Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1985, Side 34

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1985, Side 34
34 qgy'VANTM I SmKTAUNdM HVERFI- IBi IS| LAUSAR STÖÐUR HJÁ 'I' REYKJAVÍKURBORG Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftir- talinna starfa. Starfskjör samkvæmt kjara- samningum: • Hjúkrunarforstjóri til afleysinga tímabilið 01.10. '85 til 31.05. '86, við Heilsuverndar- stöð Reykjavíkur. • Hjúkrunarfræðingar við heilsugæslu í skólum, heimahjúkrun og barnadeild Heilsu- verndarstöðvar Reykjavíkur. Sérnám í heilsu- gæslu æskilegt. Um er að ræða bæði fullt starf og hlutastarf. • Sjúkraliði við heimahjúkrun. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 22400. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á sérstökum umsóknareyðublöðum, sem þar fást, fyrir kl. 16.00 þriðjudaginn 6. ágúst 1985. TIL SÖLU Daihatsu Charade Van dísil árg. '85. Vetð kr. 295.000,-. Reykjavlk: Sóleyjargötu Ásvallagötu Aragötu Álftamýri Skúlagötu Hólmgarð Hæðargarð Kópavogur: Kópavogsbraut Kársnesbraut Fitjar Byggðir Garðabær: Búðir Flatir HAfH) SAM8AN0 VID AFGRB0SLUNA 00 SKRIFIÐ YKKUR A BIDUSTA. Til sýnis á bílasölunni Skeifunni, símar 84848 og 35035. Bílasalan SKEIFAN Skelfunni 11 Símar 84848 og 35035. Eigum til afgreiðslu nú þegar mikið úrval notaðra rafmagns- og dísillyftara, enn- fremur snúninga og hliðarfærslur. Tökum lyftara upp í uppgerðan, leigjum lyftara. Flytjum lyftara, varahluta- og viðgerðaþjónusta. Líttu inn — við gerum þér tilboð. Tökum lyftara í umboðssölu. LYFTARASALAN HF.f Vitastig 3, simar 26455 og 12452. Valhúsaskóli Seltjarnarnesi auglýsir Kennara vantar að Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi. Kennslugrein: heimilisfræði. Upplýsingar gefa: skólastjórinn, Ólafur H. Óskarsson, í síma 30871 (heima), 27744 (í skólanum) og formaður skólanefndar, Guðmar Magnússon, í síma 625864. Skólanefnd DV. MÁNUDAGUR 29. JUU1985. Seiðin fóðruð i fiotkvínni þar sem þau eiga eftir að vera nœstu 20 mánuðina. Fiskeldi á Neskaupstað: „Stefnum að um 12 flotkvíum á firðinum” — segir Gylfi Gunnarsson, f ramkvæmdast jóri Mánalax Starfsmenn Mánalax. T.v. Gisli Gíslason, Gylfi Gunnarsson og Jón Gunnar Sigurjónsson. í baksýn sést flotkviin. DV-mynd PK Nýtt fiskeldisfyrirtæki hóf starfsemi sína nú í vor á Neskaupstaö. Þaö heitir Mánalax og er i eigu Gylfa Gunnars- sonar sem einnig er meö síldar- söltunarfyrirtæki og steypustöö á sinni könnu. Fiskeldiö er á byrjunarstigi á Nes- kaupstaö. Keypt voru seiði f rá Húsavík og Hólum í Hjaltadal. Þau seiði sem komu frá Hólum voru ekki tilbúin til að fara í sjóinn svo nú um nokkurt skeið hafa þau verið í landkví þar sem reynt hefur verið að aðlaga þau sjó smám saman. Flest það sem notað er hjá Mánalaxi er heimasmíðað. Þegar hefur verið komið fyrir flotkví úti á firðinum sem Gylfi og hans starfs- menn smíðuðu s jálfir. „Við gerum ráð f yrir að sleppa um 12 þúsund seiðum í flotkvína. Þar verða þau í fóðrun í 18 til 22 mánuði. Ef vel tekst til fáum við um 20 tonn af fiski úr þessu,” segir Jón Gunnar Sigurjónsson, verkstjóri hjá Mánalaxi. „Við ætlum bara aö byrja með þessa einu flotkví í fyrstu,” segir Jón. „Ef við látum ekki byrjunar- erfiöleika aftra okkur ætlum við að auka við okkur. Með öllumfyrirvörum hugsum við okkur að þessi stöð geti þróast upp í aö vera meö 10 til 12 Qot- kvíar sem ættu að gefa af sér um 100 tonn á ári,” segir Gylfi Gunnarsson. Gísli Gíslason starfar einnig hjá Mána- laxi. Hann var sl. vetur í námi i f iskeldi í Noregi. Þá hafa starfsmennimir einnig kynnt sér fiskeldi í Færeyjum. Þaðan hefur fyrirtækið einnig-keypt f óður fyrir seiðin. -APH. „Höfuðmál okkar núna er vafnsborun í Senegal” — segir Lovísa Christiansen, nýkjörinn varaf orseti Evrópusf jórnar soroptimista „Við vorum sex í framboöi, því var hörð barátta um sætin,” sagði Lovísa Christiansen innanhússarkitekt. „Islenska sendinefndin stóð sig vel í kosningabarátt- unni og þetta haf&st. Lovísa náði kjöri í stjórn Evrópu- samtaka soroptimista og hún var þar kos- in varaforseti samtakanna. Evrópuþing soroptimista var haldiö í Graz í Austuníki 5.-7. júlísL Þingiö sóttu tæplega fimm hundruö konur frá tuttugu og fjórum þjóðlöndum, bæði frá Evrópu og Afríku. I Alþjóðasambandi soroptimista eru um sjötíu og fimm þúsund meðlimir en í Evrópu rúmlega tuttugu þúsund. For- seti Evrópusamtakanna er frá Noregi. Einu sinni áður hefur íslensk kona átt sæti í Evrópustjóminni en það_er Halldóra Eggertsdóttir hússtjómaikennari. Frá Sunnuhlíð til Senegal A Islandi eru um þr jú hundruö konur starfandi í þrettán klúbbum en sá fyrsti var stofnaður 1959. Soroptimistahreyfingin á upptök sin í Bandaríkjunum, var stofnuð í Kaliforníuáriðl921. , Jlöfuðmál okkar um þessar mundir er að bora eftir vatni í Senegal, það var fyrst verkefhi Evrópuklúbbanna en er nú alþjóðlegt verkefni,” sagði Lovisa Christiansen, varaforseti Evrópustjórnar soroptimista, kom heim úr sögulegri ferfl i gifsi en það er farifl og afleins þrýstiumbúflir eftir um öklann. DV-mynd VHV Lovísa er hún var spurð um verkefni soroptimista. Aætlað er að bora átta holur í Sene- gal og þegar em tværkomnar í gagnið. Kostnaöur við hverja vatnsholu mun vera um 35 þúsund Bandaríkja- dollarar. „Við hjálpum konum í vanþróuðu löndunum svo fleira sé nefnt, að styöja Qóttakonur til endurmenntunar er svo annað verkefni,” sagfá hinn nýkjömi varaforseti. Konur í Soroptimistasambandi Islands lögöu hönd á plóginn við upp- byggingu Sunnuhliðar í Kópavogi, svo nefnt sé dæmi af innanlandsverk- efnum. Megintilgangur sambandsins, sem er starfsgreinasamband, er aö stuðla aðmenningu og efla konur. Ungverskt g'rfs „Eg hef alveg ákveðnar hugmyndir um hverju ég vil áorka sem varafor- seti Evrópustjómarinnar, en vil bíða með að ljóstra þeim áætlunum upp,” sagði Lovísa Christiansen. Síðastliðin fjögur ár hefur hún gegnt embætti sendifulltrúa fyrir Islands hönd á árlegum fundum erlendis svo hún hefur marga fundina setiö á erlendri gmnd. Þessi síöasta ferð mun henni þó vera eftirminnileg fyrir margra hluta sakir. Kjörið sem varaforseti sjálfsagt efst í huga. En annað gerðist lika. Eftir þingið fóru þingkonumar í ferð til Búdapest í Ungverjalandi. Þar var Lovísa sett í gifs á þekktu sjúkrahúsi fyrir íþróttamenn. Á ferðalaginu mis- steig hún sig og var því sett í gifs upp að hné. Þannig sneri hún heim aftur, en þegar við hittum hana að máli var aðeins þrýstiumbúnaður á ökla vara- forsetans einu ummerkin um mis- stigiðíUngverjalandi. -ÞG.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.