Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1985, Page 6
6
DV. MIÐ VIKUD AGUR 27. NÓVEMBER1985.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Verkamannalaun hafa hækkað
meira en áfengisverð á árinu
— samt er verkamaðurinn nærri heilan vinnudag að vinna fyrir brennivínsf löskunni
Mörgum þykir nóg um verð á áfengi
nú eftir nýlega hækkun en staðreynd
er að á einu ári hefur brennivíns-
flaska hækkað um 28,8% en taxta-
hækkun hjá verkamönnum á sama
tímabili er 32%.
Brennivínsflaskan kostaði 590 kr.
í desember í fyrra en kostar nú 760
kr. Algengt viskí kostaði í fyrra 790
kr., kostar nú 1020 kr.
Nú er verkamaður á lægsta taxta
nærri heilan vinnudag að vinna fyrir
því þar sem tímakaupið er 148 kr.
Þannig er hann rúmar 5 klst. að
vinna fyrir brennivínsflösku.
Rauðvínsverð
Ódýrasta franska rauðvínið, sem
við fundum við lauslega yfirferð á
verðlista ÁTVR, kostaði 310 kr. Það
dýrasta kostaði 1330 kr. (12%).
Ódýrsta spánska rauðvínið kostaði
280 kr. en minni verðmunur var á
þeim vínum því það dýrasta var
aðeins 100 kr. dýrara. Ódýrasta ít-
alska rauðvínið var einnig á 280 kr.,
tékkneskt er til á 240 og rússneskt á
220 kr. og það allra ódýrasta var
grískt og kostaði 210 kr. (11,5%).
Hvítvínsverð
Ódýrasta hvítvínið í verðlistanum
var Móselvín á 230 kr. (10%) og það
dýrasta var franskt og kostaði 780 kr.
Lítill verðmunur er á dýrasta og
ódýrasta rósavíninu í verðlistanum.
Ódýrast er portúgalskt á 290 kr. og
það dýrasta spánskt á 330 kr. (11,5%).
Dýrasta kampavínið er franskt og
kostar 790 kr. Það ódýrasta er á 640
kr.
Önnur freyðivín má fá þýskt fyrir
200 kr. og amerískt fyrir 460 kr.
Ódýrasta sérríið reyndist spánskt
og kostaði 380 kr. (18%) og það
dýrasta var einnig spánskt og kost-
aði 540 kr.
Sterku drykkirnir
Ódýrasta viskíið kostar 990 kr. en
algengt verð er 1020 kr. Það dýrasta
er á 1400 kr.
Ódýrasta vodkað kemur frá Aust-
ur-Þýskalandi og kostar 790 kr. en
það dýrasta er á 900 kr.
Dýrasta flaskan sem við fundum í
verðlistanum var Remy Martin
Napoleon sem kostaði 2510 kr.
Innlenda framleiðslan
Islenska brennivínið kostar núna
740 kr., ákavíti 750 kr., hvannrótin
760 kr., bitterbrenníyín 740 kr.,
gamalt ákavíti 800, kr., gamalt
brennivín 790 kr. og kláravfn 740 kr.
Vodka kostar 800 kr. og íslenskt
gin 820 kr. Innlendi séniverinn kost-
ar 780 og 790 kr.
Ódýrasta flaskan í verðhstanum er
sennilega messuvín frá-ÁTVR sem
kostar 160 kr. *
Um hundrað kaupmenn mættu til leiks. Þarna má m.a. sjá þau Hrein
Bjarnason í Hagabúðinni í samræðum við Hrafn Bachmann í Kjöt-
miðstöðinni.
vörukynnin
Vörukynning fyrir kjötkaup-
menn var nýlega haldin i húsi
Afurðasölu Sambandsins á Kirkj-
usandi. Það var Afurðasalan og
Goði sem að kynningunni stóðu.
Sýnt var það helsta sem boðið
verður upp á í jólamatinn og einn-
ig ýmsar nýjungar í fiSamleiðslu
og meðferð kjöts.
Nú er kaupmö:
að láta lambí
meyrna við bestu
Sagt var frá fyrirhugaðri-desemb
erslátrun. . A.Bj
ð upp á
,ga og
FRAMKVÆMD ASTJ ÓRI
Starf framkvæmdastjóra B.S.R.B. er lausttil umsóknar.
Umsóknir berist skrifstofu B.S.R.B., Grettisgötu 89, fyrir
15. desember nk.
Upplýsingar gefur formaður bandalagsins.
Stjóm B.S.R.B.
Ótal tegundir eru til í útsölum ÁTVR sem eru hins vegar ekki nema á þremu
í höfuðborginni!
Réttur dagsins
í bókarformi
“Réttur dagsins - gómsætur gæða-
matur“ nefnist ný íslensk mat-
reiðslubók sem Hörpuútgáfan á
Akranesi hefur gefíð út. Höfundur
er Margrét Þorvaldsdóttir.
f bókinni er að finna uppskriftir
sem höfundur hefur birt í dálkum
dínum í Morgunblaðinu.
Höfundur hefur dvalist erlendis og
kynnst matargerð og venjum ýmissa
þjóða. í bókinni er bæði að finna
erlendar uppskriftir og einnig frums-
amdar. Lögð er áhersla á að upp-
skriftirnar séu auðveldar til matar-
gerðar og gætt er hófs í hráefnis-
kostnaði.
Bókin Réttur dagsins er 112 bls.
Hún er prýdd litmyndum sem Magn-
ús Hjörleifsson tók. Prentsmiðjan
Oddi annaðist setningu, litprentun
og bókband.
A.Bj.
í bókinni er að finna girnileg
rétti sem gieðja augað og dekr
við bragðl aukana, segir m.a.
foonála bókarinnar. Á myndinr
eiNAMHíABmn, Margrét Þoi