Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1985, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1985, Side 12
12 DV. MÁNUDAGUR 29. JULI1985. Frjálst.óháÖ dagblað Útgáfuféldg: FRJÁLS FJÚLMIÐLUN HF. Stjórnarformafiurog útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aðstofiarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 686411. Auglýsingar: SÍDUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiðsla. áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI11. SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 686611. Setning. umbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF., SÍDUMÚLA 12. Prentun: Árvakurhf., Áskriftarverö á mánuði 360 kr. Verö i lausasölu 35 kr. Helgarblað 40 kr. Fjárhúsveizlan mikla í skýrslu sérfræðinga á vegum forsætisráðuneytisins segir, aö til séu hér á landi fjárhús yfir 1.142 þúsund fjár og að sauðfé þurfi að fækka úr 714 þúsund í 400—460 þúsund. Þessar tölur gefa gott dæmi um offjárfestinguna og offramleiðsluna í hinum hefðbundna landbúnaði. Ef við lítum sérstaklega á offjárfestinguna í fjár- húsum, þá er hún 60% meiri en sem svarar fjölda fjár í landinu og allt að 185% meiri en sem svarar þeim f jölda, sem ætti að vera að mati skýrslugerðarmanna. Þetta er miklu meiri offjárfesting en menn hafa gert sér grein fyrir. Samkvæmt tölum skýrslunnar er sauðfé í landinu allt að 80% fleira en vera ætti. Þar kemur fram hin hliðin á vandamálinu. Offjárfestingin í hinum hefðbundna land-| búnaði leiðir til offramleiðslu, sem kostar þjóðfélagið uppbætur, niðurgreiðslur og margvíslega aðra styrki. Annað dæmi um offjárfestinguna í hinum hefðbundna landbúnaði eru graskögglaverksmiðjurnar. Þeim hefur fjölgað, þótt þær hafi safnað birgðum allt frá árinu 1977. Síðast var reist slík verksmiðja árið 1983. Sumar þeirra eiga enn óselda nokkurn veginn alla framleiðsluna frá í fyrra. Leggja þarf til stofnkostnað verksmiðjanna af einkar takmörkuðu fjármagni þjóðarinnar. En þar með er ekki öll sagan sögð. Á lánsf járlögum þessa árs er heimild til 24 milljón króna lántöku handa verksmiðjunum, svo að unnt sé að halda áfram að framleiða óseljanlega vöru. Ef marka má af annarri reynslu frá hinum hefðbundna landbúnaði, má reikna með, að lánunum verði breytt í styrki, þegar gjaldþrotið blasir við. Til slíks hefur Fram- leiðsluráð landbúnaðarins fengið nægilegt fjármagn eftir mikla stækkun kjarnfóðursjóðsins umdeilda. Samkvæmt lánsfjáráætlun þessa árs er ráðgert, að samtals verði fjárfestur heill milljarður í landbúnaði. Obbinn af því fé fer í hefðbundna landbúnaðinn og stuðlar að þörfinni á uppbótum, niðurgreiðslum og marg- víslegum öðrum styrkjum á næstu árum og áratugum. Milljarður ársins sýnir, að offjárfestingin í hinum hefð- bundna landbúnaði er ekki vandi frá gömlum tíma, heldur böl, sem haldið er við frá ári til árs með nýrri f jár- festingu. Sem dæmi má nefna, að síðan 1960 hafa verið reist f járhús yfir fleira fé en rúm er fyrir í landinu. Samkvæmt áðurnefndri skýrslu, sem gerir ráð fyrir, að rúm sé fyrir 400—460 þúsund fjár í landinu, hafa frá 1960 verið byggð fjárhús yfir 557 þúsund fjár eða allt að 40% umfram það, sem skýrslugerðarmennirnir telja vera heildarþörf landbúnaðarins á þessu sviði. Þjóðina skortir fjármagn til byggingar íbúða og til nýrra atvinnugreina á borð við fiskeldi og tölvutækni. Á síðustu misserum hefur pólitíkin farið nokkrum sinnum á hvolf út af húsnæðisvandræðunum. Jafnframt eru nýju atvinnugreinunum skammtaðir smáaurar úr hnefa. Á sama tíma siglir hinn hefðbundni landbúnaður fram í sjálfvirkri fjárfestingu. Ofan á allt forréttindafjár- magnið, sem þessi grein hefur setið að, bætist nú við stór- fé í kjarnfóðursjóði. Þess vegna má búast við, að úrelt at- vinnugrein efli fjárfestingu sína á næstu árum. Fjárhúsin og graskögglaverksmiðjurnar eru aðeins tveir af mörgum flokkum minnisvarða um brennslu íslenzks sparifjár og um skuldasöfnun þjóðarinnar í út-! löndum. Hinn hefðbundni landbúnaður er í heild skóla- bókardæmi um, í hvaða veizlur þjóð á ekki að verja peningum sínum. Jónas Kristjánsson. DV „Þafl er engin tilviljun afl þetta kjöt iiggur nœr óhreyft i kistum stórmarkaflanna." Hálft sauðarfall i smérsósu — hugleiðingar í tilefni fóðurbætisskatts og vínsöluleyf a til veitingahúsa Aö yfirlögðu ráöi hefi ég nú um langa hríö látið vera aö minnast aukateknu orði á landbúnaðarmál. Heita má aö sama megi segja um flesta alþýöuflokksmenn, sem í meira en áratug töluðu fyrir daufum eyrum þjóöarinnar. Nú þurfum viö ekki lengur margt aö segja. Flestir aörir flytja nú mál okkar. Meira aö segja framsóknarbændur í sveit tala nú tungutaki Gylfa Þ. Gíslasonar um of- framleiösluvandamálið, sem var bannorð í þeim herbúðum fyrir aö- eins örfáum misserum. Mæti þeir sjálfum sér a „Meira að segja framsóknarbænd- ur í sveit tala nú tungutaki Gylfa Þ. Gíslasonar um offramleiðsluvanda- málið, sem var bannorð í þeim herbúð- um fyrir aðeins örfáum misserum.” Kjallarinn lögin sem sjálfstæðismenn sjálfir settu; raunar einn megintilgangur þeirra; og var fyrirsjáanleg eins og m.a. hefur veriö bent á í leiðurum DV. Þar sem ég hef haldiö saman mörgu, sem sagt hefur verið og skrifað um landbúnaöarmálin opin- berlega af sjálfskipuöum forkólfum landbúnaðarins, hefur mig oft langaö til þess upp á síökastiö aö tefla fram því sem þeir sögðu fyrir fáum árum þegar þeir nú tala þvert á sín eigin orö um nauðsyn fram- leiöslutakmarkana. Frá fyrri tiö segi ég, þegar þaö fékkst ekki einu sinni viðurkennt aö mun fleira sauöfé en nú gengur í högum, og mun fleiri mjólkurlítrar en nú koma úr kúnum, væru vandamál. Viö sögöum aö þessi skynsemisblinda hinna sjálfskipuöu málsvara landbúnaöarins myndi í lokin bitna á bændastéttinni sjálfri. Hver mótmælir því nú aö svo hafi farið? Hvað hafa þeir kostað? Eftir aö postular landbúnaöar- stefnunnar hafa loksins fengist til þess aö viðurkenna aö ríkisvernduð offramleiðslustefna hafi skapað stór- felld vandamál fyrir bændur jafnt sem neytendur mætti ætla aö hægt væri að ræða málin viö þá að hætti skynsemisvera. Sjálfir mega þeir gerst vita hvað staurblinda þeirra hefur kostað bændastéttina. Neyt- endur hefur hún kostaö hærra mat- vælaverö aö tiltölu en nokkur önnur þjóð í Vestur-Evrópu og Ameríku þarf aö borga. Gera þessir menn sér t.d. grein fyrir því aö mánaöarlaun bréfbera, að frádregnum opinberum gjöldum og húsnæðiskostnaði, duga fyrir svo sem eins og fimm eöa sex lambakjötsmáltíðum? Þaö er engin tilviljun að þetta kjöt liggur nær óhreyft í kistum stórmarkaöanna. Á þá svarið aö vera aö hækka verö ann- arra matvæla meö skattlagningu þannig að fólk neyðist til þess aö kaupa vöru sem er dýrari en svo aö hún seljist af sjálfsdáöum? Mismunurinn á heimsmarkaös- SIGHVATUR BJÖRGVIIMSSON FYRRVERANDI ALÞINGISMAÐUR verði kjöts og mjólkurvara annars vegar og því veröi hins vegar sem ís- lenski neytandinn er neyddur til þess aö borga fyrir þessar afurðir jafn- gildir gamanlaust ekki minna en 25% af ráðstöfunartekjum íslenskrar verkamannafjölskyldu. Sá er neytendaskatturinn sem fólkið í landinu þarf að greiöa fyrir land- búnaðarpólitík Framsóknar- og Sjálfstæöisflokks. Að þessi stjórn- málaöfl skuli engu aö síður halda samanlagt meira en helmingsfylgi meöal þjóöarinnar er mér ráögáta. Úr öskunni í eldinn Fyrst þetta hefur oröiö afrakstur- inn af miðstýrðu framleiöslu- og verðlagningarkerfi og framleiöslu- ábyrgð ríkissjóðs hvaöa vit er þá í því að bregðast viö vandanum með aukinni miðstýringu og ríkis- afskiptum eins og gert er í nýju framleiðsluráðslögunum? Viöbára Sjálfstæðisflokksins um aö reglugerð landbúnaöarráöherra um viðbótar- fóöurbætisskatt hafi veriö eitthvaö sem ekki mátti vænta er billeg afsökun. Hún er í fullu samræmi við Þá eru auk þess hafnir samningar milli ríkisstjómarinnar og bænda um hvaö skuli framleiða og á hvaöa verði. Hver á svo að „garantéra” aö fólkið í landinu sé reiðubúið til þess aö kaupa þetta og éta? Ætlar ríkis- stjórnin máske sjálf að hesthúsa af- ganginn, ef einhver verður, eöa á, eins og allt bendir til, að stjórna matarvenjum almennings með því aö skattleggja ódýrari vöru, sem fólkið vill, til þess aö landsmenn komist ekki hjá því aö éta dýrari vöru sem þeir vilja ekki! Allt bendir nú i þessa átt og einasta viðbára landbúnaöarráöherrans virðist vera sú að það sé þjóðlegra að éta sauði en éta svín. Óttast um Árnastofnun Veröi haldiö áfram á þessari braut endar islenskur almenningur sjálfsagt á því einkar „þjóölega” stigi að utan kjöts af sjálfdauöu hafi hann ekki efni á miklu öðru matar- kyns en skæöaskinni. Væri þá ráð í raun fyrir landbúnaöarráðherrann aö setja sem fyrst upp dómsmála- ráöherrahattinn og efla löggæsluna við Handritastofnun áöur en vorar göfugu kerlingar fara að sækja þangað pjötlur í pottana sína svo vikiö sé sögunni vestur á Rein þar sem pjötlurnar voru raunar notaöar í bætur á brækur bööulsmoröingja sem líka er ákaflega þjóölegt. En áöur en þar að kemur verður ráöherrann sjálfsagt búinn að finna sér önnur þjóðráö í ætt viö stefnuna um þjóðlegar matarvenjur meö þvingunum. I ætt við það er til aö mynda hugmyndin um aö setja þaö skilyröi fyrir vínsöluleyfi til veit- ingahúsa; hvur hann hefur einnig meö höndum; að sérhver gestur þeirra skuli éta í þaö minnsta hálft sauöarfall í rjómalagaðri smérsósu. Fer eftir það fáum sögum af rauð- vínspressunni. Sighvatur Björgvinsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.