Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1985, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1985, Blaðsíða 25
DV. MÁNUDAGUR 23. DESEMBER1985. , 25 Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir íþróttir Þjófnadur hjá Arsenal í bleytunni í Old T rafford Frá Sigurbirni Aðalsteins- syni, fréttamanni DV á Eng- landi. „Það var mikil pressa á okkur í leiknum en okkur tókst að halda marki okkar hreinu. Síðan náðum við þeim úrslit- um sem við vi ldum ná - skoruðum. Ég er sérstak- lega ánægður með frammistöðu ungu strákanna þriggja í Arsenal-liðinu. Þeir eru ekki nema 19 ára,“ sagði Don Howe, stjóri Arsenal, eftir að lið hans hafði sigrað Mán. Utd. í ausandi rigningu á Old Trafford, 0-1, á laugardag. Fyrsti tapleikur United á heimavelli í 1. deild á leiktímabilinu. Liðið fékk þó mun betri færi en Arsenal í leiknum, misnotaði meðal annars vítaspyrnu. John Lukic, besti leikmaður Arsenal í leiknum, varði frá Norman Whiteside. Þrátt fyrir tapið hefur United fjögurra stiga forustu í l.deild. Liverpool og West Ham gerðu jafntefli í sínum leikjum. „Arsenal nýtti eina færið sem liðið fékk í leikn- um,“ sagði Peter Jones, fréttamaður BBC, á Old Trafford. Það var á 75 mín. Whiteside ætl aði að spyrna frá nokkru utan vítateigs en knötturinn fór í bakið á samherja hans. Hrökk inn í vítateiginn. Nýi miðherjinn hjá Arsenal, Niall Quinn, komst frír að markinu. Bailey STAÐAN Staðan er nú þannig eftir leik- ina á laugardag. 1. deild Man. Utd. 22 15 4 3 40-13 49 Liverpool 22 13 6 3 46-21 45 West Ham 22 13 6 3 38-19 45 Chelsea 22 13 5 4 36-23 44 Sheff. Wed. 22 12 5 5 35-32 41 Everton 22 12 4 6 48-28 40 Arsenal 22 11 5 6 25-25 38 Luton 22 9 7 6 35-25 34 Newcastle 22 9 6 7 30-32 33 Tottenham 21 9 4 8 38-26 31 Nott. For. 22 9 3 10 34-35 30 Watford 21 8 5 8 37-35 29 Southampton 22 7 6 9 30-31 27 QPR 22 8 3 11 20-27 27 Coventry 22 6 6 10 27-34 24 Man. City 22 5 7 10 26-32 22 A. Villa 22 5 7 10 26-33 22 Leicester 22 5 7 10 28-40 22 Oxford 22 4 8 10 32-46 20 Birmingham 21 5 2 14 13-31 17 Ipswich 22 4 3 15 17-37 15 WBA 21 1 5 15 16-52 8 2. deild Norwich 22 12 6 4 45-22 42 Charlton 21 12 4 5 39-22 40 Portsmouth 20 12 3 5 34-16 39 Barnsley 22 10 6 6 25-17 36 Wimbledon 22 10 6 6 28-22 36 Sheff. Utd. 22 9 7 6 38- 31 34 C. Palace 21 10 4 7 28-23 34 Brighton 22 9 4 9 37-33 31 Blackburn 22 8 7 7 24-28 31 Stoke 22 7 9 6 27-26 30 Leeds 21 8 5 8 26-33 29 Oldham 22 8 4 10 33-36 28 Bradford 20 8 3 9 24-31 27 Hull 21 6 8 7 33-29 26 Shrewsbury 22 7 5 10 28-32 26 Grimsby 22 6 7 9 34-33 25 Sunderland 21 7 4 10 20-31 25 Middlesbro 21 6 6 9 19-25 24 Millwall 21 7 3 11 28-38 24 Fulham 19 7 2 10 21-27 23 Huddersfield 22 5 8 9 31-39 23 Carlisle 20 3 3 14 19-47 12 — sama úrfellið á Anfield þar sem Liverpool og Newcastle gerðu jafntef li. Heppnisstig West Ham í Luton Charlie Nicholas. URSLIT Farið að ráðum jísl. stráksins Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni, fréttamanni DV á Englandi. Nýlega var það haft eftir Orra Smárasyni, ungum pilti frá Selfossi, í enska knattspyrnublaðinu Match Weekly, að hann hefði skorað úr 12 vítaspymum í röð hjá hinum kunna markverði WBA, Tony Godden. Það var þegar Orri var í PGL-skólanum á Englandi og hann sagði að ráðið til að skora hjá Godden úr vítum væri að skjóta á markið lágt til vinstri. Enska stórblaðið The Guar- dian skýrði frá þessum ummælum Orra. í næsta leik WBA eftir að frétt- in birtist var tekið eftir því að þegar John Aldridge, Oxford, skoraði hjá Godden spymti hann knettinum lágt í markið til vinstri. - hsím Úrslit í ensku knattspyrnunni á föstudag og laugardag: 1. deild Birmingham-Chelsea 1-2 Coventry-Everton 1-3 Liverpool-Newcastle 1-1 Luton-West Ham (M) Man. Utd-Arsenal 0-1 Sheff. Wed-Man. City 3-2 Tottenham-Ipswich 2-0 Southampton-Nott. Forest 3-1 2. deild Charlton-Grimsby 2-0 Fulham-Middlesbro 0-3 Huddersfield-Oldham 2-0 Norwich-Millwall 6-1 Stoke-Barnsley 0-0 Wimbledon-Sheff. Utd 5-0 Föstudagur: Bradford-Brighton 3-2 Shrewsbury-Blackburn 2-0 3. deild Bolton-Doncaster 2-0 Bristol City-Bournemouth 1-3 Newport-Wolverhampton 3-1 Reading-Plymouth 4-3 Phil Neal, fyrrum fyrirliði Liver- pool, lék sinn fyrsta leik sem stjóri Bolton. David Cross skoraði bæði mörkin, annað eftir fyrirgjöf Neal. Cross var mjög kunnur leikmaður með WBA og fleiri liðum hér á árum áður. 4. deild Chester-Peterborough 2-1 Exeter-Aldershot 2-0 Orient-Southend 3-0 Preston-Northampton 1-1 Rochdale-Torquay 5-0 varði spyrnu hans en knötturinn hrökk til Charlie Nicolas. Hann renndi knettinum í autt markið. Aðstæður til knattspyrnu voru erfiðar vegna úrhellisins og leikurinn ekki mikið fyrir augað. Hins vegar mikil b arátta. Þetta var einn af þessum leikjum þar sem ekkert heppnaðist hjá United. Lukic líka mjög snjall í marki Arsenal. Greinilegt að það hafa þó myndast geigvænleg göt hjá Man. Utd. vegna meiðsla sterkra leikmanna. Það var líka úrhellis rigning á Anfield þegar Liveipool fékk Newcastle í heimsókn. Jafntefii varð, 1-1, í mjög góðum leik. Daninn Jan Mölby lék ekki með Liverpool vegna meiðsla og tók John Wark stöðu hans. Newcastle var betra liðið framan af. Á 5.mín felldi Mark Lawrenson Paul Gascogine, miðherja New- castle, innan vítateigs. Dómarinn kunni, Keith Hackett, dæmdi vítaspyrnu á Liverpool. Hins vegar veifaði línuvörð ur áfram. Hackett ræddi við hann og dæmdi sfðan aukaspyrnu á Newcastle vegna rangstöðu. Newcastle náði forustu á 22. mín. Peter Beardsley fékk góða sendingu inn fyrir vörn Liverpool. Komst inn í vítateiginn og lyfti síðan knettinum yfir Bruce Grobbe laar i markið. Bakverð- inum Steve Nicol tókst að jafna á 35. mín. eftir mikinn einleik. Var þó kominn i þrönga stöðu innan vítateigs en tókst að pota knettinum í markið með tánni. Eins og í undanförnum leikjum var Ian Rush heldur dapur. Misnotaði tvívegis góð færi í síðari hálfleiknum. Hefur nú ekki skorað í sex leikjum í röð. Lítið var um færi þó í síðari hálfleiknum og úrslitin talin sanngjörn. Þegar 20 mín. voru til leiksloka kom stjóri Liverpool, Kenny Dalglish, inn á í stað Wark. Heldur lifnaði yfir leik Liverpool við það þó það nægði ekki til að knýja fram úrslit. West Ham liðið, sem ekki hefur tapað í 18 leikjum í röð, var hins vegar heppið að ná stigi á gervigrasinu í Luton. Þar var heimaliðið lengstum betra, einkum þó í síðari hálfleiknum. Leikmönnum Luton hins vegar alveg fyrirmunað að geta skorað - jafnvel hitt markið. Stein og Hill fóru einkum illa að ráði sínu. Chelsea hlaut þrjú stig í Birmingham og er nú aðeins einu stigi á eftir Liverpool og West Ham í fjórða sæti fimm stigum á eftir efsta liðinu, Man. Utd. Það var þó tæpt hjá Chelsea gegn Birmingham. Pat Nevin skoraði sigur mark Lundúna liðsins tveimur mínútum fyrir leikslok. Leikmenn Chelsea voru þá einum færri. Murphy hafði verið rekinn af velli rétt áður fyrir mótmæli, þegar Nick Plattnauer jafnaði fyrir Birmingham í 1-1. Chelsea náði forustu í leiknum í fyrri hálfleik þegar Jim Hagan sendi knöttinn í eigið mark. Gordon Davies hjá Man. City var mikill klaufi að skora ekki og jafna í 3-3 á lokamínútunum gegn Sheff. Wed. Fékk tvíveg- is opin færi sem hann misnotaði. Leikurinn var mjög fjörugur. Lillis skoraði fyrsta markið fyrir City en þá fóru leikmenn Sheff. Wed. heldur betur í gang. Skoruðu þrjú mörk fyrir hálfleik, allt skallamörk. Fyrst Gary 9 Thompson, þá Megson og síðan Sterland. Maðurinn bak við þessi mörk var Mar- wood, sem átti stórleik. í síðari hálfleiknum var Man. City hins vegar mun betra liðið. McNab minnkaði muninn í 3-2 og svilla að ráði sínu að ná ekki að minnsta kosti jafntefli fyrir Manchester-liðið. Glenn Hoddle var maðurinn bak við sigur Tottenham gegn Ipswich í Lundúnum. Átti snilldarleik. Hann átti frábæra sendingu á Clive Allen á 21. mín. og Allen skoraði. Fimmta mark hans í fjórum leikjum fyrir Tottenham. Hoddle skoraði svo sjálfur síðara mark Tottenham. Ýtti knettinum í markið eftir að Paul Cooper, markvörður Ipswich, hélt ekki knettinum eftir skalla Mark Falco. Ipswich-liðið lék oft mjög vel í leiknum, miklu betur en staða liðsins í 1. deild gefur til kynna. Ray Clem- ence hafði miklu meira að gera í Tottenham-markinu en Cooper hinum megin. Varði vel. Áhorfendur 18:845 en á flestum völlum voru áhorfendur fáir vegna jólaanna. Til dæmis ekki nema rúmlega 42 þúsund á Old Trafford í Manchester. Meistarar Everton unnu sannfærandi sigur í Coventry. Það er annað hvort í ökkla eða eyra hjá leikmönn- um Liverpool-liðsins. Gary Lineker skoraði tvö af mörkum Everton. Hefur nú skorað 18 mörk í l.deild á leiktímabilinu. Graeme Sharp skoraði þriðja mark Everton en Terry Gibson mark Coventry. Á föstudag sigraði Southampton Nottingham Forcst, 3-1, á heima- velli sínum. Steve Moran skoraði tvö af mörkum Dýrlinganna, David Armstrong það þriðja. Franz Carr skoraði mark Forest. Norwich heldur áfram sigur göngu sinni í 2.deild og skoraði á laugardag sex mörk gegn Millwall. Sheff. Utd. steinlá fyrir Wimbledon í Lundúnum. Kapparnir kunnu, Peter Withe og McNaught hjá Sheffi- eld-liðinu, voru reknir af velli en staðan í leiknum var þá þegar orðin Ijót hjá liðinu. Þá voru tveir leikmenn Grimsby reknir af velli á leikn- um við Charlton á Selhurst Park. -hsím.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.