Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1985, Blaðsíða 19
DV. FÖSTUDAGUR 4. OKTOBER1985.
31
þróttir (þróttir íþróttir íþróttir
Hreinn Þorkelsson, þjðlfari Keflvikinga i úrvalsdeildinni, leikur hðr fram hjð ívari Webster sem kallar ð
hjðlp félaga sinna. DV-mynd E.J.
Dregið
á hádegi
— Í2. umferð
Evrópumótanna. Bayer
Uerdingen og Sampdoria
eru í pottinum
Á hádegi í dag verður dregið í 2. um-
ferð Evrópumótanna í knattspyrnu og
þá mun koma í ijós á móti hvaða liði
Fram dregst en liðið tryggði sér sem
kunnugt er þátttökuréttinn með sigri á
n-írska félaginu Glentoran, 3—2 sam-
anlagt.
Sextán lið eru nú eftir í keppninni og
af þeim eru liö Bayer Uerdingen og
Sampdoria þekktust. Með liði Uerding-
en leika þeir Atli Eðvaldsson og Lárus
Guðmundsson og ekki ófrægari kappar
en Trevor Francis og Liam Brady
styrkja lið Sampdoria. Möguieikar
Fram felast mest í því að lenda gegn
welska liðinu Bangor City.
Fram mun biðja um undanþágu til
aö fá að leika heimaleik sinn á gervi-
grasinu en slíkt tíðkast ekki í Evrópu-
keppni. Eru menn í þeirra herbúðum
því alls ekki bjartsýnir á aö geta leikið
heimaleikinn hér á landi.
Leikir í 2. umferðinni fara fram 23.
þessa mánaðar og sjöunda nóvember.
Eftirtalin félög leika 12. uraferð:
Fram, tslandi
Bayer Uerdingen, V-t>ýskalandi
Benfiea, Portúgal
Sampdoria, ttaliu
Atletleo Madrid, Spáni
HIK Helsinkl, Finnlandi
AIK, Sviþjóft
Lyngby, Danmörku
BangorCity, Wales
Rapid Wien, Austurriki
Universitatae Craiova, Rúmeniu
Rauða Stjarnan, Júgóslaviu
Dukla Prag, Tékkðslóvakiu
Dynamo Dresden, A-ÞýsUalandi
Dynamo Kicv, Sovétríkjunum
Galataseray, Tyrklandi
Spennan gíf urleg þegar
IBK sigraði í Firðinum
Ef Keflvíkingar leika álíka vel I
lcikjum sínum í vetur og þeir gerðu í
gærkvöldi gegn Haukum i fyrsta leik
úrvalsdeildarinnar þurfa þeir ekki að
hafa áhyggjur af fallbaráttu í vetur.
Keflvíkingar léku nefnilega skínandi
vel í gærkvöldi og Haukarnir, sem
fyrir leikinn voru taldir sigurstrang-
legri aðilinn, máttu bíta í það eldsúra
epli að vera að velli lagðir á eigin
heimavelli. Lokatölur 58—59 fyrir
Keflavik í miklum baráttu- og spennu-
leik. Staðan í leikhléi var 32—31 fyrir
Hauka.
Það var Jón Kr. Gíslason sem
tryggði Keflvíkingum sigurinn í gær-
kvöldi með snilldarleik. Hann var með
knöttinn þegar 17 sekúndur voru til
leiksloka. Lék á hvern Hafnfirðinginn
á fætur öörum og endaði „sólóiö” með
því að skora laglega körfu og fiska auk
þess vítakast á leiðinni. Ivar Webster
skoraöi síðan síðustu körfu leiksins
þegar fjórar sekúndur voru eftir af
leiktímanum.
Leikurinn var mjög jafn allan tím-
ann. Ivar Webster skoraði fyrstu korfu
Islandsmótsins, raunar tvær fyrstu og
Haukarnir komust í 4—0. Ekki er það
mikil forysta í körfuknattleik og
staðan breyttist í 10—10. Síðar í 14—18
fyrir IBK og enn síðar í 28—25 fyrir
Hauka. Staðan síðan 32—31 í leikhléi.
Síðari hálfleikur var einnig mjög
jafn. Gestirnir þó yfirleitt með foryst-
una, 34-35, 36-40, 40-46, 42-48, 42-
52, 50-54, 52-56 og 54-56. Lokakafl-'
anumeráðurlíst.
Jón Kr. Gíslason var mjög góður hjá
Keflavík í þessum leik en í heild átti
liðiö góðan dag. Hreinn Þorkelsson,
hinn nýi þjálfari liðsins, var góður og
hvatti sína menn óspart. Gaman fyrir
hann að sigra í sínum fyrsta leik sem
þjálfari og leikmaður með nýju liði.
Guðjón Skúlason átti einnig góðan leik.
Gífurlega snöggur og skemmtilegur
bakvörður sem á eftir að gera margar
körfur í vetur. Einnig má geta Matta
Oswald og Olafs Gottskálkssonar,
ungir og bráðefnilegir báðir tveir.
Greinilegt er að Keflvíkingar munu
ekki láta úrvalsdeildarsæti sitt fyrr en
í fulla hnefana. Gífurleg barátta var í
liðinu í þessum leik og kom hún Hauk-
um greinilega í opna skjöldu.
Eitthvað voru Haukarnir miður sín í
þessum leik. Pálmar Sigurðsson lék
með en gat greinilega ekki beitt sér að
fullu. Engu að síður skoraði hann 20
stig í leiknum og skilaði sínu vel. Ivar
Webster skoraði 21 stig en á að geta
skorað miklu meira. Hann var manna
langstærstur í þessum leik og oft mis-
tókst honum að skora úr upplögðum
færum, sérlega í síðari hálfleik. Aðrir
leikmenn Haukaliðsins komu lítt við
sögu nema ef vera skyldi Reynir
Kristjánsson.
Stig ÍBK: Jón Kr. Gíslason 23,
Hreinn Þorkelsson 12, Guðjón Skúla-
son 12, Olafur Gottskálksson 6, Matti
Oswald 4 og Skarphéðinn skoraði 2
stig.
Stig Hauka: Ivar Webster 21,
Pálmar Sigurðsson 20, Reynir
Kristjánsson 9, Ivar Ásgrímsson 4,
Bogi Hjálmtýsson 2 og Henning
Henningsson2.
Leikinn dæmdu þeir Jón Otti Olafs-
son og Bergur Steingrímsson og lofar
dómgæsla þeirra góðu fyrir veturinn.
Maður leiksins: Jón Kr. Gíslason,
Keflavík.
-SK.
Valur mætir belgíska liðinu Tongeren í síðari leik liðanna
í Evrópukeppni í handknattleik kvenna á morgun
I
^ „Þrátt fyrir að okkur hafi tekist að
Isigra með þremur mörkum í fyrri
I leiknum er alls ekki hægt að bóka Val í
|2. umferð. Belgisku stúlkurnar eru
■ mjög góðar en með góðum stuðningi
I áhorfenda ættu Valsstúlkurnar aö eiga
góða möguleika,” sagði Bergljót
Davíðsdóttir hjá stjórn handknatt-
leiksdeildar Vals í samtali við DV í
gær.
Valur leikur síðari leik sinn i Evr-
lópukeppni meistaraliða í handknatt-
^leik kvenna í I^iugardalshöllinni á
morgun og þá fæst úr því skorið hvort
Valur kemst í 2. umferð eða ekki. Val-
ur sigraöi í fyrri leik liðanna í Belgíu
um síðustu helgi með 15 mörkum gegn
18. Möguleikar Vals eru því fyrir
hendi.
Að sögn Bergljótar leikur belgíska
liðiö hraðan handknattleik og liöið
skorar mikið af mörkum úr hraöaupp-
hlaupum. „Liðið er með pólskan þjálf-
ara og leikur hálfpólskan handknatt-
leik. Það sýndi sig þó í Belgíu að liðið
er ekki ósigrandi. Valsstúlkurnar
I
hafa æft af miklu kappi og eru í mjög (
góðri æfingu. Það er mjög mikil breidd I
í Valsliðinu og við vonumst eftir góðum :
stuðningi áhorfenda og góðum úrslit-1
um,” sagði Bergljót ennfremur. -
Leikur liðanna hefst í Laugardals-|
höllinni klukkan hálftvö á morgun. 1
tiiefni af 75 ára afmæli Vals um þessar
mundir hefur veriö ákveðið að miða
verð fyrir fullorðna verði aðeins 75
krónur. Börn þurfa hins vegar aðeins
aðgreiðalOkrónuríaðgangseyri. |
-SK. >
íþróttir
Komast
Valsmenn
í 2. umferð
— leika við Kolbotn
íkvöld ogámorgun ytra
Valsmenn leika fyrri leik sinn við
norska liðið Kolbotn i IHF keppninni í
kvöld í Noregi. Báðir leikirnir verða
leiknir ytra en sá seinni fer fram á
morgun.
Hin íslensku liðin, er unnu sér þátt-
tökuréttinn í Evrópumótinu i hand-
boltanum, Íslandsmeístarar FH og
bikarmeistarar Víkings, sitja bæði hjá
í 1. umfcrð. -fros.
Robertson í
ævilangt bann
Skoski golfleikarinn, David Robert-
son, sem vann sér það til frægðar að
svindla og svindla á British-open golf-
mótinu í sumar, hefur verið dæmdur i
ævilangt keppnisbann af Evrópusam-
bandi atvinnumanna í golfi.
Fyrir skömmu birtist hér á íþrótta-
síðunni nákvæm lýsing á því hvernig
Robertson tókst á undraverðan hátt að
færa kúlu sína til svo metrum skipti á
stórmótinu British-open. Þá hafði
kappinn verið dæmdur í tuttugu ára
keppnisbann og 5000 punda sekt. Litlir
möguleikar voru taldir á að fá sektina
greidda og í gær ákvaö Evrópu-
samband atvinnumanna að breyta
refsingunni í ævilangt keppnisbann.
Robertson getur þvi selt golfsettið og
snúið sér að einhverju ööru í fram-
tíðinni. -SK.
Fenwick
sektaður
— fyrir ósæmilega
hegðun við áhangendur
Newcastle
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni, frétta-
ritara DV í Englandi:
Fyrirliði QPR var í fyrradag sekt-
aður fyrir ósæmilega hegðun fyrir aö
fagna marki sem hann skoraði gegn
Newcastle. Það var sérstök nefnd inn-
an knattspyrnusambandsins sem sekt-
aði kappann fyrir ósæmilega hegðun
við áhangendur Newcastle. Fenwick
var gert að greiða 250 pund i sekt auk
þess sem hann þurftí að greiða ferða-
kostnað dómara og llnuvarðar til
London er þeir gáfu skýrslu um atvik-
ið. Kostnaður við ferðalag þeirra var
180 pund svo að leikmaðurinn varð um
20 þúsund krónum fátækari.
-fros
Loks sigur
WBA
— vann útisigur
á Brighton
íFullMembers Cup
Frá Sigurbirni Aðalsteinssynl, frétta-
ritara DV í Englandi:
Það voru fyrrverandi og núverandi
Tottenhamleikmenn sem voru mjög í
sviðsljósinu er leikið var í Super-Cup
og Full Members Cup i Bretlandi í
fyrrakvöld. Einna mesta athygli vakti
langþráður sigur WBA í Full Members
Cup. Liðið vann Brighton á útivelli, 1—
2, og skoraði Garth Grokks, sverting-
inn litli er. liöið keypti frá Tottenham,
bæði mörkin. Chelsea lék einnig í sömu
keppninni og vann Portsmouth, 3—0.
Kerry Dixon, Mike Hazard (áður Tott-
enham) og John Burnstead skoruðu
fyrir Lundúnaliðið.
Þá vann Tottenham 2—1 sigur á
Southampton. Mark Falco skoraði
bæði mörkin fyrir Spurs en Steve Mor-
an skoraði mark Southampton.
-fros
þróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir