Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1985, Qupperneq 9
DV. FÖSTUDAGUR 4. OKTOBER1985.
Útlönd
Útlönd
9
Utlönd
Utlönd
GORBATSJOV BÝÐUR 50
PRÓSENT NIÐURSKURÐ
— á kjarnavopnum stórveldanna
Mikhaíl Gorbatsjov, leiötogi Sovét-
ríkjanna, bauö í gær 50 prósent niöur-
skurð á langdrægum kjarnaflaugum
beggja stórveldanna og bann á árásar-
vopnum í geimnum.
I ræöu í París í gær lagði hann einn-
ig til að Sovétmenn hæfu beinar við-
ræður við Frakka og Breta um hvernig
væri hægt aö semja um kjarnavopna-
birgðir þeirra um leið og stórveldin tvö
semdu um takmarkanir sinna birgða.
Gorbatsjov skaut þeirri hugmynd inn í
að beinar viðræður milli NATO og Var-
sjárbandalagsins væru einnig hugsan-
legar.
Gorbatsjov sagði að Sovétmenn
hefðu minnkað fjölda SS—20 flauga
sem beint er að Vestur-Evrópu. Þeir
hefðu boðið Bandaríkjamönnum sér-
stakan samning um meðaldræg
kjarnavopn án tillits til samninga um
langdræg vopn.
Goarbatsjov ætlar ekki aö láta ræð-
una í gær í boöi franska þingsins
nægja. I dag munu hann og Francois
Mitterrand Frakklandsforseti halda
sameiginlegan fréttamannafund í
Elysee höll.
Mitterrand hélt aukafund með
Gorbatsjov í gær til aö kanna vopna-
takmörkunartilboð sovéska flokksfor-
mannsins.
Fréttaskýrendur segja að Mitterr-
and muni líklega afþakka tilboö
Gorbatsjovs um viðræður um frönsk
kjarnavopn kurteislega.
Gorbatsjov hefur gefið í skyn að
hann vilji vinna með Frökkum gegn
því að fara með vopnabúnaö í geiminn,
en hefur gætt þess að gagnrýna ekki
Bandaríkjamenn. Sérfræðingar segja
að Mitterrand muni ekki samþykkja
neitt sem skilja megi sem gagnrýni á
Reagan Bandaríkjaforseta.
Mannréttindamál hafa einnig verið
í sviösljósinu. Chirac, borgarstjóri
Parísar, notaði tækifærið og gagnrýndi
stefnu Sovétríkjanna í mannréttinda-
málum þegar Gorbatsjov heilsaði upp
á hann.
Gorbatsjov hafði ýmsar nýjar hugmyndir i pússi sínu við komuna til Parisar
þar sam hann á viðræður við Mitterrand.
Hór sóst þýskur hjálparstarfsmaður mað leitarhund að laita i rústunum i
Mexíkóborg, en með hverjum deginum sem liður dvina vonir manna um
það að lif kunni enn að ieynast með þeim sem grafnir eru undir rústunum.
Buckley drepinn
Skæruliðar hreyfingarinnar
íslamskt jihad (heilagt strið) segjast
hafa drepið bandaríska sendiráðs-
manninn William Buckley. Yfirlýsing
hreyfingarinnar sagði aö hann heföi
verið „tekinn af Ufi.”
I yfirlýsingunni, sem alþjóöleg
fréttastofa og tvö dagblöð í Beirút
fengu, segir að Buckley hafi verið yfir-
maöur CIA-leyniþjónustunnar á staön-
um. Hann hafi verið drepinn í hefndar-
skyni fyrir árás Israela á aðalstöðvar
Frelsissamtaka Palestínu í Túnis á
þriðjudag.
Með yfirlýsingunni voru myndir af
Buckley lifandi. ■
Buckley er einn sex Bandarikja-
manna sem hafa horfið í Beirút og
hreyfingin íslamskt jihad segist halda.
Buckley er sá fyrsti þeirra sem hreyf-
ingin segist hafa drepið.
r
EIGA TVO METRA
EFTIR AÐ DRENGN-
UM í RÚSTUNUM
„Hann er farinn að svara aftur svo
að hann er Hfs,” sagði einn björgunar-
Uðinn úr hópi þeirra sem eru að reyna
að ná upp úr rústunum níu ára gömlum
skóladreng er grófst undir mörgum
smálestum af húsabraki í jarðskjálft-
anum í Mexíkóborg fyrir tveim vikum.
Björgunarmenn kviðu því í gær að
drengurinn hefði misst rænu þegar
hann hætti að svara spurningum
þeirra með því að banka í járn eitt
högg fyrir já og tvö högg fyrir nei.
En hann byrjaði bankiö aftur í gær-
kvöldi.
Björgunarflokkarnir eiga nú aðeins
tvo metra ógrafna að drengnum.
Grafa þeir göng úr fjórum áttum að
drengnum. En þaö gæti tekið þá
margar klukkustundir enn að grafa
drenginn lausan.
I'ranskir hjálparstarfsmenn i
Mexikóborg með mann á börum
en honum náðu þeir úr rústun-
um eftir að hann hafði legiö um
vikubil grafinn undir mörgum
smálestum af braki.
STRÆTÓSTiÓRI ÖLVAÐUR VID AKSTUR
Gissur Pálsson, DV, Álaborg:
Lögreglan í Lyngby tók strætis-
vagnabílstjóra grunaöan um ölvun við
akstur. Tveir farþegar höfðu kært bíl-
stjórann eftir að hann hafði villst þrá-
faldlega á meðan á ferðinni stóð. Lög-
reglan tók bæði blásturspróf (gamla
blaöran) og síðan fór vinurinn í blóð-
prufu. Er hann taUnn hafa verið all-
skýjaður og eini maðurinn sem trúði
statt og stöðugt á útskýringar bílstjór-
ans mun hafa verið hann sjálfur. Hann
mun hafa farið tvisvar allt of langt frá
stoppistöð og einu sinni gleymt sér al-
gjörlega og snúið við til þess að ná upp
í stoppistöövarkvótann. Þegar sá
gamli villtist algjörlega hófust merki-
legar umræður á milli farþega og
vagnstjóra. Á endanum yfirgáfu far-
þegar vagninn með fyrrgreindum
árangri. Sneri bílstjórinn við, fann fyr-
irskipaða leið en fór að þessu sinni í
öfuga átt. Við endastöðina beið lögregl-
an með græjurnar sem sanna áttu vín-
leysi mannsins, það tókst ekki. ALLIR
MEÐSTRÆTO.
Uppstokkuní
leyniþjónustu
Hinn nýi varnarmálaráðherra
Frakklands hefur byrjað á upp-
stokkun í DGSE leyniþjónustunni
sem sá um að sökkva Rainbow
Warrior, skipi Greenpeacesamtak-
anna.
Paul Quiles hefur fyrirskipað að
æfingamiðstöð kafara leyniþjón-
ustunnar á Korsíku verði lokaö.
Laurent Fabius forsætisráðherra
segir að Rainbow Warrior málinu
sé lokið en Quiles segir rannsókn á
því standa ennþá. Quiles sagði
einnig að hann ætlaði að setja 11.
herdeild úrvalsmanna aftur á fót
en De Gaulle leysti hana upp á sín-
umtíma.
Fáaöframleiöa
vamarsprengjur
Reagan-stjórnin í Bandaríkjun-
um hefur boðið Bretum að kaupa
eða hjálpa til við aö framleiða
55.000 nýjar Sea Gnat varnar-
sprengjur sem skip nota til að af-
vegaleiða árásarflaugar.
Sea Gnat hólkarnir springa í loft
upp og senda út frá sér mikið magn
jámbita til að rugla tölvur árásar-
eldflauga. Hólkarnir voru hannaöir
sameiginlega af bandarískum og
breskum vísindamönnum.
Bara
aðvörunarskot
Stjórn Tékkóslóvakíu hafnaði
kvörtun Bandaríkjamanna um að
skotið hefði verið á bandarískar
þyrlur sem hefðu verið í vestur-
þýskri lofthelgi. Tékkar sögðu þó
að þeir hefðu skotiö viðvörunar-
skoti að einni þyrlu sem hefði verið
hættulega nálægt landamærunum
við Tékkóslóvakíu.
Tékkar sögðu að þyrlan hefði
ekki komið inn fyrir landamærin en
flogið 100 kílómetra leið meðfram
þeim.
I gær sagöi talsmaður varnar-
málaráðuneytisins í Bandaríkjun-
um aö Tékkar hefðu skotið á Cobra
þyrlu í venjulegu eftirlitsflugi.
Lífvörður Dana-
drottningar
ístórræöum
Gissur Pálsson, DV, Álaborg:
Varðmanni við kastalann í
Köben fannst sér í gær ógnað og
skaut viðvörunarskoti í vísbend-
ingarskyni. Maður nokkur hafði
ásamt félögum sínum verið að
varpa hvers konar rusU á torgið
þama fyrir framan höUina. Hallar-
starfsmenn bentu þeim vinsamleg-
ast á að laga til og urðu allir nema
einn vinsamlega við þeirri bón.
Hann hóf svívirðingaaustur yfir
varðmennkia sem fóru fram á við
manninn að hann kæmi til viötals í
varðskýlinu. Þá reyndi vinur vor
að ná byssu af einum Ufvarðanna
og var þá skotið viðvörunarskoti.
Lögreglan var kölluð til og fer ekki
fleiri sögum af manni þessum.
lOmilljónirí
gegnum Kastrup
Gissur Pálsson, DV, Álaborg:
9,7 miUjónir farþega notuöu
Kastrup-flugvöll í fyrra, þetta
kemur fram í nýjutu tölum frá flug-
vallaryfirvöldum. Þetta er hálf
milljón fleiri en notuðu flugvöllinn
árið þar áður.
Metið var þó sett 1979 en þá not-
uöu 10,2 miUj. farþega völlinn.
Farþegastraumurinn hefur
venjulega aukist um hálfa millj. á
ári og tU gamans má geta að fyrir
tuttugu árum voru þeir aöeins 3
mUlj.
49 flugfélög hafa aðstöðu á vellin-
um.