Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1985, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1985, Side 6
6 DV. MÁNUDAGUR 23. DESEMBER1985. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Bilaðar jólaseríur geta verið hættulegar Gömul inniloftnet fyrir sjónvarp geta valdið alvarlegum slysum. Ef þið eruð með slík loftnet í notkun gangið þá úr skugga um að á þeim séu réttir tenglar og í þau hafi verið settir öryggisþéttar. Ýmiss konar jólaskraut er þannig gert að ljósaperu er komið fyrir inni í skrautinu. Þetta eru t.d. kirkjur, bómullarhús, stjömur í glugga, sem oft eru úr pappa, plasti eða öðru eldfimu efni. Gætið þess að nota aldrei sterkari perur en 15 vött í slíkar skreyting- ar. En athugið að 15 vatta perur hita þónokkuð út frá sér og því mega þær ekki komast í samband við brennanleg efni. ’ Ef jólatrésserían er farin að bila þá borgar sig ekki að gera við hana. Kaupið nýja seríu og gætið þess að eiga nóg af varaperum af réttri stærð. Við kaup á seríum er rétt að ganga úr skugga um að hún sé, eins og önnur raftæki, viðurkennd af Rafinagnseftirliti ríkisins. Fyrir nokkrum árum vom á markaði hér jólaseríur sem voru varhugaverðar; með lélegri ein- angrun, leiðslur grannar og tengi- klær og peruhöldur ólöglegar og jafnvel hættulegar. Með öllum jólaseríum eiga að fylgja upplýsingar á íslensku um gerð eða tegund og hvort þær séu öryggisleiðbeiningar f rá Raf magnseftirlitinu til inni- eðá útinotkunar. Jólaseríur, sem nota á utanhúss, verða að vera vatnsvarðar og við- urkenndar til útinotkunar. Fram- lengingarsnúrur þurfa að vera vatnsvarðar, annars er hætta á útleiðslu. Gætið að því að seríurnar sláist ekki utan í vegg, trjágreinar eða handrið úr málmi. Takið ser- íuna úr sambandi þegar skipt er um pem. Hættuleg leikföng Skrautlegur lampi, sem líkist brúðu, getur freistað til leikja hjá litlum bömum. Hugsanlega gæti kviknað í þannig lampa ef barn sofnaði með hann undir sænginni. Rafmagnseftirlitið hvetur fólk til þess að koma ekki með slysagildmr inn á heimilin. Hér hafa verið á markaðnum leikföng sem ganga fyrir rafmagni beint frá rafveitu. Þar er um að ræða smækkaðar útgáfur af heimil- istækjum eins og straujám eða vöfflujám. Slík leikföng em hættu- leg og algjörlega ólögleg. Þeim verður að fylgja sérstakur öryggis- spennubreytir eða leikfangaspenn- ir sém Rafmagnseftirlitið hefur samþykkt og breytir 220 volta spennu í lágspennu sem er ekki nema 24 volt. Gamalt inniloftnet sem getur verið stórhættulegt. Ef klónni er stungið i samband við raftengil og tekið í stangirnar er voðinn vís. Notið alls ekki svona loftnet. Það er aldrei að vita hverju óvitar geta tekið upp á. Mjög áríðandi er að allur örygg- isbúnaður í rafmagnstöflunni sé í lagi og notuð séu rétt öryggi en ekki eitthvert bráðabirgðaöryggi sem getur verið stórhættuleggt. Þegar fólk verður fyrir raflosti með því að snerta samtímis tvö rafmagnstæki eða rafmagnstæki og vask eða krana með hinni hendinni er ástæðan sú að öryggisbúnaður- inn vinnur ekki eins og hann á að gera. Rafmagnseftirlit ríkisins hvetur húsráðendur til þess að láta lögg- iltan rafverktaka líta á rafkerfið hjá sér ef nokkur vafi leikur á að öryggið sé nægilega tryggt. -A.Bj. Það er góð tilfinning að eiga kringlur, bollur eða brauð í frysti og geta á augabragði fengið nýbakað með kaffinu. DV-mynd GVA Nýbakað á jóladag Ilmandi og nýbakaðar kringlur með morgunkaffinu á jóladag? Hljómar ofsalega vel en hver nenn- ir að fara að baka á sjálfan jóladag? Það er líka alveg óþarfi. Hægt er að baka jólabrauðið sitt fyrir- fram og frysta það. Gerbakstur er alveg tilvalinn til frystingar og er honum síðan brugðið sem snöggv- ast í heitan ofn eða örbylgjuofn. Þá er baksturirm alveg eins og nýbakaður. Héma er kringluuppskrift - má raunar baka þetta deig í hvaða mynd sem er, sem fléttubrauð, boll- ur eða kringlur eins við gerðum. 5 dl mjólk eða vatn 50 g ger 75 g smjörl. 2 tsk. salt 6 dl grahamsmjöl eða annað - gróft mjöl 8 dl hveiti 2-3 msk. kúmen Velgið mjólkina eða vatnið í ca 37 gráður og látið gerið út í. Yljið smjörlíkið og bætið því út í vökv- ann, bætið svo mjölinu, salti og hveiti út í og hnoðið þar til deigið er orðið hæfilegt. Ekki nota allt hveitið í fyrstu umferð. Látið deigið hefast þar til það er orðið tvöfalt að rúmmáli. Breiðið hreinan klút yfir skálina og látið hana standa við heitan miðstöðva- rofh. Þá er deigið hnoðað upp á nýtt og bætt í það afganginum af hveitinu. Búið til kringlur, bollur eða brauð, látið á plötu og látið hefast aftur um 20 mín., á heitum stað undir hreinum klút. Ef þið hafið búið til smábrauð eða kringlur bakast þau í ca 10 mín. (eða skemur) í 225 gráðu heitum ofni en stærri brauð eru bökuð við aðeins minni hita eða um 200 gráð- ur og þá í lengri tíma eða í 20 mín. Þegar á að frysta gerbakstur er best að láta hann í frysti á meðan hann er enn aðeins volgur. Þá helst brauðið alveg eins og nýtt. A.Bj. Laufabrauðsskurður f Nessókn: Aldaðir í Nessókn í laufabrauðsskurði „Það voru þarna hjón að norðan, Debora og Ástvaldur, og þau urðu mjög glöð þegar stungið var upp á að það yrði skorið út laufabrauð. Við keyptum kökurnar tilbúnar hjá Ömmubakaríi í Kópavogi og svo skáru gestir okkar út af mikilli kostgæfni, sagði Jóna Hansen, sem unnið hefur mikið starf fyrir félags- starf aldraðra í Nessókn. Prestshjónin Jóna og Stefán Snævarr kenndu þeim sem ekki kunnu á útskurðinn hvemig ætti að bera sig til. Það var bæði skorið með jámi og hníf. Að því loknu tók Ingibjörg Þórarinsdóttir, skóla- stjóri Hússtjómarskóla Reykjavík- ur, við kökunum og steikti. Naut hún aðstoðar Gunnlaugs Snævarr. Það em 70 til 140 manns sem mæta í félagsstarfið á laugardögum kl. 3-5 í safnaðarheimili Neskirkju. Það em ekki eingöngu vestur- bæingar. Jóna sagði að þeir væru fjölmennastir en allir eru velkomn- ir. Kvenfélagið í Nessókn sér um kaffisölu fyrir þá sem koma en auk þess annast kvenfélagið um föndur og spil á þriðjudagseftirmiðdögum. Það eru prestar Nessafnaðar sem standa fyrir þessum laugardags- samkomum og skipta þeir árinu á milli sín. Nú er tímabili sr. Franks M. Halldórssonar að ljúka en um áramótin tekur sr. Guðmundur Óskar Ólafsson við. Fjölmargir af þekktustu lista- mönnum þjóðarinnar hafa komið í heimsókn í félagsstarfið og skemmt öldruðum. Þá hefur einnig verið farið í ferðalag á sumrin. Á sl. sumri var t.d. farið í fimm daga ferð um Vestfirði, sagði Jóna Hansen. -A.Bj. Það voru miklar bollaleggingar í sambandi við skurðinn á laufa- brauðinu. Sumir höfðu ekki gert þetta í mörg ár en aðferðirnar rifjuðust fljótt upp. DV-mynd KAE Betra að sjóða hamborgarhrygginn Góð matreiðsluaðferð á ham- borgarhrygg er að sjóða hann fyrst og „glassera" hann svo í heitum ofni í smástund. Gætið þess að láta kjötið ekki bullsjóða - smakkið á soðinu og athugið hvort það er hæfilega salt. Stundum er hamborgarhryggurinn alltof saltur og þá verður að skipta um vatn á honum þegar hann er soðinn. Ef hann er eingöngu steikt- ur í ofni vill hann verða alltof salt- ur. Hamborgarhryggur þarf ekki nema rétt um klukkutíma suðu við vægan hita. Þerrið hrygginn vel þegar hann er soðinn og látið í ofnskúffúna. Hrærið saman ca 1 msk. af dökkum púðursykri, 3 msk. af hunangi, 2-3 msk. af sinnepi og safanum úr einni appelsínu. Smyrj- ið þessu ofan á hrygginn og bakið í 225 gráðu heitum ofni í 10-15 mín. eða þar til yfirborðið er orðið gul- brúnt og samfellt. Þessa sömu smurningu má einnig nota til þess að „glassera" skinku sem áður hefur verið soðin í potti. Skinkan þarf meiri suðu heldur en hryggurinn eða um 70 mín. á hvert kg ef hún er með beini en um 50 mín. ef um beinlausa skinku er að ræða. Nauðsynlegt er að sjóða reykt kjöt við vægan hita, á það einnig við um hangikjöt. - Á.Bj.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.