Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1985, Síða 2
2
DV. MIÐVIKUDAGUR13. NOVEMBER1985.
Kínverjar vilja f járfesta víðar en á íslandi:
Kaupa hluta í fyrir-
tækjum víða um heim
Sem kunnugt er hafa Kínverjar
lýst yfir áhuga á viðræðum við Is-
lendinga um eignarhlut í álverinu við
Straumsvík. Kinversk yfirvöld undir
forystu Deng Xiaoping hafa opnað
leiðir til fjárfestinga utan Kína.
Fyrsta landið sem þeir beindu sjón-
um sínum að var Hong Kong. I síð-
asta hefti Economist er haft eftir
Francis Chen, hagfræðingi Citybank,
að áætlað sé aö Kínverjar fjárfesti
fyrir 6 milljarða dollara í Hong Kong
á þessu ári. Aðeins Bandaríkjamenn
fjárfesta fyrir hærri upphæö í Hong
Kong. Kínverjar munu þá ná því að
eiga um þriðjung allra fjárfestinga í
Hong Kong á þessu ári.
I Bandaríkjunum hafa Kínverjar
einnig fjárfest mikið á þessu ári og
munar þar mest um skógarflæmi í
Washingtonríki sem þeir keyptu.
Timburflutningar eru hafnir frá
Bandaríkjunum til Kína. CITIC,
China International Trust Invest-
ment Corporation, hefur nýlega
opnað skrifstofu í New York. I
Ástralíu hafa Kínverjar einnig fjár-
fest töluvert og keypt eignarhlut í
stórfyrirtæki þar í landi.
Á síðasta ári er talið að „út-
streymi” fjármagns frá Kína hafi
numið um 1 milljarði dollara, þannig
aö aukningin hefur orðið gífurleg á
þessu ári.
Búseti í klípu
—fær aðeins lán fyrir 15 íbúðum
Hrakförum Búseta virðast engin
takmörk sett. Þó að búið sé að sam-
þykkja lán til Búseta virðist vera langt
frá því að björninn sé unninn.
Lán það sem Búseti hefur fengið vil-
yrði fyrir í húsnæðisstjórn hljóðar upp
á lán til byggingar 15 íbúða á 15 mán-
uðum. Með slíku framhaldi tæki þaö
Búseta 4 ár að byggja hina 46 íbúða
blokk sem Búseti hefur í hyggju aö
byggja.
„Þetta er ákaflega einkennileg
staða og við sitjum í algjörri gildru,”
segir Reynir Ingibjartsson, starfs-
maður Búseta. „Eftir að hafa staðið í
þessu ströggli um að fá þessa lánveit-
ingu sitjum við uppi með þetta, sem er
krækiber í helvíti miðaö við samtök
sem í eru 2.500 manns.”
Hann segir að Búseta-menn viti ekki
sitt rjúkandi ráð þessa stundina.
Búseti hafi nokkra valkosti. Einn er
að hætta öllu saman, annar að byggja
og hanna nýtt hús, þriðji að fara út í
þessar framkvæmdir upp á von og
óvon og fjórði aö byggja þessar íbúðir
og hreinlega selja síðan eins og hvert
annað byggingarfélag gerir.
Ef Búseti ætlar aðeins að byggja
þessar 15 íbúðir er fyrirsjáanlegt aö
það þurfi að hanna nýtt hús því 46
íbúða blokkin er þannig hönnuö að ill-
mögulegt er að byggja hana í áföng-
um.
„Svo sitjum viö með gatnageröar-
gjöldin á herðunum og allan þann
kostnað sem verktakinn hefur þegar
eytt í undirbúningsvinnu fyrir væntan-
legar framkvæmdir í Grafarvogin-
um,”segirReynir.
APH
Tölustafurinn á húsi bæjarstjórans er ekki af minni garðinni. Ætti þatta
að minna bæjarbúa á aö merkja nú hús sin vel og greinilega.
DV-mynd KHstján.
BÆJARSTIÓRINN
Á NÚMER NÍU
Frá Kristjáni Einarssyni, Iréttarit- Það merkilega við þetta númer er
ara DV á Selfossi: það að tölustafurinn er einn sá allra
Bæjarstjórinn á Selfossi, Stefán stærsti sem sést hefur á húsi hér á
Omar Jónsson, tóksigtilfyrirstuttu Selfossi. Slagar hann hátt í meöal
og sýndi þegnum sínum gott fordæmí mannhæð.
varðandi merkingar húsa.
Þegar hannkomtU. Selfoss til Það dylst engum að með þessu vill
starfa fyrir rúmum þrem árum festi Stefán bæjarstjóri vera þegnum
hann kaup á gömlu húsi við Þóristún. sínum góð fyrirmynd. Raunar bæta
Hús þetta hefur hann látið svospaugsamirbæjarbúarþvíviðað
endurbæta frá kjallara og upp í ris. með þessu sé bæjarstjórinn aö minna
Þegarviögerðumvarréttaðljúka sjálfan sig á að það séu bæjar-
lét bæjarstjórinn festa númer húss- stjórnarmenn sem yfir honum ráöi,
ins á einn vegg þess. Er þaö númer 0. en þeir eru 9 að tölu.
Efnahagsstefna Deng Xiaoping er gæta einnig hér á landi. Sú verður
farin að hafa áhrif víða um lönd og raunin ef aðild Kínverja í álverinu í
spurning hvort áhrifanna fari aö Straumsvík verður. -ÞG
Vifi hlið Keflavíkurflugvallar i október í fyrra. Verkfallsverðir BSRB
reyna að stöðva millilandaflugið.
DV-mynd: S.
T síí’
#!• • - ~ jMMpmf
^mvm
Mun færri úflend-
ingar komu í
BSRB-verkfallinu
Verkfall BSRB í október í fyrra
hafði þau áhrif meðal annars að
ferðalög útlendinga til Islands voru
ekki nema þriðjungur af því sem
eðlilegt getur talist. Þetta sést með
því að bera saman nýútkomnar tölur
útlendingaeftirlitsins frá nýliðnum
október saman við tölumar fyrir
október í fyrra.
Alls komu 5.835 erlendir
ferðamenn til Islands í október í ár
en í sama mánuði í fyrra, verkfalls-
mánuöinum, voru þeir 2.128 eða
aðeins 36 prósent af þeim f jölda sem
nú kom. Þaö vantaði því 3.707
erlenda feröamenn þá til að ná
fjöldanumíár.
Verkfall BSRB hafði mun minni
áhrif á ferðalög Islendinga milli
landa. Alls voru skráðir 6.973
Islendingar við komuna til landsins í
síðasta mánuði en í verkfallsmánuð-
inum í fyrra komu 5.785 Islendingar
til landsins, eða 83 prósent af fjöldan-
umnúna.
BSRB-verkfallið stóð í tæpar
fjórar vikur. Því lauk 30. október.
Það raskaði mjög flugsamgöngum
milli landa. Vélar Flugleiða á
Noröur-Atlantshafsleiðinni lentu til
dæmis ekkert á Keflavíkurflugvelli á
tímabilinu frá 3. október til 31.
október.
-KMU
Hreppsnefnd Vestur-Landeyja:
Ágreiningur um reikn-
inga úr sögunni
„Þungu fargi er létt af hrepps-
nefndarmönnum. Eg vona að menn
geti farið að vinna aftur saman,” sagði
Snorri Þorvaldsson, hreppsnefndar-
maður í V estur-Landeyjum.
Á hreppsnefndarfundi nýlega var
bókað aö nefndarmenn væru sammála
um að ágreiningur um reikninga
hreppsins væri úr sögunni.
Eins og fram kom í DV í sumar
neitaði endurskoöandi að skrifa undir
hreppsreikninga. Endurskoðandinn,
Haraldur Júlíusson, sagði í bréfi til
hreppsnefndar þann 21. júlí að sér virt-
ist sem oddvitanum, Eggert Haukdal,
væri um megn að ráða bót á reiknings-
flækjum sínum.
I bókun hreppsnefndar frá 19.
október kemur fram að Haraldur hafi
áritað reikningana.
„Reikningarnir voru samþykktir
með athugasemdum Haraldar
Júlíussonar endurskoðanda,” sagði
Snorri Þorvaldsson. -KMU.
Tæplegafimm
hundruðmanns
atvinnulaus
I siöasta mánuði voru rúmlega tíu
þúsund atvinnuleysisdagar á landinu
öllu.
Það er aukning um 1300 daga frá
septembermánuði.
Dagaf jöldinn svarar til þess að 475
manns hafi verið á atvinnuleysisskrá
allan mánuðinn.
Atvinnuleysisdagar októbermán-
aðar i ár eru færri en tvö síðustu
árin.
1 frétt frá vinnumálaskrifstofu
félagsmálaráðuneytisins segir að
rétt sé að geta þess að síðasta vinnu-
dag október voru 760 manns á
atvinnuleysisskrám landsins.
-ÞG.
1985:
Mestaaflaár
sögunnar
Margt bendir til þess að árið 1985
verði mesta aflaár íslendinga. Árið í
fyrra varð hins vegar þriðja mesta
aflaársögunnar.
Þessar upplýsingar komu fram á
Fiskiþingi í gær. Þrátt fyrir þennan
míkla afla stendur sjávarútvegur
mjög höllum fæti. Um þaö verður
m.a.rættáþinginu.
APH
Rithandarsýni
verða tekin
I frétt á baksiðu blaðsins í gær
með fyrirsögninni „Rithandarsýnis-
horn í flugturni” slæddust inn tvær
meinlegar villur í vinnslu blaösins.
Úr fyrstu málsgrein féU niöur ein
Una. Rétt er upphaf fréttarinnar
svona:
Reikningur yfir ýmsar ferða-
vörur, útigríll og fleira, sem skrif-
aöur var á Flugmálastjóm á Kefla-
vikúrflugvelU, er nú tU rannsóknar
hjá Rannsóknarlögreglu rikisins í
Kópavogi. Málið var áður í böndum
rannsóknarlögreglunnar í Keflavík
og á KeflavíkurflugvelU.
Lokamálsgrein fréttarinnar
brenglaðist einnig. I blaðinu stóð að
rithandarsýnishom hafi veriðtekin.
í handriti blaðamanns stóð: „Rit-
handarsýnishorn verða tekin... ”
-KMU.
Kynningákín-
verskum réttum
Frá Regínu Thorarensen, fréttarit-
ara DVáSelfossi:
Nýlega var haldin kynning á kín-
verskum réttum í Kaupfélagi Arnes-
inga á Selfossi. A boðstólum vom E1
Toro pizzur og kínverskar pönnu-
kökur með hökkuðu beljukjöti inn í
ogsósuútá.
Keypti fólk míkiö af þessu enda
smakkaöist þaö vel á staðnum en
ekki eins vel þegar heim var komið.
Eg var stórhrifin af hinni ungu
stúlku sem kynnti réttina. Hún talaðí
máli sínu þannig að hún virtist
dáleiða aUa viðstadda sem mok-
keyptu af réttunum. Stúlkan heitir
Agústa tsleifsdóttir.
Sama dag og kynningin fór fram
fékk allt vinnandi fólk útborgað. Lik-
lega heföi það ekki keypt eins mikið
af kínversku réttunum og raun varð
á hefði verið búiö að lækka verðið á
kindakjöti. En ráðamenn báru ekki
gæfu tU þess fyrr en seinna.
Forstjóri
Coldwaterá
verkamannaþingi
Magnús Gústafsson, forstjóri
Coldwater, og Ami Benediktsson,
forstjóri Framleiðni, flytja erindi og
svara fyrirspurnum á þingi Verka-
mannasambandsins sem hefst á
föstudaginn.
A þinginu eiga rétt tU setu 142 full-
trúar 54 aðildarfélaga. Þar verður
kosin stjórn sambandsins og mörkuð
stefna í kjaramálum.