikarinn
væri haldinn AIDS-ónæmistæringu.
ás
Slökkvlliðsbill i lausu lofti. Lög-
reglan kom á staðinn um
helgina og gerði athugasemdir
við þetta uppátæki þar sem bill-
inn væri ekki nógu vel festur.
Brunabíllínn stendur fyrir utan
Bílasölu Guðfinns við Miklatorg,
en þar var opnað nú um helgina,
og ðtti hann að vera til að vekja
athygli fólks, að sögn starfs-
manna bilasölunnar. Bíllinn fær
þó að hanga þangað til úr þvi
fæst skorið hvort taka eigi hann
niður af öryggisástæðum.
EH/DV-myndS