Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1985, Blaðsíða 15
DV. FÖSTUDAGUR 4. OKTOBER1985.
15
enmng
Menning
Menning
AFTUR HEIMA
rónlistarfólag Kristskirkju. Tónleikar Manuelu
l/Viesler 26. september.
Efnisskró: Edgar Varóse: Density 21,5; Magnús
Blöndal Jóhannsson: Solitude; Sven Erik
Bðck: Sonata; Andró Jolivet: Fimm Áköll.
Enn er sprottiö upp nýtt félag til
eflingar tónlistinni, í þetta sinn
Tónlistarfélag Kristskirkju, sem
eins og nafnið bendir til er félag til að
stuðla að aukinni tónlistariðkun við
Kirkju Krists konungs í Landakoti.
Stofnun félags þessa er sérstaklega
ánægjuleg, einmitt á þeim tíma sem
músíkiökun í hinni rómversk kaþólsku
kirkju á meginlandi Evrópu virðist
fara heldur hnignandi eða að
minnsta kosti ekki hafa sama
áherslugildi og einatt áöur. Og þetta
nýja tónlistarfélag virðist ekki ætla
sér lítið hlutverk ef marka má
tónleikaskrá þess. Til að flytja fyrstu
tónleika á þess vegum fékk hið
nýstofnaða félag sjálfa Manuelu
Wiesler, flautusnilling sem við
þykjumst alltaf eiga dr júgmikið í.
Eðlisþyngd platínu
Manuela hóf leikinn með verki sem
dregur nafn sitt af eðlisþyngd
platínu, 21,5, sem Edgar Varése
samdi árið nítján hundruð þrjátíu og
sex. Þá var það mikið byltingarverk,
þótt nú þyki þeir hlutir sem Varése
leggur fyrir flautuleikarann ekkert
tiltökumál. Aldrei höfum við heyrt
Manuelu spila þetta magnaða stykki
fyrr þótt hún hafi löngum verið iðin
við nútímaverkin enda mun hún rétt
nýfarin að leika þaö. Eðlisþyngd
platínu hefur verið mörgum flautu-
leikaranum sannkallaður Akkilesarhæll
og er gjaman litið á þetta verk sem eins-
konar manndómspróf flautuleikarans
— eitt þessara stykkja sem bókstaflega
aliir verða að takast á við.
Síðan kom Solitude Magnúsar
Blöndals Jóhannssonar sem
Manuela frumflutti við hinar verstu
aðstæður (áheyrendanna vegna)
helgina sem kirkjukóramótið var í
Skálholti í hittiðfyrra, en þá lék hún
einnig Áköll Jolivets. Áköllin er ann-
ars aö finna á einni af Svörtu
perlunum fjórum, plötunum sem
Manuela lék inn á og teljast dýr-
gripir í íslenskri plötuútgáfu. Sónata
Sven Eriks Bácks kom þarna inn á
milli Magnúsar og Jolivets,
mikilfenglegt einleiksverk ungs
reiðs manns sem byrjaði að semja
lag við Davíðssálm en endaði með
því að smíða bæði Davíössálm án
orða og flautusónötu úr sama
efniviði.
Sálarró
Leikur listamanns eins og
Manuelu setur þann sem um tónlist
skrifar í nokkurn vanda. Maður er
fyrir löngu búinn að nota öll viðeig-
andi lýsingarorð um hann og stendur
svo frammi fyrir því að aldrei hafa
þau átt við sem nú. Kannski mætti þó
bæta einu viö vegna þessara
kirkjutónleika, sálarró. Það er ekki
sjálfgefið að áheyrandanum finnist
hann staddur í helgidómi þegar hlýtt
er á trúarlega ' tónlist, en leikur
Manuelu færði manni þann frið og
sálarró sem aðeins á heima í helgi-
dómi, hvort sem hann heitir kirkja
eða eitthvað annað. Það var yndis-
legt að fá að heyra í Manuelu
aftur heima og nýstofnaö tónlistarfé-
lagið má aldeilis halda á spöðunum
ef framhaldiö á að verða eins og
byrjunin.
-EM.
„Leikur Manuelu fœrði manni þann frið og sálarró sem aðeins á heima i
helgidómi."
Kammersveit Heidel
bergs („stopover"
Tónleikar Heidelberg Chamber Orchestra í Ás-
kirkju 30. september.
Stjórnandi: Klaus Preis.
Efnisskrá: Johann Sebastian Bach: Konsert í
d-moll fyrir tvœr fiðlur; Wolfgang Amadeus
Mozart: Divertimento í D-dúr KV 136; Antonio
Vivaldi: Konsert fyrir tvo trompeta, Haustið úr
Árstiðunum; Tomasso Abinoni: Kvintett-
konsert í g-moll; Johannes Pachelbel: Kanon
fyrir þrjár fiðlur og bassarödd; Georg Philipp
Telemann: Suite Concertante fyrir tvo tromp-
eta og hljómsveit.
Oft hefur það borið á góma hversu
frábært það væri til stuðnings ís-
lensku tónlistarlífi að geta halað
hingaö niður úrval þeirra lista-
manna sem leið sína leggja þvert yf-
ir Atlantsála til tónleikahalds hand-
an hafs. Já, leggja fyrir alla þessa
frægu listamenn smágildru svo að
þeir freistist til að taka sér „piccolo”
listrænt „stopover” á leiðinni yfir
hafið. Og sumir gera reyndar stuttan
staris á leiö sinni yfir hafið, til dæmis
Kammersveit Heidelbergs, sem hér
kaus að nefna sig upp á ensku. Ensku
brúkaði hann líka stjórnandinn, eða
vildi öllu heldur brúka, þegar hann
fylgdi verkunum úr hlaði með skýr-
ingum. Af tveimur ástæðum heföi
hann heldur átt aö halda sig við móð-
urmál sitt, þýskuna. I fyrsta lagi
hefði mikill meirihluti tónleikagesta
meðtekið útlistanir hans á þýsku og í
öðru lagi hefðu þeir sem ekki kunnu
þýsku líklega skilið meira í henni en
þvoglulegri, brogaðri, enskunni sem
hann tók sér í munn.
Upp á skandinavísku með
hnykk
Eiginlega var þetta brogaða brúk
á enskri tungu dæmigert fyrir tón-
leikana í heild. Eftir að hafa göslast í
gegnum Bach konsertinn fyrir tvær
fiðlur tóku þau til við Mozart. Þar
datt manni helst í hug aö lékju nem-
endur sem Stephan Grappelli hefði
sleppt hendinni allt of snemma af.
En eins og menn vita þolir Mozart
næstum hvað sem er og hér fengu
menn enn eina sönnun þess.
Síðan kom Vivaldi. Fyrst svolítil
glæta því að trompetleikararnir
tveir; Christian Götting og Rudiger
Bröhl, reyndust vandanum þokka-
lega vaxnir og ekki veitti maður bak-
röddunum allt of nána eftirtekt á
meðan. Haustið léku þau eins og
kaflaheitin væru cárdac — lúshægt
sígaunahljóð á lirukassa og skottís
upp á skandinavísku með hnykk, en
ekki þessi gömlu og kunnuglegu
ítölsku. I svipuðum dúr spiluöu þeir
kvintettkonsertinn hans Albinonis. I
Kanon Pachelbels vantaði ekkert
annað en nettan jazztrommara á bak
við til að gefa leiknum blæ — þá heföi
aö minnsta kosti fengist viðunandi
sveifla.
Músíkölsk grautargerð
I lokin bráði svo heldur af þegar
trompetleikararnir, sem voru flokki
ofan en afgangur hljómsveitarinnar,
léku konsertsvítu Telemanns. Þó var
hraðinn keyrður upp um of í lokafan-
faranum, svo að úr varö hálfgerður
grautur.
Músíkölsk grautargerð virðast
vera ær og kýr stjórnandans. Mér
skildist að hljómsveitin færi að ein-
hverju leyti á vegum hins opinbera í
Sambandslýðveldinu. Þeir hljóta að
hafa úr töluveröu að moða í menn-
ingardeildinni þar úr því þeir styrkja
botnliö úr annarri deild til tónleika-
ferðar yfir Atlantshafið þvert. Hér
með sendast óskir um aö fyrstu
deildar lið veljist fyrir næsta „stop-
over”. EM
Tilboðsverð
Vegna hagstæðra
innkaupa getum
við boðið þennan þýska
skrifborðsstól „MÓDEL
SILKE" á sérstöku
TILBOÐSVERÐI
meðan birgðir endast.
KR. 2.450
Sendum í póstkröfu
hvert á land sem er.
FCiRUHÚSÍÐ HF.
L
SUPURLANDSBRAUT30 SiMI687080,
Odýrir varahlutir
í bíla og vinnuvélar
Við seljum aðeins viðurkennda vara-
hluti frá virtum íramleiðendum -
vönduð vara sem notuð er aí bíla- og
vinnuvélaverksmiðjum víðs vegar um
heiminn.
• Stimplar og slífar • Stimpilhringir
• Pakkningar • Vélalegur • Knastásar
• Tímahjólogkeðjur®Ventlar
• Olíudœlur • Undirlyítur o.íl.
ÞJÚHSSOH&CO
Skeifunni 17, Reykjavík
S: 84515 og 84516
HÓPFERÐABÍLAR TIL SÖLU
Scania árg. 1970,49 sæta.
Seddon árg. 1973,49 sæta.
Bílarnir eru báðir i mjög góðu ásigkomulagi.
Mjög hagstæð greiðslukjör, skipti á minni hópferðabílum
koma til greina.
Upplýsingar í símum 96-26922 og 96-25168.
Sérleyfisbílar Akureyrar sf.