Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1985, Blaðsíða 10
10
DV. MIÐVIKUDAGUR13. NOVEMBER1985.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Rækta kaffi í staðinn
fyrir ópíum f Thailandi
Þegar fréttamaöur DV gekk um
grænar fjallshlíðarnar sem prýða
héraðið í kringum Chiang Mai, nyrst
í Thailandi, fyrir rúmu ári, voru
eiturlyfjasalar í fullri vinnu við að
vinna heróín úr ópíumi sem þeir
höfðu keypt af bændum þar í kring.
Opíumræktunin var ábatasöm jarð-
yrkja bænda enda fáir sem gátu
borgað jafnmikið fyrir nokkra land-
búnaðarafurð eins og eiturlyfjasalar
fyrir ópíum.
Þangað til nú. Þar sem einu sinni
voru ópíumplöntur úti um allt er nú
kaffi.
Chang Khian er þorp Hmongfólks-
ins, í 1.200 metra hæð í þokudölum
nálægt landamærum Thailands,
Burma og Laos, í hinum svokallaða
gullna þríhyrningi. Þorpsbúar taka
nú þátt í tilraunum sem Thailands-
stjóm stendur fyrir sem byggjast á
því að fá bændur til að rækta kaffi í
staðinn fyrir ópíum.
Græða meira á kaffi
Yfirmaður þorpsins, Per Yang,
segir að fjölskylda sín — tvær konur
og nokkur böm — sé sjálfri sér nóg
um mat og aö með kaffisölunni hafi
hún náð tekjum upp á 615 dollara á
ári.
Yfirmaður landbúnaðardeildar há-
skólans í Chiang Mai segir að það
hafi sýnt sig að kaffiræktun sé ábata-
samari en ópíumræktun. Hún gæti
gefið Hmongmönnum 700 dollara á
ekruna eða meira.
Yang, sem er tæplega þrítugur,
segir að fólk sitt rækti enn ópíum en
það sé bara til lækninga og til að
deyfa sársauka. Unga fólkið hafi
engan áhuga á að neyta þess.
Hinir 60.000 Hmongmenn í Thai-
landi hafa hingað til verið uppi-
staöan í ópíumræktuninni í landinu.
En æ fleiri snúa sér nú að kaffitrénu
og öðrum háf jallajurtum.
Hafa látið
Hmongfólk í friði
Thailandsstjóm hefur í marga ára-
'' * -'Ih' ■ '■
; ':
.. '//’ " :
Ópiumverslun i Thailandi.
tugi látiö Hmongfólkiö i friöi þrátt
fyrir ólöglega ópiumrækt þess.
Sömuleiðis hefur hálf milljón ann-
arra íbúa fjallasvæðanna fengiö að
rækta eiturplöntuna óáreitt.
En samfara því að ópíumrækt og
meðfylgjandi notkun vímugjafa í
Thailandi hefur aukist mikið reynir
stjómin að fá bændurna til aö snúa
sér að öðrum plöntum. Embættis-
menn leggja áherslu á aö þeir noti
ekki vald heldur rök til að fá bænd-
uraa til að hætta viö ópíumræktina.
„Við viljum að bændurnir segi
Umsjón:
Þórir Guðmundsson
sjálfir: Nú hættum við ópíumrækt,”
sagði einn þeirra.
Kaffi þrífst vel
Kaffiplantan dafnar vel í f jallaloft-
inu nyrst í Thailandi. Stjómin
aöstoðaði bændur við að planta kaffi-
jurtum á 800 ekra svæði Hmongmanna.
Landbúnaðarsérfræðingar við
Chiang Mai háskólann segja að kaffi-
trén, sem bændurnir hafa fengið,
muni gefa af sér kaffibaunir í 70 ár.
I háskólanum geta bændur fengiö
upplýsingar um hvernig þeir eiga að
bera sig að við kaffiræktina. Yang er
einn þeirra sem nýtur þess. Hann
hefur plantað 400 kaffitrjám í viðbót
og kemur reglulega á námskeið.
Hann telur að eftir þr jú ár muni nýju
trén fara að bera ávöxt. „Þá mun ég
tvöfalda tekjur mínar,” segir hann.
Willoch áhyggjuf ullur:
Hagen vondur þrándur í götu
Björg Eva Erlendsdóttir, f réttaritari DV, skrif ar f rá Osló:
Káre Willoch forsætisráðherra er
áhyggjufullur vegna ástandsins í
norskum stjómmálum. Minnihluta-
stjóm hans er afskaplega ótraust í
sessi og i rauninni stendur allt eða
fellur með Framfaraflokki Karls I.
Hagens. Sá flokkur hefur löngum
verið duttlungafullur og öfgakennd-
ur og flestir forystumenn hinna
flokkanna hafa talið það fyrir neðan
virðingu sína að ræða við Karl I.
Hagen, hvaö þá aö hafa hann aö sam-
starfsmanni. En núna þýðir ekki
lengur að leiöa hann og Framfara-
flokkinn hjá sér. Afstaða hans í ein-
stökum málum getur ráðið því hvort
stjómin verður felld eða ekki.
„Strútur"
„Maður þyrfti að vera strútur til
þess að sjá ekki hversu alvarlegt
ástandið er — ekki fyrir stjómina
heldur fyrir landið. Það er enginn
raunverulegur möguleiki fyrir hendi
annar en sá að vinna að stuðningi
meirihlutans í hverju einstöku máli
fyrir sig,” segir Káre Willoch í Aften-
posten 28. okt.
Karl I. Hagen hefur lýst því yfir
að af tvennu illu finnist honum hin
borgaralega stjóm Káre Willochs
skömminni skárri en stjórn undir
forystu Gro Harlem Brundtlands og
Verkamannaflokksins. Þaö sem
Karl I. Hagen finnst verst við hægri
flokkinn er að hann sé ekki nógu
langt til hægri og jafnvel að hann sé
hálfgerður vinstri flokkur. Og þó að
Hagen vilji frekar hafa Káre en Gro
við stjómvölinn þá lofar hann engu
um að styðja stjómina. Framfara-
flokkurinn mun fara sínar eigin
götur og þaö er ljóst að Hagen og
flokkur hans mun greiöa atkvæði
gegn stjóminni í mörgum mikilvæg-
ummálum.
Willoch til vinstri?
Fjárlagafrumvarp Willoehs og
stjómar hans hefur vakið óánægju
bæði innan flokksins og í stjómar-
andstööunni. Mörgum hægri mönn-
um finnst Willoch teygja sig of langt í
til vinstri, að ríkisútgjöldin verði
allt of mikil og að öll fyrri loforð mn
lægri skatta séu gleymd og grafin.
Verkamannaflokkurinn er aftur á
móti óánægður vegna þess að honum
finnst að of litlum peningum sé varið
í þágu almennings og þeirra sem
minna mega sín. Og sjálfur hefur
Verkamannaflokkurinn lagt fram
fjárhagsáætlun þar sem reiknað er
með mun meiri opinberum
útgjöldum á mörgum sviðum.
Káre Willoch varar við þessum til-
lögum og segir að sú pólitík sem
Verkamannaflokkurinn vilji fylgja
hafi reynst afar illa, m.a. hjá öðrum
olíuþjóðum. Arangurixm verði
minnkandi samkeppnishæfni,
hækkun verðlags og aukið atvinnu-
leysi í framtíðinni.
Hvar er féð?
En þó að allir viti að ekki er hægt
að ausa olíupeningunum eftirlits-
laust í allar áttir er ekki skrýtið þótt
fólk furði sig á því hvað verður af
öllum auðæfunum.
Sumir vilja minni skatta og aðrir
vilja betri félagslega þjónustu og
fæstir eru ánægðir með gang mála.
Káre Willoch er ekki
öfundsverður af þeim jafnvægisæf-
ingum sem hann verður aö hafa í
frammi næstu fjögur árin ef stjórn
hans á að halda velli.
Björg Eva Erlendsdóttir.
Hagen veldur Willoch áhyggjum.