Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1985, Qupperneq 4
4
DV. FÖSTUDAGUR 4. OKTOBER1985.
Niðurstöður skoðanakönnunar DV:
Niöurstööur svara við spurningunni: Ert
þú fylgjandi eða andvígur fyrirhuguðum
hvalveiðum íslendinga?
Fylgjandi hvalveiðunum
Andvígir
Óákveðnir
Svara ekki
390 eða 65,0%
88 eða 14,7%
93 eða 15,5%
29 eða 4,8%
Yfirgnæfandi meirihluti
er fylgjandi hvalveiðunum
Mikill meirihluti Íslendinga er fylgjandi áframhaldandi hvalveiðum hér við land.
Ef aðeins eru teknir þeir sem tóku
afstöðu verða niðurstöðurnar þessar:
Fylgjandi hvalveiðunum 81,6%
Andvígir 18,4%
Yfirgnæfandi meirihluti Islendinga
er fylgjandi þeim hvalveiðum, sem
fyrirhugaðar eru á næstu árum. Þetta
sýnir skoðanakönnun, sem DV gerði
um síðustu helgi. Spurt var: Ert þú
fylgjandi eða andvígur fyrirhuguðum
hvalveiðum Islendinga? Þannig var í
spurningunni ekki lagt á þaö mat,
hvort þessar hvalveiðar væru sérstak-
lega í vísindaskyni. Fólk tók sjálft þá
afstöðu að meta slíkt.
Urtakið í könnuninni var 600 manns.
Jafnt var skipt milli kynja og jafnt
milli höfuðborgarsvæðisins og lands-
byggðarinnar.
65% af öllu úrtakinu kváðust fylgj-
andi fyrirhugðuðum hvalveiðum.
Aðeins 14,7% sögöust andvíg hvalveið-
unum. 15,5% voru óákveðin og 4,8%
vildu ekki svara.
Þetta þýðir, aö 81,6% þeirra, sem af-
stöðu tóku, eru fylgjandi hvalveiðun-
um en 18,4% andvíg.
Meirihlutinn var hvarvetna yfir-
gnæfandi, þó einkum meöal karla á
landsbyggðinni.
Tiltölulega mest andstaða meöal
karla á Reykjavíkursvæðinu en þó
mikill minnihluti.
-HH.
Gullsmiður með gullfiska
— Flosi Jónsson, gullsmiður á Akureyri, með stærstu
skrautfiskasýningu
sem haldin hefur
verið héiiendis
Flosi og fiskarnir. Það hefði allt eins
getað verið nafn á stærstu skrautfiska-
sýningu sem haldin hefur verið
hérlendis. Það er nefnilega enginn
annar en Flosi Jónsson, gullsmiður á
Akureyri, sem sýndi gullfiskana.
„Eg opnaði skrautfiskabúð hér á
Akureyri fyrir tæpu ári, hef svona haft
hana sem aukabúgrein með gull-
smíðinni. En áhugi manna á skraut-
fiskum hefur aukist svo gríðarlega aö
mér fannst orðin full ástæða til að
sýna,” sagði Flosi um tilurð skraut-
fiskasýningarinnar.
Þetta var engin smásýning. Þarna
gat aö líta stærsta fiskabúr á landinu,
með tæp tvö tonn af/vatni. Að sjálf-
sögöu smíðaö af Flosa, eins og reyndar
öll hin búrin á sýningunni.
Og fiskamir voru af öllum gerðum
og stærðum. Alls þúsund fiskar og
hundrað tegundir. Allt frá tveggja
sentímetra krílum upp í 40 sentímetra
bolta.
Skrautfiskarnir reyndust líka
sannarlega vera krydd í tilveruna því
alls komu um 5 þúsund manns á
sýninguna, en hún var haldin í Eden
þeirra Akureyringa, Blómaskálanum
Vín að Hrafnagili.
Flosi sagöi aö í verslun sinni seldi
hann fóður, fugla og nagdýr, auk
fiskanna. „Eigum við ekki bara að
segja að það sé hægt að kaupa allt
nema hunda, ketti og beljur.”
Stœrsta fiskabúr 6 íslandi. Flosi smíðaði það sérstaklega fyrir sýningu sina
i blómaskélanum Vin að Hrafnagili. í búrinu eru tœp tvö tonn af vatni. Og
það verður éfram til húsa i Vin.
Flosl Jónsson, gullsmlður, gullfiskasali og lyftingamaður. Skrautfiskarnir
hans slógu i gegn, alls komu S þúsund manns é sýninguna.
-JGH.
DV-myndir JGH
Ummæli fólks í könnuninni:
„Látum ekki
hafa áhrif
á okkur”
„Ef hvalurinn er ekki veiddur, ét-
ur hann upp allan fiskinn,” sagöi
kona úti á landi, þegar hún svaraði
spurningunni í skoðanakönnuninni.
„Það er allt í lagi að veiða hvalinn í
vísindaskyni,” sagði kona úti á landi.
„Eg er hlynnt því að hann verði
veiddur að vissu marki eins og í
sumar,” sagöi önnur. „Fylgjandi
hvalveiöum eins og verið hefur,”
sagði karl úti á landi. „Sé enga
ástæðu til að láta þrýstihópa í
Ameríku hafa áhrif á hvalveiöar
okkar,” sagöi karl á Reykjavíkur-
svæðinu. „Þaö er ástæðulaust að
leggja veiðarnar niður, ef vísinda-
menn telja öllu óhætt.”
„Andvígur hvalveiðum. Skít-
hræddur við grænfriöunga,” sagöi
karl úti á landi. „Slæmt, ef hval-
veiðar skemma fyrir sölu erlendis,”
sagði annar.
„Það er þörf á að veiða hvalinn í
rannsóknaskyni,” sagði kona úti á
landi. „Hví ekki að lifa á hvalnum
eins og þjóðin hefur gert síðustu ár? ”
sagði önnur kona úti á landi.
„Fylgjandi hvalveiðum í vísinda-
skyni,” sagði karl á Suðurlandi.
„Það er bara fyrirsláttur að hval-
urinn sé veiddur í þágu vísinda.
Hann er veiddur í fjárhagsskyni
fyrir ríkissjóð. Andvígur,” sagöi karl
úti á landi. „Við getum ekki haldið
þorrablót, ef við fáum ekki hvalinn,”
sagði karl á Eskifirði. „Látum ekki
hafa áhrif á okkur. Höldum áfram að
veiða eins og okkur sýnist,”sagði
karl á Reykjavíkursvæðinu. Drepum
hvali, og hlustum ekki á þessa græn-
friöunga. Það eru ofstækismenn,”
sagði annar. „Þessar svokölluðu
veiðar í vísindaskyni eru auðvitað
blekking. Þess vegna er ég á móti
þeim,” sagði karl á Reykjavíkur-
svæðinu. „Ég get ekki séð aö hvalir
séu í úrýmingarhættu vegna veiöa
okkar,” sagöi karl í sveit. „Mér
finnst hvalur mjög góður,” sagði
kona í sveit. „Eg vil láta veiða hval-
inn því ég held að hann eyðileggi
svo mikið fiskinn ef hann fær aö
vera í friði,” sagði kona í sveit.
-HH
Cuxhaven:
Sjómaðurinn laus úr prísundinni
Islenski sjómaöurinn, sem var
handtekinn í Cuxhaven í Vestur-
Þýskalandi í síðasta mánuði, er laus úr
prísundinni. Kom maðurinn fyrir rétt á
þriðjudag og var honum gert að greiða
sekt.
Sjómaðurinn var handtekinn fyrir
ofbeldisrán en svo viröist sem einhvers
misskilnings hafi gætt hjá starfsfólki
verslunarinnar sem lét handtaka
manninn. Kom til átaka í búðinni og
var sjómanninum stungið í steininn og
hann sakaður um þjófnað og árás.
-EH.