Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1985, Page 36
36
DV. MANUDAGUR 29. JULI1985.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Elizabeth Taylor er reiö út í vini
sína fyrir aö hafa ekki heimsótt sig
á spítalann þegar gerð var á henni
aðgerð vegna meiðsla í baki sem
hún hlaut vegna þess að hún var í
25 kílóa þungum kjól þegar hún var
að leika í nýjum framhaldsmynda-
flokki. Þaö var ekki nóg með það að
enginn af fyrri elskhugum hennar
kæmi í heimsókn heldur sendi eng-
inn þeirra blóm. Hún sagði að það
hefði ekki bara verið bakverkurinn
sem þjáði hana heldur iíka þaö að
finna að nú væri enginn karlmaður
í kringum hana sem þætti verulega
vænt um hana.
\
Karl Bretaprins hefur viður-
kennt það opinberlega að hann og
Díana prinsessa horfi reglulega á
Dallas og Dynasty. Þættirnir eru
teknir upp fyrir þau hjónin og síöan
horfa þau á þættina þegar þau vilja
eiga rólegt kvöld saman.
Bo Derek hélt aö loks hefði henni
tekist að gera eiginmann sinn af-
brýðisaman þegar hún fékk boð um
að Muhammad Ali vildi snæða með
henni miðdegisverð. En þegar hún
kom i boðið var það allt öðruvísi en
hún hafði búist viö því þar var
eiginkona Ali og þúsund gestir
þannig aö Bo var alls ekki ein með
kappanum og engin ástæða fyrir
eiginmann hennar að vera afbrýði-
samur þó að honum væri ekki boðið
lika.
Tanya Roberts, sem leikur í
nýju Bond myndinni, Víg í sjón-
máli, er ekki ýkja hrifin af mótleik-
ara sínum, Roger Moore. Hún segir
hann vera of kvenlegan og hálf-
gerða veimiltítu. „Karlmenn eiga
að vera töff,” segir Tanya og það
virðist Moore ekki vera að hennar
mati.
Seiðakvisl 26. Eigendurnir við kofann sinn, þau Guðmundur, Sigurgeir,
Kóri og Berglind.
Smíðavöllurinn vestan Árbæjarsafns
„Sum eru hér
allan daginn”
Fjölskylda
Di selur
málverk
Pabbi hennar Díönu prinsessu af
Wales á í erfiðleikum með að fjár-
magna viðgerðir á ættaróðali fjöl-
skyldu sinnar. Hann hefur því gripið til
þess ráðs að selja málverk í eigu fjöl-
skyldunnar til að afla fjár til viðgerð-
anna. Nýlega seldi hann fimm mál-
verk sem samtais fóru á tæpar 10 millj-
ónir íslenskra króna. Það er þó aðeins
lítill hluti af kostnaðinum sem mál-
verkin bjarga því viðgerðin kostaði
alls um 110 milljónir íslenskra króna.
Earl Spencer segist ekki vera ánægöur
með að þurfa að selja málverkin en
það sé bara eina leiöin til að borga við-
geröina.
I hlíðinni vestan við Arbæjarsafnið
er risið pínulítið kofahverfi, ef svo má
segja. Þar er nefnilega smíðavöllur
sem krakkar úr Arbænum og Ártúns-
holtinu sækja. Þangaö koma aðallega
krakkar á aldrinum 6—10 ára og eru
strákarnir duglegri að mæta að sögn
Guðrúnar Björnsdóttur sem hefur um-
sjón með vellinum. „Sum eru hér allan
daginn,” sagði Guðrún” þau fara
kannski fyrst í skólagarðana sem eru
hér við hliðina og koma svo hingað á
eftir og una sér vel í þessum litla reit,”
bætti hún við.
Smíðavöllurinn tók til starfa í
byrjun júní og kemur til með aö starfa
eitthvað fram í ágúst. Krakkarnir fá
öll verkfæri á staðnum og virðast þau
hafa nýtt sér aðstöðuna vel því á
svæðinu voru mörg skemmtileg hús og
hugmyndaflugið hefur svo sannarlega
fengið að ráða við byggingu þeirra
enda efniviðurinn ódýr og af nógu að
taka.
Sveinbjörg, 5 ára, að gera það sem
henni finnst voða gaman, nefnilega
að saga.
Trausf gróðurhús
Gróðurhúsið í garöinum að
Kirkjuteigi 5 er örugglega með
traustustu gróðurhúsum í bænum því
það þolir steinkast og stenst hvaða
veður sem er. Það mundi sennilega
ganga illa að ætla aö brjótast þar inn
því veggir þess eru afar rammgerðir
miðaö við að um er að ræða gróður-
hús. Ástæðan er einfaldlega sú að hér
er ekki um að ræða venjulegt gróður-
hús, eins og lesendur hafa eflaust
áttað sig á, því gróðurhúsið í
garðinum að Kirkjuteigi 5 er eigin-
lega ekki til, það er aðeins mynd á
bílskúrsvegg sem liggur við lóðar-
mörkin. En á mynd og að sjá þá
virðist sem þarna sé hiö fínasta
gróöurhús með miklum gróöri.
Annar eigandi hússins, Ingibergur
Þorkelsson, lét mála þessa mynd í
fyrra á vegginn með leyfi eiganda
bilskúrsins. Ingibergur sagði að
margir hefðu haldið að hann væri
búinn að koma sér upp gróðurhúsi í
garöinum eftir að myndin kom á
vegginn.
Meira að segja hefði hinn eigand-
inn orðið mjög hvumsa þegar hann
sá fyrirbærið og ætlaði að krefjast
skýringa á því að búið væri aö
byggja heilt gróðurhús án sinnar
vitundar.
Sá sem gerði þetta listaverk heitir
Sveinn Eggertsson og er hann ungur
málari úr Reykjavík. Hann sagöist
hafa verið u.þ.b. viku að vinna
verkið en þetta er eina veggmyndin
sem hann hefur gert. Hann notaði
bara venjulega plastmálningu í
verkið en annars sagðist hann venju-
lega mála vatnslita- og olíumyndir.
Hann vann verkið einn og sagöist
hafa miöað við að úr íbúð Ingibergs,
sem er á annarri hæð hússins, virtist
það sem eðlilegast. Það hefur honum
svo sannarlega tekist því við fyrstu
sýn er ekki annað að sjá en að þarna
sé hiö finasta gróðurhús.
Við einn stærsta kofann á vellinum
voru f jórir krakkar að vinna þegar DV
kom þar við. Við spurðum krakkana
hvað kofinn héti? „Nú, auðvita Seiða-
kvísl 26,” var svarað að bragði. Hvers
vegna auðvitað? — „Sko, ég og Kári
eigum heima í Seiðakvísl 20 og Sigur-
geir og Berglind eiga heima í Seiða-
kvisl 6, út úr því kemur 26,” svaraöi
Guðmundur en hélt svo áfram að saga.
Einfalt var það og greinilegt að sam-
komulagið á þeim bænum er eins og
best verður á kosið.
SJ
Þessi litla hnðta var mest i þvi afl ná sór í vatn á meflan DV stoppaði á
smiðavellinum, hún hefur kannski verið afl gera hreint í litla húsinu sínu.
DV-myndir Bj. Bj.
Plonturnar virflast dafna vel i gróðurhúsinu afl Kirkjuteigi 5 þrátt fyrir afl innganga i húsifl sé útilokufl af
eðlilegum óstæflum.
DV-mynd VHV.