Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1985, Blaðsíða 32
FRÉTTASKOTIÐ
Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um .
frétt — hringdu þá i
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i DV, greið-
ast 1.000 krénur og
3.000 krónur fyrir
bésta fréttaskotið i
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
r
MIÐVIKUDAGUR 13. NÓV. 1985.
Hugmyndin um
sérframboð Framsóknar
íReykjavíkog
á Reykjanesi:
„Erum að
talaum
F-lista en
ekki BB”
„I rauninni erum viö aö tala um al-
gert sérframboð framsóknarmanna í
Reykjavík og Reykjaneskjördæmi,
sem yröi þá aö vera til dæmis F-listi.
En ég tek þaö skýrt fram aö þetta eru •
ennþá aðeins hugmyndir einstakl-
inga,” segir Alfreð Þorsteinsson, for-
maöur Framsóknarfélags Reykjavík-
ur.
Sá misskilningur kom upp eftir ræöu
Magnúsar Olafssonar, varaformanns
Sambands ungra framsóknarmanna,
sem hann flutti á Suöurlandi um helg-
ina, að fyrrnefnd sérframboö yröu á
BB-lista. Ætti aö standa þannig að
þeim, yröi að bjóöa einnig fram B-
lista, én hugmyndasmiöirsérframboðs
hafa ekki gert ráö fyrir tveim listum.
Alfreð sagöi að gildi sérfram-
boðanna yrði það eitt aö fullnýta fylgi
framsóknarmanna í þessum tveim
kjördæmum út af fyrir sig. „Þess
vegna yröi aö vera um alveg sjálf-
stæðan lista aö ræða og viö erum aö
tala um F-lista en ekki BB.” Þá sagði
Alfreð að þessi hugmynd væri líklega
fyrst komin úr Reykjaneskjördæmi.
Hún heföi alla vega veriö mun meira til
umræöu þar en í Reykjavík, þar sem
ýmsir heföu þó tekiö undir hana.
-HERB.
Gunnólfsvíkurfjall:
Ýta brann
Frá Jóni G. Haukssyni, blaðamanni
DV á Akureyri:
Jaröýta brann til kaldra kola í
Gunnólfsvíkurfjalli sl. mánudags-
morgun. Haföi hún veriö notuö viö
lagningu vegar upp á f jallið.
„Þaö dettur engum í hug aö hér hafi
verið um skemmdarverk aö ræða. Þaö
er f jarstæöa,” sagöi Arnar Aðalbjörns-
son, eigandi ýtunnar, er DV spuröi
hann um kvitt þess efnis, sem haföi
komiðupp.
BÍLSTJÓRARNIR
AÐSTOÐA
25050
SENDIBÍLASTÖÐIN Hf
LOKI
Allir með gúmmíhanska í
strætó!
í tveimur fjársvikamáium:
Qi/ httccuik
vfVMI I wwvliV
„Hér er annars vegar um aö ræða
opinberar ákærur á tvo stjómar-
menn í fyrirtækinu Mótorskip hf.
vegna faktúrufalsana og söluskatt-
svika vegna innflutnings á bifreið.
Hins vegar er um að ræða mál er
tengist mjög verulegum söluskatt-
svikum. Þar er meginuppistaöan
söluskattsvik, rangfærslur í reikn-
ingsgognum auk bókhaldsbrota,”
sagði Jónatan Sveinsson saksóknari
við DVímorgun.
„I síðara málinu hafa ákærur ver-
ið gefnar út á tvo stjórnarmenn í fyr-
irtækinu Landvéium hf„ tvo starfs-
menn fyrirtækisins og svo forstöðu-
mann tölvuþjónustufyrirtækis. For-
stöðumaöurinn er ákærður fyrir aö
hafa staðið fyrir vísvitandi breyting-
um á tölvuforriti og þannig skotiö
undan verulegum hluta af veltu fyr-
irtækisins,” sagði Jónatan ennfrem-
ur.
„Þaö má því segja að komið sé upp
fyrsta tölvusvikamálið hérlendis,”
sagði Jónatan Sveinsson.
Að sögn saksóknara verður mál
Mótorskips hf. tekið upp fyrir Saka-
dómi Reykjavíkur en mál Landvéia
hf. fyrir Sakadómi Kópavogs. hhei.
Slysíöxnadal:
Tveirá
sjúkrahús
Frá Jóni G. Haukssyni, blaöamanni
DV á Akureyri:
Tveir Húsvíkingar slösuöust í nótt er
bíll þeirra fór út af veginum viö Bæg-
isá í Öxnadal. Voru þeir fluttir á
sjúkrahúsið á Akureyri.
Málsatvik eru þau, aö mennirnir
tveir, sem eru bræöur, voru á leið frá
Reykjavík. Á veginum viö Bægisá í
Oxnadal lenti bíll þeirra á hálkubletti.
Sagðist mönnunum svo frá aö mjög
hvasst heföi verið.
Skipti engum togum aö ökumaðurinn
missti vald á bílnum og fór hann út af
veginum niöur af þrjátíu metra kanti.
Aflíöandi brekka var niður frá kantin-
um og tókst ökumanninum aö halda
bílnum á hjólunum lengi vel. Svo fór þó
að bíllinn valt eina veltu.
Flutningabíll kom nokkru síðar aö
slysstaönum og ók hann mönnunum til
Akureyrar. Þeir voru fluttir á sjúkra-
húsiö á Akureyri. Þar dvöldu þeir í
morgun. Ekki var vitaö nákvæmlega
um meiösl þeirra.
Nýjaþyrlan
ekkibeygluð
„Þetta eru engar beyglur. Þetta eru
neyðarflotin á þyrlunni. Þetta er plast-
klæöning og eðlilegt að hún hafi ekki
svipaða áferð og áliö,” sagöi Páll Hall-
dórsson, tæknistjóri Landhelgisgæsl-
unnar.
I frétt á baksíöu NT í dag meö ljós-
mynd af nýju þyrlu Gæslunnar segir:
„Eins og myndin ber með sér eru
beyglur á húsi þyrlunnar svo eitthvaö
viröist hafa gengið á í reynslufluginu
ytra.”
„Þegar ég skildi viö þyrluna síöast-
liðinn fimmtudag, rétt eftir aö mynd-
irnar voru teknar, var þyrlan í fínu
standi,”sagðiPáll.
Gert var ráö fyrir aö þyrlan legði af
staö frá Marseille í Suöur-Frakklandi
áleiðis til Islands í dag. Brottförin
frestast til morguns, aö sögn Páls,
vegna vandamáls sem upp kom. Sagði
hann aö Frakkarnir þyrftu aö endur-
skoða vigtartölur.
Ef veður leyfir kemur þyrlan til
landsins síödegis á laugardag.
-KMU.
Artnar ,,AiDS-vagninn" í þvotta-
stöð SVR á Kirkjusandi klukkan
eltafu i gærmorgun. Verið er að
þrífa afturendann. DV-mynd S.
TVBR STRÆTISVAGNAR
í SÓTTKVÍ VEGNA AIDS
Tveir strætisvagnar voru haföir í
einangrun í tíu klukkustundir á svæði
SVR á Kirkjusandi vegna ótta starfs-
manna um aö AIDS-veiran leyndist í
vögnunum. Frá miönætti í fyrrinótt til
klukkan tíu í gærmorgun þoröi enginn
starfsmaður aö stíga upp í vagnana.
Það var ekki fyrr en SVR-menn
höföu fengið fullvissu frá heilbrigöis-
yfirvöldum og lögreglunni um að sag-
an um sjúkdóminn hræðilega væri upp-
spuni aö strætisvagnarnir tveir voru
aftur teknir í notkun.
Fjórir lögreglumenn, sem fjarlægðu
illa haldinn útigangsmann úr vagni
við Hlemm skömmu fyrir miönætti í
fyrrinótt, viröast hafa komið sögunni
af staö, samkvæmt framburði vagn-
stjóra.
„Lögreglumennirnir sögöu mér aö
ég ætti ekki að taka á manninum því aö
hann væri AIDS-sjúklingur. Þeir sögðu
að vagninn yröi að sótthreinsa. Við
vorum tveir vagnstjórar sem heyröum
þetta. Svo settu lögreglumennirnir á
sig gúmmíhanska til aö taka mann-
inn.”
tJtigangsmaöurinn haföi verið í
tveimur vögnum, leiö 10, R-14118, og
leið 3. R-14111.1 öðrum vagninum hafði
hann kastaö upp. Vagnarnir voru báðir
teknir úr áætlun og þeim ekið inn á
Kirkjusand.
„Viö tókum þá ákvöröun að koma
ekki nálægt þessu fyrr en viö heföum j
fengiö einhverjar leiöbeiningar frá j
heilbrigðiseftirlitinu eöa læknum um
hvernig ætti að umgangast svona,” Jk
sagöi starfsmaöur á þvottastöö SVR.
Bjarki Eliasson yfirlögregluþjónn
sagði: „Eg talaði við þann sem fór
fyrir lögreglumönnunum og hann kom r f
af fjöllum. Svo að þetta hlýtur að vera
einhvermisskilningurámillimanna.” W
-KMU.
já