Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1985, Síða 27
DV. MIÐ VIKUD AGUR 27. NÓVEMBER1985.
27
Peningamarkaður
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stœður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65-74 ára geta losað inn-
stæður með 6 mánaða fyrirvara, 7S ára og
eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningam-
ir eru verðtryggðir og með 8% nafnvöxtum.
Þriggja stjömu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með
9% nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá
lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafn-
vextir eru 29% og ársávöxtun 29%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir
27% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mánuði
án úttektar upp í 33%. Ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu er 33,5% á fyrsta ári.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sér-
vöxtum, Gullbókin, er -óbundin með 34%
nafnvöxtum og 34% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðrétt-
ingu.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 36% nafnvöxtum og
39,2% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða
verðtryggðs reiknings reynist hún betri.
Iönaðarbankinn: Bónusreikningar eru
annaðhvort með 28% nafnvöxtum og 30%
ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3,5%
vöxtum. Hærri ávöxtunin gildir hvem mánuð.
Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging
auk 2% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka
má út tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án
þess að vaxtakjör skerðist. Vextir em færðir
30.06. og 31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
34% nafnvöxtum og 34% ársávöxtun eða
ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings
reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast
1,7% í svonefhda vaxtaleiðréttingu.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
jhefur stighækkandi vexti á hvert innlegg,
fyrst 22%, eftir 2 mánuði 23,5%, 3 mánuði
25%, 4 mánuði 26,5%, 5 mánuði 28%, eftir 6
. mánuði 29,5% og eftir 12 mánuði 31,6%.
Ársávöxtun á óhreyfðu innleggi er 34,1%, eða
eins og á 3ja og 6 mánaða verðtryggðum
reikningum reynist hún betri. Vextir færast
tvisvar á ári.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort
hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í
bankanum, nú 34,6%, eða ávöxtun 3ja mán-
aða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxt-
um sé hún betri. Samanburður er gerður
mánaðarlega en vextir færðir í árslok. Sé
tekið út af reikningnum gilda almennir spari-
sjóðsvextir, 22%, þann mánuð.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er
óbundinn. Þá ársfjórðunga sem innstæða er
óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu
sinni eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár-
reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun
annaðhvort 34,8% eða eins og á verðtryggðum
6 mánaða reikningum með 3,5% nafnvöxtum.
Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari-
sjóðsvextir, 22%, og eins á alla innstæðuna
innan þess ársQórðungs þegar tekið hefur
verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax
hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila
ársfjórðung.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
með svokölluðum trompvöxtum, 32%, með
34,3% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn-
stæðu í hverjum ásfjórðungi. Reynist tromp-
vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt
á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn-
an mánaðar bera trompvexti sé reikningurinn
eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari-
sjóðsvexti, 22%. Vextir færast misserislega.
Spariskírteini
Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í
Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum.
Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og
100 þúsund krónur.
Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára en
innleysanleg eftir þrjú ár, 10.09.88. Nafnvextir
7%. Vextir, vaxtavextir og verðbætur greiðast
með höfuðstól við innlausn. Með vaxtamið-
um, skírteini til mest 15 ára, innleysanleg
eftir 5 ár, 10.09.90. Vextir eru 6,71% á höfuð-
stól og verðbætur, reiknaðir misserislega og
greiddir út gegn framvísun vaxtamiða. Verð-
bætur greiðast með höfuðstól við innlausn.
Með hreyfanlegum vöxtum og 50% vaxta-
auka, til 18 mánaða eða 10.03.87. Vextir eru
meðaltal vaxta á 6 mánaða verðtryggðum
reikningum bankanna og með 50% álagi.
Vextir, vaxtavextir, vaxtaauki og verðbætur
greiðast með höfuðstól við innlausn. Gengis-
tryggö skírteini eru til 5 ára, 10.09.90. Þau
eru bundin safngjaldeyrinum SDR og bera 9%
vexti. Vextir og vaxtavextir greiðast við inn-
lausn með höfuðstól, í samræmi við stöðu
SDR.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða óverð-
tryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Þau
eru seld með afföllum og ársávöxtun er al-
mennt 12-18% umfram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins, F-lán, nema á 4. ársfjórðungi 1985: Til
einstaklinga 720 þúsundum króna, 2-4 manna
fjölskyldna 916 þúsundum, 5 manna og fleiri
1.073 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik-
um) 1.237 þúsundum. Lánin eru til 31 árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema
á 4. ársfjórðungi 1985: Til kaupa í fyrsta sinn
er hámark 348 þúsund krónur til einstaklings,
annars mest 139-174 þúsund. 2-4 manna fjöl-
skylda fær mest 442 þúsund til fyrstu kaupa,
annars mest 177-221 þúsund. 5 manna Qöl-
skylda eða stærri fær mest 518 þúsundir til
fyrstu kaupa, annars mest 207-259 þúsund.
Lánstími er 21 ár.
Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól,
aðeins vex.tir og verðbætur.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp-
hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að láns-
rétti er 30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin
stig. Lán eru á bilinu 150-700 þúsund eftir
sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð-
tryggð og með 5-8% vöxtum. Lánstími er 15-35
ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í eitt ár og reiknaðir
í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir
og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til
vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri
en nafnvextimir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
22% nafnvöxtum verður innstæðan í lok
tímans 1220 krónur og ársávöxtunin þannig
22%.
Liggi 1000 krónur inni í 6 + 6 mánuði á 22% •
nafnvöxtum reiknast fyrst 11% vextir eftir 6
mánuði. Þá er upphæðin orðin 1110 krónúr.
Á hana koma svo 11% vextir eftir næstu 6
mánuði. Þannig verður innstæðan í lok tím-
ans 1232 krónur og ársávöxtunin 23,2%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru 3,75% á mánuði eða 45%
á ári. Dagvextir reiknast samkvæmt því
1,125%.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í nóvember 1985 er 1301
stig en var 1266 stig í október. Miðað er við
grunninn 100 í júní 1979.
Byggingarvísitala á 4. ársíjórðungi 1985
er 229 stig á grunninum 100 frá janúar 1983
en 3392 stig á grunni 100 frá 1975.
VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) 11.-20 11.1985
INNLÁN MEÐ SÉRKJÖRUM sjAsérlista il ii II ÍiÍiiM
INNLÁN ÚVERÐTRYGG0
SPARISJÖÐSBÆKUR Öbundin innstæfta 22.0 22,0 22,0 22.0 22,0 22.0 22.0 22,0 22,0 22.0
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 25,0 26.6 25.0 25,0 23.0 23.0 25.0 23.0 25.0 25.0
6 mán.uppsögn 31,0 33,4 30.0 28.0 28,0 30.0 29.0 31.0 28.0
12mán.uppsÖQn 32,0 34.6 32.0 31.0 32.0
SPARNAÐUR - LÁNSRÉTTUR Sparnð 3 5 min. 25,0 23.0 23.0 23.0 23.0 25.0 25,0
Sp. Bmán.ogm. 29.0 26,0 23,0 29.0 28.0
INNLÁNSSKlRTEINI Til 6 mánafta 28.0 30.0 28.0 28.0
TÉKKAREIKNINGAR Avisanareikningar 17.0 17.0 8.0 8.0 10.0 8.0 8.0 10.0 10.0
Hlaupareikningar 10.0 10.0 8.0 8.0 10.0 8.0 8.0 10.0 10.0
innlAnverðtryggð
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsogn 2.0 1.5 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 2.0 1.0
6 mán. uppsögn 3.5 3.5 3.5 3.5 3.0 3.0 3.0 3.5 3.0
innlAn gengistryggð
GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarlkjadollarar 8.0 8.0 7.5 7.0 7.5 7.5 7.5 7.5 8.0
Sterlingspund 11.5 11.5 11.0 11.0 11.5 11.5 11.0 11.5 11.5
Vestur-þýsk mörk 5.0 4,5 4.25 4.0 4.5 4.5 4.5 5.0 4.5
Danskar krónur 10.0 9.5 8.0 8.0 9.0 9.0 9.0 10.0 9.0
útlAn úverðtryggð
ALMENNIRVlXLAR (lorvextir) 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0
VIÐSKIPTAVlXLAR (forvextir) 34.02) kg. 32.5 kga 32.5 kge kga kge 34.0
ALMENN SKULDABRÉF 32.0 3) 32,0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0
VIÐSKIPTASKULDABRÉF 35.02) kga 35.0 kge 33.5 kge kga kga 35.0
HLAUPAREIKNINGAR YFIRDRATTUR 31,5 31.5 31,5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5
útlAn verðtryggð
SKULDABRÉF Að 21/2 éri 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0
Lengri en2 1/2 ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0
útlAntilframleioslu
sjAneðanmAlsi)
1) Lán til innanlandsframleiðslu eru á 27,5% vöxtum. Vegna útflutnings, í SDR 9,5%,
í Bandaríkjadollurum 9,75%, í sterlingspundum 12,75%, í vestur-þýskum mörkum 6,25%.
2) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum er miðað við sérstakt kaup-
gengi, kge, hjá þeim bönkum san þannig er merkt við, einnig hjá sparisjóðunum í
Hafharfirði, Kópavogi, Keflavik, Sparisjóði Reykjavíkur og Sparisj. vélstj.
3) Vaxtaáiag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2% á ári, bæði á verðtryggð og
óverðtryggð lán, nema í Alþýðubankanum og Verslunarbankanum.
Sandkorn Sandkorn
Höskuldur Jónsson.
Heimsendir
happdrættis-
miðar
Höskuldur Jónsson, ráðu-
neytisstjóri í fjármálaráðu-
neyti, hefur nokkrar
áhyggjur af Sandkorni sem
birtist í DV sl. mánudag.
Þar var sagt frá óbreyttum
rikisstarfsmanni, alnafna
Höskuldar, sem fékk í
hendur launatékka ráðu-
neytisstjórans í stað síns
eigin. Samkvæmt tékkan-
um átti ráðuneytisstjórinn
að hafa 228.000 í laun, en sá
óbreytti 22.000.
Höskuldur segir það fjarri
sanni að hann hafi svo
mikil laun. T.d. hali „út-
borguð laun“ hans I. októb-
er sl. numið 23.424 krónum
og verið þaðan af lægri um
síðustu mánaðamót.
Það er leitt til þessa að
vita. Eins væri fróðlegt að
fá vitneskju um heildarlaun
ráðuneytisstjórans. En það
erönnursaga.
Raunar segir Höskuldur í
athugasemd sinni að svona
frásagnir af launamálum
hans geti skapað margan
vandann, t.d. margfalt
magn heimsendra happ-
drættismiða frá því sem
verið hafi!
o
Okraðá
leigjendum
Það er með ólíkindum
hversu sumt fólk getur
notfært sér bágindi ann-
arra. Til dæmis eru til mörg
hrikaleg dæmi um okur á
húsáleigumarkaðinum.
Hér er eitt:
Tvær erlendar stúlkur
hafa verið að leita sér að\
leiguhúsnæði í Reykjavík
að undanförnu. Þær hyggja
ekki á stórt í byijun, enda
hálfblankar.
Sumir vilja okra á leigj-
endum.
Þeim hefur boðist ýmis-
legt en leigan yfirleitt verið
mjög há. Þó tók steininn
úr þegar þeim bauðst eitt
herbergi í Auðbrekkunni í
Kópvogi á litlar 7000 krónur
á mánuði. Herberginu
fylgdu engin húsgögn. Hins
vegar áttu stúlkurnar að
þrifasameiginlega eldunar-
aðstöðu, tvö salerni og
sameiginlegan gang. Og
það er ekki allt búið enn,
þvi þær áttu einnig að
greiða þrjá mánuði fyrir-
fram.
Vitaskuld gengu þær ekki
að þessum nauðungarkost-
um en vafalaust finnst ein-
hver sem er nauöbeygður
til að taka húsnæði á þess-
um kjörum. Og það veit
húseigandinn.
o
Vildu ekki
ræða matinn
Fundargerðir geta oft
verið hvalreki, sérstaklega
ef ritarar eru duglegir við
að bóka. Við rákumst á
eina slika frá bæjarstjórn
Garðabæjar. Þar tók meðal
annarra til máls Hilmar
Ingólfsson og segir svo frá
þeim ræðuhöldum í fundar-
gerðinni:
„Þá gerði Hilmar matar-
mál kennara að umræðu-
efni og lýsti framkvæmd
þeirra mála.
Forseti bæjarstjórnar
óskaði nú eftir því aö fram
kæmi tillaga frá ræðu-
manni um þetta matarmál
á næsta bæjarstjórnar-
fundi, þar sem það væri
ekki á dagskrá nú, eða þvi
yrði vísaö til bæjarráðs, en
því var ekki sinnt.
Forseti benti þá Hilmari
Ingólfssyni á að matarmál
væru ekki til umræðu á
þessum bæjarstjórnar-
fundi.Gaf hann ræðumanni
tvær mínútur til að Ijúka
málisínu.
Hilmar sagði það hafa
verið samþykkt að matur
skyldi vera sameiginlegur
fyrir kennara allra skóla
bæjarins..."
Segir ekki frekar af mat-
armálum kennara í
Garðabæ. En vonandi fá
{>eir allir í svanginn svo sem
þeir þurfa.
o
Fram-
tíðarspá
Þessi er að austan:
Kennslukona ein á Aust-
urlandi var að skriða á eft-
irlaunaaldurinn. Hún var
þvi að hætta kennslu.
Þess vegna hélt hún
hjartnæma ræðu yfir nem-
endum sinum þar sem hún
tjáði þeim að það færi nú
að styttast i þessu hjá sér.
Það þýddi þó ekki að hún
væri skilin að skiptum við
englana því þau myndu
ugglaust hittast aftur hjá
Guði.
Þá hvein í einum pollan-
um:
„Ekki mig! Ég á að verða
bóndi og pabbi segir að
landbúnaðurinn sé að fara
tilhelvitis.“
Umsjón:
JóhannaS. Sigþórsdóttir.
<
<
Hér sést hin sigursæla skáksveit Búnaðarbankans með hinn veglega farandbikar sem þeir tóku við úr
hendi Sigurðar Helgasonar, forstjóra Flugleiða. Sveitina skipa þeir Jóhann Hjartarson, Margeir Pétursson
og Bragi Kristjánsson.
DV-MyndPK.
Flugleiðamótið:
BÚNAÐARBANKINN SIGRAÐI
ENN EINU SINNI
— Margeir Pétursson vann allar skákir sínar
Það fór svo að enginn gat veitt hinni
sterku sveit Búnaðarbankans
keppni. Sveitin sigraði enn einu sinni
og hefur nú unnið þessa keppni í
fimm skipti af þeim sjö sem hún hefur
verið haldin.
Röð sveita varð eins og hér segir:
1. Búnaðarbankinn með 63 1/2 vinn-
ing. 2. Ríkisspítalamir með 59 vinn-
inga. 3. Flugleiðir með 551/2 vinning.
4. Skákfélag Akureyrar með 46 1/2
vinning. 5. Útvegsbankinn með 46
vinninga. Flugleiðasveitin afsalaði
sér sæti sínu til Akureyringa því
þeir vildu ekki vera að halda mót
og hirða vinninga þar.
Sigursælastir einstaklinga urðu
þessir: Á íyrsta borði fékk Jóhann
Hjartarson 21 1/2 vinning af 23
mögulegum. Karl Þorsteinsson fékk
20 vinninga og Jóhann G. Jónsson
fékk 18 1/2 vinning. Á öðru borði
náði Margeir Pétursson þeim ein-
stæða árangri að vinna allar sínar
skákir, fékk hann því 23 vinninga.
Hefur það aldrei gerst áður á þessu
móti að keppandi vinni allar sínar
skákir. Þröstur Þórhallsson fékk 20
1/2 vinning og Áskell ö. Kárason
fékk 16 1/2 vinning. Á þriðja borði
fékk Davíð Ólafsson flesta vinninga
22 1/2 vinning, gerði aðeins eitt jafh-
tefli. Bragi Kristjánsson fékk 19
vinninga og þorsteinn Þorsteinsson
171/2 vinning.
Verðlaunin voru veglegur farand-
bikar sem sveit Búnaðarbankans
varðveitir eitt árið enn. Einnig fengu ■
þeir sveitarverðlaun sem var ferð til ,
Akureyrar. Einstaklingsverðlaunin i
voru mjög vegleg eða ferðavinningar ;
milli landa.
Það voru hátt í 100 manns sem \
kepptu á mótinu og menn voru mjög i
ánægðir með mótið en það stóðst |
mjög vel tímaáætlun undir öruggri
mótsstjóm þeirra Andra Hrólfssonar ‘
og Hálfdáns Hermannssonar. SMJ.