Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1985, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1985, Page 8
8 DV. MANUDAGUR 29. JULI1985. (Jtlönd Útlönd Útlönd Útlönd „Grindl Grind!"— Færeyingar í ham með grindhvalavöðu i fjörunni, en mótmælin við hvalveiðinni eru farin að beinast að grindardrápunum. Enn sem komið er hafa Færeyingar þau að engu. Mótmæli við grindardráp í Færeyjum: Færeyingar harðhentir við breska hvalavini Gagnrýna í predik- unum nýju verkalýðs- lögin Þúsundir hlýddu á séra Pawel Piotrowski við messu í St. Stanislaw- kirkju í Varsjá gagnrýna í ræðu sinni nýjustu breytingar á verkalýðs- lögunum þar sem hér eftir leyfist aðeins eitt verkalýðsfélag á hverjum vinnustað. Með þeim breytingum voru afnumd- ar úrbætur sem fengist höfðu í verk- föllunum sem „Eining”, hin óháöa verkalýðshreyfing, beitti sér fyrir. Það var viö St. Stanislaw-kirkju sem séra Jerzy Popieluszko flutti mánaðarlega sína „ættjaröarmessu” uns hann var myrtur af leynilögregl- unnií október síöasta haus. Séra Piotrowski gerði einnig athugasemdir við þingkosningamar fyrirhuguðu í október næsta og spurði hvort fólk yfirleitt léti sig nokkru varða niöurstöður þeirra. — Neðanjarðarforingjar „Einingar hafa skorað á kjósendur að sitja heima og skila ekki atkvæði. Rock Hudson við betri líðan á spítalanum Bandaríski kvikmyndaleikarinn Rock Hudson er nú sagður við sæmi- lega líðan þar sem hann liggur á ameríska sjúkrahúsinu í París. I til- raunaskyni eru læknarnir með hann á lyfjum sem eru nýkomin fram gegn ónæmistæringu. Eftir að erindrekar leikarans í fyrstu sóru og sárt við lögðu að Rock Hudson væri ekki haldinn ónæmistæringu (AIDS) hefur nú verið opinberlega staðfest af læknum að það er samt ein- mitt það sem honum amar. Nýja lyfið, sem læknarnir reyna á Hudson, er kallaö HPA 23 og framleitt af Pasteur-stofnuninni í París. Vinnur það gegn vírus sem stofnunin fann fyr- ir tveim árum að orsakar sennilega ónæmistæringu. Hudson er sagður hafa tekiö tölu- verðum bata, síðan hann lagðist inn á sjúkrahúsið. Rock Hudson var sagður með vott af krabbameini i lifur, en nú er viðurkennt að ónæmistæring bagar hann. Breskir hvalavinir, sem ætluðu að trufla grindhvalaveiðar Færeyinga á laugardaginn, fengu óblíðar móttökur og prísuðu sig sæla að sleppa heil- skinna frá. Létu Færeyingar pústrana Sex æskulýðshópar frá V-Þýskalandi tilkynntu í gær að þeir væru hættir þátttöku í æskulýðshátíðinni í Moskvu því að sovésk yfirvöld heföu brotið á þeim samkomulag. — Á hátíðinni eru annars um 20 þúsund erlendir þátttak- endur æskulýðshátíðarinnar frá um 120 löndum og þar á meðal Islandi. Þýsku ungmennin, sem meðal ann- ars eru úr sósíaldemókrataflokknum, úr æskulýðssamtökum evangelísku kirkjunnar og úr íþróttasamtökunum þýsku, segjast mótmæla meðferð yfir- valda á hópnum frá Vestur-Berlín. — Sovétmenn vilja líta á V-Berlínarhóp- inn sem fulltrúa sérþjóðar en ekki á þeim ganga og áköfustu veiði- garparnir reyndu að sökkva gúmbáti Bretanna. Bretamir eru frá samtökum sem kallast „Environmental Investigation hluta af v-þýska hópnum. Félagar í ungkommúnistaflokki Vest- urBerlínar gengu undir sérfána borgar- innar við setningarathöfnina til aö undirstrika afstöðu Moskvu (sem kommúnistar í V-Berlín fylgja dyggi- lega) til vesturhelmings hinnar þýsku borgar. V-þýsku ungmennin hin sögðu þetta brot á fjórveldasamningnum um stöðu Berlínar og samkomulagi við þau um undirbúning æskulýðshátíðarinnar. Þá mótmæla þau einnig að engum er leyfður aögangur að gistirými sendi- hópanna nema þeim sem úthlutaö hef- ur verið sérstökum skilríkjum (með Agency” (EIA), en þau hafa aðsetur í London. Utmáluðu þeir eftir á íyrir frétta- mönnum í London það sem þeir kölluðu „grimmileg fjöldadráp Færeyinga” á grind. Þeir höfðu verið vitni að því hvar 40 smábátar Færeyinga ráku um 200 grindhvali á land við Vestmannflóa í Straumey. Bresku „bjargvættimir” reyndu með þokulúðri að fæla hvalina út á opið haf aftur, en Færeyingar sigldu á gúm- Tito Okello, hershöfðingi og yfir- maður herja Uganda, hefur skipað hermönnum að snúa aftur til herskál- anna, en miklar gripdeildir hafafylgt byltingu hersins á laugardaginn þegar Milton Obote fonseta og stjóm hans var velt. Kom hann fram í útvarpi í gær og skoraöi á landsmenn að sýna bylt- ingarmönnum traust. Þykir það gefa tilkynna að hann sé æðsti maðurinn að baki byltingunni. mynd af viökomandi). Segjast þau hafa sótt hátíðina til aö styöja „dente” -stefnuna en stjómendur hátíðarinnar hafi aðra afstööu en þau til málfrelsis. Engar hömlur hafa verið settar á hvað tekið verði til umræðu í ræðu- flutningi fulltrúanna en vandlega er þess gætt að enginn hlýði á þá nema aðrir fulltrúar. Þúsundir óeinkennisklæddra lög- reglumanna eru áberandi við hátíðina og um leið óvenjumikill fjöldi ein- kennisklæddra. Þeim, sem ekki eru fulltrúar, er vísað frá. Einnig út- lendingum búandi í Moskvu. bát þeirra, létu pústrana ganga á áhöfninni og reyndu að skera á gúm- bátinn. — Létu aðkomumenn þá undan síga. Þeir halda því fram, aö Færeyingar drepi þúsundir hvala, mestan part „til gamans”. Þessu mótmæla Færeyingar og segjast gera sér matföng úr öllu sem þeir veiða. Grindhvalurinn hafi frá aldaööli þótt drjúgt búsílag í Færeyj- um og afurðir grindarinnar þykja ómissandi í ýmsa þjóðarrétti. Fyrr í gær hafði nafni hans, Olara Okello hershöfðingi (af sama ættbálki Acholi-manna), verið kynntur i út- varpinu í Kampala sem „leiðtogi” byltingarmanna. Olara hafði í síðustu viku staðið fyrir uppreisn innan hersins, þá stadd- ur í norðurhluta landsins, en herflokk- ur hans hélt innreið sína í höf uðborgina á laugardag. Hann tilkynnti þá að stjómarskráin væri felld úr gildi og hvatti höfuðborgarbúa til þess að halda sig innan dyra. I allan gærdag gat að líta hermenn að rogast á strætunum með útvarps- tæki, áfengi og fatnað í fanginu, en það höfðu þeir tekið til handargagns úr verslunum. — Um miðjan dag var ekki einn bíl að sjá á bílastæðum borgarinn- ar því að eigendur höfðu foröað þeim. Samskonar fregnir bárust frá öðrum stærri borgum eins og Masaka og Jinja. Tito Okello hershöfðingi sagði lönd- um sínum í útvarpinu að Obote forseti (sem flúði við byltinguna yfir til Kenya) hefði valdið ringulreið og beitt ungum dátum til morða á óbreyttum borgurum. Fjórir óbreyttir borgarar voru drepnir á götu í Kampala í gær. Ur útlegð sinni í Saudi Arabíu hefur Idi Amin, fyrrum einræðisherra í Uganda, sagt blaðamönnum að hann hafi beðið fylgismenn sína í Uganda aö styðja uppreisnarmenn. Hann kveðst reiðubúinn að snúa heim og bjarga Uganda úr ringulreiðinni. FF Eittglasaf frostiegi, takk!ff segja þeir í Austurríki og láta sér vínhneykslið ílétturúmi liggja „Einn pela af frostlegi, þjónn!” hrópar einn og einn gestur í kránum í Grinzing í Austurríki þessa dagana í stað þess að biðja eins og venjulega um hvítvín. „Því miður, herra; Við afgreiðum það aðeins á veturna,” er svaraö um hæl, því að austurrísku þjónarnir eru orðnir vanir skensinu út af vín- hneysklinu. En þótt uppvíst hafi orðið að austurrík Iéttvín hafi mörg verið blönduð með sætindabæti, diet- hylene glycol, sem annars er notað í frostlög á bíla og er ekki heilsusam- legt mönnum, þá hefur ekkert dregið úr léttvínskaupum gesta á öldurhús- um í Austurríki. I staö þessa að segja „Gliick auf” (skál;) er sagt um þessar mund- ir. . . „Glyk auf” til styttingar á þessu langa heiti blöndunarefnisins. Yfirvöld taka hins vegar ekki svona létt á málinu, sem hefur í bili eyðilagt vínútflutning Austurríkis. Fjórtán frammámenn í víniðnaðin- um hafa verið hnepptir í varðhald vegna rannsóknar málsins. Land- búnaðarráðherrann hefur faliö undirsátum sínum aö gera lista til aö opinbera þær víntegundir sem „frostlögur” hefur fundist í og annan sömuleiðis til birtingar yfir þær teg- undir sem ekki hafa verið blandaðar diethylene glykol. Æskulýðshátíðin í Moskvu: r r V-ÞJODVERJAR OANÆGDIR — og eru hættir þátttöku nema v-þýskir ungkommúnistar Gripdeildir eftir byltingu í Uganda

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.