Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1985, Blaðsíða 11
DV. FÖSTUDAGUR 4. OKTOBER1985.
11
Lögreglan
í Kópavogi
heimsækir
Glasgow
Frá séra Róbert Jack, fréttarltara DV
íHúnavatnssýslu:
Veöriö hefur verið dýrlegt hér á
Vatnsnesinu aö undanförnu eins og
víöar á Norðurlandi. Húnaflói er
spegilsléttur og ég get varla ímyndaö
mér aö til sé meiri náttúrufegurð en
hér um slóðir þessa dagana.
Á Hvammstanga er sláturtíð hafin
og að mati sumra kastar hún skugga á
haustsólina. Oneitanlega er þaö sorg-
legt aö sjá lömbin hverfa ung og falleg
í dauðans dal. En á meöan menn lifa á
búskap verður skepnum alltaf fargaö.
Sveitalífiö hefur upp á margt gleðilegt
aö bjóöa og ég hef notið þess aö vera í
íslenskri sveit öll mín prestskaparár.
Eg er fæddur og uppalinn í milljón
manna borg, Glasgow í Skotlandi, og
er nýkomin þaðan eftir stutta viðdvöl.
I fimm daga var ég í fylgd með lög-
regluliöi úr Kópavogi sem var í heim-
sókn hjá lögreglunni í Glasgow ásamt
eiginkonum sínum.
Lögreglan í Glasgow tók vel á móti
íslenskum koUegum sínum. Var fariö
meö þá um glæsilegar bækistöövar lög-
reglunnar, veittar kræsingar og loks
voru allir leystir út meö fögrum gjöf-
um. Sæmundur Guömundsson lög-
regluvaröstjóri, sem skipulagöi ferö-
ina, óskaði eftir því við mig að ég sæi
um ferö út fyrir Glasgowborg og ég
pantaði rútubíl. Kaus ég leiö sem ég
hafði oft farið áöur, fyrst með foreldr-
um mínum áriö 1922 þegar faðir minn
eignaðist bifreiö. Þessi leiö er meö
þeim fegurstu í öllu Skotlandi.
Okum viö fram hjá fimm stærstu
vötnum Skotlands og skiptust á sólskin
og rigningarskúrir. Eg hef verið meö
mörgum hópum frá fslandi sem allir
hafa veriö góöir og var þessi lögreglu-
hópur úr Kópavogi landi sínu til
heiðurs og sóma. Þegar viö ókum fram
hjá Loch Lomond á leið aftur til Glas-
gow spuröi bílstjórinn mig hvort ég
heföi ekki heimþrá. Eg svaraöi, á þá
lund að heimþrá væri þar sem hjarta
mannsins er. Þaö er ekki hægt aö búa í
landi í 40 ár án þess aö hafa heimþrá
þegar maöur er í útlöndum.
Sólin yfir Húnaflóa er nú aö síga í
æginn. Kindurnar hvíla sig á túninu.
Þaö er logn og friöur. Mikið er gott aö
búa í sveit. Ferðin um fagrar sveitir
Skotlands var áreiöanlega hápunktur í
feröalagi lögreglumannanna frá Kópa-
vogi. Fyrir mig var þaö einnig stór-
kostlegt að njóta stemmningarinnar
þegar Glasgow Celtic vann Aberdeen
aö viðstöddum 40 þúsund áhorfendum.
Allir stóðu grafkyrrir í minútu þögn til
minningar um Jock Stein, forstjóra
skoska landsliösins í knattspyrnu, sem
haföi andast nokkrum dögum áöur.
Þessum viðburði gleymir enginn sem
þarna var staddur. Þegar ég stóö úti á
túni á dögunum varö mér hugsaö til
þess hversu einkennilegt lífiö getur
veriö. Vissulega veit enginn sína ævi
fyrr en öll er.
Með bestu kveðju,
Róbert Jack.
Slökkviliðsmenn draga bilinn út á hlað fyrir framan bllaverkstsaðlð.
DV-mynd S.
Eldurá bflaverkstæði:
Bfllinn fest-
ist i dyrunum
Eldur kom upp á bílaverkstæði í
Síöumúlanum síðdegis í fyrradag.
Var veriö aö logsjóða í bíl þegar
skyndilega kviknaði í. Reyndu
starfsmenn verkstæðisins aö ýta
brennandi bílnum út fyrir en svo illa
tókst til aö hann festist í dyrunum.
Reykkafarar frá slökkviliöinu
komu á vettvang og tókst þeim aö ná
bílnum út á hlpö og slökkva eldinn.
Verömæti voru inni á verkstæðinu
sem ekki máttu blotna og því var
reynt aö nota sem minnst vatn. Gekk
slökkvistarfið greiölega þrátt fyrir
þetta og urðu skemmdir óverulegar
innandyra. -EH.
Víkingur AK 100 með um 1100 tonn í Akraneshöfn.
Fyrsta
loðnan
berst til
Akraness
— Um 30 tíma stím
afmiðunum
Frá Haraldi Bjaraasyni á Akranesi:
Fyrsta loðnan á þessari vertíö
barst til Akraness nýlega er
Víkingur AK-100 landaöi þar 1100
tonnum.
Loönuna fékk Víkingur á miðunum
viö Kolbeinsey og er um 30 tíma stím
þaöan til Akraness. Fjórir Akranes-
bátar stunda nú loðnuveiðar, þeir
Rauösey, Höfrungur, Bjami
Olafsson og Víkingur, og mun sá
siðastnefndi landa öllum sinum afla
á Akranesi en báturinn er í eigu
Síldar- og fiskimjölsverksmiðju
Akraness.
Þá munu tveir Akranesbátar
stunda síldveiðar meö hringnót i
haust og leggja þeir báöir upp afla
sinn hjá Haraldi Böövarssyni & Co
en þar hefur mikil síld veriö söltuð á
liðnum árum og stööin jafnan veriö
meöal þeirra hæstu yfir landið.
Annar bátanna, Sigurborg, hefur
þegar haldiö til veiða en hinn
báturinn, Skírnir, mun halda af staö
fljótlega.
Hásetar á Vikingi undirbúa löndun. DV-myndir Haraldur Bjarnason
Saab 900 GLE érg.
Má graiða með
Skipti á ódýrari.
1983, sjálfsk.
skuldabréfi.
Subaru station 4x4, árgerðir '81,
'82,83 og '84.
Ford Sierra XR4I árg. 1984. Mjög
glæsilegur, þýskur gæðavagn,
allur sem nýr. Vél 6 cyl. með
beinni innspýtingul Algjör lúxus-
innrétting og önnur þægindi, s.s.
vökvastýri, rafmagn í speglum og
rúðum, litað gler. Ekinn aðeins
14.000 kml Skipti ath. á ódýrari.
Ath. skuldabréfl
Mercedes Benz 280 E árg. 1980,
sjálfskiptur, vökvastýri, sóllúga,
centrallæsingar. Skipti á ódýrari.
Má greiðast með skuldabréfi.
Honda Accord árg. 1983, skipti á
ódýrari. Má greiða með skulda-
bréfi.
Mazda 626 1600 árg. 1983, skipti á
ódýrari.
Mikið úrval nýlegra
bíla, ýmiss konar
bílaskipti.