Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1985, Page 1
DAGBLAÐIЗVÍSIR
226. TBL. - 75. og 11. ÁRG. - FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1985.
Niðurstöður skoðanakönnunar DV:
vill hvalveiðar áfram
sjániðurstöðurábls.4ogviðtölábaksíöu
Álafoss stendur nú fyrir kynningarherferð. Hluti af þvi er prjónakeppni
sem felst i því að prjóna sem lengstan trefil. Jón Helgason landbúnaðar-
ráðherra var þar fremstur i flokki i morgun. Reyndist hann leikinn mjög við
að fitja upp og naut við það dyggrar aðstoðar Katrinar Ágústdóttur, handa-
vinnukennara i Kvennaskólanum. Þegar Jón var beðinn að lita upp fyrir
myndatöku sagði hann að það væri erfitt." Ég er ekki jafnklór og for-
mssður mínar sam gengu prjónandi milli bssja." Þess má geta að á sama
tíma glimdi Jón Sólnes við prjónana fyrir norðan. DV-mynd GVA.
I
Enn f innst
enginn
sem vill
standa upp:
Þorsteinn inn
í atteysingar
Vangaveltur um hugsanlegar
breytingar á ríkisstjórninni verða
skrautlegri með hverjum deginum.
Nú er meðal annars rætt um að ein-
hver ráðherra Sjálfstæðisflokksins
fari í frí til nokkurra mánaða og
þannig verði rýmt fyrir formanni
flokksins, Þorsteini Pálssyni. Um
leið verði uppgjöri innan þingflokks-
ins og flokksins slegið á frest.
Á fundi í Neskaupstað í gærkvöldi
svaraði Sverrir Hermannsson því af-
dráttarlaust neitandi að hann myndi
standa upp fyrir Þorsteini sem var
einnig á fundinum. Hann lýsti jafn-
framt eindregnum stuðningi við for-
manninn í ráðherraembætti. Albert
Guðmundsson sagði við DV í morgun
að síðast þegar þessi mál bar á góma
hafi komið fram á fundi allra sjálf-
stæðisráðherranna að enginn þeirra
vildi standa upp. Hann sagðist ekki
vita til að sú afstaða hefði breyst.
Eins og Sverrir telur Albert það
næstum lífsnauðsyn fyrir flokkinn og
stjórnarsamstarfið að Þorsteinn
komi inn í stjórnina. „En að tala um
frekari breytingar, einn eða tvo með
Þorsteini inn í stjórnina, væri algert
hringl og myndi tvístra flokknum,”
segir Albert. Hann sagðist ekki
myndu verða hrifinn af því að skipta
um ráðherrastól og telur það hættu-
legt fyrir formann flokksins að ger-
ast fjármálaráðherra vegna eðlis
þess embættis.
Albert Guðmundsson sagðist ekki
hafa verið á neinum fundi um þessi
mál og bíða eftir tillögum flokksfor-
ystunnar á mánudag. Um hugs-
anlegar breytingar á ráðherraliði
Framsóknarflokksins sagði hann:
„Þeir eiga einn mana mjög hæfi-
leikaríkan, sem hefur veriö
ráðherra, Ingvar Gíslason, sem lik-
lega gæti bjargað þjóðfélaginu. En
ég veit ekki hvort þeir eru tilbúnir til
að nota sér slíka hæf ileika. -HERB.
Sjómenn íEyj-
um samhuga
um kvótann
Frá Grími Gíslasyni, fréttaritara DV
Vestmannaeyjum.
Á fjölmennum fundi sem Halldór
Asgrímsson sjávarútvegsráöherra
hélt í Vestmannaeyjum í gær kom
fram einhugur í máli manna um nauð-
syn kvótakerfisins. i
Voru sjómenn, útvegsmenn og fisk-
verkendur almennt sammála og sam-
huga þeirri stefnumörkun sem sjávar-
útvegsráðherra hefur sett fram. Þó
voru trillusjómenn langt frá því að
vera ánægðir og telja sig hlunnfarna.
Þeim fannst þó bjartar horfa við ef
settur yrðu kvóti á netatrillur eins og
ráðherra talaði um. Og sagði formaður
trillubátafélags Vestmannaeyja að
þaö myndi vart nást í kvótann sem
trillum væri skammtaður á línu og
handfæri. -ÞG.
Sovétmenn
burt frá Beirút
Sovéskir íbúar í Beirút hafa yfirgefiö
borgina. Fréttamenn Reuters sáu um
70 sendiráðsmenn og konur þeirra fara
í rútum frá sendiráðinu á leið til
Damaskus í Sýrlandi.
Sovétmennirnir fóru stuttu eftir að
múslimsku hermdarverkasamtökin
Heilagt stríð lýstu yfir aö þau hefðu
drepið bandaríska sendiráðsstarfs-
manninn William Buckley. Buckley
hafði verið í haldi þeirra frá því í mars
1984.
önnur hryðjuverkasamtök halda
enn þremur Sovétmönnum í gíslingu
en í gær drápu þau einn Sovétmann,
Arkady Katkov.
Enn eru líklega um 80 Sovétmenn í
Beirút. Sendiráö Sovétríkjanna var í
morgun vel variö af skæruliðum drúsa,
gráum fyrir járnum.
Múslimskir öfgamenn hafa hótað að
sprengja sendiráöið í loft upp.
Þ6G.
Læknar úr BHM?
Á aðalfundi Læknafélags Islands var
ákveðið að efna til allsherjaratkvæða-
greiðslu meðal lækna um hvort félags-
mennviljigangaúr BHMeðaekki.
Þá fól einnig fundurinn stjórn
Læknafélagsins að vinna að því að fá
viðurkenningu fjármálaráðherra á fé-
laginu sem heildarsamtökum með rétt
til samninga.
Nýr formaður var kjörinn á fundin-
um, Haukur Þórðarson, en Þorvaldur
Veigar Guðmundsson hætti for-
mennsku sem hann hefur gegnt í 6 ár.
APH