Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1985, Blaðsíða 32
44
DV. FÖSTUDAGUR 4. OKTÖBER1985.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
?
■
ELSKAR
JANNI
ÍSTRUR
Hafi einhver haldiö aö Janni hin
danska hafi gifst feröakónginum Spies
vegna auranna er eins gott aö endur-
skoöa afstööuna hiö snarasta. Spies
karlinn var svo huggulegur aö kveöja
þessa jarðnesku tilveru skömmu eftir
brúökaupið og eftirláta ekkjunni ungu
auöæfin. Þá heföi mátt ætla að sú
stutta færi að njóta lífsins og horfa í átt
til jafnaldranna — en ónei — ekki
Janni Spies. Innan tíðar haföi henni
tekist aö finna annan gamlan karl með
góða ístru og vandrar nú meö honum
um heiminn alsæl með lífið og tilver-
una. Nýlega voru skötuhjúin á ferð um
Mónakó til þess aö njóta lífsins — tólf
daga leyfi segja dönsku blööin andakt-
ugyfiröllu saman.
En sem sagt — nú hefur komiö í ljós
aö Janni er óö í ístrubelgi af eldri kyn-
slóðinni og fýlupokarnir tauta hver í
kapp við annan um föðurkomplex —
nokkuö sem rika ekkjan lætur sem
vind um eyru þjóta.
o «
Hann sleppir ekki
takinu, hefur
enda fest fingur á
rikustu ekkju Evr-
ópu.
Hönd í hönd
vappandi á sund-
laugarbarmi og
Janni er alsæl
með ístrubelginn
Gunna Hellström.
Getureinhver
lánað okkur
skæri?”
Þessar hárprúðu Hallgerðar búa
með frændum vorum Dönum og
eru býsna ánægðar með hárvöxt-
inn, enda safnað gróskunni lengi.
Slíkir fimmmenningar fyrirfinnast
varla hérlendis því hárskurðarstof-
ur eru á næstum hverju götuhorni.
Hérna er gömul mynd úr fjölskyldu-
albúmi Reaganættarinnar. Jane Wyman
með Michael i fangi en til hliðar dóttirin
Maureen og Ronald Reagan sjálfur.
Hélt ræður í svef ni
Gamlar myndir úr fjölskyldu-
albúminu eru alltaf vinsælar og
hérna er ein slík frá fortíö Ronalds
Reagan, forseta Bandaríkjanna.
Hann var fyrrum giftur leikkonunni
Jane Wyman sem þénar glatt þessi
síöustu ár sem fyrrverandi eigin-
kona forsetans — en sem fagmann-
eskja í leiklistinni er sú gamla ennþá
nokkuð góð aö sögn fræðimanna.
Þau áttu saman dótturina
Maureen og ættleiddu aö auki dreng-
inn Michael en eins og alþjóð veit
endaöi hjónabandiö meö skilnaði.
Frá búskaparárum hjónanna eru
til margar sögur en sú vinsælasta
núna er þegar einn vina þeirra haföi
orö á því viö Jane aö eiginmaöurinn
væri óþægilega málglaöur heim aö
sækja.
„Þetta er ekkert,” svaraði Jane aö
bragöi. „Veistu aö hann stoppar
aldrei — heldur meira aö segja lang-
ar ræðurísvefni!”
Þeir sem segja aö æfingin skapi
meistarann fá þarna byr undir báöa
vængi — ekki að furða þótt maöurinn
hafi endað í forsetastóli eftir stíft
prógramm nótt sem nýtan dag.
Til vinstri
gakk!
Margt er skrýtiö í kýrhausnum og
mörg er mannanna speki. Kanarnir
vestan hafs eru manna duglegastir við
aö finna nýjan stórasannleik og það
nýjasta úr þeim herbúöum er að til
þess aö ná athygli annarra skuli menn
ævinlega gæta þess aö koma aö þeim
frá vinstri.
Heilinn er byggöur þannig aö allt til
vinstri viö mannfólkið reynist mun eft-
irtektarveröara segir í heimildunum.
Því er gott ráö ef þú þarft aö ná athygli
yfirmanna þinna eöa einhverra ókunn-
ugra að standa þeim til vinstri handar.
Þá eru meiri líkindi til þess aö þaö sem
þú hefur fram aö færa nái athygli viö-
mælendanna. Þá vitum viö þaö og um
leiö og upplýsingum er komiö til les-
enda skal á þaö bent aö hugtakiö
vinstrimenn hefur öðlast nýja og mun
víötækari merkingu.
Það var blómasýning og af því til-
efni mætti Karólina eins blómum
skrýdd og mögulegt var — blóma-
kjóll, blómahattur, blómvöndur og
blómasokkar.
Blómum
skrýdd
prinsessa
Fjölmiðlar um heim allan hafa hent
gaman aö Elísabetu Englandsdrottn-
ingu og hennar skylduliði fyrir blóma-
fíkn í klæðaburði en enginn á þeim
bænum hefur komist meö tærnar þar
sem Karólína af Mónakó hefur hælana.
Á mikilli blómasýningu nú í sumar,
sem haldin var í Monte Carlo, mætti
skvísan blómum skrýdd svo svimandi
var á aö líta. Blómahattur, blómvönd-
ur, blómakjóll og blómasokkar — geri
aörir betur! Hvaö Stefanía systir henn-
ar, sem starfar á vegum Dior í París,
hefur haft um fatasmekkinn aö segja
er ekki vitað en varla hafa menn hopp-
aö í loft upp af hrifningu hjá tískukóng-
inum víðfræga yfir klæðnaöi stóru
systur þann daginn.
Nærmynd af blómsturfótum prins-
essunnar — svimandi glæsileiki í
prinsessustil. Breska kóngaliðið er
frægt fyrir blómahatta og blóma-
kjóla en lengra hefur það. ekki
gengið á þeim bænum.