Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1985, Blaðsíða 14
14
DV. MIÐVKUDAGUR13. NOVEMBER1985.
Spurningin
Fylgist þú með íslenskum
handknattleik?
Jón ísleifsson vélvirki: Voða takmark-
að. Þaö er svo mikið af leikjum í boöi.
Þó fylgist ég með Evrópuleikjum og
öðrum stórleikjum.
Jón Hóimgeirsson kennari, Akureyri:
Nei, alls ekkert. Mér finnst hann
frekar leiðinlegur. Svo er líka mikið
sýnt af þessum boltaleikjum.
Hester Olafsdóttir afgreiðslustúlka:
Nei, ég hef engan áhuga á honum og
hef aldrei haft. Þó fylgist ég meö niður-
stöðum meiriháttar leikja.
Bryndís Eiríksdóttir húsmóðir: Nei,
ekkert. Ég þekki ekkert til handbolt-
ans og áhuginn er eftir því.
örn Lýðssson kerfisfræðingur: Það er
mjög lítið. Það eru helst Evrópuleikir
og landsleikir sem ég hef áhuga á.
Eggert Ólafur Jónsson lögregluþjónn:
Sárah'tið núorðið. Mitt lið, FH, er að
falla og ég búinn að missa áhugann.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
r
Afengismál:
„Höfum fylgt rangri stefnu”
Páll Daníelsson skrifar:
Mikið skelfing hljóta meðlimir
áfengisvamaráðs að hafa lagst í dökkt
þunglyndiskast þann 2. ágúst sl. Þá
var nefnilega birt niðurstaða Gallup-
könnunar á áfengisvenjum tuttugu og
tveggja þjóða auk Islendinga. I stuttu
máli sagt er ástandiö hvergi verra en
hér á landi, þrátt fyrir öll boðin og
bönnin í áfengislöggjöfinni.
Það hlýtur að vera erfitt fyrir bless-
aða forsjáristana að horfa upp á það að
einstrengingsleg afstaða þeirra og
þröngsýni hafi einungis gert illt verra i
þjóöfélaginu.
Auövitað hefur þetta allt veriö gert í
bestu meiningu en nú er sannleikurinn
sem sagt kominn í ljós. Er þá ekki mál
til komiö að hætta vitleysunni?
Hvernig væri að láta nægja að ráð-
leggja fólki og brýna fyrir því hættuna
sem óneitanlega er samfara neyslu
þessa hættulega eiturlyfs?
Eg veit kannski ekki mikið en þó
þori ég að fullyrða aö núverandi okur-
verðstefna og hálfgeggjuð áfengislög-
gjöf valda margfalt ineira tjóni, beint
og óbeint, en þeim er ætlað aö koma í
veg fyrir. Því miður.
Allar tilraunir til að uppræta áfengi
hafa endaö með voveiflegum
afleiðingum, hérlendis sem erlendis.
Glæpasamtök hafa oröiö til, löghlýðnir
borgarar hafa hrasað á vegi dyggöar-
innar og þannig mætti lengi telja.
Sama er að segja um ólöglegu eiturlyf-
in og fíkniefnin. Dómsmálaráðherrann
getur gefiö út eins margar reglugerðir
og hann kemst yfir en þaö þýðir ein-
faldlega að búin eru til ný vandamál í
stað hinna.
Og svona er þetta á öllum sviðum
þjóðfélagsins. Forsjáristarnir halda
áfram að klóra í bakkann og troða
þjóðinni dýpra í skuldafenið. Ef svo
heldur áfram sem horfir fer allt til
fjandans. Það er alveg ljóst aö
Islendingar láta ekki forsjáristana
hafa vit fyrir sér, enda komnir af fólki
sem ekki þoldi ofstjórn.
Enginn lærir af reynslu annarra og
hver er sinnar gæfu smiður, hver
verstur sjálfum sér. Þetta mættu
menn muna. Sjálfur get ég bætt því við
af eigin reynslu að það er hreinlega
náttúrulögmál að eins og maður sáir
þannig mun maður upp skera. Guö
hjálpi okkur.
„Allar tilraunir til að uppræta áfengi hafa endað með voveiflegum afleið-
ingum, hórlendis og erlendis. Glæpasamtök hafa orðið til, löghlýðnir borg-
arar hafa hrasað á vegi dyggðarinnar. . ." segir bréfritari.
„Krónan er verð
lögð of hátt”
Ólafur Á. Kristjánsson skrifar:
Eg vil þakka fyrir forustugrein í
DV 31. okt.
Skrif í þessum dúr eru mesta
nauðsynjamál í dag og síöustu vonir
um aö sjávarútvegur og þar með
efnahagur landsins fari ekki beint til
fjandans fyrir tilverknað stjórn-
valda. Þau eru steinblind í þessum
efnum og eina lausnin til úrbóta er að
þessir framleiðendur fái fyrir vöru
sína það sem útlendingar vilja borga
en ekki þessa skömmtun sem stjórn-
völd hafa. Er það iðkað í svívaxandi
mæli að verðleggja krónuna á allt of
háu verði.
Stúdentaleikhúsið er frægt fyrir vandaðar og framsæknar sýningar. Nýj-
asta verk þess, Ekkó, — guðirnir ungu, er engin undantekning frá þessu
og fær mikla aðsókn.
Stúdentaleikhúsið:
Keflavíkursjónvarpið:
LOKUN ÞESS
OG AFLEIÐINGAR
Vestri skrifar:
Athugasemdar er þörf viö
lesendabréf einhvers „Þjóðólfs” sem
fjallar um lokun Keflavíkursjónvarps-
ins í lesendadálki nýlega og er að
styðja við bakið á fyrrverandi ráð-
herra Alþýðuflokksins, Gylfa Þ. Gísla-
syni, sem sagðist hafa haft forgöngu
um aö láta loka þessu sjónvarpi.
Þjóðólfur segir þetta hárrétta
ákvörðun hjá Gylfa Þ. Gíslasyni og
hann eigi þakkir skildar fyrir. Ekki er
víst að Þjóöólfur tali fyrir munn allra í
þessu máli, og vonandi ekki.
Þjóöólfur segir ennfremur aö okkar
menningu stafi hætta af erlendum
straumum sem berist hingað á öldum
ljósvakans. Ekki er nú trú hans á
menningu okkar sterk ef hann heldur
að þessi hætta sé fyrir hendi.
Síöan segir Þjóðólfur í sama
lesendabréfi: „Nú er svo lítið hlustað á
Keflavíkursjónvarpið, að þaö væri best
að loka því alveg, enda kemur rás 2 í
staðinn.” — Hvað er Þjóöólfur að
fara?
Ef hann meinar að Keflavíkurút-
varpið verði lagt af eða styrkur þess
minnkaður þá fer hann villur vegar.
Því útvarpi verður sem betur fer
aldrei lokað. Og við njótum góðs af því
eins og öörum erlendum útvarps-
stöðvum sem við getum hlustað á.
Vill Þjóöólfur kannski láta loka
möguleikum okkar til þess að ná
almennt til erlendra útvarpsstööva?
„Ekkó—betra en hjá
atvinnuleikurum”
Harpa Karlsdóttir hringdi:
„Eg fór nýlega, ásamt nokkrum
kunningjum mínum, á rokksöngleikinn
Ekkó. Fannst okkur öllum þetta vera
frábært leikrit.
Leikurinn var mjög góður, jafnvel
betri en hjá atvinnuleikurum. Enginn
ofleikur sást og leikarar voru mjög
eðlilegir. Einnig var tónlistin mjög
góð.
Einn leikari var alveg sérstaklega
góður, en hann heitir Stefán og leikur
Njóla skít. Hann var vægast sagt stór-
kostlegur.
Eg hafði ekki gert mér grein fyrir
hversu góður rithöfundur Olafur
Haukur er en þýðing hans á verkinu er
stórkostleg.
Eg hvet alla til að sjá þessa sýningu.
Hún kemur virkilega á óvart miðað við
að þetta er áhugaleikhópur.”
,,Ekki virðist vera hægt að fá neinn til að loka þessari slysagidlru."
ER BEÐIÐ
EFTIR SLYSI?
Vaxtastefnan:
„Skipulagt rán”
Einn á sextugsaldri skrifar:
Hafa menn hugsað um það að við,
sem erum á miðjum aldri og rúm-
lega það, þar með taldir allflestir
þingmenn okkar og embættismenn,
lifðum á og arðrændum foreldra
okkar og þá eldri borgara þessa
lands sem í góðri trú höfðu lagt nokk-
urt fé til hliðar er tímabil óöaverö-
bólgunnar hófst.
Enn í dag gerum við það gott og
þar með taldir allir þingmenn okkar
og embættismenn. En dæmið hefur
snúist við. Nú eru þaö börn okkar og
barnabörn sem við lifum á og arð-
rænum í skjóli rangrar en þaul-
hugsaðrar vaxtastefnu.
Eru til fleiri góð ráð?
Haraldur Guðjónsson:
Alvarlegt ástand er nú við Selja-
skóla í Breiðholti. Skammt frá skólan-
um er vatnstjörn sem er alveg ógirt.
Nú um þessar mundir er hún frosin og
börn sækja mikið í það að leika sér á
henni. Gerist það sérstaklega í löngu
frímínútunum. Aðeins einn kennari er
úti viö til að fylgjast með 76 börnum.
Ekki virðist vera hægt að fá neinn til
aö loka þessari slysagildru. Það er eins
og að það þurfi að verða slys til að eitt-
hvaðverðigert.
Lesendur