Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1985, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1985, Side 5
DV; MANUDAGUR29. JULI1985. 5 Staðan á toppnum: Þverá í Borgarfirði hefur örugga forystu veiðst hafa 1125 laxar „Jú, ætli maöur sé ekki búinn aö veiöa 25 laxa í sumar og þá mest í Þverá, Norðurá og Elliðaánum, en þetta er allt frekar smár lax. Nei, þetta byrjaði ekki vel og fyrstu veiði- túrarnir gáfu litla sem enga veiði. En s vo kom þetta hægt og sígandi. ’ ’ Það hafa margir veiðimenn rennt en veiðin hefur verið misjöfn. Það er greinilegt aö veiðimenn eru farnir að minnka veiðileyfakaup og er það ekkert skritiö. Silungsveiðin hefur laðað marga veiðimenn tii sín þvi þar verða menn ekki gjaldþrota þó þeir fái lítið. En laxveiðin stendur sem hæst núna og erlendir veiðimenn eru í mörgum veiðiám og sums staðar heyrist hálfgert neyðarhljóð í þeim, veiðin er lítil sem engin, og þetta er farið að gerast ár eftir ár. „Þetta er voðalegt, áin er næstum tóm og þeir útlendingar sem hafa veitt hér i tvo daga, hafa fengið 4 VEIÐIVON GunnarBender titti,” sagöi Heimir Barðason, leiösögumaður viö Víðidalsá.á laug- ardaginn. „Þetta eru toppveiðimenn og veiða vel í hyljunum með flugunni en maöur hefur heyrt á þeim að þeir séu að hugsa um að koma ekki aftur. Það eru kannski 150—200 Iaxar i ánni og ég fór með veiðimenn í bleikju- Þverá hefur örugga forystu um fjölda laxa og hafa veiðst þar 1125 laxar, veiðimenn leggja á ráðin um leið og flugunni er kastað. DV-mynd G. Bender. veiöi í morgun. Það kom smáganga fyrir skömmu, en það gerist varla nokkuð stórkostlegt úr þessu, þaö hafa veiðst 232 laxar,” sagði Heimir, leiðsögumaður við Viðidalsá, að lokum. Já, áfram halda menn að veiða og hvaða veiðiá skyldi hafa gefið flesta laxa? Hvaða veiöiá er á toppnum? Þverá í Borgarfirði hefur örugga forystu ennþá og hafa veiðst 1125 laxar. Nú er spurningin. Ná hinar veiðiárnarhenni? Eða verður Þverá efstílokin? 1) Þverá.............1125 laxar 2) LaxáíAðaldal.......920 laxar 3) Norðurá............740 laxar 4) LaxáíKjós..........720 laxar 5) Elliðaárnar........640 laxar 6) LangááMýrum........630 laxar 7) LaxááAsum..........624 laxar G. Bender. Landakotog Landspítalinn: DREGIÐ ÚR REKSTRINUM „Það er ein deild lokuð hjá okkur, aðallega vegna sumarleyfa, og svo er bamadeildin rekin á hálfum dampi. Að öðru ieyti er þetta svipað og veriö hefur,” sagði Olafur Örn Amarson, yfirlæknir á Landakotsspítala, í samtali við DV. Olafur sagði að engir verulegir erfiðleikar hefðu komið upp umfram það sem venjan er vegna sumarleyfa og að spítalinn hefði verið tiltölulega vel settur með hjúkrunarfólk hingað til. Símon Steingrímsson, forstjóri Ríkisspítalanna, upplýsti að dregið væri verulega úr rekstri spítalans í sumar vegna þess að ekki fengjust nægilega margir til afleysinga. Reynt væri að leysa máliö með aukavöktum. Fjórar deildir á sjálfum aðal- spítalanum em lokaðar í þrjár til fjór- ar vikur í sumar, auk einnar á geðdeild og einnar á Vífilsstöðum, svo sem DV skýrði frá á föstudag. -pá. Borgarspítalinn: Fjórum deildum lokaðísumar Mikill skortur á afleysingafólki veldur því að orðið hefur að loka f jórum deildum á Borgarspítalanum í sumar að meira eða minna leyti. Tvær lyflækningadeildir eru lokaðar í einn og tvo mánuði og ein skurðlækninga- deild í tæpa þrjá mánuði. A þessum deildum eru 87 rúm. Endurhæfingar- deildin við Grensásveg bætist svo við, en þar veröa 30 rúm auð í 10 vikur. Magnús Skúlason, aðstoðarfram- kvæmdastjóri Borgarspítalans, sagði í samtali við DV að ástandiö á spít- alanum hefði aldrei verið jafnslæmt og núna. Orsök þessara víðtæku lokana er skortur á hjúkrunarfólki í afleysinga- störf. Sem stendur er talsveröur hluti hjúkrunarfræðinganna í hlutastarfi en mikill vandi myndi leysast ef fleiri fengjust í heilsdagsstörf, að sögn Magnúsar. Raunar hefur vantaö starfsfólk á Borgarspítalann frá þvi um áramót og síðan þá hafa þrjár deildir verið lokaðar, alls með 41 rúmi. Þær koma til viðbótar þeim sem taldar voru að framan. Magnús Skúlason sagði að augljóst væri aö þetta ástand bitnaði mjög á sjúklingum og að ýmsar stoðdeildir innan spítalans yrðu við þetta mjög óhagkvæmar í rekstri. Lokun deild- anna þýddi að mikið álag skapaðist en reynt væri að niöast ekki um of á starfsfólkinu. Einnig væri reynt að halda eins miklu opnu og tök væru á. Sagði hann að það hefði gengið nokkurn veginn en engu aö síöur væri stofnunin komin í vítahring sem ekki sæist lausn á í bráð. -pá takt! Otrúlegt en satt! Adeíns 3.950 Sambyggt bíltæki — 2x8 wött. FM. Sterfó. MW. Bíltækjapakki Verd adeins 4.950 m* rowi - VOL rufve FM 88 8» BQ 1ÖO lOA ‘IQB MH* * wto , AM »A SO ro ao **oo T3o iea KHj Sambyggt bíltækl — 2x7 wött. FM. Steríó. MW. Ásamt 15 watta hátölurum. Og aftur komum við á óvart! 104 108 MHt am eo °ro ao 100 tao <»80 km* Sambyggt bíltækl — 2x7 wött. „Auto Reverse". FM. Steríó. MW. AðeÍnS 5.690 Hátalarar í alla bíla — Verd ffrá 1.370 parlö. Tónjafnarar með 30 watta affll frá 2800. LeitiÖ ekki langt yfir skammt. — Urvalið er hjá okkur. SJÓNVARPSBÚDIN Lágmúla 7 — Reykjavik Simi 68 53 33 ■

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.