Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1985, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1985, Side 36
FRÉTTASKOTIÐ (68) •(78) .(58) Ritstjóm, auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022 Hafir þú ábendingu ' eða vitneskju um frátt — hringdu þá il ■ima 68-78-58. Fyrir hvert fráttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greið- ast 1.000 krönur og 3.000 krönur fyrir besta fréttaskotið í hverri viku, Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 1985. Patreksfjörður: Andanefja > fannst rekin Óvenjulegur hvalur fannst rekinn í skersbugnum rétt innan við Sand- odda í Patreksfirði í gærmorgun. Var það andanefja af tannhvalaætt.Þessi hvalategund mun mjög sjaldgæf þar um slóðir. Þórir Stefánsson, bóndi á Hval- skeri, sagði í samtali við DV að andanefjan væri sjö metrar að lengd. Kvaðst hann ekki hafa séð þessa tegund fyrri inni í firðinum. „Það hafa tveir hvalir verið að lóna jjg^hér í firðinum undanfarnar þrjár vikur,“ sagði Þórir. „Þeir voru stundum alveg upp undir landi og höguðu sér að því leytinu hálfundar- lega. Það var svo í gærmorgun að ég fann annan þeirra rekinn á land. Það gerði þoku hér í fyrradag og ég er að ímynda mér að hvalurinn hafi þvælst of nálægt landi og lent á grynningum." Hvalurinn hefur nú verið fluttur í hvalvinnsluna Flóka á Bijánslæk þar sem hann verður nýttur. „Þeir steiktu sér bita af honum í gær og "®^ikaði bara mjög vel,“ sagði Þórir. - JSS Rjúpnaskyttur áratsjárvegi Frá Aðalbirni Arngrímssyni, fréttaritara DV á Þórshöfn. Tæplega hefðu rjúpnaskyttur á Þórshöfn getað hugsað sér betri leið til rjúpnaveiðilanda sinna í Austur- fjöllum en hinn nýja ratsjárveg sem nú er verið að leggja upp á Gunnólfs- víkurfjall. Beggja vegna vegarins eru hin Jiestu ijúpnaveiðilönd, hlíðar Gunn- ólfsvíkurfjalls að sunnan en Fagra- nesfjöll að norðan. Má því reikna með allmikilli umferð um ratsjár- stöðvarveginn, bæði af rjúpnaskytt- um og fólki sem ekur upp á Gunn- ólfsvíkurfjall' til að njóta hins mikla útsýnis þaðan. » — LOKI Brandarabandalagið hlýt- ‘ur að fá Ladda í framboð. Fær ekki að halda sérhönnuðu númeri „Ég keypti bílinn í Frakklandi og lét gera þetta númer sér fyrir mig hjá verksmiðjunni þannig að það félli að bílnum. Þegar ég síðan kem hingað til lands og ætla að skrá bílinn fæ ég ekki að halda númerinu. Það er þó ekki við starfsmenn Bifreiðaeftirlitsins að sakast, reglumar eru einfaldlega þannig,“ sagði Hörður Ólafsson lögfræðingur, eigandi Renault- bifreiðarinnar sem ber þetta um- deilda númer. „Það verða allir að vera með eins númer hér hvort sem það er 10 tonna trukkur eða lítill fólksbíll eins og minn. Finnst mér það ómögulegt, sérstaklega fagurfræði- lega séð. Það stóð til að klippa númerið af bílnum en það hefur ekki verið gert ennþá. Ég sendi dómsmálaráðuneytinu skeyti þar sem ég bað um að fá að halda númerinu vegna þess að það er sérhannað og það gæti spillt útliti bílsins að taka það af. Það mundi jafnvel skemma hann að nokkru því númerin eru hnoðuð á,“ sagði Hörður. „Þegar ég fór svo í mína þriðju ferð upp í Bifreiðaeftirlitið var ég boðaður inn á skrifstofu til Guðna Karlssonar sem sagði mér að dómsmálaráðuneytið hefði haft samband við sig en ekki til að gefa mér grænt ljós eins og ég átti von á. Tók ráðuneytið skýrt fram að plötumar þyrftu að vera eftir sett- um reglum. Það er því ekki séð fyrir endann á þessu ennþá.“ Undanþágur ekki gerðar í dómsmálaráðuneytinu fengust þær upplýsingar hjá Ólafi W. Stef- ánssyni skrifstofustjóra að engar undanþágur væru gerðar. „Það eru alveg ákveðnar reglur um þetta. Það eiga að vera ákveðin skráning- amúmer á bílum af ákveðinni gerð. Númerin eiga að vera af þeirri gerð sem Bifreiðaeftirlitið lætur í té. Það era ákveðnar reglur um stærð og gerð stafa í bifreiðanúmeram. Það er ekki gert ráð fyrir undan- þágum frá þessum reglum," sagði Ólafur. Hjá Guðna Karlssyni í Bifreiða- eftirlitinu fengust þær upplýsingar að það væra ákveðnar reglur um stærð og gerð númera og frá því væra ekki gerðar undantekningar, það væri látið jafht yfir alla ganga. - SMJ. Hér sést númerið umdeilda og er ekki annað að sjá en það falli vel að og sé greinilegt þó það sé ekki í samræmi við reglugerðir. Valgerður Bjarnadóttir um borgarstjómarframboö BJ og krata: rr Besti brandarí sem ég hef heyif’ „Á meðan Bandalagið var og hét Var þetta besti brandari sem ég heyrði og það hefur ekkert breyst frá minni hálfu," segir Valgerður Bjamadóttir um þá hugmynd að Bandalag jafnaðarmanna og Al- þýðuflokkurinn bjóði fram sameig- inlegan lista til borgarstjómar í Reykjavík. Þessi hugmynd hefur verið rædd að undanfömu í einkasamtölum. Það er opinberlega staðfest af Ste- fáni Benediktssyni og Jóni Baldvin Hannibalssyni. Valgerður segir að sams konar hugmynd hafi komið upp hjá einstaka manni í BJ áður. „Ef menn vilja vera í sama pólit- íska leiknum og stundaður er af kerfisflokkunum eiga þeir auðvitað hreinlega að vera í einhveijum þeirra.“ „Mér finnst að núverandi þing- flokkur Bandalagsins allur hafi farið út á allt aðrar brautir en ég hefði kosið. Nú veit í rauninni enginn hvað eftir er af Bandalag- inu eða hvaða fólk mætir á lands- fund eftir viku. Og ekkert hvað út úr þeim fundi kemur. Það er hugs- anlegt að menn séu almennt á leið- inni út og velji sér þá mismunandi leiðir. En ef ég væri í þeim hugleið- ingum gengi ég ekki f Alþýðuflokk- inn,“ segir Valgerður Bjarnadóttir. HERB STOLINNUMERA STOLNA BILA Grandagarði, við bækistöð Reykja- Þremur bílum var stolið af bílasölu í Reykjavík um helgina. Allir bílam- ir fundust fljótlega. Þá vora þeir komnir með nýjar númaraplötur. Tveir bílanna vora með M-númerum. Einn maður var handtekinn þegar hann var kominn undir stýri eins bílsins. Ýmislegt annað þýfi fannst í bílnum. Maðurinn var yfirheyrður hjá RLR og er mál hans í rannsókn. i Grunuri leikur á að bílaþjófnaður- inn tengist öðrum þjófnaðarmálum. í síðustu viku var brotist inn í húsnæði þar sem framleidd era bíl- númer. Stolið var mörgum núm- eraplötum. Bílamir þrír, sem stolið var, vora með stolin númer. Þeir fundust á þremur stöðum í Reykja- vík. Fyrsti bíllinn fannst vestur á vikurhafnar. Þar var þá búið að stela talstöðvum. Annar bíllinn fannst vestur í bæ og þriðji bíllinn á Grettis- götunni. Þar stóð hann við Sparisjóð Reykjavíkur. { bílnum fannst þýfi. Lögreglan hafði vakt við bílinn og gómaði mann þegar hann settist undir stýri. Ekki von á uppsögnum — segir forstjóri Landsvirkjunar Halldór Jónatansson, forstjóri Landsvirkjunar, segir engan fót fyrir frétt dagblaðsins NT í morg- un um að fjöldi manns í bygging- ar- og verkfræðideild fyrirtækis- ins geti átt von á uppsögnum á næstunni. NT telur sig hafa áreiðanlegar heimildir fyrir því að í tillögum til hagræðingar sé gert ráð fyrir fækkun mannafla. Halldór Jónatansson sagði DV í morgun að samdráttur hefði orðið i framkvæmdum Lands- virkjunar en eins og sakir stæðu væri stefnt að gangsetningu Blönduvirkjunar árið 1989. Stjómarsamþykkt væri fyrir því að taka þá tímasetningittil end- urskoðunar fyrir 1. febrúar og í allra síðasta lagi fyrir 1. júlí á næsta ári. Ennfremur stæðu yfir viðræður um kísilmálmverk- smiðju á Reyðarfirði og milli Alusuisse og Kinverja um stækk- un álversins í Straumsvík. „Meðan þessir möguleikar eru að skýrast reikna ég ekki með breytingum á mannafla," sagði Halldór og kvað enga tillögu fram korana um slikt. KMU. - SOS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.