Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1985, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1985, Blaðsíða 43
DV. MÁNUDAGUR 23. DESEMBER1985. 43 xiinn Tíðarandinn Tíðarandúl^^^ Tíðarandinn Björk Ólafsdóttir var viss um að jólabækurnar væru góðar i ár. Jólasnjór- inn óþarfur „Já, mér nnnst vera komin jóla- stemmning í fólk,“ sagði Björk Ólafs- dóttir, ung námskona sem var að skoða bækur þegar jólasveinarnir af DV ónáðuðu hana. „Snjóinn vantar að vísu ennþá,“ bætti hún við „en ég er ekkert að bíða eftir honum. Það leynir sér aftur á móti ekki að jólin eru að koma þegar ösin byrjar í búðunum og jólalögin eru leikin í útvarpinu allan daginn.“ Björk sagðist hafa séð margar góðar bækur sem gaman væri að eiga. „Ég kaupi þó ekki bækur fyrir sjálfa mig, heldur til gjafa,“ sagði Björk Ólafsdóttir og hélt áfram leit- inni að bestu jólakókunum. -GK Bækurnar eru bestar „Ég les mikið og fæ mikið gefið af bókum," sagði Kristín Ingvarsdóttir, 12 ára. Hún var að skoða bækur hjá Eymundsson. „Ætli bækur séu ekki það besta sem ég fæ í jólagjöf." Efstar á óskalistanum hjá henni eru sögur Enid Blyton. Kristín sagði að rétta jólastemmn- ingin væri komin þótt enginn snjór sæist enn. „En þegar ösin er orðin svona mikil í búðunum þá er greini- legt að jólin eru á næsta leiti,“ sagði Kristín Ingvarsdóttir. GK Kristín Ingvarsdóttir taldi ösina í búðunum betra merki um að jólin væru að koma en sjálfan jólasnjóinn. Betra að hafa snjó Rakel Jóhannsdóttir, 8 ára, viðurkenndi að það yrðu ekki merkileg jól ef enginn snjór kæmi. Jólin kæmu samt þótt enginn snjór sæist. „Jólapakkarnir eru líka það skemmtilegasta við jólin,“ sagði Rakel og bjóst við að fá „alveg helling af pökkum“. Margar góðar í ár „Nei, ég lit nú reyndar ekki á mig sem mikinn bókaunnanda. Ég hef aðallega áhuga á myndabókum og listaverkabókum,“ sagði Guð- mundur B. Guðmundsson húsamálari. „Almennt spái ég helst í bækur til jólagjafa. Bækur eru alltaf vel þegnar.“ Guðmundur taldi að jólabækurnar væru með betra móti að þessu sinni. „Ég held að nú megi finna margan góðan grip til að gefa,“ sagði Guðmundur. He-Man kall Hann Þórður Þóroddsson, 5 ára, var ekki í minnsta vafa um að jólin væru að koma. Helst vildi hann fá He-Man kall í jólagjöf. „Ég held að ég fái einn svoleiðis,“ sagði hann með eftirvæntingu í augunum. BILALEIGA REYKJAVÍK: AKUREYRI: BORGARNES: VÍÐIGERÐI V-HÚN.: BLÖNDUÓS: SAUÐÁRKRÓKUR: SIGLUFJÖRÐUR: HÚSAVÍK: EGILSTAÐIR: VOPN AFJÖRÐU R: SEYÐISFJÖRÐUR: FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: HÖFN H0RNAFIRÐI: 91-31815/686915 96-21715/23515 93-7618 95-1591 95-4350/4568 95-5884/5969 96-71498 96-41940/41594 97-1550 97-3145/3121 97-2312/2204 97-5366/5166 97-8303 interRent p Skáia feii er opið í kvöld KRISTJAN KRISTJÁNSSON LEIKUR IIUII SIS n FLUGLEIDA , ' HOTEL Örfínt! Hárfínt! HÁRLAKK örfínn úðinn sér til þess að halda hár- greiðslunni fisléttri og fjaðrandi. Það er kom- ið að þér að sannreyna SHAMTU. SHAMTU HÁRLAKK fyrir: Venjulegt hár Feltt hár Slitið hár Undirstrikaðu glæsileik hársins með: (SHflMTU) Heildsala: Kaupsel Laugavegi 25 S: 2 77 70 og 2 7740

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.