Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1985, Page 18
18
DV. MÁNUDAGUR 29. JOLI1985.
íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
„Þad gekk allt
upp hjá mér”
— sagði Steve Cram eftir heimsmetið í mflunni. 45. heimsmetið
á BisieMeikvanginum. Tvö önnur heimsmet hjá Aouito og Kristansen
í langhlaupum. Besta Grand Prix mótið til þessa
„Það gekk bókstaflega allt upp hjá
mér í þessu hlaupi. Þetta var frábært
hlaup, frábær völlur og síðast en ekki
síst frábærir áhorfendur,” sagði breski
hlauparinn Steve Cram eftir að hann
hafði sett stórglæsilegt heimsmet í
miluhlaupi, „draumamilunni”, á
Grand Prix mótinu í frjálsum á Bislet-
leikvanginum í Osló um helgina.
Tuttugu þúsund áhorfendur hvöttu
flesta bestu míluhlaupara heimsins
ákaft meðan á hlaupinu stóð. Ekki
undarlegt þó þeir bestu i heiminum
taki Bislet-leikvanginn fram yfir aðra
velli vegna frábærs stuðnings frá
áhorfendum. Cram hljóp á 3:46,31 mín-
útum og bætti þar með heimsmet landa
sins, Sebastian Coe, um rúma sekúndu
en met Coes var 3:47,33 min. og setti
hann það i ágústmánuði 1981.
Þeir Coe og Cram höfðu sig lítið í
frammi til að byrja með. Hraðinn í
hlaupinu var mjög mikill og eftir
fyrsta hringinn var millitíminn 56,01
sek. á fyrsta manni sem var James
Mays frá Bandaríkjunum. Og hann
hélt forystunni þegar tveir hringir
voru búnir og var þá ekki farið að bera
mikið á þeim Cram og Coe. MiUitíminn
eftir hálfnað hlaup var 1:53,83 mín.
Þegar hér var komið sögu tók Mike
HiUardt frá ÁstraUu forystuna en hann
er heimsmeistari í míluhlaupi innan-
húss. Það var síðan um einn hringur
eftir af hlaupinu þegar Cram geystist í
fyrsta sætið og þegar um 200 metrar
voru eftir í markið var Ijóst að um
enga keppni var að ræða frá Sebastian
Coe. Heimsmet Crams er 45. heims-
metið sem sett er á Bislet-leikvangin-
um í Osló. Hollendingurinn Adriaan
Paulen setti fyrsta heimsmetið í 500
metra hlaupi fyrir 60 árum.
Sebastian Coe sagði eftir miluhlaup-
ið að það væri ekki nokkur vafi á því að
Bislet-leikvangurinn væri ákjósanleg-
asti vöUurinn fyrir keppendur að setja
met á, eins og staðan væri í dag.
Tvö önnur heimsmet
Tvö önnur heimsmet litu dagsins
ljós á mótinu um helgina. Marokkó-
maðurinn Said Auouita setti heimsmet
í 500 metra hlaupi en naumt var það og
naumara gat það ekki veriö. Hann
hljóp á 13:00,41 en eldra metið, sem
Bandaríkjamaðurinn Moorcroft átti,
var 13:00,42 mín.
Norska hlaupadrottningin Ingrid
Kristansen setti síðan heimsmet í 10
þúsund metra hlaupi kvenna. Og hún
bætti metið mikið, hljóp á 30:59,42
mínútum. Bætti hún eldra metið um
rúmarfjórtán sekúndur.
Mjög góður árangur náöist í
mörgum öðrum greinum á mótinu.
Bretinn Roald Bradstock sigraði í
spjótkastinu í fjarveru Einars Vil-
hjálmssonar og kastaði hann 90,58
metra. Bandaríkjamaðurinn Tom
Petranoff varð annar með 84,08 metra
kast. Þriðji Raino Manninen, Finn-
landi, með 82,92 metra og fjórði Reidar
Lorentzen, N oregi, með 82,90 metra.
Mary Slaney, sú fræga hlaupakona
frá ólympíuleikunum í LA, sigraði af
öryggi í míluhlaupi kvenna á tímanum
4:19,18 mín. önnur varð Kirsty
McDermott, Bretlandi, á 4:19,41 mín.
Louise Ritter, Bandaríkjunum, sigr-
aði í hástökki kvenna er hún stökk 1,96
metra. Joni Hutnley USA varð önnur
með 1,90 metra. Frábær árangur
náðist í 400 metra hlaupi karla. Þar
sigraði Derek Redmond, Bretlandi, á
44,82 sekúndum. Annar varð Darren
Qark frá Astralíu á 45,07 sekúndum.
-SK.
• Said Aouita frá Marokkó fagnar heimsmeti sinu í 5000 metra hlaupinu.
Hann sagði eftir hlaupið að nœsta takmark hjá sér væri að hnekkja heims-
metum Steve Cram.
• Bretinn Steve Cram fagnar glæsilegu heimsmeti á Bislet-leikvanginum í
Osló. Ekki er langt siðan hann fagnaði heimsmeti i 1500 metra hlaupi en um
helgina var það hejmsmetið í míluhlaupi sem ekki stóðst snilli Bretans.
Liklega fremsti langhlaupari heimsins í dag.
Unimog til sölu
Unimog til sölu með original húsi,
aflúrtaki fyrir gírspil,
lokuðu húsi að aftan, loftbremsum.
Bíll í fyrsta flokks ástandi.
Góðir greiðsluskilmálar.
Verð kr. 290.000,-
Staðgreitt kr. 260.000,-
pÁLmn/on & mu/on
Klapparstig 16.
Simi 27745 og 27113.
KS sýnditennurnar
— er liðið hélt til Borgamess og vann öruggan sigur á Skallagrími, 0:2
Siglfirðingar sýndu vígtennurnar
eftir heldur ósannfærandi Ieiki upp á
síðkastið er þeir héldu til Borgaraess
og sóttu Skallagrim heim. Úrslitin
vora aldrei nein spurning. KS hafði
allan tímann töglin og hagldirnar og
sigraði, 0—2.
Á 40. mínútu leiksins náðu KS-menn
forustu en stuttu áöur höföu þeir
reyndar gert annað mark sem var
dæmt af. Hörður J úlíusson gerði ógilda
markið en Oli Agnarsson gerði markið
sem taldi. Staðan 1—0 í hálfleik.
Mark Duffield gerði síðan út um
leikinn er 15 mínútur voru liðnar af
seinni hálfleiknum er hann skoraði
stórglæsilegt mark með viöstöðulausu
skoti frá vítateig sem rataði stystu
leið upp í samskeyti Skallagríms-
marksins. Heimamenn gátu ekki mikið
Hreinn vann
í kúlu og kringlu
- UMSK og KR í 1. deild ífrjálsum
mjiig slakur í flcstölluni greinum.
Það verða UMSK og KR sem taka
þátt í 1. deildar keppninui i frjálsum
íþróttum næsta sumar en þessi félög
urðu í tveimur efstu sætunum í
bikarkeppni FRt, 2. deild, sem fram
fór í Keflavik um helgina. UMSK
sigraði og hiaut 165,5 stig en KR varð
í öðru sæti með 148,5 stig. UMSB varð
í 3. sæti með 119, UMFK i fjórða með
110,5, UMSS í fimmta með 89,5 og
lestina rak USVH með 57 stig.
Árangur i keppninni var yfirleitt
Mesta athygli vakti sigur Hreins
I
I
I
Halldórssonar í kúiuvarpi og I
krlnglukasti þrátt fyrir að Hreinn sé I
fyrir mörgum árum hættur að æfa.
Gamla kempan kastaði kúlunni 14,63 |
metra og kringlunni 41,62 metra. ■
Oddur Sigurðsson hljóp 200 metrana |
á 22,4 sekúndum og 400 metrana á |
50,4 sekúndum sem er langt frá hans ■
besta árangri. I
-SK. 1
aðhafst eftir það gegn sterkri vöm
Siglfirðinganna og færi þeirra í leikn-
um ekki umtalsverð. Hins vegar voru
gestirnir nærri því að gera þriðja mark
sitt en markvörður Borgnesinganna
varði þrumuskot Tómasar Kárasonar
vel.
Maik Duffield var bestur í annars
jöfnu liði KS. Enginn skar sig úr í Uði
SkaUagríms.
-fros.
Tvö töp ÍBÍ
á Akureyri
Frá Stefáni Arnaldssyni, fréttamanni
DVáAkureyri:
tsflrsku stúlkurnar i 1. deildinni i
knattspyrau gerðu ekki góða ferð til
Akureyrar um helgina. Þær léku tvo
leiki og töpuðu báðum. Fyrri leikurinn
var gegn Þór og vann Þór með fjórum
mörkum gegn engu. Anna Einarsdóttir
skoraði tvö mörk, Inga Pálsdóttir eitt
og eitt markanna var sjálfsmark ÍBÍ-
stúlknanna.
Siðari leikurinn var síðan gegn KA
og var þar um naumara tap ÍBÍ að
ræða. Sigurmark leiksins skoraði
BorghUdur Freysdóttir.
-SK.