Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1985, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1985, Blaðsíða 22
22 DV. MANUDAGUR 29. JULl 1985. Áhaldaleiga VERKPRÝÐI Vagnhöfða 6 S. 671540 Leigjum út handhæg tæki | (nýjung) til að slípa niður múr, t.d. steypuskil, slétta steinveggi, svalir, kanta, i tröppur, einnig slípa gamla málningu af gólfum, leigjum ennfremur út bor- | vélar, múrhamra, slípi- rokka, kíkja o. fl. o. fl. (Nýtum nýjungar.) í allar byggingar Verndið húsið með Ceresit steypuviðgerðarefni. • Flotgólf • Sjálfrennandi • Til gólfviðgerða • Efnið var valið ái norsku olíuborpallana. Fylgist með tímanum, tíminn fylgist með okkur. VERKPRYÐI Vagnhöfða 6, áhaldaleiga, Sími 671540. | Z51SZSZíZ52515I515LílS15£51525Z515<LS15T2ili Iþróttir íþróttir Iþróttir íþróttir Dýrmæt stig til Njarðvíkinga í botnbaráttunni - þegar þeir sigruðu Leiftur 2-0 í 2. deild á laugardag Frá Magnúsi Gíslasyni, fréttamanni DV á Suðurnesjum: Njarðvíkingar höfðu sætaskipti við leikmenn Leifturs frá Ólafsfirði þegar þeir sigruðu Leiftur á laugardag með tveimur mörkum gegn engu. Sigur heimamanna hefði getað orðið stærri því Njarðvíkingar misnotuðu mörg góð marktækifæri en skoruðu síðan tvö heppnismörk, með aðstoð mótherj- anna. Eftir tuttugu mínútna leik kom fyrra markið. Hinn grimmi framherji Njarðvíkinga, Jón Halldórsson, gaf þá fyrir mark Olafsfirðinga. Svo illa vildi til að einn varnarmanna þeirra sendi knöttinn leiftursnöggt í eigið mark. Jón Halldórsson og Guðmundur Valur Sigurðsson áttu síðan góð skot að marki Leifturs en naumlega f ram hjá í bæði skiptin, úr góðum færum. Staðan í leikhléi var sem sagt 1—0 fyrir heima- menn. A 58. minútu varpaði Þórður Karls- son knettinum langt inn í vítateig Njarðvíkinga og ætlaði hann Guðmundi Sighvatssyni knöttinn. Guðmundi var hrint en í fallinu fór knötturinn í höfuö hans og þaðan í mark Olafsfirðinga, sannarlega neyðarlegt fyrir markvörð Leifturs, Loga Má Einarsson. Skömmu fyrir markið hafði Helgi Jóhannsson átt hörkuskot í þverslána í marki Njarðvíkinga og sluppu þeir þar meö skrekkinn. Hafsteinn Jóhannesson átti síðan möguleika á að minnka muninn fyrir Leiftur á 77. minútu leiksins en Finnar fara f ram á náðun —ianghlauparans Martti Vainio sem var dæmdur í lífstíðarbann eftir 0L i LA íþróttasamband Finnlands ætlar að fara fram á það við alþjóðafrjálsí- þróttasamband áhugamanna að lifs- tíðarbanni yfir langhlauparanum heimsfræga, Martti Vainio, verði af- létt. Vainio var mjög í sviðsljósinu eftir síðustu ólympíuleika í Los Angeles en þar varð hann annar í tíu kílómetra hlaupinu. Síðar kom í ljós, eftir iyfja- próf, að Finninn hafði notað ólögleg lyf, fallið á lyfjaprófinu, og var hann þá sviptur silfurverðlaununum. Síðar var hann dæmdur í lífstíðarbann. Sovéska hlaupakonan Tatiana Kazankina, sem neitaði aö gangast undir lyfjapróf, var dæmd í lífstíðar- bann eftir mót í París í september á síðasta ári. Dómurinn yfir henni hefur verið felldur úr gildi og Finnar vilja sem sagt að mál Martti Vainios fái sömu meðferð. Þess má geta að Kazankina á heimsmetiö í 3000 metra hlaupikvenna. -SK. • Martti Vainio Lyle hafnaði gylliboðinu Ættjarðarástin og tryggðin við eigin áhangendur getur á þessum síðustu og verstu tímum gert það að verkum að íþróttamenn láta boö um himinháa seðlastafla sem vind um eyrun þjóta. Skotinn Sandy Lyle, sem á dögunum vann British open golfmótið, fékk ný- verið boð um að taka þátt í mlklu at- vinnumannamóti í Bandaríkjunum þar seqi 775 þúsund dollarar eru í boði. Sandy Lyle ákvað að afþakka gylli- boðiö. Þannig vUl nefnilega tU að opna skoska golfmótiö er á sama tíma og hann tók það fram yfir mótiö í Banda- ríkjunum. Þess má geta tU gamans að verðlaunaféð á skoska mótinu nemur 140þúsundum dollara. David Barlow, nokkurs konar framkvæmdastjóri Sandy Lyle, sagði um helgina að Lyle vUdi byrja á því að keppa í Skotlandi eftir sigurinn á British open. Næsta keppni hjá Lyle eftir opna skoska mót- ið verður opna skandinavíska mótiö sem hefst á fimmtudaginn. -SK. „Eg ætla að rota Spink” Hnefaleikarinn bandaríski, Larry Holmes, lýsti þvi yfir á blaðamanna- fundi um helgina að hann myndi rota andstæðing sinn, Michael Spink, í september þegar „vinirnir” eigast við í þungavigt hnefaleika. Ef Holmes sigrar verður það hans 49. sigur í röð og er það nýtt met. Rocky Marciano hefur einnig unnið 49 sigra í röð í þungavigtinni og má telja víst að Holmes reyni fljótlega við 50. sigurinn ef hann sigrar og rotar Spink kaUinn í september. „Michael Spink er frábær hnefaleik- ari í léttvigt en nú mun hann mæta þungavigtarmanni og ég ætla að rota hann,” sagði Holmes. Spink er enginn aumingi í hringn- um. Hann hefur þegar unnið 27 sinnum í röð og þar af 19 sinnum á rothöggi þannig að hann veit alveg hvaö þaö er að rota en varla hvað það er að vera rotaður. Hann er 18 kílóum léttari en Holmes. Spink sagði eftirfarandi, þegar hann var spurður út i slaginn gegnHoImes: „Þetta verður viðureign stórkostlegra hnefaleikara í létt- og þungavigt.” -SK Paris SG efst í fyrsta skiptið Paris SG og Bordeaux án taps ífrönsku 1. deildinni íknattspyrnu í fyrsta skipti í sögu franska knatt- spyrnuliðsins Paris Saint Germain er Uðið nú i efsta sæti 1. deildarinnar í knattspyrnu í Frakklandi. Leiknar hafa verið þrjár umferðir, sú þriðja um helgina, og meistararnir frá Bordeaux eru í öðru sætinu með sex stig eins og Paris SG en markatala ParísarUðsins er betri. Það blés ekki byrlega hjá Paris SG á laugardag. Liðið lék gegn Toulouse á útivelU og heimamenn náðu yfirhönd- inni í byrjun er þeir skoruöu úr víta- spymu. I kjölfarið fylgdu þrjú mörk frá þeim Dominique Rocheteau, Rob- ert Jacquesog júgóslavneski landsliðs- maðurinn Safet Susic skoraði þriðja markiö. UrsUt í öðrum leikjum á laug- ardagurðuþessi: Marseilles-Nice Strassburg-Nantes Monaco-Toulon Metz-Sochaux Bastia-Rennes Toulouse-Paris SG Ulie-Nancy 2-1 1—2 0-2 2-0 0-2 1-3 3-1 Bordeaux-Lens Laval-Brest Le Havre-Auxerre 2-1 0-0 3-3 Staðan hjá efstu liðum eftir þrjár umferðir erþessi: Paris SG 3 3 0 0 10—3 6 Bordeaux 3 3 0 0 4—1 6 Toulon 3 2 1 0 3—0 5 Lens 3 2 0 1 10-4 4 Auxerre 3 1 2 0 5—3 4 Rennes 3 1 2 0 3—1 4 Lille 3 2 0 1 6-5 4 Nantes 3 1 2 0 3—2 4 -SK. örn Bjarnason, markvörður Njarðvíkinga, varði vel í hom. Þórður Karlsson komst síðan í ákjósanlegt færi í vítateig Leifturs en skot hans úr dauðafæri fór fram hjá. Njarðvíkingar léku skarpan sóknar- leik að þessu sinni og átti vöm Leifturs oft i hinu mesta basli með þá Hauk< Jóhannsson, Jón Halldórsson og Þórð Karlsson i framlinu heimamanna. Páll Þorkelsson var bestur í liði Njarðvíkinga en einnig léku þeir vel, Guðmundur Sighvatsson og Gísli Grétarsson, ásamt Sigurði Isleifssyni. Hjá Leiftri vom þeir Sigurður og Stefán Jakobssynir bestir, ásamt Helga J óhannssyni. Leikinn dæmdi Sæmundur Víglunds- son og er hann dómari á uppleiö. -SK. • lan Rush skoraði þrj lan Rush skoraði | „hat-trick” ' Ef eitthvað má marka leik ■ Liverpool liðsins í knattspyrau I gegn Burnley á laugardag, þá 1 virðist harmleikurinn í Brussel I ekki hafa haft mikil áhrif á leik-1 menn Iiðsins. Vináttuleikurinn * endaði með stórsigri Liverpool, 5— | 1. Ian Rush hefur greinilega ekki . týnt skotskónum þvi hann skoraði | þrjú mörk í leiknum. Þetta er fyrsti ■ leikur Liverpool frá hörmungar-1 deginum í Brussel þegar 38 manns | létust í óeirðum á leik Juventus og ■ Llverpool. -SK. I Skotarnirfá i 12 þús.miða' Eins og skýrt var frá i DV fyrlr | skömmu ákváðu forráðamenn ■ welska knattspyrausambandsins I að láta Skotum ekki í té aðgöngu-1 miða að leik Wales og Skotlands i . undankeppni HM sem fram fer í | Wales í september. Einhver róttæk ■ breytlng hefur nú orðlð á afstöðu I Walesbúa þvi um helgina tilkynnti I welska knattspyrausambandið að ■ Skotar fengju tólf þúsund aðgöngu-1 miða að leiknum, um þriðjungl seldra aðgöngumiða að lelk ■ liðanna. I „Þetta er mikilvægur leikur* fyrir bæði lið og það var sanngjarnt | að Skotar fengju sinn skerf af. aðgöngumiðunum. Annars hefðum | við lent í vandræðum með skoska ■ áhorfendur sem hefðu mætt ánl mlða,” sagði Alun Evans, ritaril welska knattspyrausambandsins i" gær. Þetta ágreiningsmál er þvi úr I sögunni nema Walesbúum snúist” enn hugur í máli þessu. -SK. | Prohaska er hættur Herbert Prohaska, sem verið hefur fyrirliði austurríska lands- liðsins í knattspyrau siðastliðin tvö ár, t&kynntl um helgina að hann myndi ekki leika fleiri landsleiki fyrir Austurriki. Prohaska hefur leikið 79 landsleiki fyrir Austurríki á 11 ára landsliðsferii sínum og í þessum 79 leikjum hefur hann skor- að 10 mörk. Landsliðsferlll Prohaska er fjórði lengsti ferill knattspyraumanns i sögu knatt- spyraunnar i Austurriki. Prohaska sagði að ástæðan fyrir þessari á- kvörðun sinni væri meðal annars sú að hann vildi cyða meiri tima með fjölskyldunni og svo hefði Austurríki ekki tekist að vinna sér sæti í úrslitakeppni heimsmeist- arakepþninnar í Mexíkó á næsta ári. En áfram ætlar Prohaska að leika með liði sínu, Austria Vin. SK. I I Evrópumet 1 i hjáSzabo i Ungverjinn Jozsef Szabo settiá| laugardag nýtt Evrópumet í 400 ■ metra fjórsundi á Evrópq-I meistaramóti unglinga í sundi. I Szabo synti á 4.27,71 minútum en eldra metið, sem var 4.30,12 min.,| áttihannsjálfur. -SK. Lm mmt mmm mmm mmm mm mm wmm aJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.